Vísir


Vísir - 25.07.1970, Qupperneq 1

Vísir - 25.07.1970, Qupperneq 1
VÍSIR „J. árg. — Laugardagur 25. júlí 1970. — 166. tbl. GOTT VEÐUR UM HELGINA — hlýnar fyrir norðan, austan og inn til landsins, segir Veburstofan FERÐALANGAR og sóldýrk- endur ættu að fá ósk sína um gott veður uppfyllta um helgina. Veðurstofan spáir hægviðri og léttskýjuðu um allt iand. „Norðanáttin er nú dottin niður I bili,“ sagði Jónas Jakobsson veð- urfræðingur, þegar hann var spurð- ur um veðurútlit helgarinnar, „og ekki ó.nögulegt, að það geti hald- izt svo um helgina." Góðviðrið á að ná um allt landið. { gær var fyrsti góði dagurinn um langt skeið á Norður- og Austur- landi. Þar var sólskin eins og ann- ars staðar. Hitinn komst upp í 12 stig á Akureyri og á Egilsstöðum og 14 stig á Staðarhóli í Aðaldal. Einnig hlýnaði til muna inn til landsins og mældist hitinn hvorki meira né minna en 13 stig á Hvera- völlum, en þar hefur jafnvel snjó- að nú í mánuðinum. 1 Reykjavík komst hitinn hæst upp í 12 stig. Mældist þessi hiti á flugvellinum, og ekki ólíklegt að hafgola hafi komið hitastiginu nið- ur, en hlýrra hafj verið á skjólsælii stöðum í borginni. — SB Nánar er rætt um umferðina úr höfuöborginni í blaðinu í dag — Sjá bls. 16. Það fer ekki milli mála, að okkur Reykvíkingum hafa veitzt nokkrir sólskinsdagar í sumar, þegar Iitið er hið kaffibrúna hörund hárgreiðslukonunn ar, en hún er hér með vinkonu sina Margréti í greiðslu. — Eins og sjá má er garðurinn ekki einungis notaður sem „hárgreiðslustofa“, heldur einnig sem endurhæfingarstöð, þvi Eiríkur Krist insson fallhlífarstökkvari er á myndinni lengst til vinstri með reifaðan fót. Úthaf kaupir tve nýja skuttogara glæpurinn — Algengasti umferðarbrotin — Gætu komið til landsins strax i sumar — Voru smiöaðir fyrir veiðar við Kanarieyjar ÚTHAF h.f. hefur fest kaup á tveimur þúsund lesta skuttogurum frá Spáni. Skip þessi eru byggð hjá hinni þekktu Barreras skipasmíðastöð í Vigo á Spáni. Þau hafa aðeins farið eina veiði- ferð og eru tilbúin til af- hendingar hvenær sem er. Að sögn Henrys Hálfdánar- sonar, er meðal annarra fór utj an til Spánar til þess að skoða þessi skip á vegum Úthafs, stendur ekki á öðru en endan- legu svari frá ríki og Reykja- víkurborg um lánsaðstoð til kaupanna, en tithaf hf. hefur fengið ádrátt um lán, sem nem- ur ^y2% af andviröi skinanna frá hvorum þessum aðila. — Skipin eiga að geta siglt inn í Reykjavíkurhöfn 10 dögum eft ir að hinir opinberu aðilar hafa greitt sín iframlög. Skipin kosta 90 milljónir hvort, eða 50 millj- ónum minna en lægsta tilboðið í sambærilega togara, sem ver- ið er að semja um að smíða. Stjórn Othafs hf. fékk stuðn- ing Fiskveiðasjóðs til þess að fara utan til Spánar og skoða þessi sk'p með kaup fyrir aug- um og hún nýkomin úr þeirri för. Sagði Henry að skipin hefðú verið grandskoðuð af mörgum aðilum, hverjum með sína sérþekkingu, meðal annars voru í förinni þrír gamalreynd- ir togaraskipstjórar, vélstjóri, loftskeytamaður og skipaverk- fræðingur og að áliti þeirra reyndust skipin mjög vönduö aö útbúnaði. Skip þessi voru upphaflega smíðuð til, veiða í Kanaríhafi, en um það leyti, sem kjölur var lagður að þeim var mikil veiöi á þeim slóðum. Það var eitt stærsta togaraútgerðarfyrirtæki Spánar, sem lét smíða skipin og átti að gera þau út frá St. Sebastian á N-Spáni. Þegar svo skipin voru tilbúin tók fiskinn undan við Kanaríeyjar. Skipin eru búin til saltfisk- verkunar og eru um borð í þeim hraðvirkar haus- og flatnings- vélar af fullkomnustu gerð. Þessi eina veiðiferð, sem þau hafa fariö í, var