Alþýðublaðið - 11.07.1978, Síða 3
Þriðjudagur 11. júli 1978
3
Sjötugur er í dag
Þórður Einarsson, Króki 1, ísafirði
Sjötugur er í dag,
þriðjudaginn 11. júlí/
Þórður Einarsson, Króki
1, Isafirði.
Þórður er borinn og
barnfæddur Isfirðingur.
Foreldrar hans voru
Einar Guðmundsson,
skósmiður og kona
hans, Svanhildur Jóns-
dóttir. Þeim hjónum varð
12 barna auðið og var
Þórður f jórða elsta barn-
ið. Af systkinunum 12 eru
nú f jögur á lifi, auk Þórð-
ar tveir bræður og ein
systir, sem öll búa í
Reykjavík.
Eins og gerðist um
alþýöufólk af kynslóö Þóröar
Einarssonar hóf hann ungur
þátttöku i atvinnulifinu. A
fyrstu áratugum þessarar aldar
var tsafjaröarkaupstaöur meö
allra fjölmennustu byggöarlög-
um á íslandi og atvinnulif blóm-
legt. Vegna breyttra atvinnu-
hátta uröu kaupstaðarbúar hins
vegar fyrir óvæntum erfið-
leikum á uppvaxtarárum Þórö-
ar Einarssonar, en á lsafirði
var saltfiskverkun einna mest á
öllu landinu og þegar botninn
datt úr saltfiskverkuninni vegna
söluerfiðleika kom þaö mjög
þungt niöur á atvinnulifi tsa-
fjaröarkaupstaöar og ibúum
bæjarins. En þá geröist þaö, aö
nýjar og framfarasinnaöar hug-
myndir skutu rótum meöal fólks
á Isafirði — ný stjórnmála-
stefna, jafnaöarstefnan, náöi
þar meiri fótfestu og útbreidd-
ara fylgi, en i öðrum byggöar-
lögum á tslandi. Undir forystu
jafnaöarmanna varö slik
félagsleg, atvinnuleg og
menningarleg bylting á tsafirði,
aö orðstir kaupstaöarins og
þeirra, sem málum hans réöu,
flaug um allt tsland. tsafjöröur
varö landsfrægur sem „rauöi
bærinn”, og aðgerðir Isfirskra
jafnaöarmanna uröu öörum
fyrirmynd.
Eitt af þeim fyrirtækjum, sem
stofnaö var um þessar mundir
af vestfirskum jafnaöar— og
hugsjónamönnum var Kaup-
félag tsfiröinga.sem fljótlega
geröist umsvifamikiö á sviöi
verslunar og atvinnurekstrar.
Kaupfélagiö var stofnaö um
áriö 1920, en aöeins átta árum
eftir stofnun þess geröist Þóröur
Einarsson þar starfsmaöur.
Fyrst framan af sinnti Þóröur
ýmsum smærri störfum fyrir
félagiö, en fljótlega gerðist hann
starfsmaöur I vöruskemmu
þess og vann þar um áratuga
skeiö af einstakri trúmennsku
og dyggö sem pakkhússmaöur.
Fýrir fáum árum veiktist Þórö-
ur og þurfti aö gangast undir aö-
gerö. Eftir aö hann haföi náö
heilsu á ný hélt hann áfram
störfum hjá Kaupfélagi ísfirö-
inga og starfar þar enn sem aö-
stoöarmaöur á skrifstofu og viö
innheimtustörf. t nóvember-
mánuöi n.k. á Þóröur Einarsson
hálfrar aldar starfsafmæli hjá
Kaupfélagi tsfirðinga og hefur
enginn annar unnið hjá félaginu
jafn lengi og 'hann, þótt Kaup-
félag tsfirðinga háfi notið þess
að eiga fólk, sem lengi og vel
hefur unniö I þess þágu.
Þóröur Einarsson hefur gert
meira en aö starfa hjá einni af
þeim stofnunum, sem braut-
ryöjendur jafnaöarstefnunnar á
tsafiröi komu á legg. Hann hef-
ur einnig ávallt veriö virkur i
þvi umbóta— og uppbygginga-
starfi, sem Alþýöuflokkurinn
hefur haft meö höndum á tsa-
firði. Einnig þar hefur Þóröur
Einarsson verið jafn staöfastur
og tryggur og I störfum sinum I
þágu Kaupfélagsins. Hann
hefur verið félagi i Alþýöu-
flokksfélagi tsafjaröar i um eöa
yfir 30 ár og átti lengi sæti I
stjórn félagsins. Og ávallt hefur
Þóröur verið reiöubúinn til þess
aö vinna Alþýöuflokknum og
Frá bamaskóla Keflavíkur
Nokkrar kennarastöður eru lausar við
skólann næsta skólaár.
Aðalkennslugreinar, enska, danska, eðlis-
fræði og leshjálp. Upplýsingar gefur
skólaritari i sima 92-2414.
Skólanefnd Keflavíkur
Frá gagnfræðaskóla Keflavíkur
Nokkrar kennarastöður eru lausar við
skólann næsta skólaár.
Aðalkennslugreinar islenzka og erlend
mál.
