Vísir - 25.07.1970, Side 16

Vísir - 25.07.1970, Side 16
Garðar Gíslason bankamaður: „1 laxveiði í Grímsá i Borgarfirði — ef allar áætianir standast." húsmóðir: „Til Akurevrar í heim sókn til venzíafólks míns.“ Guðrún Bjamadóttir meina- tækninemi: „Helzt ekki fetið, því að sumarfríið mitt byrjar á mánudag og ég ætla að safna kröftúm um helgina." Magnús Guðmundsson bakara- nemi: „Ég fer austur á hesta- mannamót." Garðar Siggeirsson verzlunar- stjóri: „Liklega austur að Laug- arvatni, ef veður helzt áfram svona gott.“ • Flestir ætla sér víst aö halda eitthvað út úr borg- inni um helgina, verði veðrið eins gott og Veðurstofan ger- ir ráð fyrir. Við spurðum vegfarendur í gær: Hvert skal halda um helgina? Laugardagur 25. júlí 1370. • Miklar annir eru nú á bifreiðaverkstæðum í Reykja vik. Sumarleyfi standa nú fyrir dyrum og menn reyna að fá dyttað að bílum sinum áður en lagt er upp. Þá kem- ur og til hin árlega bifreiða- skoðun, en vegna verkfallsins í júni urðu margir er áttu að koma með bíia sína til skoð- unar þá, að fá frest þar til um boðin gátu útvegað nauðsyn- lega varahluti. Þá hefur einnig verið anna- samt á smurstöðvum olíufélag- anna því vissara er að leggja ekki í langferð á ósmurðum bíl og olíuiitlum. Visir hafði samband við mörg bílaverkstæði borgarinnar og var alls staðar sömu söguna að hafa: „Við erum á kafi i önn- um og getum ekki bætt við okkur fyrr en i næstu viku“ — „hér er bókað mánuð fram í tímann, og varla hægt að sinna þeim skyndiviðgerðum sem ósk að er eftir“. Sögðu verkstæðismennirnir að greinilegt væri að fjöldinn allur af fóiki myndi ætla að ferðast út úr borginni um þessa helgi, en margir væru og farn- ir að búa sig undir ferðalag um verzlunarmannahelgina. Þá eru og annir við bílaviðgerðir végná'skoðunarinnar. Við smurstöðvar voru í gær langar biðraðir og unnið eitt- hvað fram á kvöld, en smur- stöðvar eru lokaðar i dag Sögðu starfsmenn á smurstöðvum að sjaldan hefði verið eins mikið að gera og nú, einkum vegna þess að allir þeir nýju bilar er fluttir hafa verið til landsins upp á síðkastið, séu nú að koma til smurningar i viðbót við þau ökutæki sem fólk ætlar að fara á út úr bænum. Að sögn Arnþörs Ingólfsson- ar varðstjóra í umferðardeild Reykjavikurlögreglunnar, býst lögreglan við þungri umferð út úr Reykjavík í dag, en einkum bó upp úr hádeginu. Lögreglan verður að sjálf- sögðu með talsverðan viðbúnað, þ. e. fleirj menn á vöktum og eftirlitsbifreiðir verða nokkrar á vegum auk lögreglumanna á vél hjólum. Ekki er búizt við að umferðin beinist í neina sérstaka átt, „Það verður þessi hefðbundni akstur hér í nágrenni borgarinn ar" sagði Arnþór. Núna á um helmingur allra bifreiða i Reykjavík að vera kominn til skoðunar og nefur lögreglan gert nokkrar skyndi- kannanir á ásigkomulagi bif- reiða. Sagði Arnþór að ekki væri annað hægt að segja en að bíl- ar væru í góðu lagi væri á heildina litið, þó vissulega væri ætíð að finna innan um bíla í lélegu ástandi. —GG • Það er vissara að leggja ekki upp í lang ferð á ósmurðum bfl. Miklð hefur verið að gera á bílaverkstæðum og smurstöðvum undanfarið— búizt við þungri umferð út frá Rvík í dag. SJÖTÍU Á IÐNÞINGI Ars