Vísir - 05.05.1971, Síða 2
Fyrsti svarti
flotaforinginn
Maðurinn hér á myndinni heitir
Sam Gravely. Hann er skipherra
á freigátunni Jouett í bandaríska
flotanum. Það út af fyrir sig mun
vera ágaetisembætti, en engu að
síður stendur fyrir dyrum að
gera Gravely að flotaforingja.
Flotaforingjar eru margir í
bandaríska sjóhemum, en Grav-
ely verður einstakur í sinni röð.
Hann er þeldökkur, og verður þvi
fyrsti negrinn til að hljóta flota-
foringjastöðu I bandaríska sjó-
hemum.
QDDD
Hnefaleika-
maður eða
forseti
„Ég vil að hann hætti,“ sagði
Florence Frazier, eiginkona heims
meistarans i þungavigt í hnefa-
leikum. En eiginmaðurinn, Joe
Frazier, lðt sér nægja að yppta
öxlum. Þau voru stödd í heim-
boði hjá Nixon forseta og Joe
sagði: „Allar eiginkonur eru
svona — hættu að vera hnefa-
leikari, hættu að vera forseti."
Reiðir múrarar leggja hendur
á forsætisráðherra Danmerkur
Hilmar Baunsgaard, forsætis-
ráðherra Danmerkur, komst í
krappan dans nú fyrir skemmstu,
þegar hann var ásamt konu sinni
á leið inn á Hótel Marselis í
Árósum, en þar ætlaði hann að
ávarpa fund í danska blaðamanna
félaginu.
Fyrir utan hótelið biðu um 50
múrarar eftir forsætisráðherran-
um, og þegar hann birtist vöm-
uðu þeir honum vegarins, stjök-
uðu við honum og þrifu í föt hans.
Þeir reyndu að halda honum
föstum, og nokkrir úr hópnum
helltu úr skálum reiði sinnar með
bölvi og formælingum. Hinir ráð
settari af múrumnum reyndu án
árangurs að halda aftur af hinum
ofsareiðu félögum sinum.
„Þetta var nú kannski fullmikið
af svo góðu“, sagði Baunsgaard,
,,en ég slapp þó alténd heill á
húfi í gegnum þvöguna, án þess
að fá skrámu. En múrararnir hafa
ekki ennþá leyft mér að segja
mína meiningu, þrátt fyrir að ég
hafi setið með þeim marga fundi.
Formaður múrarafélagsins í Ár-
ósum, Ole Peitersen, sagðj eftir
þennan atburð, að múrarafélagið
hefði engan þátt átt í að undir-
búa átökin, en engu að síður
yrði aldrei nógu hart að Bauns-
gaard gengið.
Meðal múrara í Árósum rtkir
mikið atvinnuleysi. Þeir fá hvergi
vinnu og um 22% múrara í Ár-
ósum eru atvinnulausir og af
því stafar reiðin í garð forsætis-
ráðherrans.
Dönsk blöð voru samtaka um
að fordæma með öllu árásina á
forsætisráðherrann, og sögðu, að
með þessu tiltæki hefðu múrar-
amir skaðað góðan málstað sinn.
Geðveikir hjúkrunar-
menn á geðveikrahæli
Tveir hjúkrunarmenn á geð-
veikrahæli í Preston í Englandi
virðast naumast vera með full-
um sönsum. Þeir eru nú ákærðir
og bíða dóms fyrir að hafa reynt
að brenna til bana tvo geðsjúkl-
inga.
Hjúkrunarmennirnir, Peter
Maddison og Martin Georghean,
höfðu ekki verið íengi starfsmenn
sjúkrahússins, þegar mál þeirra
kom upp, en Maddison hefur áð-
ur hlotið skilorðsbundinn dóm
fyrir grimmd við geðsjúklinga.
Mál þeirra kom fram í dags-
ljósið, þegar rannsóknarnefnd
upplýsti, að sjúklingarnir á þessu
sjúkrahúsi sættu illri meðferð.
Maddison og Georghean voru að
baða þá tvo geðsjúklinga, sem
hér um ræðir, þegar þeir helltu
spíritus í handklæði þeirra og
kveiktu í.
Skakkt símanúmer
olli múlaferlum
1 Washington hefur veitinga-
maður nokkur höfðað mál á hend
ur vinstrisinnuðu blaði, sem nefn-
ist „Avant Garde", og krefst 50
þúsund dala I skaðabætur.
Veitingamaðurinn heitir Harald
Giesinger, og hann uppástendur,
að fyrmefnt blað eigi þátt í því,
að honum hefur verið vamað
svefns margar nætur.
