Alþýðublaðið - 12.11.1975, Síða 6
Sjjonvarp
ítölsku þættirnir
byrja í desember
Sjónvarpiö er búið að festa kaup á
itölsku mynda efni, og munu fyrstu
sýningar á þvi væntanlega hel'jast i
næsta mánuði. Eins og Alþýðublaðið
hefur skýrt frá nýlega, fóru þeir Jón
Þórarinsson forstöðumaður lista- og
skemmtideildar sjónvarpsins og Lúðvig
B. Albertsson fuiltrúi þess, gagngert til
ttaliu til aö kanna kaup á itölsku efni
fyrir sjónvarpið. Biaðið hafði tal af Jóni
og spurði hann um árangur þessarar
ferðar.
,Við Lúðvig fórum fyrst til Milanó, á
skoðunarfund sem allar sjónvarps-
stöðvar V-Evrópu standa að, og er þessi
fundur haldinn árlega. A þessum fundi
voru :i00 manns, og voru sýndir þar 305
þættir, en aö þessu sinni sýndu
tslendingar ekkert. Tilgangur þessarar
ferðar var meðal annars, að kanna
annað efni en enskt og bandariskt, en
það hefur verið svo til allsráðandi hér.
Margt af þessu efni var mjög álitlegt,
en að sjálfsögðu lika slæmt, og var það
nokkuð áherandi hve þungt margt af þvi
efni sem frá meginlandinu kom var, og
þá helzt það þýzka. Okkur leizt mjög vel
á hollenskan mvndaflokk sem við sáum,
og var efni hans nútimalegt og raun-
verulegt, með skemmtiiegri blöndu af
húmor.
Erum viö þessa stundina i skriflegu
sambandi við llollendingana um að fá
þessa þætti, sem koma til með að verða
13. Einnig sáum við stök leikrit frá
Austurriki og Þýzkalandi, sem voru
mjög álitleg. Að loknum þessum fundi
fórum við til Rómar. þar sem við
ræddum við fulltrúa italska sjón-
varpsins, og keyptum við tvær mynda-
seriuraf þeim. Annar myndaflokkurinn
heitir ,,Borg á leiðarenda.” og er hann i
l'imm þáttum, sem hver þeirra tekur
klukkutima i sýningu. Myndaflokkur
þessi fjallar um pilt og stúlku sem
leggja af stað frá S-ttaliu norður eftir i
atvinnu leit. Myndirnar sýna frá sam-
skiptum þeirra innbyrðis, og við fólk út
á við. Efnið er mjög aðgengilegt, og er
þetta gott efni fyrir alla fjölskylduna,
vegna hins létta blæ sem á myndunum
er.
Annar myndaflokkurinn sem við
keyptum heitir ,,Vin og brauð”, og er
hann I fjórum þáttum. Myndin er frá
millistriðsárunum, og segir frá and-
íasista sem var geröur útlægur vegna
stiórnmálaskoðanna sinna. Maður
þessi laumaði sér til æskustöðvanna,
og byrjaði að vinna á móti fasismanum
en hans gömlu vinir tóku honum
misjafnlega. Myndaflokkur þessi er um
alvarlegt efni, og mjög spennandi.
Einmg keyptum við nokkra skemmti-
þætti, og er einn þeirra um sögu
skemmtiiðnaðarins frá aldamótum, og
greinir hver þeirra frá 15 ára timabili
iðnaðarins. Þættir þessir eru mjög
skemmtilegir, og fær maður að heyra
þar mörg gömul og skemmtileg lög.
Einnig keyptum við þrjá aðra skemmti-
þætti sem fram koma i skemmtikraftar
fra mörgum löndum.” Að lokum sagði
Jón, að það efni sem þeir keyptu, hefði
útvarpsráð ekki séð. og hefði hann keypt
þá i þeirri von að útvarpsráð myndi
samþykkja þá til sýninga. Spurðum við
Jón, hvað yröi um þetta efni ef útvarps-
ráð samþykkti það ekki til sýninga.
