Skólavarðan - 01.02.1982, Qupperneq 2
Tildrögin að stofnuninni voru þau að haldinn
var fundur í Hugaskóla í Reykjavík 11. nóv. 1981.
X fundinn voru mættir skólasafnverðir innan Felags
bQkasafnsfræðinga ásamt fleira áhugafólki innan
félagsins. Fundarefni var að kanna hvort ekki væri
grundvöllur fyrir stofnun heildarsamtaka skólasafn-
varða á landinu. Fundarmönnura fannst að víða væri
raisrsBmi hvað varðaði vinnutíma og launamál og að
samvinna væri hverfandi lítil og að hver og einn
væri að bauka í sínu horni og að margir væru að
framkvæma sömu hlutina hver á sínu safni.
X fundinum kom fram tillaga um að stofna
deild innan Ðókavarðafélags íslands og var samþykkt
að setja nefnd í málið. Nefndin vann síðan að
öllum undirbúningi, gerði uppkast að lögum fyrir
deildina og boðaði til stofnfundar. Xrangurinn
varð síðan Deild skólasafnvarða innan Bókavarða-
félags lslands.
X stofnfundinum komu fram ýmsar tillögur um
verkefni sem deildin gæti unnið að. Þar má nefna
samvinnu á sviði efnislyklunar, heimildalista,
safnkennslu, ráðgjöf og bókalista með umsögnura.
Einnig var rætt um samningu grunnlista fyrir frara-
haldsskólasöfn, not af verkefnum nema í bókasafns-
fræði, kynnisferðir á söfn o.fl.
-2-