Mosfellsblaðið - 01.02.2001, Síða 2
Ynrburðarsigur .« -j -j*• ..» «* «=
Ragnheiðar Ríkharðsdóttur
Prófkjör Sjálfstæðismanna nú á dögunum var um
margt merkilegt. Prófkjörið vakti vissulega at-
hygli og skapaði ferskan blæ hér í bæjarfélaginu.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir fékk afgerandi kosn-
ingu í þessu prófkjöri og er þar með orðinn ótví-
ræður foringi Sjálfstæðismanna hér í bæ. Það vek-
ur einnig athygli við þetta prófkjör er að fjöldi ungs
fólks hefur áhuga á og vill taka þátt í sveitarstjórn-
arstörfum. Þetta er jákvætt fyrir margra hluta sakir.
Nýir aðilar eru að koma inn með ferskar hugmynd-
ir og nýja sýn á hlutunum. Þessi nýji listi Sjálfstæð-
ismanna mun í vor að öllum líkindum takast á við
eldri einstaklinga á hinum listunum sem ef að lík-
um lætur munu sitja sem fastast.
Það er engum vafa undiroipið að núverandi
meirihluti hefur með þessum lista Sjálfstæðis-
manna fengið verðugan andstæðing í komandi
kosningabaráttu. Sagt er að nýir vendir sópi best og
er slíkur listi með Ragnheiði Ríkharðsdóttur í
broddi fylkingar vel líklegur til þess. Núverandi
meirihluti hefur verið við völd í tvö kjörtímabil og
því tími til að skipta út. Ákveðinnar þreytu virðist
gæta hjá núverandi meirihluta og því er nauðsyn-
legt að nýr listi komist að.
í langan tíma hefur ekki verið kona sem leitt hef-
ur lista Sjálfstæðismanna hér í Mosfellsbæ eða ekki
síðan Helga á Blikastöðum var hér oddviti. Með
Ragnheiði, Haraldi, Herdísi og Hafsteini mun
koma nýr og ferskur blær á sveitarstjómina hér í
bænum. Listinn mun ef vel tekst til leiða bæjar-
stjórnina út úr farvegi stjórnsýslubrota og víxl-
skrefa í stjómun bæjarfélagsins. Þá er víst að ábyrg-
ari stjómun verður á fjármálum bæjarfélagsins og
að réttur einstaklingsins verði tryggður. Öllum ætti
að vera ljóst að í hönd fer spennandi kosningabar-
átta þar sem þessi listi Sjálfstæðismanna mun verða
mjög áberandi með Ragnheiði Ríkharðsdóttur í
forystusætinu.
Helgi Sigurðsson
Mosfellsbakarí 20 ára
Mosfellsbakarí verður 20 ára þann
6. mars n.k. Þann dag 1982 opn-
aði Ragnar Hafliðason og fjölskylda
hans nýtt bakarí á sama stað, Urðar-
holti 2. Ragnar er ættaður frá Patreks-
ftrði, faðir hans Hafliði Ottósson var
bakari þar og afí Ragnars, Ottó Guð-
jónsson var einnig bakari á Patreks-
firði þar á undan. I dag vinna við
Mosfellsbakarí auk Ragnars kona
hans Aslaug Sveinbjömsdóttir, dóttir
þeirra Linda Björk, sonur þeirra
Hafliði ásamt eiginkonu hans, Ellisif
Sigurðardóttur.
Erfiðleikar í byrjun
Opnunardaginn fyrir 20 ámm var
allt fullt af fólki frá morgni til kvölds.
Viðskiptavinum fór síðan fækkandi
allt árið og lítið að gera um helgar.
Asakanir komu jafnvel um að rún-
stykkin væru gömul af því skorpan
var hörð. Ragnar fór um höfuðborgar-
svæðið og seldi í heildsölu í verslanir
og veitingahús, allt var gert til að
halda fyrirtækinu á floti, nýi bakarinn
og fjölskylda hans sat uppi með
skuldasúpu og litla aðsókn, fólk virtist
ekki aðlagast bakaríinu, keypti heldur
í öðrum verslunum. Ragnar hefði ekki
lagt af stað í þennan rekstur, hefði
hann séð fyrir þess miklu erfiðleika.
Eftir árið fór þetta að lagast og komið
í gott horf eftir þrjú ár. I dag er mikil
sala alla daga og sérstakiega um helg-
Hafliði og Áslaug ásamt hluta af starfs-
fólki í Mosfellsbakaríi fyrír skömmu. 40
manns eru nú á launaskrá fyrirtœkisins,
starfandi í Mosfellsbœ og Reykjavík.
lengri tíma og eru bragðmeiri, betra
hráefni í tertum en áður tíðkaðist hér á
landi.
