Helgarpósturinn - 18.05.1995, Blaðsíða 4
TRYLLI-
TÆKIN
VAKNA
AF
VETRAR-
DVALAN-
UM
Þegar lóan kemur og
kveður burt snjóinn fara
akstursíþróttakappar
landsins að hugsa sér til
hreyfings. Að vísu á þetta
ekki við um vélsleðamenn,
þeir ráku endahnútinn í
keppnistímabilið hjá sér
um síðustu helgi á (safirði,
þar sem fram fór síðasta
umferð Islandsmótsins í
vélsleðaakstri.
En rallarar ræsa sín tæki í
fyrsta sinn í sumar á laug-
ardaginn, þann 20. maí,
með „Fjörukráarralli",
sem fram fer í nágrenni
höfuðborgarinnar, um
gamalreyndar rallleiðir
Reykjaness.
Eins og sjá má af eftirfar-
andi keppnisdagatali
Landssambands íslenskra
akstursíþróttaféiaga
(L.I.A.) fyrir árið 1995
verður nóg um að vera í
ár: Rall, kvartmíla, tor-
færa, rallýkross, moto-
cross o.fl. Nánari upplýs-
ingar um hverja keppni
fást hjá viðkomandi akst-
ursíþróttafélagi eða L.I.A.,
Bíldshöfða 14, 130
Reykjavík, s. 674590.
Maí:
20.
Rall (BÍKR):
Suðumes
21.
Kvartmíla
(Kvartmíluklúbburinn,
KK): Kvartmílubraut-
inni
Kapelluhrauni
27.
Torfæra (BA):
Akureyri
28.
Rallýkross (BÍKR):
Rallýkrossbraut við
Krýsuvíkurveg
Júní:
4.
Mótókross
(Vélhjólaiþróttaklúbb-
urinn.VÍK): Gryfjum við
Bláfjallaafleggjara
10.
Torfatra (Jeppaklúbbur
Reykjavíkur)
I 1.
Rallýkross (BÍKR):
Rallýkrossbraut við
Krýsuvíkurveg
18.
l/8-míla (BA): Akureyri
24.
Rall (BÍKR)
Lýsing á keppnisflokkum Landssambands íslenskra akstursíþróttafélaga (LÍA)
Hverjar eru keppnisgreinarnar, sem keppt eríí akstursíþróttum á íslandi? Hvaða reglur
gilda um skipulag keppna íþessum greinum og um útbúnað ökutækja íþeim?
1. KVARTMÍLA OG
SAIUDSPYRIUA
Þær reglur um keppnishald í
kvartmílu sem farið er eftir á ís-
landi miðast við reglur sem
gefnar eru út af NHRA í Banda-
ríkjunum og gilda þær almennt
sem alþjóðareglur. Reglur um
sandspyrnu eru samdar af
Kvartmíluklúbbnum með hlið-
sjón af alþjóðareglum um kvart-
mílu, þar sem enn hafa ekki ver-
ið gefnar út alþjóðareglur um
sandspyrnu sem slíka.
Hað er kvartmíla?
í stuttu máli er kvartmíla
hröðunarkeppni milli tveggja
ökutækja úr kyrrstöðu út
ákveðna vegalengd, vanalega
1/4 úr mílu (1/8 úr mílu telst
líka lögleg vegalengd í þessu
sambandi).
Reglur
jýeppnin fer fram á þar til
gerðri, malbikaðri braut. Kepp-
endur stilla sér upp hlið við hlið
við brautarendann og eru ræst-
ir með ljósabúnaði, sem líkist
umferðarljósum (kallaður „jóla-
tré“). Þegar ökutæki fer frá rás-
línu gangsetur það rafeinda-
klukkur sem síðan stöðvast
þegar það rýfur ljósgeisla í
enda brautarinnar. Þannig er
brautartími ökutækisins mæld-
ur.
Það er keppt í mörgum flokk-
um í kvartmílu. Til íslands-
meistara hefur verið keppt í alls
6 mismunandi flokkum fyrir bíla
og þremur bifhjólaflokkum.
í ár eru áætlaðar 4 keppnir á
kvartmílubrautinni í Kapellu-
hrauni, sem gefa eiga stig til ís-
landsmeistara.
Hvað er sandspyma?
Sandspyrna er, eins og kvart-
mílan, hröðunarkeppni milli
tveggja ökutækja út ákveðna
vegalengd, en munurinn felst í
því að í stað malbikaðrar braut-
ar er keppt á sandi. Eins og gef-
ur að skilja skiptir — auk vélar-
aflsins — dekkjabúnaður meg-
inmáli í sandspyrnu.
Reglur
Sandspyrna er útsláttar-
keppni, þar sem það eitt ræður
útslitum í hverri spyrnu, hver
er fyrstur yfir marklínuna (en
ekki eiginlegur brautartími). í
upphafi er þó tekinn brautar-
tími, svo hægt sé að raða kepp-
endum upp í sanngjarna riðla.
Ræsing fer fram með sama
hætti og í kvartmílu.
Allar nánari upplýsingar fást
hjá Kvartmíluklúbbnum, Bílds-
höfða 14, s. 674530 og hjá Bif-
hjólasamtökum lýðveldisins,
Sniglum, Bíldshöfða 14 130 Rvk,
s. 5674631
Vettvangur torfærukeppninnar við Akranes.
3. RALL
Hvað er rall?
Rall er keppni á bifreiðum,
sem hefur verið breytt mismik-
ið í þeim tilgangi. Rall fer fram á
almennum vegum, en þeim leið-
um, sem ekið er um í keppninni
er skipt upp í ferjuleiðir og sér-
leiðir. Keppnin sem slík fer fram
á lokuðum sérleiðum, það er á
(malar)vegum, sem umferð er
lokað um meðan á keppni
stendur. Ferjuleiðirnar tengja
sérleiðirnar.
