Helgarpósturinn - 06.04.1995, Side 6
JEPPAR
• ¥ >
löisíft
FIMM-TIU ÐWGUJ R»6
Hirað
kosta
breyting-
arnar?
Eftalið er sam-
an, hvað allar
breytingarnar á
hvorum bíl fyrir
sig kosta, kemur
eftirfarandi
dœmi út:
Samtals verð á
nauðsynlegustu
varahlutum og
vinnu við ham-
skiptin, kostaði
hjá Bílabúð
Benna fyrir Patr-
olinn 277.600 kr.
stgr. Við þetta
verð bœtast
aukahlutirnir
(millikœlir, spil
o.fl.) og dekkin og
felgurnar. Heild-
arkostnaður við
breytingar jepp-
ans sem myndin
er af nálgast því
600.000 kr.
Fyrir Terranoinn
eru sambœrileg-
ar tölur um
170.000 og um
400.000. m
Nissan Terrano II oa Nissan Patrol
breytt fyrir íslenskar aðstæöur
MISSAIU PATROL.
GERÐUR AÐ ALVÖRU
FJALLABIL
Bíllinn sem við fjöllum um hér
og myndin er af, Nissan Patrol
2,8 túrbódísel árgerð 1995, var
breytt hjá Bílabúð Benna, Vagn-
höfða 23, Reykjavík. pósturinn
leitaði til fagmanna þess fyrir-
tækis til að fræðast nánar um
þessar breytingar.
Við breytingu á slíkum bíl ligg-
ur það til grundvallar, að billinn
er settur á 35 tommu dekk. Um
það snúast jeppabreytingar yfir-
leitt, að brejda bílnum þannig að
hann geti notfært sér stór dekk.
Það eru í raun dekkin sem
stjórna því, hvað bíllinn drífur,
þar af leiðandi þarf að breyta öll-
um bílnum fyrir dekkin. Breyt-
ingarnar eru ein keðja og engin
keðja er sterkari en veikasti
hlekkurinn. Það er því mikilvæg-
ast að ákveðið sé strax í upphafi,
hve langt á að ganga í breyting-
unum, þannig að þær séu allar í
samræmi. Patrolinn býður upp á
einstaklega góða möguleika til
breytinga. Hann er búinn gorma-
fjöðrun að aftan og framan,
diskabremsum á öllum hjólum
og mjög sterkum hásingum.
Hann er iíka langur á milli hjóla
og rúmgóður og síðast en ekki
síst er hann tiltölulega léttur.
Margir hafa kosið að setja 33
tommu dekk undir Patrolinn og
breyta honum í samræmi við
það. Reynslan hefur þó sýnt, að
35 tommu dekk koma enn betur
út, þau eru tveimur tommum
hærri, sem þýðir að þau hækka
bílinn um eina tommu. Þau hafa
reynst bjóða mun betra grip í
snjó, sem er mjög mikilvægt. Það
má líta á 35 tommu dekkin sem
lágmarksstærð fyrir Patrolinn, ef
ætlunin er að útbúa hann fyrir
akstur í snjó og upp á jöklum,
auk þess sem þau gefa bílnum
aukna hæð undir kúlu sem er
líka betra fyrir sumaraksturinn.
Hjá Bílabúð Benna er komin ára-
löng reynsla af breytingum á
Patrol-jeppum sem hefur leitt til
mikillar framþróunar á því sviði.
í upphafi var látið nægja að bod-
dýlyfta þeim en nú hafa ástralsk-
ir gormar tekið við. Ástralskir
jeppamenn hafa verið að ein-
beita sér að svipuðum hlutum og
við íslendingar, það er að segja,
þeir aka mikið við svipað erfiðar
aðstæður og við. í Astralíu er
lengsta vegakerfi án malbikunar
í heimi. Þeir eru því við þróun
breytinga mest að hugsa um að
það fari vel um farþega, þótt bíll-
inn sé vel hlaðinn og ekið sé á
vondum vegum eða utan vega.
Þeir hafa hannað þennan fjöðr-
unarútbúnað sem notaður er
núna í breytingarnar á Patroln-
um. Búnaðurinn, í þessu tilfelli
gormar, er sérhannaður fyrir
hverja bílategund, meira að
segja er tekið tillit til þess hvort
bíllinn er búinn spili eða ekki.
Patrolinn er með sérstaka dem-
para og sérstaka gorma, sem eru
valdir eftir því líka hvort bíllinn
er með spil eða ekki eða til dæm-
is hvort hann er með aukatank
eða ekki. Það sérstaka við þessa
áströlsku gorma er það aðallega,
að þeir eru misvafnir: Þeir eru
þykkir neðst og þynnast eftir því
sem þeir snúast ofar. Þetta gefur
miklu betri og lengri fjöðrun, án
þess að hún verði mjög stíf.
Þegar bíll með gormafjöðrun
er hækkaður upp skekkjast há-
singarnar undir bílnum. Þær þarf
að rétta af með því að færa ská-
stífurnar; fremri stífurnar eru
síkkaðar niður til að breyta
spindilhallanum, sem er nauð-
synlegt til að bíllinn rétti sig eðli-
lega af eftir beygju. Mikilvæg við-
bót er stýrisdempari, sem er af
Rancho-gerð í þessum Patrol. Að
aftan er demparafestingum
breytt, til að ná hámarks fjöðr-
unarvegalengd.
