Helgarpósturinn - 17.07.1995, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 17.07.1995, Blaðsíða 9
 Ivl'A'N ly ÐWG iD R ÚTLÖND 4" Erfingjar Wallenbergs-veldisins, fjölmiðlafælnir. • Wallenberg-ættin sænska nýtur sérstakrar viröingar í hinum haröa heimi viöskipta og iönaðar. Ættin á 40 prósent af öllum veröbréfum á sænska verðbréfamarkaðnum í Stokkhólmi og í eigu hennar eru fyrirtæki eins og Ericson, Electrolux, Stora og Scania. Ættfaðirinn, Peter Wallenberg, er nú hátt á sjötugsaidri og býr sig undir að láta veidið í hend- ur Jacobs sonar síns og Marcus- ar bróðursonar síns. Þeir frændur, Jacob og Marcus,sem nú eru tæplega fertugir, segjast vera stoltir af Wallenberg-nafn- inu en neita ekki að þeir finni fyrir sterkum þrýstingi frá fjöl- skyldunni um að þeir standi undir nafni. Peter Wailenberg sagði nýlega: „Mér þætti afar miður að verða vitni að því að þeim mistækist. Ég er reiðubú- inn að fela þeim stjórnina að því tilskildu að þeim lánist vel.“ EFASEMDARADDIR Innan Wallenberg-ættarinn- ar eru menn bjartsýnir á góðan árangur þeirra félaga, segja þá fullkomna hvorn annan, en hjá öðrum, sem málið er ekki jafn skylt, hafa heyrst efasemda- raddir um hæfni þeirra frænda á viðskiptasviðinu. Sven Ivan Sundqvist blaðamaður sem sér- hæfir sig í fréttum úr við- skiptaheiminum hefur sagt að að þeir frændur hefðu líklega aldrei komist í áhrifastöður vegna eigin ágætis, Wallen- berg- nafnið eitt hafi fært þeim brautargengi. Jacob og Marcus, erfingjar nokkurra þekktustu fyrirtækja Svíþjóðar, þykja vernda einka- líf sitt af ákafa sem nálgast þrá- hyggju. Kjörorð fjölskyidunn- ar, Esse Non Videre, (að vera, ekki sjást) endurspeglar tregðu þeirra til að sýna sig í fjölmiðlum. í því eina viðtali sem þeir hafa farið í, við sænskt tímarit fyrir tveimur árum, sagði Jacob: „Við lýsum okkur best í framkvæmdum okkar. Ég hef enga löngun til að verða verkfæri í höndum fjölmiðla." TRYGGIR EVRÓPUSAMBANDIÐ AFRAMHALDANDi VELDI WALLENBERGA? Það er mat manna að þegar þeir frændur hafi tekið við rekstri Wallenberg-fyrirtækj- anna muni þeir hugsa sér til hreyfings á Evrópumarkaði. Sömu menn segja að Svíþjóð sé einfaldlega að verða of lítil fyrir Wallenbergveldið. Fjölskyldan er ráðandi í sænska viðskipta- geiranum og frekari útþensla þar getur komið af stað pólit- ísku fjaðrafoki og slíkt munu þeir frændur vilja forðast. Að- ild Svía að Evrópusambandinu gefur þeim ómetanlegt tækifæri til að stökkva inn á evrópska markaði. Erik Belfrage, nánasti ráðgjafi Peter Wallenberg, orð- ar það svo: „í dag erum við skil- greindir sem sænskir. lnnan þrjátíu ára verðum við vonandi skilgreindir sem evrópskir. í því felst áskorunin.“B • Rodney King, sem varö heimsfrægur árið 1992 eftir aö hafa verið barinn af fjórum lögregluþjónum í Los Angeles, er nú enn eina feröina búinn að koma sér í klandur. Að þessu sinni var hann handtekinn fyrir að leggja líf konu sinnar, Crystal Waters, í hættu en hann ók bíl sínum af stað með hana hálfa inn í bíln- um. Hún dróst með bílnum og fór nokkra kollhnísa og sat eftir vönkuð og skrámuð. King var einnig handtekinn árið 1992 fyrir að leggja hendur á konu sína, en hún lagði ekki fram kæru þá. Þegar lögreglan uppgötvaði hvern þeir voru að fara að handtaka tóku þeir enga áhættu en fóru með eigið myndbandsupptökulið á