Sagði hann að þá þyrfti að semja við
ttalina um að draga þessi kaup til baka.
Skcmmtanir
Riðlar ný hljómsveit
Herberts þeim eldri?
Herbert Guömundsson, með
nýja hljómsveit.
Ilerbert Guðmundsson, fyrrverandi
söngvari hljómsveitarinnar Pelican,
hefur i hyggju að stofna hljómsveit á
næstunni. 1 samtali við blaðið i gær
sagði hann, að það ætti aðeins eftir að
reka smiðshöggið á stofnun þessarar
hljómsveitar, en linurnar myndu
skýrast von bráðar. Herbert vildi ekki
skýra frá nöfnum hljómsveitarmeðlim-
anna að svo stöddu, en hann tjáði okkur
að flestir væru i starfandi hljóm-
sveitum, og sumir þeirra vel þekktir.
Herbert er um þessar mundir að læra
á pianó, og stefnir hann að þvi að verða
hljómborðsleikari jafnframt söngnum.
Eins og komið hefur fram i fréttum, er
llerbert meö nokkur frumsamin lög i
pokahorninu, sem hann hefur áhuga á
að gefa út á plötu, og spurðum við
lierbert þvi um framvindu þess máls.
Herbert sagði, að um þessar mundir
stæðu yfir samningar við isienzkan aðila
um útgafu á 12 laga plötu og kæmi þá hin
nýja hljómsveit til með að annast undir-
léik ó henni. Herbert tjáði okkur einnig,
að væntanlegir hljómsveitarmeðlimirn-
ir væru flestir lagasmiðir, þannig að von
er til þess að hljómsveitin hafi að
einhverju leyti -’frumsamið laga-
prógram. sem er ánægjuefni.
Stofnun hljómsveitarinnar gefur
tilefni til þess að ætla, að miklar sveiflur
i hljómsveitarbransanum séu i
vændum, þar sem liðsmenn þessarar
nýju hljómsveitar, eru allir i starfandi
hljómsveitum, og er hætta á að þær
riðlist eitthvað við þessar skiptingar.
GG
lltvarp
Míövikudagur
12. nóvember
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tór.leikar. Til-
kynningar.
12.25 Fréttir og veðurlregnir. Til-
kynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miödegissagan: „Fingra-
mál” eftir Joanne Greenberg.
Bryndis Viglundsdóttir les þýð-
ingu sina (2).
15.00 Miödegistónleikar. Styve-
sant-kvartettinn leikur Cha-
connu fyrir strengjasveit eftir
Henry Purcell og Kvartett i D-
dúr eftir Karl Ditters von
Dittersdorf. Pierre Pierlot og
kam mersveitin Antiqua
Musica leika Tvo óbókonserta
op. 7 eftir Tommaso Albinoni
nr. 6 i D-dúr og nr. 9 i F-dúr.
Hátiðar-kammersveitin i Bath
leikur Hljómsveitarsvitu nr. 2 i
h-moll eftir Bach, Yehudi
Menuhin stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.10 Útvarpssaga barnanna:
„Tveggja daga ævintýri’’ eftii
Gunnar M. Magnúss. Ilöfmidui
les (8).
17.30 Framburðarkennsla I
dönsku og Irönsku.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Vinnumál.Þáttur um lög og
rétt á vinnumarkaði. Um-
sjónarmenn: Lögfræðingarnir
Gunnar Eydal og Arnmundur
Backman.
20.00 Kvöldvaka. a, Einsöngur
Sigurveig Hjaltested syngur is-
lenzk lög. Ragnar Björnsson
leikur undir. b. Þrir dagar á
Gotlandi. Þóroddur Guð-
mundsson flytur ferðaþátt,
fyrri hluti. c. „öfullnægja”,
smásaga eftir Pétur Hraun-
fjörö Pétursson. Höfundur les.
d. Þjóötrú uin manninn. Baldur
Pálmason les frásögn Helga
Gislasonar á Hrappsstöðum i
Vopnafirði. e. Um islenzka
þjóöhætti. Árni Björnsson
cand. mag. talar. f. Kórsöngur.
