Vísbending - 16.06.2006, Side 4
V
ISBENDING
(Framhald afsíðu 1)
sveiflan milli hæsta og lægsta gengis
mest á Islandi. Hlutabréfaverð ájapanska
markaðinum hefur reyndar líka lækkað
um nálægt 20% frá hæstu stöðu á árinu.
Afþeim mörkuðum sem sjást ámyndinni
hefur bilið milli hæsta og lægsta gengis
verið mest í Svíþjóð, eða 13%, og 12%
í Þýskalandi. Lækkunin frá áramótum er
líka mest hér á landi, eða um 3%.
(Framhald af síðu 3)
um má oft skilja að verkefni evrópskra
blýantsnagara sé einkum að íþyngja
venjulegu fólki með flóknu reglukerfi.
í áðumefndri könnun kom fram andstætt
sjónarmið. Þar töldu menn að sameigin-
legir Evrópustaðlar gerðu það að verkum
að nú væri mun auðveldara en áður að
selja vörur alls staðar á svæðinu. Menn
þyrftu ekki að eiga við mismunandi reglur
í hverju landi um sig.
Einn af ókostum alþjóðavæðingar er
sagður sá að allir verði eins. Einkum hafa
andstæðingar hennar snúist harkalega
gegn bandarískum Iramborgarakeðjum.
Reynslan virðist hins vegar ekki benda
til þess að vömúrval verði fábreytilegra
heldur þvert á móti hafí það aukist. Hér
á landi sjá menn erlenda osta og skinku
sem áður voru bannvara, svo að dæmi
sé tekið.
Eitt af því sem hefur lækkað er dreif-
ingarkostnaður. Nú hafa stórar innkaupa-
keðjur sameinast og nýta sér hagkvæmni
stærðarinnar til þess að gera hagkvæmari
innkaup en áður og einfalda birgðahald
og dreifingu. A móti þessu hafa kom-
ið hækkandi laun og aukinn hagnaður
smásala.
Ein Evrópa?
Flæði vinnuafls um Evrópu er nú
frjálst að mestu. Hér á landi hafa
menn séð að útlendingum hefur fjölgað
mikið. Stjómmálamenn reyna meira að
segja að höfða sérstaklega til kjósenda af
erlendum uppruna. Þetta er þó ekki vegna
frjáls flæðis vinnuafls innan Evrópu því
að flestirútlendingarsem hérvinnakoma
af öðrum ástæðum. Þeir hafa verið ráðnir
vegna þess að mikill skortur hefur verið á
vinnuafli í ákveðnum störfum, til dæmis
byggingarvinnu, þrifum og fiskvinnslu.
Það var ekki fyrr en 1. maí síðastliðinn
semfólki fránýjum löndumEvrópusam-
bandsins varð frjálst að því að vinna hér
á landi án sérstakra leyfa.
Tungumálaörðugleikar munu alltaf
valda því að menn geta ekki farið milli
landa og keppt á jafnréttisgrunni um
hvaða starf sem er, einfaldlega vegna
þess að sá sem kann tungumál heima-
manna illa eða alls ekki getur ekki sinnt
Margir íslenskir fjárfestar hafa keypt
erlend hlutabréf og þeir sem það gerðu
eru nú kátir því að gengisfellingin hefur
þegar tryggt þeim góða ávöxtun á þeim
hluta verðbréfasafnsins. Til lengri tíma
litiðjafnast áhrif gengisfellingarinnarút
og það verður hin undirliggj andi ávöxtun
hlutabréfanna sjálfrasem ræðurþví hvort
menn tapa eða græða á fjárfestingunni.
öllum störfum. Engu að síður sjáum við
að útlendingar eru famir að taka að sér
fleiri störf en áður, til dæmis kennslu við
háskóla, en nú þykir ekki tiltökumál að
kennt sé á ensku þótt það hefði verið úti-
lokað fyrirnokkrum árum. Nýlega birtist
frétt urn að hópurdanskrahjúkmnarfræð-
inga hefði verið ráðinn í afleysingar að
Landspítalanum. Sjúklingar hafa þegar
kynnst samskiptum við útlendinga þvi að
margt af ófaglærðu starfsfólki spítalanna
er af erlendu bergi brotið og það talar
nrargt litla íslensku.
