Frjáls verslun - 01.03.1945, Page 10
A verzlunarháskóla í Bandaríkjunum.
Tuli<\ frá vinslri: Þorgríinur Þorgrímsson, Ólafur li. Ólafssou, Thor Thors, John G. Gill, forscti Rider College, Ólafur
Benediktsson og Þorstcinn Arnason.
Fjöldi ungra, íslenzkra verzlunarmanna hefur í
þessu stríði lagt leið sína til Bandaríkjanna, bæði í
kaupsýsluerindum og eins til þess að stunda nám við
ýmsa háskóla þar vestra.
Ungur Reykvíkingur, Þorgrímur Þorgrímsson
(Sigurðssonar, skipstjóra), kom heim fyrir
skömmu, eftir eins árs dvöl við Rider College
í borginni Trenton í New Jersey, og þar eð
„Frjáls verzlun" þykist þess fullviss, að les-
endunum muni leika nokkur forvitni á að frétta,
hvernig hinum ungu mönnum reiðir af í landinu
stóra fyrir handan hafið, þá hefur hún hitt Þorgrím
að máli:
„Er það rétt, að Rider College sé einn elzti og
þekktasti verzlunarskóli í Bandaríkjunum?"
10
„Ég held nú það,“ svarar Þorgrímur. „Skólinn var
stofnaður árið 1865 af auðmanni nokkrum, sem
Rider hét, og þannig er nafnið til komið. Stoínunin
hefur frá upphafi notið mjög mikils álits, enda var
strax í byrjun lögð rík áherzla á, að kennaraliðið
væri eingöngu skipað völdum hæfileikamönnum, og
hefur þeirri venju verið haldið æ síðan. Fjölmargir
þeirra manna, sem nú eru áhrifamestir í verzlunar-
og fjármálum Bandaríkjanna, stunduðu nám við
Rider College á sínum yngri árum, og ætti sú stað-
reynd að vera mönnum sönnun um verðleika skólans
og virðingu."
„Það voru fleiri Islendingar þarna með þér í
fyrra?“
„Já, við hófum nám í skólanum um svipað leyti
FRJÁLtí VERZLUN