Helgarpósturinn - 13.07.1995, Side 4

Helgarpósturinn - 13.07.1995, Side 4
I Horft niður í gamla byggðakjarnann. Fyrir miðri mynd er Ragnheiður Júlía, aðstoðarkona blaðamanns. Stemmningsmynd úr Flatey. „Tíminn er afstæður eins og við vitum en í Flatey er hann ekki til,“ sagði Guðmundur Lá- russon, framkvæmdastjóri ferjubátsins Baldurs, sem er þjóðvegur yfir Breiðafjörðinn, en Guðmundur tók að sögn við starfinu af fyrirrennara sínum, Leifi heppna, sem fór til Amer- íku. „Tímaskynið þar miðast við komur ferjubátsins og flóð og fjöru. Útlendingar finna sterkt til nálægðar við náttúr- una í eyjunni og hverfa til sjálfs síns eins og Palli sem var einn í heiminum. Um leið þá hverfur einsemdin sem fólk finnur gjarnan til í stórborgum innan um milljónir manna.“ FORN MENNINGAR- STAÐUR OG AFDREP LISTAMANNA NU- TIMANS Þeir eru fleiri sem bera hlýj- ar tilfinningar til Flateyjar en Guðmundur Lárusson. „í Flatey var ég fjóra daga, fann þar yndi margt. Eyjan var sem aldingarður, alla daga hlýtt og bjart. í Flatey vildi ég ævi una, á eintaii við náttúr- una.“ Þannig orti Þórbergur Þórðar- son um Flatey og fleiri skáldum hefur hún orðið yrkisefni eða uppspretta hugmynda og frjórra listaverka. Guðbergur Bergsson skrifaði ljóðabók sína um Flateyjar-Frey í eynni og fleiri skáld og myndlistarmenn höfðu þar lengri eða skemmri viðdvöl, þar má nefna Jón Gunnar Árnason, Jón Yngva, Steinar Sigurjónsson, Nínu Björk Árnadóttur, Jökul Jakobsson að ógleymdum Baltasar. Skáld- Rósa kastaði einnig fram vísu Þvottur blaktir við snúru í Flatey og í baksýn er svo- nefndur Grýluvogur. um Flatey í sína tíð. „Væri ég tvítugsaldri á, og ætti von til þrifa. Mér ég kjósa vildi þá, að mega í Flatey lifa.“ Og Halldór Laxness sagði um Flatey. „Kanski er þetta sjálf óskanna ey, þar sem sælan rík- ir og tíminn líður ekki.“ SÖGUSLÓDIR í Flatey settist fyrsti land- námsmaður Vestureyja og alla tíð síðan hefur Flatey gegnt forystuhlutverki meðal eyj- anna. Á fyrstu árum íslands- byggðar var þar fjölmennt stórbýli og seinna kom eyjan við í innanlandsátökum Sturl- ungaaldar. Síðan fóru erlendir kaupmenn að verða tíðir gestir í eynni til að versla við Breið- firðinga. Árið 1777 var lögfest verslun í Flatey með konungs- leyfi og eyjan varð helsti versl- unarstaður við innan og norð- anverðan Breiðafjörð fram undir miðja þessa öld. Allir sem koma til Flateyjar leggja leið sína í kirkjuna sem var byggð árið 1926 en hana er nú verið að endurbyggja. Bók- hlaðan gamla bak við kirkjuna er sú elsta á landinu, byggð ár- ið 1864, og fleiri gömul hús gera Flatey að merkilegu sýnis- horni liðins tíma. i i i < t Stórkostleg saga og margrómuö náttúrufegurð SigEng um WstureMar og leid- sögn um Flatey meo ykkar manni Saga eyjarinnar er stór- kostleg en hún var mið- stöð verslunar, sam- gangna, menningar og lista áður fyrr. Þegar vegasamgöngur voru lé- legar hringinn í kring- um fjörðinn, sérlega norðurfrá, sigldu bænd- ur til Flateyjar og sóttu hingað ýmsa þjónustu. Hér var bæði læknir og prestur og verslun. Sag- an er auðvitað mark- verðust en eyjan er líka ákaflega sérstakur stað- ur. „Vestureyjarnar