afmæli tunglferðar Á SIGLUFIRÐI í þann mund sem fólk fer að | ir til Siglufjarðar. Sjötiu iðnaðar- axla sína bagga fyrir verzlunar- menn munu setjast þar á bekki i mannahelgina og þeysa af stað út samkomusal bamaskólans, þar í náttúruna, koma óvenjulegir gest-' sem haldið veröur 32. iðnþing ís- Lagadeild í nýtt 'lendinga. Búizt er við að þingiö standi fram á laugardag. Þau málefni, sem tekin verða fyr- ir á þinginu, eru meðal annars fræðslumál iðnaðarmanna og skipu lagsmál Landssambands iðnaðar- manna. Búast rriá hins vegar við að ýmis málefni dagsins verði þarna ofarlega á baugi svo sem sókn íslenzkra iðnaðarmanna á er- lendan vinnumarkað. Þingið verður sett klukkan 10,30 á miðvikudaginn af forseta Lands- sambands iðnaðarmanna. Þingið munu sækja fulltrúar af öllu land- inu. — JH — Mynd um ferðina sýnd i Nýja biói i dag Eitt ár er nú liðiö, síðan geim fararnir, Neil Armstrong og Ed- win Aldrin, stigu fyrstir manna fæti á tunglið, en það var 21.' júlí í fyrra. I Nýja bíói verður sýnd í dag 1% klukkustundar kvikmynd, sem fjallar um ferö þeirra og und- irbúninginn að henni. Þulur mynd arinnar er hinn frægi leikari Gre- gory Peck. Myndin hér var tekin. þegar Nix on forseti tók á móti geimiförun- um þrem, er þeir komu heim úr fyrstu mönnuðu ferðinn; til tungls- ins. húsnæði 1971 — Likur ó þvi, oð byrjað verði á húsi yfir verkfræðideild á þessu ári ELDRA FÓLKIÐ í ÁRBÆ UM HELGINA Byggingarframkvæmdir við hús lagadeildar Háskóla íslands munu hefjast í sumar, en útboðs auglýsing hefur verið send út. Er stefnt að því að hægt verði að taka húsið i notkun haustið 1971. Hús lagadeildar verður fjögurra hæða bygging, staðsett milli Há- skólans og Nýja Garðs. 1 henni verða kennslustofur, vinnuherb. kennara, bókasafn og lestrarstaf- ur. Húsið er teiknað hjá húsameist- ara ríkisins. Jóhannes L. L. Helgason hásköla ritarj skýrði blaðinu frá þessu i gærmorgun og sagði ennfremur, að vonir stæðu til að hægt verði að hefja byggingaframkvæmdir við hús verkfræðideildar á þessu ári. Verður því húsi væntanlega ætl- aður staður á horni Suðurgötu og Hjarðarhaga. Teikningar að hús- inu eru langt komnar. Að öllum líkindum verður það hús byggt í áföngum, og byrjað á 1. áfanga á þessu ári. —SB Eldra fólki í Reykjavik er til- einkuð skemmtun í Árbæjarsafni um helgina. Á sunnudag mun „nikku“leikari skemmta þarna nieð „gömlum og góðum lögum“, en þjóðdansaflokkar frá Færeyjum og Skotlandi skemmta á pall milli kl. 14 og 15, auk þess sem gti'mu- kappar sýna íþrótt sína. Fararstjórar verða til taks og munu fara með gamla fólkið í skoð unarferðir um safnhúsin. í Dillons- húsi verða þjóöíegar veitingar á boðstólum eins og fyrr, en ungar ] stúlkur á þjóðbúningum ganga um beina. Að sögn Hafliða Jónssonar hef- ur aðsókn að safninu verið jöfn og góð i sumar, útlendingar e. t. v. i talsverðum meirihluta gesta, og hafa þeir kunnað vel að meta það sem fyrir augu ber, og 1 Dillons- húsi hefur uppáhaldsréttur þeirra verið skyr með rjóma. Ferðir í Árbæjarsafn eru með leið 10 af Hlemmtorgi, en bezta leiðin með einkabílum er undir nýju Elliðaárbrúna og suður Rafstöðvar- veg.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.