Alþýðublaðið - 31.07.1974, Side 2
Stjórn-
Hringur eða ekki hringur
— Nú er hægt að aka án þess
að koma nokkru sinni að
leiðarenda. Einhvern veginn á
þessa leið mælti Magnús Torfi
Ólafsson, samgöngumálaráð-
herra, er hann opnaði brúna
stóru yfir Skeiðará — og þar
með beint vegasamband milli
austur- og suðurlands.
En er hægt að aka slikan
þjóðveg, að ökumaður aldrei
standi á leiðarenda — er hinn
margumræddi hringvegur um
landið þá orðinn að veruleika?
Já: fyrir þá, sem sleppa Vest-
fjörðum úr leið sinni. Sé þessi
landshluti ekki sóttur heim er
hægt að aka og aka uns bensin
eða bill þrýtur, en vegur
aldrei. En séu Vestfjarðavegir
til þjóðvegakerfisins taldir, þá
þrýtur vegur fyrri en bifreið.
Þar finnst sá leiðarendi, sem
engin Skeiðarárbrú stendur
við.
Til skamms tima var það
svo, að þyrfti maður af Vest-
fjörðum að bregða sér til
Akureyrar að vetrarlagi, þá
voru allar áttir þangað færar
nema sú ein, sem þangað
horfði. Nú mun vera hægt að
komast þangað loftleiðis með
öðru móti en þvi, að fara fyrst
á einhvern þann stað fjar-
sveitis, sem viðkomandi ætlar
alls ekki til.
Akandi komast Vest-
firðingar hins vegar ekki til
noröurlands með góðu móti á
annan hátt, en þann, aö fara
fyrst i Borgarfjarðardali um
Bröttubrekku. Sumarleyfis-
gestur, sem villist inn á Vest-
fjarðarleið og ætlar hringveg-
inn, verður sem sé að þræða
sina eigin slóð alla þessa löngu
leið til baka. Að visu á hann
völ á þremur fjallaslóðum er
nærri liggja — þ.e.a.s. vegun-
um yfir Steinadalsheiði,
Tröllatunguheiði og Laxár-
dalsheiði — en vegarslóðar
þessir eru oftast eins og Þing-
vallaveginum gamla var eitt
sinn lýst — að stæði skrattinn
á öðrum endanum, en fortöpuð
sál á hinum, þá myndi hann
vart vinna það til að sækja
hana.
Vegalagningin um sandá og
yfir stórár SuðAusturlandsins
er mikið afrek og gott. En hitt
er mesti misskilningur, að þar
með finnist ekki lengur neinn
vegarendi á islensku þjóð-
vegakerfi. A.m.k. myndi hátt-
virtur samgönguráðherra
fara flatt, ef hann brygði sér
vestur á firði i sumarleyfinu
og kynni ekki að bakka. Nema
hann hafi snúið svo gersam-
lega við þeirri föðurlandsskil-
greiningu genginna kynslóða i
landi voru, sem Halldór Lax-
ness fjallaði um i ræðu sinni á
Þingvöllum, að fæðingarsveit
hans tilheyri ekki lengur
föðurlandinu.
SB
Hafnarfjarðar Apótek
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Heigidaga kl. 2 til 4.
o
Fyrir skömmu var leitaö til Varnarliðsins um aö flytja fársjúka stúlku frá Vestmannaeyjum tii Reykja-
víkur, en flugveöur var þá mjög slæmt.
Þrátt fyrir það fór björgunarþyrla á staöinn og sótti stúlkuna, Kristinu Lárusdóttur, 16 ára, og flaug
með hana tii lteykjavikur, þar sem sjúkrabill beið og flutti hana þegar á spítala. Hún er á batavegi. —
Myndina tók W.H. Sommers um borö í þyrlunni. —
Þjóðhátíðargjafir
ÓLAFUR JÓHANNESSON, for-
sætisráðherra, tók i gær i ráð-
herrabústaðnum, Tjarnargötu
32, á móti opinberum þjóð-
hátíðargjöfum eða tiikynningu
um þær frá eftirtöldum aðilum:
1) Al rik Haggblom, landshöfð-
ingi á Alandseyjum, afhenti
skipslikan.
2) Rogers C.B. Morton, innan-
rikisráðherra Bandarikj-
anna, tilkynnti um peninga-
gjöf til námsstyrkja, pbstu-
linsstyttu af v'isundum og
sneið úr elstu trjátegund
heims.
3) Poul Hartling, forsætisráð-
herra Dana, afhenti peninga-
gjöf að upphæð d.kr.
250.000.00 til stofnunar Arna
Magnússonar og skýrði frá
þvi, að danska þingið hefði
ennfremur ákveðið að auka
stofnfé „Fondet for dansk-is-
landsk samarbejde” um
d.kr. 250.000.00.
4) Pekka Tarjanne, samgöngu-
ráðherra Finna, tilkynnti um
penfngagjöf að upphæð
400.000.00 finnsk mörk, sem
ætluð er til námsstyrkja.
5) Jákup Lindenskov, varalög-
maður Færeyinga, tilkynnti
um bókagjöf og bát, átta
manna far, sem afhentur
verður i byrjun ágúst.