stað- ínn. En það var einmitt vegna myndbandsupptöku af hand- töku Kings og sýknudóms yfir lögreglumönnunum fjórum, sem að handtökunni stóðu í kjölfarið, sem óeirðir brutust út í Los Angeles árið 1992 með þeim afleiðingum að 53 létu líf- ið og skemmdir voru unnar fyr- ir 70 milljarða króna. King streittist sama og ekkert á móti handtökunni, var bara með smá múður til málamynda. Hann hefur verið látinn laus gegn 3,5 milljóna króna trygg- ingu. ■ Paris í ágúst frá kr. 21.900* Við höfum nú fengið nokkur viðbótarsæti til Parísar á lága verðinu í brottfarimar 2. og 9. ágúst í beinu leiguflugunum okkar til Parísar. Bókaðu strax og tryggðu þér sæti á meðan enn er laust. Við minnum á að við bjóðum aðeins fyrsta flokks gististaði í sumar, alla vel staðsetta. Flugsæti kr. 21.900* Skattarkr. 2.100. \ferð samtals kr. 24.000. Flug og hótel í viku 2. og 9 .ágúst kr. 34.500 Skattar kr. 2.100. Verð samtals kr. 36.000. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562-4600. Heilsteypt upplýsingakerfi tiorniB a i h A og IfMCKIPTAIII Flókin verkefni o Einfaldar lausnir STRENGUR hf. Metfé fyrir amm UPPB0ÐI „■Golfboltinn“ sem er gerður úr samanþjöpp- uðum gœsafjöðrum, með ásaumaðri leðurhúð, var gerður 1830 fyrir stofn- anda Luffness Golf- klúbbsins í Skotlandi. Golfboltinn varseldurá uppboði fyrirrétt tœp- lega tvœr milljónir króna. Kaupandinn var spœnski golfklúbburinn Valderrama sem heldur Ryder-keppnina 1997. Golfboltinn var notaður til ársins 1848, en þá kom fram golfkúla í lík- ingu við það sem við þekkjum í dag. ■ WlNDOW 95 LOKSINS TILBÚIÐ Hugbúnaðarfyrirtœkið risavaxna, Microsoft, mun nú loksins vera til- búið til framleiðslu. Það eru fímm verksmiðjur, sem samtals geta fram- leitt eina milljón eintaka afforritinu, sem sjá um framleiðsluna en þess er vœnst að það verði tilbú- ið til sölu þann 24. ágúst nœstkomandi. ■ Maður KASTAR SONUM SÍNUIVl FRAM AF SVÖLUM Maður einn í Englandi sem var óánœgður með yfírvofandi skilnað við konu sína kastaði tveim- ursonum sínum, þriggja og fímm ára, fram af svölum íbúðar sinnar sem er á fjórðu hœð. Jose Geraldo Amorim-Pimenta, sem var fyrrverandi knattspyrnumaður frá Brasilíu, kastaði sér síð- an sjálfum fram afsvöl- unum og lést samstundis. Synir hans tveir slösuð- ust báðir lífshœttulega og lést sá eldri á sjúkra- húsi skömmu síðar. Sá yngri er mjög þungt hald- inn. Amorim-Pimenta lék sem atvinnumaður með ung- lingaliði Flamengo í Brasilíu áður en hann fluttist til Englands. ■ Van Heerden, sem er til- raunabormaður í Suður- Afríku, komst heldur betur í hann krappan um daginn. Hann var á gangi fyrir utan hús- vagninn sem hann býr í þegar skyndilega réðst að honum hlébarði. „Ég var milli tveggja vagna þegar ég heyrði hljóð og sneri mér við og þá réðst hlébarðinn á mig,“ segir Van Heerden. Hann hrópaði á konu sína eftir hjálp en hún og tveir synirþeirra hjóna gátu ekkert að- hafst honum til hjálpar og fylgdust bara skelf- ingu lostin með glímu heimilisföðurins við villidýrið. „Ég kýldi dýrið en tókst ekki að koma því í burt. Þá tók bara lífshvötin yfírhöndina. Ég vissi ekki hvað ég gerði, ég var bara að berjast við skepnuna. Mér tókst að ná taki á hálsi dýrsins og kyrkja það,“ segir Van Heerden, en hann slapp með skrámur og bit. ■

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.