Núna eru komnar á markaðinn
ný gerð af brettaköntum, sem
þykja mun fallegri en eldri gerð-
in. Það er líka skorið meira úr
brettunum, sem þýðir meira
svigrúm fyrir hjólin að fjaðra án
þess að hækka boddýið meira
frá jörðu. Kúnstin er sú, að láta
dekkin mest um að hækka bílinn
en hækka boddýið frá undir-
vagninum sem minnst, þannig er
betra að ganga um bilinn og
þyngdarpunkturinn helst eins
neðarlega og hægt er — þannig
verður bíllinn líka stöðugri. Mjög
er vandað til frágangsins á þess-
um boddýbreytingum, bretta-
breikkanirnar til dæmis spraut-
aðar í lit bílsins og allt er ryðvar-
ið í krók og kring. Síðan er bætt
við gangbrettum alla leið milli
brettakantanna; auk þess að
vera til að stíga á verja þau bil-
inn fyrir grjóti og drulluaustri,
sem eykst með stóru dekkjun-
um.
Til að auka vélaraflið og
minnka eyðsluna er settur milli-
kælir í bílinn. Patrolinn er með
2,8 lítra, sex strokka túrbódísel-
vél, sem skilar 115 hestöflum
óbreytt. Millikælirinn eykur aflið
um allt að 20 prósent og minnkar
eyðsluna og minnkar slit á vél-
inni. Túrbínan snýst allt upp í
100 þúsund snúninga á mínútu
og hitar með því loftið sem leiðir
til þess að rúmmál þess eykst.
Millikælirinn kælir loftið sem
kemur út úr túrbínunni og skilar
þannig meira lofti inn í brennslu-
rýmið en ella. Með því að þrýsta
meira súrefni inn í vélina fæst
meiri kraftur út úr brunanum.
Millikælirinn sem notaður er í
Patrolinn er amerískur háflæði-
keppniskæiir, sem reynst hefur
mjög vel.
Síðast en ekki síst er Patrolinn
útbúinn með sterku fjögurra
tommu spili með fjarstýringu.
Það er fellt snyrtilega inn í fram-
endann á bílnum, svo að það ber
lítið á því, það skagar ekki fram
fyrir stuðarann. Þetta ver spilið
líka fyrir óæskilegum óheinind-
um af götunni. Ljóskastarar eru
líka sjálfsagðir aukahlutir; Patr-
olinn er búinn annars vegar sér-
stökum tveggja geisla IPF-köstur-
um, og hins vegar svokölluðum
fiskauga-kösturum til nota í hríð-
arveðri og skafrenningi. Dekkin
sem sett voru undir Patrolinn
eru 35 tommu gróf BF-Goodrich,
negld, á 10 tommu léttmálms-
felgum. Þegar bíllinn er settur á
þessi stóru dekk er líka bætt í
bíiinn sérstökum rafboða, ís-
lenskri uppfinningu, sem aðlagar
hraðamælinn að dekkjastærð-
inni. Að endingu er sjúkrakassa
og slökkvitæki bætt í bílinn.
MISSAN.TERRAMO II:
SA NYTISKULEGI
Terrano II-jeppinn er nýjasti
jeppinn á markaðnum hér á
iandi, hann kom hingað fyrst á
síðasta ári. Hönnunin á honum
ber þess merki að vera ætlað að
8 i
eiga heima á
breiðgötum stór-
borganna, ef til
vill, frekar en uppi
á fjöllum. Munur-
inn á Patrol og
Terrano II er þó
nokkuð mikill.
Patrolinn er mun
eldri hönnun en
eins og fyrr segir
mjög traustur
jeppi og vel til
breytinga fallinn.
Terranoinn er
minni bíll og mun
léttari. Hann er
líka búinn minni
túrbódíselvél,
fjögurra strokka
2,4 lítra. Hann
býður þó eins og
Patrolinn upp á
góða möguleika til
breytinga. Þar
sem hann er mun
léttari en Patrol-
inn eru 33 tommu
dekk mjög hæfileg
fyrir þann bíl.
Hann er með sjálf- *
stæða fjöðrun að
framan, þannig að
það er frekar erfitt
að hækka hann
mikið þar. Til þess
að koma dekkjunum undir hann
er brugðið á það ráð að hækka
hann á boddýinu um tvær tomm-
ur, sem er tiltölulega lítil hækk-
un. Það er skorið frekar mikið úr
brettunum hins vegar, sem gefur
það svigrúm sem uppá vantar til
að'33ja tommu dekkin geti fjaðr-
að eins og þarf. Stigbretti og spil
bætast við eins og á Patrolnum,
þar að auki króm-spilgrind. Það
er aðeins bætt undir gormana að
aftan, skipt um höggdeyfa og
stýrisdempara, stýrisstöngin er
lengd lítillega, hraðamælirinn er
leiðréttur með samskonar tæki
og í Patrolnum, brettakantarnir
eru sprautaðir og að lokum þarf
að hjólastilla bílinn og hemla-
prófa. Nýr sjúkrakassi og
slökkvitæki fylgir auðvitað Iíka.
Þessar breytingar krefjast þess
að bíllinn sé sérskoðaður og
vigtaður, sem hefur í för með sér
aukakostnað.
Eins og sjá má af samanburð-
Fjögurra tommu Warn-spil.
Upphækkunarsett fyrir Patrol.
35 tommu BF Goodrich-dekk.
inum á óbreyttum og breyttum
Terrano er munurinn mjög mik-
ill, bíilinn tekur nánast stökk-
breytingu. Forvitnilegt væri
reyndar að sjá Terranoinn á 35
tommu dekkjum, því eins léttur
og hann er ætti hann að verða
hörkuduglegur í snjó þannig út-
búinn. ■