Karlakórinn Fóstbræður syng-
ur. Ragnar Björnsson stjórnar.
21.30 Útvarpssagan: „Fóstbræö-
ur" eftir Gunnar Gunnarsson.
Jakob Jóhannesson Smári
þýddi. Þorsteinn ö. Stephensen
leikari les (14).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan:
„Kjarval" eftir Thor Vil-
hjáinisson. Höfundur les (13).
22.40 Djassþáttur. Jón Múli
Árnason kynnir.
23.25 Fréttir i stuttu máli. Dag-
skrárlnlt
Sjjónvarp
18.00 Björninn Jóki. Nýr, banua-
riskur teiknimyndaflokkur.
Þýðandi Jón Skaptason.
18.25 Kaplaskjól. Breskur
myndaflokkur byggður á sög-
um ef.tir Monicu Dickens.
Skuldin. Þýðandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir.
18.50 List og listsköpun. Fræðslu-
myndaflokkur fyrir unglinga.
3. þátlur. I.jós og skuggar.Þýð-
andi Hallveig T+iorlacius.
Þulur tngi Karl Jóhannesson.
19.15 lllé
20. Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.40 Vaka. Dagskrá um bók-
menntir og listir á liðandi
stund. Umsjónarmaður Aðal-
steinn Ingólfsson.
21.20 Mct’loud. Bandariskur
sakamálamyndaflokkur. Aðal-
hlutverk Dennis Weaver. Þýð-
andi Kristmann Eiðsson.
22.10 iþróttir. Umsjón Ómar
Ragnarsson.
Dagskrárlok óákveöin.
0KKUR VANTAR
HJARTA-
VERNDARHÆLI
Hjartasjúkdómar krefjast æ fleiri fórnar-
lamba, en oft gerir vargurinn vart við sig
fyrst. Við höldum, að nú sé kallað:
„Úlfur, úlfur”, en hægt væri að bjarga
flestum fórnardýrunum í fyrstu.
Blóötappi i hjarta er einhver
alvarlegasti sjúkdómurinn nú
orðið, og verður sifellt algeng-
ari. Jafnvel i Sovétrikjunum er
þróunin lik og i velferðarrikj-
unum.
1 Moskvu voru rannsakaðir
menn á aldrinum frá fimmtugu
ogyfir.þann aldur, en i ljós kom,
að um fimmti hver maður leið
af þessum sjúkleika, sem yfir-
leitt leiðirtil bana. Nokkru fleiri'
höfðu of háan blóðþrýsting. Sá
sjúkleiki fylgist oft að með
hjartakölkun, án þess að menn
geti nú gert sér grein fyrir þvf,
hvert samband er þar á milli.
Þetta virðist lika streitusjUk-
dómur I Sovétrikjunum, þvi að
nær tvöfalt fleiri þjást af honum
i borgum en i sveitum.
Minnkum hættuna
Menn i Sovétrikjunum hafa
gert margt til að berjast gegn
blóðtappa. Þeir hafa sett á stofn
sjUkradeildir i verksmiðjunum.
RUssarnir kalla þetta nætur-
deildir. Verkamennirnir vinna á
daginn, en eru í hvild á nætur-
deildunum.
Verkamenn með blóðtappa-
og aðra hjartasjUkdóma — bUa
á sjUkradeildunum meðan
fylgzt er með blóðþrýstingi
þeirra og annarri likamsstarf-
semi.
Vitanlega er vel fylgzt með
þeim, og þar með er hreyfing og
mataræði.
Það er sum sé verið að koma i
veg fyrir nýjan blóötappa.