Skólinn verður einsetinn og vinnuaðstaða
mjög góð.
Upplýsingar gefur skólastjóri i sima 92-
2597.
Skólanefnd Keflavikur
jafnaöarstefnunni gagn. A tsa-
firöi og raunar viöar um Vest-
firöi á Alþýöufiokkurinn liös
menn, sem eru svo tryggir og
traustir, aö liöveisla þeirra og
starfskraftar eru ávallt til reiöu
hvernig svo sem allt veltist og
snýst i pólitikinni. Til sliks fólks
sækjum viö styrk i mótlæti og
festu I meölæti. Einn af þeim
mönnum er Þóröur Einarsson.
Hann hefur aldrei látiö hugfall-
ast á þeim erfiöu timum, sem
Alþýöuflokkurinn hefur mátt
þola á undanförnum árum,
heldur ávallt verið jafn fúslega
reiöubúinn tilþess aö halda uppi
vörnum og sóknum fyrir
Alþýöuflokkinn. Og þegar taliö
haföi veriö upp úr kjörköss-
unum þann 26. júni s.l. var eng-
inn maöur á tsafiröi jafn léttur á
fæti og kátur og Þóröur Einars-
son, þrátt fyrir sin 69 ár.
Kosningasigur Alþýöuflokksins
var mikill meiri háttar viðburö-
ur i lifi Þóröar Einarssonar og
ég er sannfærður um, aö 70 ára
afmælisdagurinn veröur honum
margfalt meiri ánægju— og
gleöidagur aðeins fyrir aö hafa
upplifaö og átt þátt i þvi, aö
Alþýöuflokkurinn er nú öflugri á
Alþingi, en nokkru sinni fyrr i
meira en 60 ár.
Þórður Einarsson er tvigiftur,
og er siöari kona hans látin. Frá
fyrra hjónabandi á hann son,
Hermann, sem er flug-
umferöarstjóri og býr I Hafnar-
firði. Dóttir Þóröar af siöara
hjónabandi heitir Svanhildur,
og hjá henni, aö Hliöarveg 29,
dvelst Þórður Einarsson i dag
og tekur á móti gestum frá ki. 4-
7 e.h.
A þessum hátiöisdegi Þóröar
Einarssonar sendi ég honum og
fjölskyldu hans einlægar
árnaöaróskir. Ég þakka honum
störf hans i þágu Alþýðuflokks-
ins og mér þykir væntum aö
hafa átt og eiga hann aö.
Sighvatur Björgvinsson.
Skrifstoumaður
Starf skrifstofumanns i launadeild fjár-
málaráðuneytisins er laust til umsóknar
frá 1. ágúst.
Laun skv. launakerfi starfsmanna rikis-
ins, launaflokkur 7. Umsóknir sendist
launadeildfjármálaráðuneytisins fyrir 20.
júli.
Fjármálaráðuneytið
Tilkynning frá
Sölunefnd vamarliðseigna
Skrifstofa vor og afgreiðslur að Grensás-
vegi 9 og Keflavikurflugvelli verða lok-
aðar vegna sumarleyfa frá 17. júli til 18.
ágúst.
Verkamanna-
félagið Dagsbrún
Orðsending frá verkamannafélaginu
Dagsbrún til verkamanna i steypustöðv-
um á félagssvæði Dagsbrúnar.
Samþykkt hefur verið að banna alla vinnu
i steypustöðvum frá kl. 18.30 á föstudags-
kvöldum til venjulegs byrjunartima á
mánudagsmorgnum.
Samþykkt þessi gildir til 17. september
nk. Jafnframt itrekar félagið fyrri sam-
þykktir verkamannafélagsins Dagsbrún-
ar og verkakvennafélagsins Framsóknar
um bann á vinnu i fiskvinnslu á laugar-
dögum og súnnudögum.
Stjórn Dagsbrúnar.
AUGLÝSING
UM INNLAUSNARVERD
VERDTRVGGÐRA
SFARISKÍRTEINA RÍKISSJÓDS
FLOKKUR INNLAUSN ARTÍ M ABIL INNLAUSNARVERÐ*1 10.000 KR. SKÍRTEINI
1966 - 1.fl.: 20.09.78 kr. 307.330
1967 - 1.fl.: 15.09.78 - 15.09.79 kr. 271.541
1970 - 1.f|.: 15.09.78 - 15.09.79 kr. 150.983
1971 - 1.H.: 15.09.78 - 15.09.79 kr. 103.228
1972 - 2.H.: 15.09.78 - 15.09.79 kr. 77.003
1973 - 1.H.A: 15.09.78 - 15.09.79 kr. 58.670
- INNLAUSNARVERÐ
ÁRSGREIÐSLUMIÐA
1973 - 1.H.B: 15.09.78 - 15.09.79
10.000 KR.SKÍRTEINI kr. 4.877
50.000 KR.SKÍRTEINI kr. 24.385
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót
Innlausn spariskírteina og árgreiðslumiða fer fram í
afgreiðslu Seðlabanka fslands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframtframmi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, júlí 1978
SEÐLABANKI ÍSLANDS