Helgarpósturinn - 17.07.1997, Blaðsíða 14
14
FIMIVmjDAGUR 17. JÚLÍ1997
afnvel yngstu menn
muna eftir svarthvít-
um fréttamyndum þar
sem stjörnur ganga
um borð í flugvélar
með fangfylli blóma.
Fimm metrum aftar kemur
þernan með hálfan klæðaskáp
á herðatrjánum. {flugvélardyr-
unum sést flugfreyjan taka við
blómunum og koma þeim fyrir
í blómaskála flugvélarinnar og
önnur flugfreyja tekur við
kvöidfatnaði farþega og hengir
hann upp í fataskálanum.
Svona var þetta á meðan
flogið var af hugsjón. Bæjar-
leiðin Reykjavík-Kaupmanna-
höfn tók sex klukkustundir í
mótvindi, en aðeins fimm og
hálfa í meðvindi. Brottför var
á almennum fótaferðartíma
tvisvar í viku og það var frjálst
sætaval. Svo voru sætin dreif-
sett, að fótsíðir karlmenn og
brjóstamiklar konur rúmuðust
án ama. í gangveginum milli
sætaraðanna gat fólk mæzt og
rabbað saman, t.d. spurt hvað
annað hvert það væri að fara.
Veggfóðrið skartaði þjóðleg-
um, en stílfærðum myndum og
mátti bera kennsl á Gullfoss,
Geysi og konu í peysufötum.
Fyrir gluggum voru heimilisleg
tjöld, flugfreyjurnar voru með
permanent og kaffið var
þunnt. Fyrir flugtak og lend-
ingu fengu farþegar brjóstsyk-
ur eða tyggigúmmí, ekki sök-
um þess að þeir lægju undir
grun um óæskilegar og
ósaddar fíknir á flugi,
heldur af því að
þeirfengu
is. hellu fyrir
eyrun
kjálk-
arnir
gengju
stöðugt. A móts
við Vík í Mýrdal
hófst dréifing á morg-
unverði sem var alveg eins
og alvörumatur og borinn
fram í alvöruílátum.
Eftir morgunverð var áð í
Glasgow, svo farþegar fengju
holla hreyfingu. I flugstöðinni
seldi óskiljanleg kona brezkt
sælgæti og á íslenzka Makkin-
tosshefðin rætur sínar að
rekja til millilendinga Flugfé-
lagsins þar. Þeir sem flugu að
vori fengu hart Makkintoss á
jólunum. Sligaðir fyrsta áfanga
í handfarangri gengu farþegar
aftur til vélar eftir flugbraut-
inni. Var svo flogið settlega til
Kaupmannahafnar á meðan
hádegisverður var snæddur,
koníak og sígarettur bættust
við handfarangurinn og þessir
sem mættu rauðir og æstir til
flugs urðu rauðari og æstari á
tollfrjálsu.
Þá var handfarangur helgi-
dómur og einkamál hvers far-
þega og enginn dirfðist að
leggja hann á vogarskálarnar.
Það hjálpaði, að aðstoðarfólk
farþega stóð í hvarfi með
plastpokana á meðan viður-
kenndar ferðatöskur voru
vegnar.
Flug er ekki lengur hugsjón.
Það er fyrirtæki sem þarf að
borga sig. Blómaskálinn og
fataherbergið eru löngu horfin
og í þeirra stað er hanzkahólf
fyrir ofan sætin. Handfarang-
ur, fingurgull og falskar tennur
eru vegin og fólk með tvenn
gleraugu kaupir farseðil fyrir
annað parið. Sætaraðir hafa
verið þéttar svo ferðin nýtist
betur. Fætur mannsins fyrir
aftan vefjast um fætur konunn-
ar fyrir framan og hún gerir
betur, maðurinn fyrir framan
konuna fyrir framan manninn
liggur í kjöltu hennar alla leið
og sætisbakið hvílir á neí-
hrygg hennar. Ef þrengslm
skorðuðu þau ekki, þá væri
hætt við ósjájfráðri ósiðsemi.
Gangvegurinn milli sætarað-
anna hefur þrengst, en lendar
flugfreyjanna, lausar úr höft-
um úreltrar hugmyndafræði,
hafa þróast í öfuga átt. Hver
sá sem vill fá vanga sinn strok-
inn af þrýstinni mjöðm getur
fengið það, án þess að halla
sér sýnilega í sætinu. Nándin
við náungann Reykjavík-Kaup-
mannahöfn minnir á fullnýt-
ingu ferðarýmis eins og hún
gerðist bezt á leiðinni Berlín-
Buchenwald.
Aðeins eitt er eins og það
var. Kaffið er þunnt.
„Gvu,“ segir konan við
hlið mér, „ég er svo hrædd í
flugtaki."
