Vísir - 30.01.1969, Blaðsíða 9

Vísir - 30.01.1969, Blaðsíða 9
V í S IR . Fimmtudagur 30. janúar 1969. — Hvemig hefur iönaðurinn staðið i atvinnuuppbyggingunni? — Fram hjá þeirri staöreynd verður ekki gengið, aö það, sem öðru fremur hefur ráöið upp- byggingu iðnaðarins £ landinu, hafa verið tímabundnar efna- hagsaðstæður og ráðstafanir stjómvalda i efnahagsmálum auk styrjaldaráhrifa, þegar yfir lengra tímabil er litiö. Þannig hafa til dæmis skortur erlends gjaldeyris, innflutnings höft, stefna i tollamálum og fjár festingarhömlur, sem verka mjög mismunandi á einstakar at- vinnugreinar, einkennt verulega þróun þess iðnaðar, sem er að finna í landinu í dag. Nú í dag, þegar skilningur virðist vera aö skapast á því, að iönaðarins bíða vaxandi hlut- verk í íslenzku atvinnulífi og mönnum verður tíðrætt um iðn- þróun, er nauösynlegt að gera sér grein fyrir því. að það dug ar ekkj lengur að láta tíma- bundin viðhorf ráöa ferðinni. — Hvemig skýrir þú þetta títtnefnda hugtak, iðnþróun? — Þessu vildi ég svara á þá leið, að iðnþróun sé sköpun um hverfis og atvinnuhátta, sem miða að því að nýta á sem hag- kvæmastan hátt þær aðstæður og auðlindir, sem þjóöin hefur yfir að ráða. Iðnþróun kallar á hugsunar- hátt og jarðveg, þar sem sinna þarf mörgu í senn. Það er aö vinna kröftuglega að öflun mark aða, tilraunum og rannsóknum, iönhönnun, eflingu stjómunar- tækni og tæknimenntunar. Fyr- ir hendi þarf aö vera fullkomin iðnaöarstatistík, vinna þarf að alhliða hagræðingu i atvinnu- rekstrinum, byggja upp stöðlun arkerfj fyrir framleiösluna, sjá fyrir skynsamlegri löggjöf, m.a. ® VIÐTAL DAGSINS í tolla, skatta og verðlagsmálum, sjá iðnaðinum fyrir fjármagni, endurskoða skipulagsbyggingu atvinnuveganna og umfram allt má skeytingarleysi ekki ráða um arðsemi þeirra verkefna, sem ráðizt er í. Hagnaður er mælikvarði á getu stjómenda — Telur þú, að oft hafi skort á nægilegt tillit til arðsemissjón- armiða? - í starfsemi lánastofnana hefur þess gætt átakanlega, að enginn samræmdur mælikvarði hefur verið lagður á þjóðhags- legt arðsemisgildi nýrra fjár- festinga, og kröfur um vandaðan undirbúning fjárfestingarákvarð ana hafa verið mjög takmarkað- ar. Sjálfvirk, lögbundin fjármiöl un til forréttindaverkefna hefur sljóvgað meðvitund þeirra, sem fjármagni ráðstafa og reyndar margra annarra um mikilvægi þess að láta arðsemissjónarmið ráða verkefnavali. — Er það „ljótt“ að hagn- ast? — Sú ógæfa hefur hent is- lenzkt þjóöfélag, að skilningur á hlutverki og gildi hagnaðar í atvinnurekstri hefur farið for görðum. Hefur sú skoðun orö ið ofan á, að hagnaður sé af hinu vonda, afkvæmi brasks og óheiðarleika. Afleiðing þessa birtist meðal annars i skilnings leysi á arösemi atvinnurekstr- ar á öllum sviðum þjóðlífsins. Án hagnaðar verður vöxtur fyr irtækja hægfara og lítilmótleg- ur, ef nokkur, framfarir drepn- ar í dróma og fjárhagslegu sjálf stæði stefnt í voða. Hagnaöur er raunhæfur mæli kvarði á getu stjómenda og frammistöðu, jafnframt því að vera vísbending um raunhæft verkefnaval. Hagkerfi, sem af neitar þessu hugtaki, má líkja við skip án áttayita. - Hvernig horfir fyrir iðnaöin um eftir gengislækkunina og um sókn um aðild að EFTA? lagi. Það yrði iðnaðinum háska- legast. Um þessar mundir er inn- ganga í EFTA ofarlega á baugi. Of snemmt er aö dæma