Þróunin heldur áfram
Kannski hafa menn verið býsna óþol-
inmóðir árið 1992 og búist við því
að breytingar yrðu fyrr á ferðinni en raun
ber vitni. Lítill ágreiningur virðist vera
um það að Islendingar hafí grætt á því að
gerast aðilar að Evrópska efnahagssvæð-
inu. Engir stjómmálamennhaldaþví nú á
lofti að þeir hafí staðið á móti inngöngu
íslands á svæðið og sumir virðast jafnvel
hreyknir af því að hafa stutt það með
hjásetu. Möguleikar Islendinga erlendis
hafa margfaldast en erlend fjárfesting
hér á landi hefur ekki verið jafnmikil og
margir hafa vænst. Það er athyglisvert
að i mörgum byggðarlögum, þar sem
menn hafa almennt hneigst til þess að
vera á móti þátttöku Islendinga i erlendu
samstarfi, fagna þeir nú þegar erlendir
aðilar ijárfesta í heimabyggð þeirra. Er
þar nærtækt að nefna Norð-Austurland
þar sem mestur stuðningur hefur yfírleitt
verið við Framsókn, Alþýðubandalag og
síðar Vinstri græna af öllum svæðum.
Nýlegar sveitarstjórnarkosningar gætu
bent til þess að stjórnmálaviðhorf á þessu
svæði væru að breytast í kjölfar breyttra
aðstæðna.
A næstu árum munu áhrif þess að ný
lönd eru komin inn í ES koma fram. Þau
stefna flest að því að taka upp evruna
og þá verður til enn stærri markaður þar
sem verðlagning er algerlega gegnsæ. A
þessu svæði er bæði kaupgj ald og verðlag
mun lægra en í löndunum sem fyrir voru
og það verður fróðlegt að sjá hve langan
tíma það tekur að jöfnuður náist.
1 Aistrich, Sagafi og Sciglimpaglia: European Business For-
um, Issue 24, Expectations Unfulftlled,
Aðrir sálmar
v____________________________________y
( ~ ^
Stunga býflugunnar
Jóhann Hauksson segir í Morgunblað-
inu 13. júní: „Góður fjölmiðill á að
stinga eins og býfluga út um allar trissur
og á ekkert að fara á taugum yfír svona
hlutum. Það er nú bara mín skoðun.“ Jó-
hanni sámar að gerð er athugasemd við
það að hann blandi saman eigin skoðun-
um og fréttaskýringum. Nú er það vandi
að skrifa þannig að skoðanir höfundar
komi hvergi fram. Menn velja og hafna
efni og em þar með strax sekir að þvi að
gera ekki öllum jafnt undir höfði. Frétta-
skýringar um einstök málefni em með
vinsælasta efni blaðanna. Þeir sem hafa
áhuga á málinu sökkva sér niður í þær
og hinir sem lítið vita koma oft stómm
fróðari frá lestrinum. í flóknum málum
er það nrjög gagnlegt að geta sett sig inn
í aðalatriði málsins með því að lesa góða
fréttaskýringu. Morgunblaðið hefur oft
tekið mál mjög vandlega fyrir og safnað
santan geysimiklum fróðleik. Galli við
fréttaskýringar Morgunblaðsins erhversu
langar þær hafa oft verið. Jafnvel frétta-
þyrstustu lesendum fallast hendur þegar
við blasir hver breiðsíðan á fætur annarri.
Fréttablaðið byggist upp á fréttum sem eru
svo stuttar að nánast ómögulegt er að fj alla
ítarlega um viðfangsefnið. Því er mjög
mikilvægt að blaðið birti vandaðar frétta-
skýringar, lesendum til glöggvunar.
Viðhorf Jóhanns um að fjölmiöill eigi
„að stinga út um allar trissur" er vissulega
algengt rneðal fjölmiðlamanna. DV gekk
út á það að stinga og særa. A endanum
hafði það ofboðið lesendum svo að þeir
hurfu að mestu. Nema eigendur hafi „far-
ið á taugum“. Góður íjölmiðill á fyrst og
fremst að segja fréttir á glöggan og hlut-
lausan hátt. Fjölmiðlamenn sem setja fram
sína skoðun á hverri frétt með alhugasemd,
eins og Sigmundur Emir og Omar Ragn-
arsson, eru ekki góðir fréttamenn, jafnvel
þó að þeir geri margt vel. Miðill eins og
Fréttablaðið sem er svo nátengdur mikl-
um hagsmunum er stöðugt undir smásjá.
Hvaða fréttir flytur blaðið og hverjum er
sleppt? Hvaða fréttir eru settar á forsíðu
og hverjar á innsíður? Það er ánægjuefni
ef ritstjóm blaðsins vill vera hlutlaus í
fréttaflutningi og vali á fréttum. bj
V__________________________________ J
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: '
Benedikt Jóhannesson
Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23,
105 Reykjavík.
Sími: 512-7575. Myndsendir: 561-8646.
Netfang: visbending@talnakonnun.is.
Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun
Háskólans.
Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita
l^án leyfis útgefanda._______________y
4