Mosfellsbakarí festi kaup á
Briddebakaríi í Miðbæ á Háaleitis-
braut s.l. ár. Þar er búð eins og er, en
hún verður stækkuð á þessu ári og
kökubakstur, hluti af vinnslunni hér í
Mosfellsbæ verður flutt þangað. Að
öðmm kosti þarf að stækka hér, en
málið verður leyst með þessum hætti
sem er hagkvæmt fyrir reksturinn.
Bakarafjölskyldan í Mosfellsbakaríi
sendir starfsfólki sínu fytr og síðar
þakkir fyrir vel unnin störf og er bæj-
arbúum þakklát fyrir stuðninginn hér,
en einnig leggja Mosfellingar sem
starfa í Reykjavík leið sína í Mosfells-
bakarí á Háaleitisbraut. Haldið verður
upp á afmælið 6. mars á báðum stöð-
um með afmælistertu og fleiri uppá-
komum, allir em velkomnir.
Viltu vinna
heima?
Sláðu inn:
mypc2work.com
code: B1010
ar, en aðeins um 10% er selt nú í
heildsölu.
Breyting á rekstri
Hafliði Ragnarsson tók sveinspróf í
bakaraiðn 1993 og „kondidori,“
kökugerðarlist í Danmörku, allt nám-
ið tók sex ár. Hann vann í Perlunni og
víðar, tekið þátt í ýmsum alþjóðlegum
keppnum og unnið til margra verð-
launa, t.d. í tvö skipti Islandsmeistari,
Danmerkurmeistari, brons í heims-
meistarakeppni o.fl. - Hafliði kom að
rekstrinum í Mosfellsbakaríi 1997 og
var búðinni breytt það ár í það horf
sem nú er. Keyptur var steinofn, þar
eru brauðin bökuð á steininum, aukið
var tertuúrval, val á hráefnum vandað
meira og vinnsluaðferðir breyttust.
Allt er handunnið, einu tækin eru
hrærivélar og ofnar, brauð gerjast á
* Jgy, íW -
y H J > f ■. ' T •’ i
) J~~' í -J
2. tbl. 5. árg 2002
Ritstjórar og ábyrgöarmenn:
Helgi Sigurðsson og Gylfi
Guðjónsson, s. 696 0042
Fax: 5666815.
Netf: gylfigud@tal.is
Auglýsingastjóri:
Valtýr Björn Valtýsson.
íþróttir:
Pétur Berg Matthíasson
s. 861-8003.
Umbrot og hönnun:
Halldór B. Kristjánsson
Netf: leturval @ litrof.is
Prentun:
Svansprent.
Mosfellsblaðinu er dreift á öll
fyrirtæki og heimili í Mosfells-
bæ og heimili á Kjalarnesi,
Kjós og Þingvallasveit.
^skaífvf'^ r\
RÉTTINGA VERKSTÆÐI
CELETTE
Flugumýri 2 Jón B. Guúnumdsson
270 Mosfellsbæ GunnlaugurJónsson RLTTINGAR
c- ■ ccc icm ArnarÞórJónsson Simi: ,ioo r660 N V S M í t) I
Fax: 566 8685 bifrcid9smidamcht*nr MÁLIJN
/AWM
■ÍL.H
HkSS
ISSSSS^
566-8555
Þverholt 2
----------------------------------------!
Gegn framvísun þessa miða færð þú:
I6" pizzu með 2 áleggs-
tegundum, lítinn skammt af
frönskum, lítið hvítlauks- eða
kryddbrauð og 2 L coke á
1999 kr.
ef sótt er.
TíŒoðið giCdir tiC 10. mars 2002
■------*K-----------------------------
"" ..|•• ..—■
RAMKOLLUN
MOSFELLSBÆ
Þverholti 9 Sími: 566-8283
Heimasíða: www.simnet.is/fkm
Opið: Mán-fös frá 10-18
________________________________________
--------------------------------------------------------~
1 Yílrlitsmynd (Index Print) fylgir öllum framköllunum -g'oí
FramköIIun á APS filmum BMHBB I2S1I2ÍS1IWI ^ Q.
Stækkanir uppí 20 x 30 cm
FUJI hágæðapappír notaður í allar framkallanir Í2- g
MOSFELLS 2 BLAÐIÐ