um hver endanleg áhrif a íslenzkan iðnaö hlytust af þátttöku, en mér er ofarlega í huga, að sú aö staða, sem þar með skapaSisí til náins samstarfs íslenzkra iðnfyrirtækja við til dæmis nor ræn iðnfyrirtæki, bæöi á sviöi framleiöslutækni og markaös- mála, ættj að geta haft örvandi áhrif á iðnað landsmanna. — Þyrfti ekki aö vera meira samstarf milli íslenzkra iðn- fyrirtækja? — ÞaÖ verður að viðurkenn ast, að I ýmsum greinum iön- aðar okkar hafa vaxið upp ó- þarflega margar smáar rekstrar einingar, sem erfitt munu eiga um vik að keppa viö iönað grannlandanna. ísland er staðsett í miðju iðn- þróaöasta hluta veraldar, og ég álít, að vissar breytingar á skipulagsbyggingu iðngreinanna séu óumflýjanlegar ef þær eiga að geta keppt á frjálsum markaðsgrundvelli. Þetta kallar á samstarf iönfyrirtækja í ríkum mæli, sem verður að eiga sér stað að frumkvæðj fyrirtækj- anna sjálfra. I sumum tilvikum væri beinlínis æskilegt að sam- runi iönfyrirtækja ætti sér stað. Þetta hafa verið viðbrögð hjá grannþjóðum okkar, til dæmis á Noröurlöndum, gagnvart markaðsbandalögunum, og eru fjöldamörg dæmi um slíkt hjá frændþjóðum okkar. Komum sterkari út — Yrðu ekki grundvallar breytingar óhjákvæmilegar, ef við gengjum í Friverzlunarbanda Iagið? Það er augljóst mál, að vissir erfiðleikar I sambandi við aðlögun I þessum efnum munu skapast um ófyrirsjáanlegan tíma. Þaö er mitt álit, að fram tíöarafkoma okkar í þessu landi byggist á því, að okkur takist að ganga í gegnum þetta tímabil, þannig að við komum sterkari út úr því en áöur. — Aö Iokum, Sveinn. — Ég geri mér grein fyrir því erfiða ástandi, sei hefur skap- azt í efnahags- og atvinnumál- um okkar nú um stundarsakir. Hins vegar má segja, aö ekk- ert sé svo illt að ekki boði nokk uö gott, og ég fæ ekkj betur séð en þessar þrengingar muni knýja okkur til að taka upp nýjan hugsunarhátt á mörg um sviðum þjóðlífsins. Hugs- unarhátt sem muni leiöa til meira raunsæis i verkefnavali en áður og að hvers konar mis- munur í vaxtarskilyrðum at- vinnugreina muni þar með hverfa úr sögunni. er við Svein Björnsson, framkvæmdastjóra Iðnaðarmálastofnunar Islands, um málefni iðnaðarins „Arðsemissjónarmið eiga að ráða verkefnavali" Gengislækkun stuðlar að iðnþróun Vart þarf að efast um, aö ís- lendingar muni í vaxandi mæli leitast við að fara inn á braut iðnþróunar, en eins og nú er ástatt í atvinnumálum, þarf aö leggja meirj áherzlu á það en □ Efling iðnaðarins er mjög á döfinni um þessar mundir. Þegar síldarkúfurinn eyddist og gjaldeyr- isstaðan hríðversnaði, rifjuðu menn upp nauðsyn fjölbreyttara atvinnulífs, sem í vaxandi mæli byggðist á iðnaði, stóriðju og ekki sízt ýmsum smærri greinum. □ Hvernig á að byggja upp iðnað framtíðarinnar? í eftirfarandi viðtali við Svein Björnsson, sem segja má að hafi allsherjar-yfirsýn yfir vandamál þess- arar greinar, koma fram ýmis atriði, sem gefa þarf gaum. Sveinn Björnsson. nokkru sinni, að vel sé vandað til verkefnavals og hvers kon- ar framkvæmdir verði undir- búnar af kostgæfni, bæði hvað varðar tæknilegan og rekstrar- legan grundvöll. Gengislækkunin hefur að mínu áliti, ef rétt er á haldið skapað jákvæð viðhorf fyrir iðn þróun, en allt er undir þvi kom- ið aö ekki sæki i sama horfið aftur og raungengi færist úr

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.