Vísir - 27.06.1969, Page 7
V l S I R . Föstudagur 27. júm' r969.
7
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
iftlönd í raorgun útíönd
$ Ammarr. Jórdanía hefur farið
fram á fund í Öryggisráði til at-
hugunar á framferöi ísraels, sem
miðar aö því að gera Jerúsalem
alla aö Gyöingaborg, svo sem meö
þvi aö flæma burt Araba og
sprengja hús í k>ft npp.
A Sangstjarnan og lefkkonan Judy
Garland fézt í London fvrir nokkr-
um dögum. Rannsókn á dauða henn-
ar leiddí í Ijós, aö hún hafði tekið
inn of mikið af svefntöflum, en
svefntöfhir vandist hún á í æsku,
er hún var „barnastjarna". Engar
líkur eru sagðar fyrir, að tilgang-
ur hennar hafi verið aö fremja
sjálfsmorö. Hún giftist í London
fyrir 3 mánuöum bandarískum kaup
sýslumanni (og var hann sjöundi
eiginmaður hennar). Eftir að þau
voru gefin saman lét hún oft í Tjús
hve hammgjusöm hún væri.
HERT A FJOTRUNUM
í TÉKKÓSLÚ VAKÍU
Dr. Husak segir stefna til stjórnleysis i verk-
smiðjum landsins
■ Dr. Husak leiðtogi Konimún-
istaflokks Tékkóslóvakíu sagði í
gær á fundi flokksforustunnar, að
til beinna átaka væri komið um
flokksstefnuna.
Hann sagöi, að heyja yrði barátt-
una fvrir stefnunni á öllum sviö-
um, og nefndi sérstaklega verk-
smiðjurnar, þar sem bryddað heföi
á því, að tækifærissinnuð öfl hefðu
tekiö afstöðu, sem gætu leitt til
stjórnleysis, ef ekki væri tekiö í
taumana.
Áður haföi verið varað við afleið-
ingum hótana um verkföll og að
deildir í flokknum hafa neitað að
. greiða félagsgjöld til flokksstarfsem
innar.
Krafizt harðari ráð-
stafana gegn Rhódesíu
# Um 50 þingmenn í brezka verka-
mannaflokknum hafa undirrit-
aö áskorun til ríkisstjórnarinnar,
að herða refsiaðgeröir gegn Rhód-
esíu og m. a. með því neita flug-
vélum. sem halda uppi flugferðum
til Rhódesíu, um viðkomuréttindi
á flugvöllum á Bretlandi.
Stewart utanríkisráðherra haföi
áður boðað, að til athugunar væri
að herða refsiaðgerðir.
Refsiaógerðanefnd brezka sam-
veldisins kemur saman til fundar
i dag í London og er búizt viö, að
öll 28 lönd samveldisins sendi full-
trúa á fundinn.
I gær var sagt í fréttum, að skip
mundi á leiðinni frá Rhódesíu með
tóbaksfarm 200.000 steriingspunda
virði.
Óvíst er að unnt veröi aö gera
neitt í málinu, því aö skipið mun
vera á leið til Austur-Þýzkalands,
sem er ekki í Sameinuöu þjóðunum,
sem gáfu fyrirmælin um refsiaðgerð
ir.
Wilson og Barbara Castle
Urðu að láta sér
nægja loforð
Á þessa leið voru fyrfrsagnirn
ar í erlendum blöðum, er Wilson
forsætisráðherra Bretlands til-
kynnti á dögunum, að ekki yrði
haldiö til streitu frumvarpinu
um breytingarnar á vinnulög-
gjöfinni með viðurlögum um
sektir, ef gerð eru verkföll ólög
lega (skæruverkíöll, vanalega
kölluð „wildcat strikes“ í ensku
fréttamáli), en ráðherra sá, sem
fer með vinnulöggjafarmálin er
kona sem kunnugt er, Barbara
Castle, einörð og mikil baráttn
kona. Hún hefir jafnan gengið
fram fyrir skjöldu til varnar
hegningarákvæðunum, en Wil-
son og flestir ráðherrarnir
studdu þessa stefnu, efnahagsins
vegna, en það hefir margsinnis
hlotizt stórtjón af ólöglegum
verkföllum, stundum fámennra
hópa sem gert hafa verkföll og
þar með gert þúsundir annarra.
sem vildu vinna iðjulausa.
En þótt Wiison og Barbara
yrðu að láta undan (Heath leið-
togi stjórnarandstööunnar og
aðrir ihaidsflokksforkólfar töldu
hann hafa Iyppazt niður og ljóst
að hann yrði að fylgja stefnu
verkalýðsforustunnar -f stjórn
iandsins væri í þeirra höndum
ef hún kysi að kippa í taumana),
— var ekki um neina skilyrðis
lausa uppgjöf að ræða þar sem
Wilson krafðist loforös — —
meira að segja „hátíðlegs lof-
orðs“ um, að verkalýðsforustan
hindraði skæruverkföll. Og á nú
eftir að koma í Ijós hvort hún
getur það. En Wilson kvaö sam-
bandsstjórnina geta vikið þeim
úr sambandinu, sem legöu út í
skyndi- og skæruverkföll og
hlýddu ekki fyrirmæluni stjórn
ar um að hverfa þegar aftur til
vinnu.
