Frjáls verslun - 01.03.1945, Side 9
Talið frá vinstri: Gunnar Magnússon, verzlunarmaður; Gunnar Ásgeirsson, stórkaupmaður; Baldur Pálmason, verzl-
unarmaður, ritari Y. R.; Konráð Gíslason, kaupmaður, varaform V R; Oddur Helgason, framkvæmdastjóri, forinaóur
V. R.; Lár.is Blöndal Guðmundsson, hóksali; Guðjón Einarsson, verzlunarmaður, gjaldkeri V R; Pétur Olafsson,
framkvæmdastjóri; Ludvig L. Hjálmtýsson, framkvæmdastjóri; Sveinn Olafsson, verzlunarmaður.
fátækir, sitji við sama borð, þar sem athafna-
frelsið nýtur fullrar viðurkenningar og engum
er gert hærra undir höfði en öðrum; þar sem
tortryggni og togstreitu er útrýmt og allir hafa
það hugfast, að varanleg viðskipti þrífast ekki,
ef þröngir einkahagsmunir sitja í fyrirrúmi,
heldur því að eins að lögmál gagnkvæmra rétt-
inda og hagsmuna sé viðurkennt í orði og verki.
Kaupsýslumenn frá 52 þjóðlöndum hafa fyrir
sitt leyti tekið upp stefnu, sem samrýmist fylli-
lega þeirri hugsjón, að veröldin verði samfelld
og samstarfandi heild. Því fyrr sem þeir menn,
er mest kveður að í alþjóðastjórnmálum, leggja
inn á sömu braut, því fyrr rætist sá draumur,
að okkur mönnunum auðnist að búa innbyrðis
sáttum í „einum heimi“ — heimi, þar sem hvert
þjóðfélag nýtur fullra „heimilisréttinda“, frið-
helgi og verndar allsherjar samfélagsins, heimi,
sem nýtur trausts og hollustu einstaklinganna,
af því að hann hefur veitt hverjum einstaklingi
eftirsóknarverðustu gæði þessa lífs: frelsi og
mannréttindi.
ÞRJALS VERZLUN
9