Það er svo litið, sem unnt er
að gera, þegar skaðinn er
skeður. Það kostar svo mikið fé
og er oft — til litils.
Ekki aðeins matar —
heldur hvildaratriði
Við vitum hins vegar, hverjar
eru helztu orsakirnar — og
hvernig er unnt að koma i veg
fyrir blóðtappa.
Breyting á lifnaðarháttum.
Ekki aðeins á matar- og
hreyfingu heldur lika á nautna-
lyfjum.
Sigarettur eru hættulegar,
vindlar skárri, pipa svo til
óskaðvænleg o.s.frv.
Allir, sem fengið hafa blóð-
tappa — og það hafa margir —
verða að læra af reynslunni.
1 Sovétrikjunum er það kennt
á hjUkrastofnun. Allt tekur sinn
tima og sjUklingurinn fær að
vita frá upphafi til enda, að
hann sé sifellt i lifshættu, nema
hann fái rétta meðferð
samstundis.
HjUkrunarstofnunin sér um
allt slikt. Þar fá sjUklingarnir
einnig þjálfun undir eftirliti til
að kenna þeim að lifa lifinu utan
sjúkrahúss.
Endurhæfing
Það eru til endurhæfingar-
stöðvar hérlendis. Vifilsstaðir
og Hveragerði t.d. Allir vita, að
berklar eru að hverfa, en þvi
meiri not eru fyrir berklahælin
handa öðrum sjUklingum.
Auðvitað væri heppilegast, að
sjUklingarnir gætu unnið á
endurhæfingardeildinni og þar
með vanizt smám saman
legunni sem sjUklingar og lffinu,
sem starfandi þjóðfélagsþegn.
Það er ekki nðg fyrir mann,
sem fær kransæðastiflukast að
liggja nokkra daga á sjUkrahUsi
og taka svo til við starfið,
sem olli slikristreitu, að hjartað
bilaði.
Hjartavernd
Það er auðvelt að láta menn
fá nokkurra vikna hvild i Sovét-
rikjunum, en öllu erfiðara hér i
okkar kapitaliska þjóðfélagi.
Það eru svo margir aðrir, sem
þurfa á sjUkrarúmum og hvild
að halda, en við eigum þó
hérlendis félag, sem heitir
Hjartavernd og Hjartabil
(afsakið upphafsstafina, en þeir
eru nauðsynlegir). Hjarta-
bfllinn er notaður sem sjúkrabill
ogHjartaverndskoðarfólk fyrir
smáborgun árlega.
Hvernig væri, að allir þeir,
sem að þessum tveim
stofnunum standa leggðu sig
fram til að eignast deild, sem
kennir hjartasjúklingum að búa
við veikt hjarta? Að koma i veg
fyrir, að þeir detti niður hingað
og þangað öllum til ama og
angurs?
Það er enginn, sem getur um
það sagt, hvað það á eftir að
kosta okkur peningalega séð, en
heldur enginn, sem getur sagt,
hvað það bjargar mörgum
mannslifum.
Reykingamönnum til glöggvunar
Sífellt fiölgar hrukkunum
Bandariskur læknir, sem hefur
fylgzt með fólki á aldrinum frá
þritugs til sjötugs, segir, að sifellt
fjölgi hrukkunum hjá þeim, sem
reykja.
Hann rannsakaði llOOmanns og
helmingurinn reykti
rúml. tuttugu sigarettur á dag.
Harry Daniell segist hafa séð
áberandi hrukkur i húðinni
sérstaklega umhverfis augun.
Þar dróst skinnið saman og húðin
þynntist.
Hjá þeim, sem ekki reyktu,
varð þess litt vart hjá þessum
aldursflokkum, nema hvað svona
venjulegar aldurshrukkur, sem
koma hjá öllum, lika þeim, sem
reykja ekki.
Rannsóknir dr. Daniells hafa
vakið mikla athygli hjá læknum
eftir þvi sem tóbaksrit segja.
