Vísir - 07.07.1970, Page 16
D-listanum bættist
atkvæði á Bolungarvík
• Félagsmálaráðuneytið hefur nú
fjallað um og kveðið upp úr-
skurð vegna kæru sem barst frá
Bolungarvík út af kosningunum
þar. Var D-listanum úrskurðað eitt
atkvæði af 3 vafaatkvæðum, en
tvö höfðu verið úrskurðuð gild og
e.tt ógilt. Breytir þetta engu um
fulltrúatölu flokkanna, en hins
vegar hefði ekki þurft aö varpa
hlutkesti eins og gert var.
Hefðu hin vafaatkvæðin veriö ó-
gilduð, þá hefði H-listinn fengið
einn fulltrúa en D-listinn aðeins
4, samkvæmt upplýsingum Hjálm-
ars Vilhjálmssonar, ráðuneytis-
stjóra í Félagsmálaráðuneytinu.
Eru úrslit á Bolungarvík því end
anleg þannig: D-Iistinn 5. B-list-
inn 1, I-listinn 1 og H-listinn eng-
an. Tvær aðrar kærur bárust vegna
kosninganna, og er nú unnið af
kappi í þeim málum og úrskurðar
að vænta innan skamms. Kærur
þessar, sem bárust frá Norðfirði
og Seyðisifrði, eru mjög flóknar,
samkvæmt upplýsingum Hjálmars,
einkum á Seyðisfirði. Hefur mikil
vinna verið lögð í að rannsaka
Seyðisfjarðarkæruna og gert ráð
fyrir að úrslit liggi fyrir næstu
dagana. — ÞS
Iðnaðarmem á fíátta undan gestum]
— Þegar dönsku landsliðsmennirnir fóru upp
einn stigann i Esju, gengu iðnaðarmennirnir
niður annan
Hálfgerður skollaleikur
varð í Hótel Esju í gær,
þegar fyrstu gestir hót-
elsins komu um hálf
tíma á undan áætlun.
í óláni, aö 2ryggiseftiriitið hafði
þá ekki skoðaö lyftuna í húsinu.
Hún er nú komin í gang og
þreyta sig um of á göngu fyrir
10. landsleikinn við íslendinga í
kvöld.
Iönaðarmennirnir munu í dag
keppast við að ganga frá 7.
hæð hótelsins, en í kvöld koma
búa þar. Meira svigrúm verður i
dag til að ganga frá þvi nauð-
synlegasta, því ekki er búizt
við gestunum fyrr en undir mið
nætti. Er vonandi, að Flugfé-
lagið verði ekki á undan áætlun
Þegar danska landsliðið
renndi upp að hótelinu
voru á annað hundrað
iðnaðarmenn í óða önn
við að ganga frá anddyri
hótelsins og 8. hæð þess,
þar sem landsliðsmenn-
irnir áttu að gista.
Uppi varö fótur og fit, iðnað-
armennirnir flúðu út úr anddyr
inu og meðan landsliöið var að
skrá sig inn og ganga upp á 8.
hæðina kepptust iönaöarmenn-
imir uppi á 8. hæöinni við.
Þegar landsliðsmennirnir
voru komnir langleiðina upp
einn stigann í hótelinu laum-
uðust iðnaðarmennirnir niður
annan. Það var því hálfgert lán
Danska landsliðið. Nú reynir á þjóðhollustu íslenzku iðnaðarmannanna að halda fyrir því
vöku með hamarshöggum.
Iðnaðarmennirnir unnu fram á síðustu stundu við að ganga frá anddyrinu og urðu að koma sér
út þegar fyrstu gestimir komu.
14 skip vanræktu
arskylduna á 1
tilkynning-
sófarhring
— óvanalega mikill trassaskapur undanfarna
daga við að
j
-k Útvarpshlustendur hafa margir
furðað sig á því, hversu marg-
ir bátar hafa vanrækt að tilkynna
sig til strandstöðva Landssimans
undanfarið. Hafa verið lesnir upp
allt að fjórtán bátar, sem á einum
sólarhring hafa vanrækt tilkynning-
arskylduna. Vekur þetta ugg meöal
att'.i ci/imannanna. en oft-
tilkynna báta
ast eru þetta sömu bátamir aftur
og aftur.