6) Baron W.J.G. Gevers, sendi-
herra Hollands,. afhenti Is-
landskort frá árinu 1666.
Pekka Tarjanne, samgönguráöherra, afhendir ólafi Jóhannessyni
þjóðargjöf Finna.
7) Dr. Conor Crurse-O’Brien,
póst- og simamálastjóri Ir-
lands, tilkynnti um gjöf Ira,
sem er steinsúla til minning-
ar um landnám lra við Akra-
nes.
8) Dr. Poul H.T. Thorlakson af-
henti bók úr stærra safni
bóka, sem Kanadamenn
munu senda siðar.
9) Tryggve Bratteli, forsætis-
ráðherra Noregs tilkynnti
um peningagjöf að upphæð 1
milljón norskar krónur, ætl-
uð til ferðastyrkja, lands-
spildu til trjáræktar i Noregi
og veggteppi. Ennfremur til-
kynnti prófessor Hallvard
Mageröy um bókagjöf frá
norskum einkaaðilum til
stofnunar Árna Magnússonar
og Haakon S. Mathiesen,
stórbóndi, tilkynnti um fræ,
sem norskir aðilar ætla að
gefa skógrækt rikisins.
10) Raimund Hergt, sendiherra
Sambandslýðveldisins
Þýskalands, tilkynnti um
bókagjöf til háskólabóka-
safnsins.
11) Bertil Zachrisson, kennslu-
málaráðherra Svia, tilkynnti
um bókagjöfog námsstyrkja-
sjóð.
Ólafur Jóhannesson, forsætis-«
ráðherra, þakkaði gjafirnar, og
sagði þá m.á.
„Við tökum við þeim sem
tjáningu um vináttu ykkar og
virðingu fyrir islensku þjóðinrii,
og enda þótt við metum gjafirn-
ar sjálfar mjög mikils, þá er
okkur enn svo farið sem forfeðr-
um okkar á söguöld, að við met-
um þó enn meira þá vináttu
ykkar, sem gjafirnar eru tákn
um. Okkur er tamt að vitna i
Njáls sögu um þetta efni, þar
sem Gunnar á Hliðarenda þakk-
ar Njáli á Bergþórshvoli góðar
gjafir með þessum orðum:
„Góðar eru gjafir þinar en
meira þykir mér vert vinfengi
þitt og sona þinna”.”
Víðkunnir
stærðfræðing-
ar hér á ferð
A StÐASTA ARI lét prófessor
Leifur Ásgeirsson af starfi við
Háskóla Islands. Leifur hafði
þá skipað eina embætti
prófessors i stærðfræði við
Háskólann frá 1945. 1 þessu til-
efni bundust Islenzka stærð-
fræðafélagið, Stærðfræðiskor
Verkfræði- og raunvlsinda-
deildar, Stærðfræðistofa og
Reiknistofa Raunvisinda-
stofnunar Háskóians
samtökum um að hrinda i
framkvæmd hugmynd Leifs
um sumarstofnun i stærð-
fræði. Sumarstofnunin'skyldi
hafa um það forgöngu að
bjóða hingað til lands kunnum
erlendum stærðfræðingum.
Þannig yrði rofin sú einangrun
islenzkra stærðfræðinga, sem
Leifur hafði þó sjálfur mátt
búa við.
Islenzka stærðfræðafélagið
stofnaði i þessum tilgangi
sjóð, sem margir félags-
manna og velunnara Leifs
hafa lagt fé til.-Auk þess mun
Háskóli Islands taka þátt i
kostnaði Sumarstofnunar-
innar á þessu ári.
Nú hafa nokkrir viðkunnir
stærðfræðingar þekkzt boð
Sumar'stofnunarinnar um að
dvelja hér um tima i sumar og
halda hér fyrirlestra og vinna
með islenzkum starfs-
bræðrum sinum. Má hér nefna
próf: Erdös frá Ungverja-
landi, sem dvaldi hér i viku
um mánaðamótin júní-júli,
próf. Garding frá Sviþjóð og
próf. Engeler frá Svisslandi
velja hér um þessar mundir i
um 3. vikur, próf. Sigurður
Helgason MIT er hér i heim-
sókn, eins og oft áður, og siðar
eigum við von á próf. E.M.
Alfsen frá Noregi og próf. W.
Klingenberg frá Þýzkalandi.
Loks mun próf. W. Bade frá
háskólanum i Berkeley
staldra við hér á leið sinni
au$tur um haf i byrjun ágúst.
"CV 4
ÞRÓUN
Þessi bær; eða þverskurður af
bæ, er ejnn fjölda hluta sem sjá
má á sýningunni i Laugardai, og
eru veggir hans hiaðnir með
norðlensku lagi. Sést það á
hliðinni, þar sem bnausarnir i
veggnum hallast á vixl cftir
lögum upp á við. —
| asa r
W&- BLOMAHUSIÐ simi 83070 IIBVfl púnn
Skipholti 37 í GIAEJIBflE I
Opió til kl. 21.30. ÞAÐ B0RGAR SIG /ími 84200 I
^i^^Einnig laugardaga oa sunnudaga. Iaðverzlaíkron
l Hj
Miðvikudagur 31. júlí 1974.