Vísir - 14.09.1970, Blaðsíða 5

Vísir - 14.09.1970, Blaðsíða 5
AKRANÍS ISLANDSMEISTAR! Skemmtflegur leikur i Keflavik á laugardaginn Spurninguiini um það hver ynni ísfendsmeistaratitilinn í knattspymn, hefur verið svarað á Keffevíkurvellinum, undanfrtr- in tvö ár. I hittiðfyrra, voru KR’ingar orðnir sigurvegarar, eftir jafnteflisleik við ÍBK, sem þá var á botninum. í fyrra höfðu Keflviki-ngar endaskipti á hlut- unum og tryggðu séfr efsta sæt- ið, með sigri yfir Val og í ár voru það svo Akurnesingar, sem váma titSRnn af heimamönnum, á þessum sama velli, með því að sigra ÍBK, á Iaugardaginn með 2:1, í að flestra áliti, skemmtilegasta leik, sem fram hefur farið til þessa í Keflavík. Auðséð var á hinum fjöimenna áhorfendaskara, sem lagði leið sína á völlinn, aö miikið hlaut að vera í húfi fyrir bæði iiðin, enda var staðan þannig fyrir ieikinn, að lítil líkindi voru til þess að Kefl- víkingum tækist að verja titiiinn, með öðru móti en sigri í leiknum, þar sem Akurnesingar höfðu 2ja stiga forskot, sem ekki yröi eftir látið fyrr en í fulla hnefana. Á undanförnum tíu árum, hafa Skaga menn mátt þola margt súrt hjá l»ði sínu, en fátt sætt. Oft hafa þeir verið á mörkum þess að sigra í 1. deiid, en ávallt hefur vantað herzlumuninn, síðast i fyrra, er þeir hlutu annað sæti. Eftir þenn an leik mætti kannski orða það svo að þá hafi Eyleif vantað, en hann lék þá sem kunnugt er meö KR. Þáttur hans í leiknum á iaug ardaginn, mun seint líða úr minni. trax á fyrstu mínútu brauzt hann frarm að endamörkum og sendi knöttinn úr þröngri stöðu fyrir mark Keflvíkinga, en Þorsteini tókst ekki að góma hann, svo Teit ur miðherji, sem virðist hafa feng ið aö erfðum hæfijeika og stöðu föður síns Þórðar Þórðarsonar, átti auðvelt með að koma knettinum yfir marklínuna. Þetta óvænta mark kom eins og ískalt steypibað yfir aðdáendur ÍBK, sem óspart voru byrjaðir að hvetja sína menn, en magnaði að sama skapi ÍA-kórinn, sem kyrjaði hvatningarsöngva linnuiítiö allan leikinn, og virtist hafa góö áhrif. Skiljanlega fór ÍBK-liðið nokkuð úr jafnvægi við markið, svo að fyrstu minúturnar virtist sem ail- ar dyr ætluðu að opnast sóknar- mönnum ÍA, en smám saman réttu Keflvíkingar úr kútnum og leystu úr læðingi þann máitf sem hefur blundað í sumar, samleikinn og byggöu upp hverja sóknarlotuna, annarri failegri, þar sem Magnús Torfason, sem varla hefur í annan tíma leikið betur, var potturinn og pannan í, og árangurinn lét ekki á sér standa. Á 15. mín. fær hann knöttinn frá Grétari Magnússyni og skorar af um 16—17 metra færi, 1:1. Þrátt fyrir öllu meiri sókn IBK til hlés tókst þeim ekki að fdtma smugu á hinni þéttu vörn Akur- nesinga, sem í engu virðist gefa eftir hinni margrómuðu vörn Kefl víkinga. Með öllu meiri kalda í bakið, en Keflvíkingar í fyrri hálfleik, mátti ætla að Akurnesingar ættu auð- veldara með að þjarma að mótherj- unum. Sú varð þó ekki raunin á. Framan af hélzt leiikurinn í jafn- vægi. Það var ekki fyrr en á 22. til 25. mínútu að aðdáendur beggja Mða tóku andköf af spenningi. Tví- vegis virtist markið blasa við, þeg ar Jón