Alþýðublaðið - 24.09.1977, Síða 8
8
Laugardagur 24. september 1977
Prófkjör Alþýðuflokksins i
Vestfjarðakjördæmi.
Prófkjör um skipan efsta sætis á lista
Alþýðuflokksins á Vestfjörðum fer fram
dagana 24. og 25. september n.k. á þeim
timujn og stöðum, sem nánar eru til-
greindir i þessari auglýsingu. Auk þess
verður póstatkvæða- og utankjörfundarat-
kvæðagreiðsla eins og lýst er hér á eftir.
í efsta sæti listans hafa borizt tvö fram-
boð, framboð Jóns Baldvins Hannibals-
sonar skólameistara og Sighvats Björg-
vinssonar alþingismanns. 1 annað sæti
listans barst aðeins eitt framboð, framboð
Jóns Baldvins Hannibalssonar, skóla-
meistara.
Fer þvi einungis fram prófkjör um 1
sæti listans en ekki um 2 sæti og telst Jón
Baldvin Hannibalsson sjálfkjörinn i það
sæti, nái hann ekki kjöri i 1. sæti.
Póstatkvæðagreiðsla: Póstatkvæða-
seðla geta kjósendur fengið hjá formanni
kjördæmisráðsins, formönnum undirkjör-
stjórna og trúnaðarmönnum yfirkjör-
stjórnar.
Póstatkvæði skulu hafa borizt formanni
kjördæmisráðsins, Ágústi H. Péturssyni,
Urðagötu 17, Patreksfirði, fyrir klukkan
24. sunnudaginn 25 þessa mánaðar.
Utankjörfundaatkvæðagreiðsla: Utan-
kjörfundaatkvæðagreiðsla fer fram á veg-
um formanna undirkjörstjórna, en þeir
eru þessir: Á ísafirði Gestur Halldórsson,
Á Patreksfirði Bjöm Gislason, og i
Súgandafirði Ingibjörg Jónasdóttir.
Trúnaðarmenn yfirkjörstjórna eru: í
Bolungarvík Kristján Möller, kennari. Á
Flateyri Hjörtur Hjálmarsson, fyrrum
skólastjóra og á Þingeyri Kristján Þór-
arinsson, bifreiðastjóri. Fyrrgreindir
trúnaðarmenn sjá um utankjörfundar at-
kvæðagreiðslu á viðkomandi stöðum.
Samkvæmt samþykkt stjórnar kjör-
dæmisráðs Alþýðuflokksins á Vestfjörð-
um eru utankjörfunda- og póstatkvæða-
greiðslur hér með hafnar.
Kjörstaðir — Kjördagar.
Á Isafirði Patreksfirði og i Súgandafirði
verða tveir kjördagar, laugardaginn 24.
þessa mánaðar klukkan 14 til klukkan 19,
og sunnudaginn 25. þessa mánaðar klukk-
an 10 til 12 og 14 til 19. Stjórnir flokks-
félaganna á þessum stöðum gegna hlut-
verki undirkjörstjórna.
Á Patreksfirði verður kosið i barnaskól-
anum, á Súgandafirði i félagsheimilinu,
kjörstaður á ísafirði verður nánar aug-
lýstur siðar.
Einn kjördagur.
í Bolungarvik, á Flateyri og Þingeyri
verða opnir kjörstaðir sunnudaginn 25.
þessa mánaðar klukkan 13 til 19 undir
stjórn trúnaðarmanna yfirkjörstjórna. í
Bolungarvik verður kosið i barnaskólan-
um, á Flateyri i barnaskólanum, á Þing-
eyri verður kosið að Brekkugötu 24. Sama
dag og á sama tima verður opin kjördeild
frá ísafirði i Súðavík og kjördeild frá
Patreksfirði í félagsheimilinu á Bildudal.