til Labra- dor eftir árangurslitlar tilraun- ir við Kanaríeyjar. I þessari veiðiferð voru skipin í 5 mán- uði. Sagöi Henry að Spánverj- unum þættu skipin full lítil til þess að stunda eingöngu veiðar á fjarlægum miðum. Islendingarnir, sem fóru utan til þess að skoða skipin fóru í „prufutúr" á öðru þeirra út á Biscayflóa og einnig var ann- ar togarinn tekinn í þurrkvi til botnsskoðunar. Öll tækj í báðum skipunum voru sett í gang og reynd með úmsum hætti, jafnvel voru tekn ir upp stimplar i aðalvél til athugunar. Að sögn Henrys er stjórn tithafs h'f. tilbúin að afhenda skipin innlendum aðilum til rekstrar, þar sem aðalmarkmið félagsins er eftir sem áður að kaupa fullkomið verksmiðjuskip. Stiórn félagsins á þvf eftir að athuga hvort það gerir sjálft út skipin. eins og vel kemur til greina eða afhendir það öðr um aðila, ef slíkt gætj flýtt fyr- ir kaupum á verksmiðjuskut.tog- ara sem er aðalmarkmið félaes- ins. —JH Nokkrir þeirra, sem fóru utan til þess að skoða skipin, f. v.: Ing- ólfur Stefánsson. eism af stjórnarnaönnum Úthafs, Guðmundur Pétursson véiaeftirlitsmaður, Loftur Júliusson.skipstjóri og Sig- urður Guðjónsson skipstjóri. Að baki þeim sést „Rafagil1-annar skuttogaranna, er, rafaga þýðir andvari. Hitt skipið heitir „Gicot- on ', sem þýðir stormnr. Umferöarbrot eru algengustu glæpirnir i samféiagi okkar. „Af- brotamenn eru ekki aðeins þeir, sem venjulega er litiö á sem úr- hrök þjóðfélagsins“, segir ung, reykvísk stúlka, Hildigunnur Ólafs dóttir í viðtali í blaöinu f dag. Hún nemur allsérkennilrga grein í Osló, afbrotafræöi. Raunverulega er enginn afbrota- fræðingur til með embættispróf enn sem komið er, en hinir fyrstu verða útskrifaðir frá Oslóarháskóla næsta vor. 1 viðtalinu, sem er á bls. 9 er rætt við Hildigunni um nám henn- ar og um afbrot almennt. HárgreiðsEustofan flutt út í góða veðrið Hún kann að nota góða veðrið, hún Anna Kristinsdóttir, en hún er hárgreiðslumeistari á stofu í Kópavogi, Þegar hún er ekki aö vinna á stofunni þar suðurfrá, tek- ur hún stundum vinkonur sfnar og frænkur f hárgreiðslu á heimili sínu við Vesturvallagötu í Reykja- vík og oft hefur hún svo mikið að gera þar, að öll sól mundi fara fyrir ofan garð og neðan hjá henni ef hún gerði ekki einhverjar ráðstafanir. Og það sem henni hug kvæmdist að gera, var einfaldlega það, að taka viðskiptavinina bara með sér úr í garð og snyrta hár þeirra þar. Er Ijósmyndara Vísis bar að garði hjá henni £ góða veðrinu í gærmorgun var hún með eina vinkonu sína f greiðslu og voru þær báðar ákveðnar í að nota sólskinið sem allra bezt á meðan og voru því bara á undirkjólunum. Systir og mágkona sem biðu þarna í garðinum eftir að komast í stólinn gerðu samt enn betur, því þær voru báðar f bikini. — ÞJM Um húrgreiðslu má lesa nánar í blaðinu í dag, f þættinum Fjölskyldan og heimilið er fjallað um nýja tizku í hár- greiðslu. — Sjá bls. 13. Um sólskinið má lesa meira á bls. 3 í blaðinu í dag í grein, sem fjallar um Heið- mörk, en þangað leita hundruð manna á hverjum sólskinsdegi, einkum þeir, sem eru á móti þvf að Ieita langt vfir skammt að fag- urri náttúru. Um sumarmót í Húsafellsskógi er að nokkru fjall- að f þættinum Með á nótunum, þar greinir Benedikt Viggósson frá miklu „þjóðlagafestivali", sem þar verður haldiö um verzlunarmanna- helgina... ... og ef svo fer sem horfði f gær- kvöldi, þegar Vfsir fór í prentun, að sólskin og blíðviðri verði, þá munu víst flestir geyma sér kross- gátuna til betri tfma. Hana.er ann- ars að finna á bls. 6. V

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.