Vafalaust var það fastur ásetn
ingur Wilsons og Barböru, að
keyra lögin í gegnum þingið, en
svo sterk var andspyrnan i þing
flokknum og meðal verkalýðs-
ins, aö alger klofningur í flokkn
um og Öngþveiti hefði myndazt.
að likindum. hefði frumvarpið
ekki verið dregið til baka.
Sprengingar í Argentínu
Sprengingar urðu alivíða í Arg-
entínu í gær, einkum í Buenos Air-
Opinberir, ítolskir
starfsmenn
í verkfnlli
I gær hófst tveggja daga verk-
fall opinberra starfsmanna á Ítalíu.
Kréfjast þeir bættra kjara. Þátt-
takendur eru um 300.000.
es, m. a. í kjörverzlunum og á
fjórðu hæð skrifstofubyggmgar,
þar sem mörg bandarísk fyrirtæki
hafa skrifstofur.
Þeir, sem að þessum skemmdar-
verkum standa, eru taldir vera að
láta í ljós meö þeim andúö sina
á komu Nelsons Rockefellers, sér-
legs sendimanns Nixons Bandarikja
forseta, en hann er væntanlegur til
landsins til viðræðna á sunnudaginn
kemur.
Leit aukin að tíma-
sprengjum í Wafes
• Ný, víðtæk leit að tímasprengj-
urn var hafin í gær í Wales,
aöallega þar í grennd sem verið er
að koma fyrir sjónvarpsútbúnaði,
sem taka á í notkun þegar Karl
prins verður krýndur við hátíðlega
athöfn í Caernarvon-kastala í
næstu viku.
Útbúnaöi þessum er komið fyrir
fyrir utan kastalann og kostnaður
við þetta áætlaður hátt á fimmta
hundrað milljónir króna.
Mikill fjöldi lögreglumanna og
sérfræðinga rannsökuðu þama í
gær allt sem nákvæmast, vegna að-
vörunar í síma, um að tímasprengju
hefði verið komið þarna fyrir. Auka
öryggislið hefur verið sent á vett-
vang.
Gert er ráö fyrir, aö um 500 millj-
ónir manna víða um iönd fylgist
með sjónvarpinu, en það er á þriðju
daginn kemur, sem Karl prins fær
titilinn.
Viðurkennir
Svíþjóð
byltingarstjérninn
í Víetnnm?
Aftonbladet í Stokkhólmi leggur
til í ritstjórnargrein í gær, að
sænska stjórnin viðurkenni bráða-
birgðastjórnina, sem þjóðfreisis-
hreyfingin í Suður-Víetnam hefur
myndað.
Biaðiö telur og ófullnægjandi, að
sami maöur sé ambassador i Pek-
ing og Hanoi og vill sérstakan am-
bassador í Hanoi.
Tillnga Afríku- og Asíuþjoðo um
Rhódesíu fékk ekki 2h utkvæðo
• Tillaga Afríku- og Asiuþjóða i
Öryggisráðinu varðandi Rhódesíu,
Suður-Afríku og Mozambique, náði
ekki löglegri samþykkt, — fékk að-
eins 8 atkvæði. en þurfti 9 til þess
að fá % atkvæða. Fulltrúar sjö
þjóða sátu hjá, þeirra meðal Bret-
lands og Bandarikjanna.
Fulltrúar Sovétríkjanna, Ung-
I verjalands og þjóðfrelsissinnastjórn
: arinnar á Formósu greiddu at-
kvæði með fulltrúum Afríku og
Asíu.
Heföi ályktunartillagan náð lög-
iegri samþykkt er taiiö, að Bretar
hefðu beitt neitunarvaldi, en full-
trúi Bretlands Caradon lávarður,
haföi lýst sig andvigan dllögunni,
en í heiini var hvatt til þess aö
jBretar beittu hervaldi' gegn Rlíórl
esíu og viðskiptabann væri lagt
• Suður-Afríku og Mozanbique. >'
sagði lávarðurinn, að Bretar legð--
{ekki út i styrjöld, i Afriku né
jgætu réttlætt að fara í viðsk’Vt;-
styrjöld við Suður-Afriku.
Nýlendumálanefnd , Saric tv V
þjóðanna héfúr sambvklrt ályktf-i;
/artillögu þess. efnis: að skora ’
ar þjóðir og einkum þiöðir NerrV.
Atlantshafsbandaíagsins, að vr'
; Portúgal ekki hernaöarlega .-. '> t
meðan Portúgal veitti ekkt Irel
löndum • símim i Afríku. Fulitrin
Bfetlands og Bandarikjanna areidd
aticvæði á möti tillögunni og meé
rþeirra sem sátu hjá við atkvæða-
reiðsluná voi-u.fulltr.úar Noregs og
Ítalíu.
lit
'.líJÁtöMi-