Allir Vestfirðingar 18 ára og eldri, sem
lögheimili eiga i kjördæminu og ekki eru
flokksbundnir i öðrum stjórnmálaflokkum
hafa þátttökurétt i prófkjörinu. Allar frek-
ari upplýsingar og fyrirgreiðslu varðandi
prófkjörið má fá hjá framkvæmdaaðilum
þess þ.e.a.s. formanni kjördæmisráðsins,
formönnum flokksfélaganna og trúnaðar-
mönnum yfirkjörstjómar.
Patreksfirði 13. september 1977.
Fyrir hönd stjórnar kjördæmisráðs
Alþýðuflokksins á Vestfjörðum.
Ágúst H. Pétursson, íormaður,
Urðargötu 17. Patreksfirði.
Neyðarsímar
Slökkvilið
Slökkviliö og sjúkrabilar
i Reykjavik — simi 11100
i Kópavogi— Simi 11100
i Hafnarfiröi — Slökkviliöiö simi
51100 — Sjúkrabni simi 51100
Lögreglan
Lögreglan i Rvik — simi 11166
Lögreglan i Kópavogi — simi
41200
Lögreglan i Hafnarfiröi — simi
51166
Hitaveitubilanir simi 25520 (utan
vinnutima simi 27311)
Vatnsveitubilanir simi 85477
Simabilanir simi 05
Rafmagn. 1 Reykjavik og Kópa-
vogi i sima 18230. 1 Hafnarfiröi i
sima 51336.
Heilsugæsla
Slysavaröstofan: simi 81200
Sjúkrabifreiö: Reykjavik og
Kópavogur, simi 11100, Hafnar-
fjöröur simi 51100.
Reykjavik — Kópavogur
Ilagvakt: Kl. 08.00-17.00. Mánud.
föstud. ef ekki næst i heimilis-
lækni, simi 11510.
Læknar
Tannlæknavakt i Heilsuverndar-
stöðinni.
Slysadeild Borgarspitalans. Simi
81200. Siminn er opinn allan
sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
varsla, simi 21230.
Kvöld- og næturvakt: kl. 17.00-
08.00 mánudag-fimmtud. Simi
21230. A laugardögum og helgi-
dögum eru læknastofur lokaðar
en læknir er til viötals á göngu-
deild Landspitalans, simi 21230.
Upplýsingar um lækna- og lyf ja-
búöaþjónustu eru gefnar i sim-
svara 18888.
Hafnarfjörður
Upplýsingar um afgreiöslu i apó-
tekinu er i sima 51600.
Hafnarfjöröur — Garöahreppur
Nætur- og helgidagagæsla:
Upplýsingar á Slökkvistöðinni
simi 51100.
Kópavogs Apótekopiööll kvöld til
kl. 7, nema laugardaga kl. 9-12 og
sunnudaga lokaö.
i Hafnarfirði — Slökkvilið simi
51100 — Sjúkrabill simi 51100
51166, slökkviiiðið simi 51100.
Sjúkrabifreið simi 51100.
Tekið viö tilkynningum um
bilanir á veitukerfum borgar-
innar og i öörum tilfellum sem
borgarbúar telja sig þurfa aö fá
aöstoö borgarstofnana.
Ýmislegt
Neskirkja
Messa kl. 11 á.d.
Altarisganga.
Séra Guömundur Oskar Ólafsson.
Arbæjarprestakall.
Guðþjónusta I Arbæjarkirkju kl.
u ,'d.
Séra Guðmundur Þorsteinsson.
Hafnafjaröakirkja.
Messa kl. 2.00 e.h.
Séra Gunnþór Ingason.
Frá félagi Nielsinna.
Almennurfræöslufundurverður á
Alfhólsvegi 121 Kópavogi I kvöld
23 september kl. 9.00.
Þorsteinn Guöjónsson segir frá
för sinni á ráöstefnu fyrirbur^a-
fræðinga i London 2-4. sept. s.l.
Ogfrá umræöum um eöli drauma
sem þar uröu. Umræöur og fyrir-
spurnir og Félag Nielsinna.
Tæknibókasafniö
Skipholti 37, er opiö mánudaga
til föstudaga frá kl_. 13-19. Simi
81533.
