Alþýðublaðið - 31.07.1974, Blaðsíða 1
HLUTLAUS DÚMUR
„Stirðnað lánakerfi stendur i vegi
fyrir þvi, að framleiðsluþáttunum sé
beint þangað, sem framlag þeirra til
þjóðarbúsins er mest”.
3>3t3>3>3
VERSLUNARMANNAHELGIN:
Aðeins ein utiskemmtun
utan höfuðborgarinnar
MIÐVIKUDAGUR
31. júlí 1974 - 138. tbl. 55. árg.
Eina útisam-
koman sem haldin
verður utan Reykja-
víkur um verslunar-
mannahelgina
verður haldin í
Vatnsfirði fyrir
vestan eða á sama
stað og Vest-
firðingar héldu
þjóðhátið sina fyrir
skömmu.
Á skemmtuninni í
Vatnsfirðinum mun
Ámundi Ámundason
verða mótsstjóri og
sagði hann okkur að
þetta yrði þriggja
daga hátíð og hæfist
hún á föstudaginn
kl. 15.00 og lyki á
sunnudagskvöldið.
Þrjár hljómsveitir
verða þarna til að
skemmta gestum,
en það eru Roof
Tops, Haukar og
Hljómar. Á daginn
verða skemmti-
atriði eins og þjóð-
lagasöngur og
eftirhermur.
Öll aðstaða er hin
sama og var á
þjóðhátíð Vest-
f irðinga, en sú hátíð
þótti takast sérstak-
lega vel. Þarna eru
íveirdanspallar sem
verða notaðir og
næg bilastæði eru
þarna og stórt sölu-
Skotið á
lögmann
Færeyinga
Gcðveill maður skaut
i gær á lögmanninn i
Færeyjum, Atla P.
Dam. Skotið fór i annan
fót lögmannsins, og eru
meiðsl hans nokkur, en
ekki talin hættuleg.
Liggur hann nú á
Landssjúkrahúsinu i
Thorshavn.
Atburður þessi skeði
um kl. 13 i gær og verð-
ur að teljast mesta
mildi, að ekki hlaust
verra af.
Óhappaverk þetta
vann maður, sem verið
hafði til meðferðar sem
geösjúklingur, en var
kominn af sjúkrahúsi og
talinn heill heilsu. Þessi
sami maður, Byggve
Joensen, stal fyrir
nokkru bát sjúkrahúss-
ins, sem notaður er til
sjúkraflutninga milli
eyja. Lagði hann leið
sina til Noregs. Bátur-
inn fannst en maðurinn
ekki og var hann nýlega
kominn heim til Fær-
eyja aftur, er hann vann
þetta óhappaverk.
tjald auk annarrar
nauðsynlegrar
þjónustu. Ámundi
kvaðst gera ráð
fyrir að þarna
myndu verða um
5000 manna, en auð-
veldlega geta um 28
þúsund tjaldað
þarna. Björgunar-
sveitin Stakkur
verður mótsgestum
til aðstoðar. Þá mun
vikingaskip sigla
um Vatnsf jörðinn.
I Vatnsfjörð úr
Reykjavík mun vera
um 7 — 8 tíma
akstur.
Dansleikir verða
víða á landinu en
eins og áður sagði
verður eina úti-
skemmtunin í
Vatnsf irðinum.
Helstu staðir þar
sem dansað verður
um helgina eru
Arnarstapi á
Snæfellsnesi þar
m u n u h I j ó m -
sveitirnar Brimkló
og Júdas leika yfir
helgina. Dansað
verður í Skúlagarði í
Kelduhverfi og að
Skjólbrekku i
Mývatnssveit. Þá
verður dansað í
Valaskjálfi, þar
verður það sænska
hljómsveitin Viki-
vaki sem leikur
fyrir dansi. Á föstu-
dagskvöldið verður
dansleikur í
Aratungu en á
laugardags og
sunnudagskvöld
verður dansað í
Árnesi. Hljóm-
sveitin B G. og
Ingibjörg mun leika
fyrir dansi i félags-
heimilinu í Hnífsdal.
Engar skemmt-
anir verða á þeim
stöðum þar sem
venjulega hafa
verið skemmtanir,
eins og i Húsafelli,
að Laugarvatni og í
Galtalækjarskógi.
Eins verður ekkert
um að vera í Atla-
vík, Vaglaskógi og á
fleiri stöðum, sem
áður hafa hýst gesti
um verslunar-
mannahelgina.
HELGI BYÐUR UPP
Á KAPPRÆÐUR UM
HÖFUND NJÁLU
EN VILL ALLS EKKI
MÆTA BENEDIKT
,,Salan á mánudaginn var eins og venjulega hefur
verið á mánudögum”, sagði Ragnar Jónsson, skrif-
stofustjóri' hjá ATVR, þegar Alþýðublaðið hafði
samband við hann i gær.