Ólafur, sem sannarlega var kominn í essið sitt, átti tvö hörku skot á markið, annað snilldarlega varið af Einari Guðleifssyni og hitt sem lenti í varnarleikmanni. Miínútu síðar snúa Skagamenn vörn í sókn og þjarma svo ákaft að marki ÍBK, að þrívegis bjarga þeir á línu og að síðustu verður Ástráður bakvörður að spyrna í horn, sá knöttur hefði alveg eins getaö lent í markinu, en hamingj- an var honum hliöhoil í það skipt ið. Menn voru farnir að tala um jafntefli og nokkrir unglingar, sýnilega við ská'I, famir að takast á um þaS hivort liðið væri betra, eins og að þeir gætu skorið úr um það þegar Steinar Jóhannsson á hörkuskot af löngu fær; á mark- ið, en Einar ver, og spyrnir knett- inum fram völlinn. Hann berst til Vilhjálms Ketiilssonar, sem ætlar að senda hann um hæl, en þá ger- ist það sem Keflvíkingar höfðu óttazt en aðdáendur Skagamanna, ekki sízt þeir eldrj, sem aftur em farnir að koma, í von um nýtt gull- aldarlið, höfðu þráð. Vdndurinn ber knöttinn af leið og tili Eyieifs, sem er staðsettur rétt innan við miðju- hringinn og tekur á rás fram völl- inn. Leiðin virðist greið að marki, en Ástráður og Guðni reyna að löka henni en við það losnar um Guðjón Guðmundsson, vinstri út- herja, en Eyiieiifi sésit ekki yfir þamn möguleika og sendir knöttinn, á hárréttu augnalbliki, út til Guðjóns, sem þrumar svo ekkj festi auga á, í netið þar sem knötturinn fest- ist bak við jármsiiámia, við óhemju fagnaðarketi áhorfenda. Þar með var sigurinn innsiglaður, þótit Kefl- víkingar gerðu örvæntinigarfuilar tilraunir tiil að jafna, sem mistóbst, unz dómarinn Óli ÓÍsien, sem slapp þolaniliega frá Mutverkj sínu, fiaut- aði af, og leikmenn tókust I hendur eftir drengiliegan og steemmtiilegan leik. Allir þeir sem ég heyrði tiill eru á einu máli um, að Alkumesdngar séu vel að sigrinum komnir. Hvergi er veikan hllekk að finnia, en mjög komu á óvart þeir Rúnar Hjáfen- týsson bakvöröur og Jón Gunn- laugsson, miðvörður, sem báðir eru fyrrverandi framlínuspilarar. Ó- þarft er að geta hinna sérstaklega. Alilir hafa þeir staðið si'g með mdkl- um ágætuim í sumar og gerðu enga undantefcniingu á þvd núna. Liðið leikur léttan og hraðan samleik, enda hefur það tekiniskum 'leik- mönnum á að s'kipa, sem hafa feng- ið góða meðhöndlun hins gamla garps giulal'darliðsins Ríkfaarðs Jónssonar, sem á vafalaust sinn stóra failut í veilgengnj hins unga lið's frá mdnnsta bænum sem á ful'ltrúa í 1. deild. Þrátt fyrir ósigurinn í leiknum geta Keflvíkingar verið ánægðir, — að vissu leyti. Liðið sýndi nú hvað í því bjó O'g með örlftillj heppni hefði sigurinn geta orðið þedrra. fþróttafréttamenn haía fengið oró í eyra frá þeim, fynir að gagnrýna l'eiikaðferð þeirra í sumar, en ég fæ ekk; betur séð en að einmitt þessd ieikur sannj otakar mál um aö það sem vantaði væri spilið. Og áreiðanilega hafa Keflvíkingar ekki í hyggju að l'áta biikarinn verða mosavaxinn uppi á Skaga. — emm. Hér eru Éyíeifur Hafsteinsson og Guðjón Guðmundsson búnir að „ptrjóna sig“ gegnum vöm Keflavíkur í sáðari hálfleiknum, og Guðjón hefur skorað sigurmarkið, 2:1. Vörnin var