Þannig var, að blaðið hóf ,,her-
ferð“ gegn þeim, sem eru „hauk-
ar“ eöa forsvarsmenn stríðsins
í Víetnam, og í blaðinu var birt-
ur listi yfir slíka menn og síma-
númer þeirra. Síðan voru lesend-
ur hvattir til að hringja í ein-
hvem haukanna til að benda á
hversu óvinsæll styrjaldarrekstur
inn er.
Meðal þessara símanúmera var
eitt sem sagt var, að væri núm-
erið hjá Henry Kissinger, aðal-
ráðgjafa Nixons forseta. Þetta
númer var svo alls ekki númer
Kissingers heldur símanúmer
vesalings Giesingers. Fyrir þetta
mátti hann þola að vera vakinn
upp um miðjar nætur af fólki,
sem spurði hann blíðlega, „hvort
hann hefðj sérstaka ánægju af
því að láta myrða konur og
böm".
Annar hjúkrunarmaður bjarg-
aði sjúklingunum tveimur frá
bana, en hjúkrunarmennirnir,
sem nú eru ákærðir, gengu út
úr baðherberginu meö bros á
vör.
DDDD
Ekki á
biðils-
buxunum
Gifting? Nei, aldeilis ekki, sagði
Mick Jagger litli úr Rolling Ston-
es, og Bianca stóð við hlið hans
í gagnsæju blússunni sinni og
brosti.
Jú, víst var tizkuhús St. Laur-
ent að sauma kjól á hana, og jú,
víst bjuggu þau saman á Hótel
Byblos og víst höfðu þau búið
þar saman í nokkrar vikur.
„Ég hef ekkj gert neinar áætl-
anir um að gifta mig,“ sagði
Mick Jagger og Bianca Peres
Mórena de Masías frá Nikaragúa
hélt áfram að brosa, og Miok
bætti við þessari torráðnu setn-
ingu: „Ég er ekkj þess konar fugl,
sem mundi gera mikið veður út
af einhverju fram í tímann."
Manson fær heilræða-
brét frá samfanga s'mum
Einn fanganna f dauðadeild
San Quentin fangelsisins hefur
skrifað Charles Manson bréf, þar
sem hann gefur honum ýmis
holl ráð, varðandi hvernig hann
skuli haga sér meöan hann dvelst
í dauöadeildinni og bíður þess að
taka út sinn dóm.
Bréfið var ekki stílað til Man-
sons heldur til Paul Fitzgerald
verjanda hans, senv jafnframt var
beöinn um að halda nafni send-
andans leyndu og gefa ekki ann-
að upp, en að hann hefðj verið
dæmdur til dauða 1969.
Manson, en hann var ásamt
þremur stúlkum sakfelldur fyrir
morðið á leikkonunni Sharon
Tate og fleira fólki, fékk aðvörun
í bréfinu um, að honum verði
kuldalega tekið, því aö hippar
séu ekki sérlega vel séðir af föng-
unum i dauðadeildinni.
„Félagsskapurinn hérna er ó-
sköp svipaöur þjóðfélaginu fyrir
utan. Við höfum okkar fordóma,
samúð og andúð... og við erum
spegilmynd samfélagsins utan
múranna. Við lítum hippa horn-
auga og negra sömuleiðis".
Refsifanginn lýsir stéttaskipt-
ingunni í fangelsinu, þar sem
hinir gamalreyndu reyna þolrifin
í nýliðunum.
„Þaö getur verið að Manson
spjari sig, ef hann þykist ekki
vera harðsoðinn, en hann má held
ur ekki láta neinn bilbug á sér
finna. Ef hann sýnir, að hann
getur forðazt öfgar á báða bóga,
fer að líkindum ekki illa fyrir
honum meðan hann dvelst í
dauðadeildinni."
Fanginn gefur Manson það ráð,
að hlíta settum reglum í fang-
elsinu. „Ef einhver varðmaður
krefst þess, að hann yfirgefi klefa
sinn, er hollast fyrir hann að
hlýða. Annars taka verðirnir
sig til og kasta táragassprengju
inn i klefann hans. Við það yrði
hann í meira lagi óvinsæll meðal
samfanga sinna, þvf að gasið
smýgur víða, þar sem rimlahurðir
eru fyrir klefunum. Það er því
heillaráð að vera snar í snúning-
um við að hlýða skipunum til að
forðast vandræöi."
Ekki er gott að segja um
hversu lengi Manson gistir dauða
deildina, því að með góðri lög-
fræðiaðstoö tekst hinum dauða-
dæmdu oft að fá aftökum frest-
að og mál sín tekin upp að
nýju.