Vísir - 05.05.1971, Side 6
6
V 1 S I R . Miðvikudagur a. mai i»n.
Króntsk tæknivandræði
íslenzkra símamanna
31 Hafið þökk, Vísismenn, fyrir að
hreyfa máli sem ég tel vera
höfuðborginni til skammar, neyðar-
símanum. Eins og sýnt er fram á
í grein ykkar 15. þ. m. eru síma-
númer slökkviliðs og lögreglu þann-
ig, að sárafáir muna þau, í stað
þess að þessar stofnanir ættu að
hafa eitt símanúmer, sérstætt, stutt
og auð-munað, eins og flestar stór-
borgir nágrannaíandanna. Og þar
sem völ er á jafnstuttu númeri og
02 er, ætti neyðarsíminn að hafa
það. Það er alveg út f hött að deild-
ir innan símans, þar á meðal klukk-
an, skuli hafa þessi sérstæðu núm-
er, sem allir geta munað, en maður
í brennandi húsi þarf á örlagastund
að fletta upp f símaskrá, kannski
sjóndapur og gleraugnalaus.
Mér er mikið áhugamál að þið
látið nú ekki deigan síga eftir
fyrstu atrennuna. Svo oft hef ég
árangurslaust stungið niður penna
um nauðsyn neyðarsímans, að mér
er það kappsmál að ykkur, ungum
mönnum seint á tuttugustu öld-
inni, takist nú betur.
Um þetta mál skrifaði ég 14/11
1934, 18/2 1944, 6/3 1949 10/6
1956, 11/1 1957, 9/1 1959 og
17/2 1959, oftast í Morgunblaðið.
Á þessum árum ræddi ég um þetta
mál við slökkviliðsstjóra og lög-
reglustjóra og slvsavarnamenn.
Alls staöar fullkominn skilningur
á því að tveggja stafa neyðarnúmer
yrði til mikils öryggis. En alltaf
strandaði á símamönnunum, það
væru syo miklir tæknilegir örðug-
leikar á þessu og það yröi svo dýrt.
En ég skil það ekki frekar í dag
en fyrir fjörutíu árum, að það sé
dýrara að tengia 02 eða t. d. 04
handa neyðarstofnun heldur en
klukku-gerpinu. Og í dag, eftir að
menn hafa spígsporaö fram og aft-
ur á tunglinu, botna ég ekkert í
þessum krónisku tækni-vandræðum
símamannanna íslenzku.
Jón Helgason.
1 - x - 2
Leikir 1. maí 1971 i X 2
Arsenal — Stoke / / - 0
Blackpool — Man. Utd. • X / - 1
Coventry— Newcastle I 2 - o
C. Palace — Everton I 2 - 0
Derby — W.B.A. i 2 - 0
Ipswich — Chelsca X O - o
Lceds — Nott’m For. i 2 - 0
Livcrpool — South’pton i / •- 0
Man. City — Tottenham 2 0 - /
Wcst Ham — Iluddcrsnd 2 0 - /
Wolvcs Burnley / 1 - 0
Charlton ■— Birminghnm. X / - /
BaBaaximfan- -i ...
Lem^tdur
ÁYmfffl
J © Vilja ekki ölmusu-
l tóninn
• J. K. hringdi og vildi gera
• eftirfarandi athuí'asemd við aug
J lýsingu, sem birtíist í Vísi frá
• Blindravinafélaginu:
J „Það eru flíeiri samtök
• blindra, sem vinna að bursta-
J gerð og bólstrun en bara
® Blindravinafélagiö f Ingólfs-
• stræti. T. d. er f jolmennur fé-
J lagsskapur blindra í Hamrahlíð
• 17 — Blindrafélagið — sem
J rekur þar gríðarniikla bursta-
J gerð og plastpokagerð. Þar er
• einnig blindur maciur með körfu
J gerðarréttindi og annar blindur
• maður bólstrari. F.Lnnig veit ég
J til þess, að burstagerð er
J rekin af blindum manni á Akur
• eyri, og bólstrun af öðrum
J blindum manni á Blönduósi —
• og svona mun þaði vera víöar
o um land, að blindir vinni að
J sérstökum störfum í þessum
• dúr.
Mér og fleiri þj'áir því ekki
J rétt, að auglýst sé á svipuðum
• forsendum og Blindravinafélag-
• ið gerði. Okkur bíindu fólki og
J . fleiri er ákaflegg. illa við
• þann betlitón, sem kom fram í
J auglýsingunni. Við viljum vinna
• og taka þátt í samkeppni at-
• hafnalífsins eins og sjáandi
J fólk.“
J © Skák og bridge
• í sjónvarpi.
J Skák og bridgeunnandi skrifar:
J „Það er trúa mín, að margir
• hafi haft góða skecnmtun af
því að fylgjast með skákeinvígi
Friðriks og Larsens f sjónvarp
inu og hlakki til þess að sjá
næstu þætti. Menn hafa verið
býsna örlátir á að hrevta ónot
um 1 sjónvarpið, þegar þeim
þykir dagskráin léleg, en spar
ari hins vegar á hrósyrðin og
engan hef ég séö hrósa þessu
framtaki ennþá, sem þó er vel
þess vert.
Mér þykja þeir hafa gert vel
þama að koma í kring þessu
einvígi og þeir eiga gott hrós
skilið fyrir það hjá sjónvarpinu.
Þeir em margir, sem hafa gam
an af skák, og þetta er matur
fyrir þá.
Um leið kemur mér í faug,
að ekki munu færri hafa áfauga
á bridge, og margir hafa
áhuga á hvoru tveggja. Mig
langar til að vekja athyglisjón
varpsmanna á því f leiðinni, að
þaö yrði áreiðanlega feikivin-
sælt, ef þeir næðu sér einfavers
staðar í bridgeþætti.
Þegar sem mest var faorft á
Keflavikursjónvarpið fyrir daga
þess íslenzka, þá var bridgeþátt
ur Charles Goren á laugardög
um með vinsælasta dagskrár-
efni þess. Og ég hef haft
spurnir af bridgesjónvarpsþátt-
um, sem taka Goran-'þáttunum
mikið fram. Það væri ekki ó-
nýtt, ef maöur ætti einfavem
tíma eftir að sjá héma f fs-
lenzka sjónvarpinu keppnina,
sem kvikmyndaleikarinn Omar
Sfaarif, með ítölsku heimsmeist
arana sér við hlið háði við
fremstu spilamenn Breta í Lon
don, en úr henni vom gerðir
s j ónvarpsþættir.**
HRINGIDÍ
SÍMA1-16-60
KL13-15
Laus staða
Staða hjúkrunarmenntaðs fulltrúa í heil-
brigðisráðuneytinu er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt kjarasamningi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist ráðuneytinu fyrir 20.
maí n. k.
Heilbrigðis- og
tryggingúmálaráðuneytið,
25. apríl 1971.
VISIR I VIKULOKIN
er orðin 360 síðna litprentuð bók í fallegri möppu,
sem inniheldur allt sem viðkemur konunni og
heimilinu.
VISIR I VIKULOKIN
VISIR I VIKULOKIN
fylgir aðeins til fastra áskrifenda,
Vönduð mappa getur fylgt á
kostnaðarverði.
er afgreiddur án endurgjalds frá byrjun
til nýrra áskrifenda.
(nokkur tölublöð eru þegar uppgengin)
VISI