„Kvaððsegirðu?!“ hrópa
ég til að yfirgnæfa hreyflana.
„Það er sko alveg ástæðu-
laust. Flugvélum hlekkist
miklu oftar á í lendingu."
Það sést á svipnum að
þetta vissi hún ekki. Hún
ætlar samt ekki að hætta að
vera hrædd núna. Hún ætlar
að vera hrædd tvisvar.
„Njóttu þess,“ segi ég.
„Njóta...“ segir hún napur-
lega. Ég tek eftir að hún er
ekki með bláan varalit. Hún
er með eðlilega bláar varir,
flugtaksblæinn sinn.
„Já,“ segi ég. „Njóttu þess.
Leyfðu öskrandi, nötrandi
kraftinum í hreyflunum að
streyma í gegnum þig.
Finndu hjartað slá hraðar og
æðarnar þenjast. Hlustaðu á
niðinn í eyrunum og finndu
hvernig taugaendarnir kipr-
ast af nautn. Láttu þig renna
með þegar vélin æðir út
flugbrautina og finndu sæl-
una hríslast um þig þegar
hún hangir allt í elnu í lausu
lofti. Ég sver það, þetta eru
einú augnablikin sem ég skil
menn sem kaupa sér Harley-
Davidson. Hestöflin milli fót-
anna. Flugtak er æði! Það er
eins og kynlff!“
I því brunar vélin grenj-
andi út brautina. „JESSS!!!
segi ég og halla mér aftur til
að njóta organdi brimsins
sem þýtur í gegnum mig.
Mér hefur tekist að yfir-
gnæfa hreyflana. Úr öllum
nærliggjandi sætum fylgist
fólk grannt með flugtaki
mínu. Mikið ofsalega er mik-
ið af perrum í þjóðfélaginu.
\ s. 1 % LeVjÆ tvfeiWJtuS. nnmsr Fteifn SkOÍA WFAir BKaía AflkA fAAiTok CrUWA tmT//A Xubum fidUU FRutYlU jtœLi t 4 -fisru Lobofib jue/ ifA iAlfi HA*. tab A léTFASH áfeUMP tfftfi'sr
11 —> ró/ju ÍLA óM ' ►
V einA tutuUiTu 'tWU »/ * > u U'/tr wfí'osw) CrAAJ . J
HLiFMe- ínitun KIÚ.R þ£F fTkyTA. AmkJ > JFíXM* Lssr - 4/
(iMas r FoRbob sAí ► > v/ etíibus Pkúrr A/óUtUk SL'AR HtLD- l,tla /r
JÓmFZÚ FlUxL USCr- SEtnn : k V ► jewIají BoR
fkici HjaLUjótS) ÍVÍ£) . * » Káfaa Orb'/AA ‘ATT
ikL.it xym Fisk » OkwuuuÉ TÓktit VÍtLÉA «
ipkfH tAA*/AJ 'Anuup < ' * FyRlfi- CrEFA A/f) V
/ vibSór 'oHkOSt A/es •; ► v - JtwDj FáL/tl ktjUÉ
MUi ÍPoK RASlU : ► * l/ íÁMóf’e Tala V
% FutrL T/L Uo'ruA/ ifií : • : •
Verðlaun fyrir réttar úrlausnir eru geisladiskar
að eigin vali hjá Virgin Megastore. Lausnir á
krossgátu nr. 3 þurfa að berast HP fyrir miðviku-
daginn 23. júlí. Heimilisfangið er Helgarpóstur-
inn, Borgartúni 27, 105 Reykjavík.
Ingibjörg Jónasdóttir,
Heiðmörk 61, Hveragerði,
sendi rétta lausn
við síðustu krossgátu og
fær hann sent gjafabréf
fyrir geisladiski.
X \ SL fMt M»U ÍÁUS tok ku m nu* Ía5r y s wnn, IUU< SU 4 \ kimA ST '0-UA El
-* V [ jr Ð A F /f e Z UIJA- WM to' S / ý
X 'A K jr 'A L 'A 'A UéOÍM Æ /) F 4 1 r
\ rzr “F 6 f / D u A 11 A s H o X 0 A
ZL" 0 jL é K / /v tJ P u /T T 'o T -Æ V
•MnUL N /V U L L ti A s '0 .5 K r L T T A
sss 0 u 0 L A u j £ p / X V K ■5 A K r,
.. “SÚsl U T At R Æ K L f 0 A 'o r u K T T V
L X F u A A A M s T R A A n r
kUu/ L A u tl u j P r X ý K r A/ N ' u H L
% mWí 'A 5 L 0 5 x N s ULA R A V K A Ð ZT
0 F 5 1 ' (r A r N A n 'o r fítm, stTT r T A Ð