Fréttabréf Bókavarðafélags Íslands - 17.07.1971, Síða 2

Fréttabréf Bókavarðafélags Íslands - 17.07.1971, Síða 2
2. eyðilagði mikinn hluta háskólabyggingannao I febrúar 1971 var þessu verkefni þó lokið og skýrslan lögð fyrir háskólaráð» Verkefnið er í tveim megin-hlutum. Pyrst er gagngerð athugun á starfsemi allra hinna 12 sérdeilcla bókasafnsins, og seinni hlutinn eru tillögur til umbóta» I þeim hluta má nefna tillögur um námskeið fyrir starfsmenn safnanna, samræmingu í vinnu- aðferðum hinna ýmsu safna, miðstöð fyrir tæknilega hlið bókasafnsþjónustunnar (flokkun, skráningu o. s. frv.) reglur fyrir skiptingu fjármagnáánstil bókakaupa milli hinna ýmsu deilda skólans, bókabúð fyrir háskólastúdenta, bókaekipti og loks er lögð fram ítarleg tillaga um skipulagningu væntanlegrar bókasafnsbyggingar og reiknuð út stærðarhlutföll hverrar deildar með tilliti til framtíðar bóka- og bóka- varðarþörf skólans. Alls er skýrslan 91 áiða f jölrituð og á spænsku. "FYRIR BÖRF" "Þið hafið reist þeim höll, sem er alltof falleg, þau munu rífa hana niður", sögðu hinir svartsýnu. Þessi höll er samsetning níu, hvítra hringlaga bygginga, sem settar voru niður milli u. þ b. hundrað ferhyrninga í blokkahverfi. Hún er eyja leyndar- dóma og mennta í miðju bæjar, sem ekki hafði af mörgu slíku að státa. Borgin heitir Clamart (íb. þO þús.) við Signufljót í nánd við París. Höllin er barnabókasafn, sem bömin rífu e k k i niðurj en lögðu hinsvegar samstundis undir sig. Og hvað dregur börnin, að? Ef til vill er það skjólið, sem þetta hús veitir, innan þess eru þau örugg, því þetta er þeirra hús. í>að gæti líka verið ljós viðurinn á veggjum og loftum, loirflícarnar á gólfunum, öll þessi náttúrulegu efni, sem vekja þægindakennd, eða kannski hunangsguiir litir ljósanna, húsgagnanna og bókahillnanna. "Formið er ekki fyrir mestu", segja arkitektarnir fjórir, sem byggðu húsiðs "Fegurð byggingarlistarinnar skapast af því lífi , sem myndast innan byggingarinnar". Bömin sanna orð þeirra. Nú eftir að starfsemi safnsins er hafin, keppast allir um að lofa það, en sú var ekki raunin, þegar tillögur kornu fyrst fram um að byggja það þrem árum áður, Menn töldu þörfina á fleiri bílastæðum miklu brýnni. Bókasafnið var homreka, allt þar til stofnað var félag bókavina. Félagið hafði það að markmiði að glæða lestTarlöngun bama og veita þeim aðstöðu til að svala henni. Hér skal ekki lýst öllu því, sem þetta félag þurfti á sig að leggja með fiáröflunum og fleiru. Þeir fengu í lið með sér sérhæfðan bókavörð, og að lokum lét bæjarstjóm Clamart undan og gaf einn hcktara lands undir bygginguna. Lóðin er í einu bamflesta hverfi, sem fyrirfinnst í útborgum Parísar og voru þar um sex þúsund böm á litlu svæði, alls óvön lestri utan námsbókanna. Tveim árum síðar var safnið opnað og eitt þúsnil böm innrituðust fyrstu 3 dagana. Nú annar safnið varla eftirspurn lengur. Þetta bókasafn er talið hafa gefist svo vel og reynst bömun\im, sem aðgang höfðu að því svo . mrkilvægt að það hefur vakið athygli bæði í Frakklanai og annarsstaðar. Það hefur vakið áhuga f.'ölda annarra bæjarfélaga á bókasafnsbyggningu fyrir börn og þá einkum þar sem stór blokkahverfi er að finna, með þúsundum íbúa en litlu við að vera fyrir böm og unglinga, svo sem er í ýmsum hverfum Reykjavíkur og nágrennis. G. S. HUGLEIÐING UM SÉRFRÆÐIBÖKASÖFN Allt fram á seinustu ár hefur lítil rækt verið lögð við sérfræðbókasöfn hér á landi og hlutverk þeirra mjög vanmetið. Á þessu hefur nú orðið umtalsverð breyting, sem betur fer, en þó er ástand margra sérfræðibókasafna enn langt frá því viðunandi. Má þar einkum nefna húsnæðisskort, sem háir mjög ymsum þessara safna og hefur staðið A þeim fyrir þrifum. Vert er þó að geta þess, að sums staðar hefur verið úr þessu bætt á síðustu árum og vonandi, að því verði haidið áfram. I heimi örrar tækniþróunar og nýunga á öllum sviðum er einkar mikilvægt, að til séu góð sérbókasöfn í stofnunum og fyrirtælcjum, svo að hægt sé að leita upplýsinga og fræðast um eitt og annað, sem viðkemur starfsemi og rekstri hverrar stofnunar fyrir sig. Þótt margt fróðlegt sé að finna í almenningsbókasöfnum, geta þau aldrei orðið að sama gagni og sérsöfnin, og svo eru þau siðarne'frid á sjálfum vinnustaðnum, og því þægindi og tímaspamaður að því að nota þau.

x

Fréttabréf Bókavarðafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Bókavarðafélags Íslands
https://timarit.is/publication/285

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.