sjaldnast heima — Fram vann 7:1 Einn lélegasti leikur, sem Akureyringar hafa sýnt i mörg ár, daginn áÖur en haldið er i Evrópukeppnina i Ziirich Það allra lélegasta, sem sézt hefur til 1. deildarliðs í sumar, var sá leikur, sem Akureyring- amir höfðu se>” nokkurs konar kveðjuleik, áíi 4 en þeir héldu til Sviss til að leika í Evrópu- keppni bikarmeistara. Með 7:1 gegn Fram á bakinu, héldu þeir í morgun til Ziirich. Vöm Akureyrar var leikin af á- líka skilningi og um væri að ræða 4. eöa 5. flokks lið, drengi, sem enn hafa ekki iært hernaðarfræði- iegar kúnstir knattspymunnar. — Vörn þeirra var hvað eftir annað svo fflöt, að fengj Fratnarj boilt- ann fyrir innan varnarmann, var allt opið, en enginn annar varnar- maður hafði tök á aö koma til hjálpar, eins og gert er ráð fyrir í venjulegum vamarleik. Belgi Númason var á ný með Framliðinu. Hafði þetta örugg- lega mikið að segja fyrir framlín- una. Hann skoraði strax með á- gætum skalla 1:0. Á 28. mínútu brauzt Snorri inn- herji skemmtilega í gegn, og Krist inn Jörundsson þurfti aðeins að ýta knettinum í netið fyrir hann, 2:0. Einni mínútu síðar skorar ný- iiðinn Gunnar Guðmundsson, efni legur ieikmaður, 3:0 af vítateig. Á 32. mínútu átti Helgi Núma- son gott skot af löngu færi, sem lenti í hominu án þess að Samúel virtist eiga tök á að verja. Á 40. mínútu skorar Kári loks fyrir Akureyri, eftir að l'iðið átti fjölmörg tækifæri, 4:1. Á 42. mínútu bætir Kristinn Jör undsson enn við, skorar 5:1 með geysifaliegum skalla. Ekki var Kristinn ánægður með þetta, heldur bætti hann við 6:1 I á 44. mínútu, — þniðja mark hans 1 hálfleiknum. í semni hálfleik var haldið uppi , emhverju leiðinlegasta þófi í manna minnum í deildinni. Helgi Númason skoraði þama sitt þriðja mark f leiknum á 15. mínútu, 7:1, og sú varð lokastaðan. Framarar voru ákveðnir og á- gengir, og notuðu sér út í æsar hina slælegu vörn Akureyringa. Liðið er gott, og ef allt hefði verið eðlilegt hjá liðinu í sumar, hefði það átt að geta blandað sér meira í lokaátökin í deildinni en varð. Akureyringar áttu að geta skor- að meira í leiknum, — og þeir áttu líka að geta varizt mun betur. — Staðan 6:3 eða 6:4 hefði verið sann gjörn í hálfleik, en 2 — 3 marka sigur Fram hefði verið sanngjarn, 7:1 var e.t.v. fullmikið. Einar Hjartarson dæmdi leikinn, og satt að segja fannst mér hann alls ekki sjá nógu mikið af brotun um, og sum atriðin virtust mér hrein mistúlkun. Eflaust gerir Ein ar mun betur á leikvanpi Celtic, en þangað heldur bann og ásanit Magnúsi Péturssyni og Guðjöni Finnbogasyni i vikunni. —JBP GangstéttarheSIur sendur heb Stórar pantanir ókeypis og minni gegn vægu gjaldi. Fyrirliggjandi: Sexkantar, brotsteinar og hellur 50x50 og 25x50. Ennfremur útlitsgallaðar hellur meö mikium afslætti. Tilvaliö á baklóðir og önnur stór svæði. Greiðsluskilmálar til húsfélaga og fvrirtækja. Opið virka daga frá kl. 8 til 19. SÍMI 42715. HELLUVAL SL. Hafnarbraut 15, Kópavagi. (Ekið Kópavogs- eða Borgarholtsýraut og beygt niður að sjónum vestast á Kársnesinu).

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.