Reglur
Keppt er í þremur flokkum,
eða „gengjum“: Gengi N:
Óbreyttar bifreiðar; gengi A:
Breyttar bifreiðar; gengi X: Sér-
smíðaðar bifreiðar. Þessum
þremur megingengjum er síðan
skipt niður í undirgengi eftir
vélarstærð.
Strangar kröfur eru gerðar
um öryggi í rallkeppnum; þess
vegna eru þeir bílar sem flokk-
aðir eru sem „óbreyttir" líka út-
búnir með veltibúri, sterkari
fjöðrun auk annars
búnaðar, sem nauð-
synlegur er en lýtur
ströngum reglum.
Nú í ár verður
keppt þriðja árið í
röð keppt í hinum
svokallaða „Norð-
dekk-flokki“, sem er
flokkur bíla með
minna en 1600 ccm
vélar og drif á einum
öxli, og eru skráðar
og standast skoðun
hjá Bifreiðaskoðun
íslands. Flokkurinn
er sérstaklega ætlaður til að
auðvelda ralláhugamönnum að
hefja þátttöku í ralli, án þess að
neyðast til að fjárfesta um of í
dýrum keppnisbíl, sem keppt
gæti við þá bestu (hvort sem er
í gengi N eða X). Veitt eru sér-
stök verðlaun fyrir sigur í Norð-
dekk-flokknum.
Allar nánari upplýsingar fást
t.d. hjá B.Í.K.R., Bíldshöfða 14,
130Rvík.,s. 5674630.
íslandsmeistararnir í rallakstri
feðgarnir Rúnar Jónsson og Jón
Ragnarsson á fullri ferð.
5. TORFÆRA
Hvað er torfæra?
Torfærukeppni er keppni í
torfæruakstri á þar til gerðum
farartækjum, jeppum. Vett-
vangur torfærukeppna eru iðu-
lega illkleif hraunbörð, malar-
og sandgryfjur og viðlíka tor-
færur.
Reglur
Þó íslensku torfærukeppnirn-
ar séu séríslenskt fyrirbrigði,
haldnar eftir landsreglum LÍA,
byggist skipulag þeirra á al-
þjóðlegum reglum F.I.A. Keppn-
isjeppum er skipt í tvo flokka,
götujeppa annars vegar og sér-
útbúna jeppa hins vegar. Sérút-
búnir jeppar þurfa hvorki að
vera á skrá né skoðaðir.
Keppnin gengur út á það að
þátttakendur safni stigum með
því að aka eftir fyrirfram mörk-
uðum brautum, annars vegar
er um að ræða brautir, þar sem
á að reyna að komast eins langt
og hægt er og hins vegar tíma-
braut. I fyrra tilvikinu eru stig
eftir því hve langt þátttakandi
kemst (og mínusstig ef brautar-
merkingar eru snertar og ef
bakkað er meira en ein bíll-
engd), í því seinna reiknast
stigin eftir því hvar í röð kepp-
enda hver lendir.
Allar nánari upplýsingar um
torfærukeppnir fást til dæmis
hjá Jeppaklúbbi Reykjavíkur,
Bíldshöfða 14, 130 Rvík, s.
5674811.
j eo
( s Tiy^ )
'o
ÚRVAL NÝLEGRA MAZDA BÍLA OG
FJÖLDI ANNARRA NOTAÐRA BÍLA
Hestöfl úr „gladlofti"
Hin sakleysislega skammstöf-
un N02 stendur fyrir efni nokk-
urt, sem mörgum keppendum
bæði í torfæru og kvartmílu er
orðið nánast jafn mikilvægt og
bensín.
Nituroxíð, öðru nafni hlátur-
gas eða „glaðloft" hjálpar til að
ná fleiri hestöflum úr vélum
keppnisbíla. Gasið er geymt á
kút í bílnum og er leitt inn í
brennslurými vélarinnar. í
stuttu máli virkar „nítró“-búnað-
urinn — eins og þessi útbúnað-
ur er venjulega kallaður —
þannig, að þegar ökumaður bíls-
ins telur að ekki veiti af nokkr-
um hestöflum til viðbótar, til
dæmis þegar jeppi tekur á
sprett upp bratta hlíð, þá ýtir
hann á rofa og hleypir skammti
af „glaðlofti“ inn á vélina; við
þetta eykst aflið sem næst út úr
brunanum í sprengirými vélar-
innar til muna. Áhrifunum má
helst líkja við adrenalínsprautu,
sem íþróttamaður gæti skammt-
að sér sjálfur í hvert sinn sem
hann þarf mest á að halda, svo
sem í erfiðum hlaupasprett.
Nú er svo komið, að nær allir
keppendur í torfærunni hafa út-
búið jeppa sína með „nítró-
kitti“, en þessi tækni er þó upp-
runnin úr kvartmílunni, þar sem
hún hefur verið notuð lengi.
Notkun nítró-tækninnar hefur
þann kost umfram aðrar leiðir
til að galdra meiri kraft úr bens-
ínvélum, að hún er auðveld og
einföld og skilar hlutfallslega
mikilli kraftaukningu án þess að.
kosta þurfi til dýrra breytinga á
vélinni („tjúnningu"), svo sem
með hækkun þjöppunarhlut-
falls, plönun á heddi og svo
framvegis. Slíkar breytingar
leggja líka alltaf meira á vélina,
gera ganginn í henni erfiðari og
getur stytt líftíma hennar.
Aukahestöflin, sem fást á
þennan þægilega hátt með að-
stoð „glaðloftsins" hafa því skilj-
anlega glatt margan keppnis-
manninn.
Nitrogas hleypir jeppunum
T3 inqq&siegniljÍBJííni&^