Ungur þiggur —
gamall liggur
Krabbameinsstofnun Japana sannaöi nýlega, aö ungir reykingamenn
létust fyrr úr lungnakrabba.
Dr. Yu llirayama hefir liaft ineö höndum rannsóknir allt frá árinu
1965 á 265,118 reykingamönuum i rúm fjörutiu ár. 2.172% þeirra, sem
byrjuöu aö reykja innan fjórtán ára aldurs, eru nú látnir. 1.189%, sem
byrjuöu að reykja eftir 19 ára aldur eöa áður, dánir. Aðeins 1.063%
reykingamanna, sem liófu reykingar milli 20 og 24 ára létust.
Á svipuöu aldursskeiöi látast 2,5 sinnum fleiri reykingainenn, en
aðrir. 5.4% fleiri reykingamenn látast af lungnakrabba en þeir, sem
ekki neyta tóbaks, 2,1% af hjartasjúkdómuin og 2,4% af lifrarsjúkd-
ómum.
Vegur ti!
verótryggingar
m
Gefinn hefur veriö út nýr flokkur happdrættis-
skuldabréfa ríkissjóös, G flokkur, aö fjárhæö
300 milljónir króna. Skal fé því, sem inn kemur
fyrir sölu bréfanna, variö til varanlegrar
vegageröar í landinu.
Happdrættisskuldabréf ríkissjóös eru endur-
greidd aö 10 árum liðnum meö veröbótum í
hlutfalli viö hækkun framfærsluvísitölu.
Auk þess gildir hvert bréf sem happdrættismiöi,
sem aldrei þarf aö endurnýja i 10 ár.
Á hverju ári verður dregið um 942 vinninga aö
fjárhæö 30 milljónir króna, og veröur í fyrsta
skipti dregið 23. janúar n.k.
Vinningar á hverju ári skiptast sem hér segir:
6 vinningar á kr. 1.000.000 - kr. 6.000.000
6 vinningar á kr. 500.000 = kr. 3.000.000
130 vinningar á kr. 100.000 = kr. 13.000.000
800 vinningar á kr. 10.000 = kr. 8.000.000
Happdrættisskuldabréfin eru framtalsfrjáls og
vinningar, sem á þau falla.skattfrjálsir.
Happdrættisskuldabréf ríkissjóðs eru til sölu nú
Þau fást í bönkum og sparisjóðum um land allt og kosta 2000 krónur.
iB) SEÐLABANKI ISLANDS
Míisím lif
PUASTPOKAVERKSMKDJA
Sfmar 82439 - 82455
Vatnagörbum 6
Box 4064 - Reykjsvlk
Pípulagnir 82208
Tökum að okkur alla
pipulagningavinnu
Oddur Möller
löggildur
pipulagningameistari
74717.
Halnarfjaröar Apótek
Afgreiðslutimi:
Virka daga kl. 9-18.30
Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsingasimi 51600.
Birgir Thorberg
málarameistari simi 11463
onnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul húsgögn
Teppahreinsun
Ilri’insum gólfteppi og húsgögn I
heimahúsum og fjrirtækjum,
Eruin meft nýjar vclar. (lóft þjón-
usta. Vanir menn.
SIGFÚS BIRGIR
82296 40491
Útvarps.og
sjónvarpsviögerðir
Kvöld og helg-
arþjónusta.
10% afsláttur til
öryrkja og aldr-
aftra.
SJONVARPS-
VIDGERÐIR
Skúlagötu 26 —
slmi 11740.
KOSTABOD
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Simi 74200 — 74201
Dúnn í GlflEflDflE /ími 84900 t-Þfc TTILISTINN —■rv— T-LISTINN ER ^ imgreyptur og þclir alla veöráttu. | T1 T LISTINN A: ól ihuröir sva lahurðir hjaraglugga og \ eltiglugga
GluggnimiOian { Uftxnúlo 20 S-m, J*-J0