einkennast af miklu fuglalífi en eyjarnar nær landi eru oft ásóttar af mink sem hefur ekki náð til Vestureyja ennþá,“ segir Tryggvi Gunnarsson leiðsögu- maður í Flatey. „Það er helst eitt og eitt kvikindi sem hefur komist þetta á ís. Ég hef líka boðið uppá ferðir upp í Reyk- hóla og við höfum verið með smá viðleitni til að vera með ferðir innan héraðs." Ég held að hver maður hafi gott af því að drepa sér til matar einu sinni á ævinni," seg- ir Tryggvi Gunnarsson í Flatey. Þó að ég sé ekki mikill veiðimaður Þá finnst mér stór munur á veiðni, samanber eyðni, og hinu að geta borið sig eftir björginni. En því miður eru alltaf menn sem ganga illa um náttúruna. Tryggvi segir að selum og öðrum sjávarspen- dýrum hafi fækkað í Breiðafirði og kennir þar aðgerðum náttúruverndarsamtaka. „í kjölfar þess jukust grásieppuveiðar hér í firðinum en selurinn er gjarn á að flækja sig í netunum og drepast þannig. i Skáleyjum halda menn þó enn í selveiðar og veiða og gera að sel samkvæmt gamalli hefð." Ég ákvað í tengslum við Flat- eyjardagana sem eru framund- an að taka á móti því fólki sem ætlar með mér í siglingu um Vestureyjarnar,“ sagði Tryggvi Gunnarsson. „Þetta er ekki mjög ítarleg leiðsögn en ég tæpi á því helsta. Ég geng með fólki um eyjuna og sýni það helsta, til dæmis kirkjuna með myndskreytingum Baltasars en þær innihalda ýmsa sögu- punkta um vinnubrögð í eyjun- um, til dæmis bátasmíði sel- veiði og fuglatekju.“ Baltasar og Jökull Jakobsson dvöldu í eyjunni árið 1964 og skrifaði Jökull þar bókina Síðasta skip suður sem Baltasar mynd- skreytti. „Flatey var á þessum tíma á miklu samdráttarskeiði og margt dapurlegt í bókinni,“ segir Tryggvi. „Annars er þetta ágæt bók en ekki gallalaus." Saga eyjarinnar er stórkost- leg en hún var miðstöð versi- unar, samgangna, menningar og lista áður fyrr. Þegar vega- samgöngur voru lélegar hring- inn í kringum fjörðinn, sérlega norðurfrá, sigldu bændur til Flateyjar og sóttu hingað ýmsa þjónustu. Hér var bæði læknir og prestur og verslun. Sagan er auðvitað markverðust en eyjan er líka ákaflega sérstak- ur staður. Móðir Tryggva, Svanhildur Jónsdóttir er bóndi í Flatey með kindur og æðakollur, en hún rekur líka tjaldstæði og selur gistingu. Þeir sem kjósa að njóta þess sem Tryggvi Gunnarsson hef- ur uppá að bjóða greiða 1.500 krónur fyrir náttúruskoðun og leiðsögn. „En það kostar 500 krónur fyrir börn, en bara má greiða fyrir fyrir eitt barn, hin fá frítt. Mér finnst ekki að það eigi að refsa fólki fyrir að eiga börn.“ Ef að fólk vantar tilefni til að heimsækja Flatey þá hefj- ast Flateyjardagar í eynni þann 13. júlí með listsýningum, sögusýningum, inni- og útileik- húsi en hápunktur daganna verður 11. til 13. ágúst og þá verður einnig haldið aflrauna- mótið, Vestfjarðavíkingurinn. Trygvi er með farsímann 85 30000, og gefur allar upplýs- ingar auk þess sem menn geta bókað sig í ferðirnar og miðast túrinn með Tryygva við ferðir Baldurs þannig að þeir sem vilja getað notið alls þessa og tekið bátinn aftur út í Hólm að því loknu. I I I 4 I

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.