Ónæmisaðgerðir
gegn mænusótt
; Ónæmisaögerðir fyrir fullorðna
; gegn mænsótt, fara fram I Heilsu-
'• verndarstöð Reykjavikur á
mánudögum klukkan 16.30-17.30.
Vinsamlegast hafiö með ónæmis-
;skirteini.
( Flokksstarfdd
-
Simi
flokks-
skrifstof-
unnar
i Reykjavik
er 2-92-44
Alþýðuflokksfólk, Kópavogi.
Alþýðuflokksfélögin i Kópavogi halda fund mánudaginn
26. september kl. 20,30, að Hamraborg 1, 4. hæð.
Tekin verður ákvörðun um prófkjör til bæjarstjórnar-
kosninga i Kópavogi vorið 1978.
Stjórn Alþýöuflokksfélaganna
i Kópavogi
Prófkjör Alþýðuflokksins
til borgarstjórnarkosninga
í Reykjavík
a) Kjörstaðir eru sem hér segir:
1. Fyrir Arbæjar- og Breiðholtshverfin: Fáksheimilið.
2. Fyrir allan austurbæ austan Snorrabrautar: Sfðu
múli 37, 1. hæð.
3. Snorrabraut vestur að Seltjarnarneskaupstað: Iðnó
uppi, gengið inn frá Vonarstræti.
b) Kjörataöir verða opnir sem hér segir:
Laugardag 1. október frá kl. 13 til kl. 19
Sunnudag 2. október frá kl. lOtil kl. 19
c) 1 prófkjörinu á að kjósa um 1. og 2. sæti.
Eftirfarandi till. hafa borizt um skipan fyrsta sætis:
Björgvin Guðmundsson Hlyngerði 1, Reykjavik.
Bragi Jósepsson, Skipasundi 72, Reykjvik.
. Eyjólfur Sigurðsson, Tungubakka 26, Reykjavik.
Eftirfarandi tillögur hafa borizt um skipan annars
sætis:
Elias Kristjánsson, Alftahólum 6, Reykjavik
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, Keilufelli 8, Reykjavik.
d) Rétt til að greiða atkvæði i prófkjöri Alþýðuflokksins
hefur hver sá sem lögheimili á i kjördæminu, er orðinn
fullra 18 ára 2. október 1977 og er ekki flokksbundinn I
öðrum stjórnmálaflokk.
e) Engin utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram.
f) Niðurstöður prófkjörs eru þvi aðeins bindandi um
skipan sætis á framboðslista, að frambjóðandi hafi
hlotið minnst 1/5 hluta þeirra atkvæða, sem fram-
boðslisti Alþýðuflokksins i kjördæminu hlaut i siðustu
kosningum, eða hafi aðeins eitt löglegt framboð borist.
g) Kjósandi merkir með krossi við nafn þess fram-
bjóðanda, sem hann velur I hvert sæti. Eigi má á
sama . kjörseðli kjósa mann nema i eitt sæti, þótt hann
kunni að vera i framboði til fleiri sæta Eigi má kjósa
aðra en þá, sem i framboði eru. Við prófkjör skal hvert
það atkvæði taliö gilt, þó aðeins sé merkt við einn fram-
bjóðanda.
Reykjavik 20. sept. 1977
KJÖRSTJÖRN
RfKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
TJALDANESHEIMILIÐ
STARFSMAÐUR óskast til starfa
við umönnun vistmanna, vakta-
vinna. Upplýsingar gefur forstöðu-
maður, simi 66266.
LANDSPITALINN
H JÚKRUN ARDEILD ARST J ORI
óskast nú þegar eða eftir samkomu-
lagi Barnaspitala Hringsins. Upp-
lýsingar hjá hjúkrunarforstjóra,
simi 29000.
FóSTRUR. Tvær fóstrur óskast til
starfa á Barnaspitala Hringsins nú
þegar eða eftir samkonuilagi.
Upplýsingar veitir hjúkrunarstjóri
deildarinnar, simi 29000.
Reykjavik, 23. september 1977
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 29000