Þorvaldur Ingibergsson hjá
Slysavarna'félaginu sagði í viðtali
við blaðið í morgun, að oft væru
þetta litlir bátar, sem ekki hlustuðu
á senditækin og þvi væri ómögu-
legt að ná til þeirra nema í gegn-
um útvarpið. Sagöi Þorvaldur að
hann minntist þess ekki að það
hefði komið fyrir, að 14 bátar van-
ræktu tilkynningarskylduna á ein-
um sólarhring, en það kom fyrir
nú fyrir skemmstu. Er það cinkum
þegar gott er veður, að bátarnir
gleyma þessu. Þeir eru skyldugir til
að tilkynna sig einu sinni á sólar-
hring, og alltaf er þeir fara í höfn
eða úr. Ekki hefur þessi trassaskap-
ur þó mikinn aukakostnað í för með
sér þar sem útvarpið les nöfn bát-
anna ókeypis. — ÞS
Mikil aðsókn á myndlistar-
sýningarnar á Lisfahátíð
Af 'ikn að myndlistarsýningun-
um, sem haldnar voru á Listahá-
tíðinni var nokkuð misiöfn. Sýn-
ingunum lauk um helgina. Höfðu
þá 1500 manns séð yfirlitssýning-
una á nútíma íslenzkri mvndlist á
Miklatúni, 2500 manns séð Munch-
sýninguna en aðeins 250 manns séð
brezku grafíksýninguna, sem var
komið upp í Asmundarsal.
Valtýr Pétursson formaður Fé-
lags íslenzkra myndlistarmanna
veitti blaðinu, þessar upplýsingar í
morgun. Sagði hann ennfremur, að
aðsókn hefði verið mikil á högg-
myndasýninguna á Skólavörðuholti
en engar tölur eru til um aðsókn
að henni, en vitað að margir hafa
Iagt leið sína um „holtið“ til að
skoða sýninguna. Einnig munu
margir hafa séð sýningarnar, sem
komið var upp í söfnunum í tengsl-
um við Listahátíðina.
„Ég er sæmilega ánægður með
þessa aðsókn“ sagöi Valtýr „það
var ósköp þokkaleg aðsókn að sýn-
ingunni á Miklatúni, 1 en það var
ekki eins gott með sýninguna á
Munch. Því miður var ekki hægt
að hafa hana opna lengur vegna
þess að það þurfti að fara að smíða
í húsnæðinu fyrir skólann, en að-
sóknin var langmesí núna síðustu
helgina. Svo urðu Bretarnir útund-
an, en sú sýning var opnuð seinna
en hinar vegna verkfalbins. — SB
Fiölmenniir ráð-
sfefnyr næsfa ór
Tvær fjölmennar læknaráðstefn-
ur verða baldnar hér í júní næsta
ár. Um bOO manns taka þátt i
hvorri ráðstefnu, sem Ferðaskrif-
stafan Útsýn annast um. Fleiri
feröaskrifstofur eru þegar farnar
að undirbúa ráöstefnuhald. Allt út-
lit er þvi fyrir, að ráðstefnur hér
veröi sízt minni næsta ár en nú.
- SB
Leigir meira en 10 veiðiár l
og vötn á Norðausturiandi
— Svavar i Hábæ umsvifamikill ?
■ Svavar Kristjánsson, veit
ingamaður I Hábæ er að
hleypa af stokkunum ærið
forvitnilegri starfsemi.
Hann leigir nokkrar veiði-
ár og vötn á Norðausturlandi,
allt frá Raufarhöfn að Breiíi-
dal. Síðan gefur hann mönn-
um kost á að kaupa veiði-
leyfi, „og þau ekki dýr“, seg-
ir hann sjálfur — verðið mið-
í að við að það séu íslending-
? ar sem veiðileyfin kaupi. —
J Svæðið er annars alþjóðlegt.
^ Svavar hefir gistirými fyrir
t 20 manns á Rv.ufarhöfn, Á Þórs
/ höfn á Langanesi verður gist-
/ ing í húsi einu er Svavar tekur
\ á leigu, en síðar meir hyggst
^ hann koma sér upp rýnpi að-
•j stöðu þar. Hægt er að veiða
Íþar austurfrá að vild hvers og
eins. Svavar útvegar bifreiðir
til að flytja veiðimenn á milli I
veiðistaðanna, og einnig hefur
hann tök á að bjóða mönnum
að fljúga í lítilli einkaflugvél,
sem staðsett er á Egilsstöðum.
Fyrirhugað er að byggja lítil
veiöiskýli á árbökkunum eða
við vötnin, þar sem veiðimenn
geti skotið sér inn og hresst sig
á kaffi, eða þ. h.
Þegar eru pantanir teknar að
streyma inn, að sögn Svavars
veitingamanns og er ekki fvrir-
sjáanlegt annað en fjörugt
verði á norðausturhorninu i (
sumar — og þá aö líkindum /
næstu sumur. Munu vera tök á )
aö a-nna talsverðri eftirspurn, \
en sennilega verður gistingin i
mesta vandamálið. í Breiðdal í
munu veiðimenn hafa aðgang að /
hótel Staðarborg og ágæt að- 1
staða mun vera á Eiöum. — GG |j