Fólk hefur þvi ekki veriö langþyrst eftir lokunina
fyrir þjóðhátiðarhelgina. Verslunarmannahelgar-
ösin er ekki komin i gang, enda þótt þjóðhátið sé
haldin i Reykjavik um næstu helgi og virðast menn
þvi ekki telja liklegt, að til lokunar áfengisverslana
verði gripið. Hefur slikt ekki veriö gert viö stað-
bundnar þjóðhátiðar ársins til þessa, heldur aðeins
fyrir allsherjarhátiöina á Þingvöllum..
,,Einn fyrir
afa”, segir
mamma við
sveininn unga,
þegar hún tekur
upp nestispakk-
ann hans, sem
er matreiddur
einhvers staðar
úti i löndum.
BB
ÞORSKFLOKIN HALDA VERÐINU
EN SALAN HEFUR STÓRMINNKAÐ
Eins og blaðið skýrði
frá i gær, hefur meðal-
neysla Bandarikjamanna
á frystum fiskafurðam
stórlega dregist saman.
Þannig hefur neyslan á
þorskflökum, miðað við
fyrstu fimm mánuðina nú
og I fyrra minkgð ^ir 8,2%
milljónum punda I 4,7
m/p á mánuði nú, eða um
43%. Sá misskilningur
varð I fréttinni I gær, að
þessar tölur voru sagðar
eiga við þorskblokkina.
Hirgðir þorskllaka i
USA eru nú 12,3 m/p og
nægja til 2,6 mán. neyslu,
en voru á sama tima i
fyrra 14,7 m/p og nægðu
þá til 1,8 mán, neyslu.
Neysla á þorskblokk
hefur hins vegar lækkað
úr 15,7 m/p fyrstu fimm
mánuðina i fyrra niður i
9,2 m/p nú, eða um 41%.
Þessar tvær tegundir
eru meira en helmingur
alls þess frysts fisks, sem
við flytjum til USA cn við
flytjum 80 til 85% alls
okkar frysta fisks
þangað.
Birgöir þorskblokka i
USA eru nú 24,1 m/p og
nægja til 2,6 mán. neyslu,
en voru 14,0 m/p á sama
tima i fyrra og nægðu til
0,9 mán. neyslu.
Samfara seluörðugleik-
um i kjölfar þessa, hefur
þorskblokkin lækkað i
verði, og var þannig seld
á 60 sent, fyrr á árinu.
Þorskflökinhaldahins veg-
ar enn verði en önnur flök
munu flest hafa lækkað.
Ekki eru neinar
breytingar fyrir-
sjáanlegar á þessu
ástandi i bráð, en þetta
veldur m.a. þeim örðug-
leikum islensku frysti-
húsanna að þau eru
stöðugt rekin með meiri
halla, skv. skýrslu hag-
rannsóknarstjóra.
Þetta hefur i för með
sér birgðasöfnun, sem
þýðir aukna fjármagns-
bindingu fyrir frystihús-
in, sem svo leiðir til auk-
innar skuldasöfnunar
þeirra.
Guðjón B. Ólafsson,
framkvæmdastjóri
Sjávarafurðadeildar SIS,
sagði I viðtali við blaðið I
gær, að frystihús innan
SIS gætu ekki beðið
margar vikur eftir að hið
opinbera gerði viðeigandi
ráðstafanir til bjargar
þessum málum.-
Helgi á Hrafnkels-
stöðum skorar fræði-
menn og sagnfræðinga
til einvigisumræðna
um, hver sé höfundur
Njálu. Fari svo, aö
einhver cða einhverjir
verði við áskorun
Helga, fara þessar ó-
venjulegu kappræður
fram á Þróunarsýn
ingunni i Laugardals
höllinni næstkomandi
laugardag. Það er hafi
fyrir satt, að Helgi láti
sér i léttu rúmi liggja,
hvort einn eða fleiri
sagnfræðingar mæta
til þessa leiks, að þvi
tilskyldu þó, að
Benedikt Gislason á
Hofteigi verði ekki
einn þeirra.
Eins og kunnugt er,
deila menn um það,
hver sé höfundur
Njálssögu, en flestir
fræðimenn hafa skoð-
un á þvi máli, sem
þeir telja rökstudda.
llelgi á Hrafnkelsstöö-
um hefur ekki farið
dult með ágreining
sinn við ýrnsa þjóð-
kunna fræðimenn i
þessu efni, og ekki
mun skorta áheyrend-
ur, ef úr þessu einvigi
veröur.