Vísir - 04.09.1971, Blaðsíða 9

Vísir - 04.09.1971, Blaðsíða 9
V í S I R . Laugardagur 4. september 1971. r ........ .......................... Skiptar skoðanir um hundahaldsmálið: álið er ekki átrætt Með lögum skul lund byggju Það er staðreynri, að hundahald er bannað í Reykja vík. Það hefur lengi verið bannað, en hundaeigend- ur fengu um tíma undanþágu frá þessu banni. Sjónarmið hundaeigenda og þeirra, sem banna vilja hundahaldið, eru ákaflega ólík og líta næstum því út fyrir að vera ósættanleg. Vísir hefur að und- anförhu reynt að kynna þessi sjónarmið, og í dag er skýrt frá sjónarmiðum nokkurra aðila er hafa mjög ákveðnar skoðanir á málinu. Allir eru þeir sannfærðir um réttmæti skoðana sinna, og sann- færðir um, að þær séu á rökum reistar. Takob Jónasson, læknir og for- " maður Hundavinafélagsins, er þeirrar skoðunar, að hunda- haldsmálinu sé síður en svo lok- ið: „Nei, við munum berjast, þar til yfir lýkur. Næsta skreíið í baráttunni er að senda bréf til Alþjóða dýraverndunarsam- bandsins í Ziirich. Alþjóðadýra- Jakob Jónasson ásamt hund- inum sínum. verndunarsambandið er ráðgjafi ýmissa menningarsamtaka á vegum Evrópuráðsins og Sam- einuðu þjóöanna og álit þess ætti að vera einhvers virði“. „Hundavinafélagið litur svo á, að ákvörðun borgarstjómar sé óréttlát?" „Já, við lítum svo á, að málið hafi ekki verið tekið föstum og Skynsamlegum tökum, heldur sé afstaðan byggð á hleypidómum. Heilbrigðismáiaráð leggur fram álit, þar sem ekki er tekið minnsta tillit til fraegustu manna á sviði dýralækninga, — svo sem Singletons, sem er for- seti Royal Coliege of Vetenary Surgeons. Áróðurinn gegn hundahaldi er byggður á kjánalegri hræðslu. Það er talað um, aö spóluormur sé í hundum. Spóluormur er líka f köttum og músum og fleiri dýr um. Mér er tjáð, að hér á landi þekkist eitt dæmi um spóluorm f auga manns, og það tilfelli er svo einstakt. að skrifa mætti um það doktorsritgerð.“ „Hefur Hundavinafélagiö kynnt málið erlendis á heiðar- legan hátt, án þess að draga neitt undan?“ „Við höfum ekkj dregið neitt undan þegar við höfum kynnt þetta mál erlendis. Hitt er svo annað mál, að erlendum blaða- mönnum hefur tekizt misjafn- lega vel að skrifa satt og rétt um þetta mál Um það er við blaðamennina aö sakast — en ekki Hundavinafélagið.“ „Er það rétt', að Tíun'dávihá-’ félagið hafi beinlfnis spantað" mótmæli frá erlendum aðilum?" „Við höfum engin mótmæli „pantað". Við höfum kynnt málið eftir föngum. og erlendir aðilar hafa lýst y'ir stuðningi við málstaö okkar og scnt okkur álitsgerðir." „Telja hundavinir, að með þessu banni sé gengið á almenn mannréttindi?“ „Hundavinir líta svo á. að bannið sé vægast sagt furöu- legt frá mannréttindasjónarmiði. Það er sagt, að hundahald skapi sambýlisvandamál, en ég er sann færður um, að bannið á eftir að skapa ekki síður alvarleg sam býlisvandamál. Ég veit aðeins eitt dæmi til þess að hundahald hafi verið bannað. Það var i Kína, þar sem hundahald var bannað í nokkrum borgum vegna matarskorts um tíma. Hundahald í Reykjavik er stað reynd, og hiö eina skynsamleg'a er að horfast í augu viö þessá sta'ðreynd og setja ákveðftar reglur um hundahaldið — til hagsbóta fyrir alla aðila.“ TZ' ristín Bjarnadóttir er ein úr ^ hópi þeirra Reykvfkinga, sem er ákaflega mótfallin hunda haldi hér í borg. „Ég er þeirrar skoðunar," seg ir Kristín, „að ófært sé að leyfa hundahald í borgum. Mér finnst, að hundar eigi að vera úti f sveit, þar sem þeir geta veriö frjálsir og óþvingaðir, í stað þess að þurfa að hírast inni í fbúðum fólks. Ég er á móti hundahaldi f borgum, ef því að ég óttast ýmis vandamál, sem hundahald skapar. Við höfum að vfsu losn- að við sullaveikina, en hún getur skotið upp kollinum á ný, ef ekki er varlega farið. Hundahald í fjölbýli er væg- ast sagt ákaflega óþægilegt fyrir alla aðila. Fólk verður að sætta Kristín Bjarnadóttir: „Með lögum skal land byggja.“ sig við að laga sig eftir að- stæðum og gangast undir ýms- ar reglur til að gera sér og öðrum lífið bærilegt." „Telur þú, að lögreglan ei'gi nú að fara á stúfana til að fram- fylgja banninu við hundahaldi, eða á að leyía þeim hundum, sem þegar eru í Reykjavík að verá í'lriði;"' „Ég-.þeld.. aðf1f}au^ynlegt|rsén að taka þegar til við að frarft- fylgja banninu smám saman. Þaö er ófært að leyfa hér ein- hverjar undanþágur frá banninu. Or því verður eintómt svindl og leiðindi. Ég er líka þeirrar skoðunar, að þetta sé bezt fyrir dýrin. Það er illa farið með dýr, aö iáta þau kúldrast inni allan lið- langan daginn í misjafnlega rúm góðum fbúðum. Það er auövitað sárt, aö sjá á eftir hundunum, en ég hugsa, að bændum þyki ekki alltaf gaman að verða aö láta drepa kindurnar sfnar eða kýr eða hesta. Við verðum að sætta okkur við að taka tillit til annarra. Ef 'fólk' getur ekki hugsað sér annað en hafa hund, veröur það að búa einhvers staðar annars staöar, þar sem hundahald er leyft. Lögum og reglum verður að fylgja. Með lögum skal land byggja, eins og þar stendur." Tj’inn borgarfulltrúa var Albert Guðmundsson hlynntur húttdahaldi. Hann segir: „Frá mínum bæjardyrum séð er þetta mál iangt frá þvf að vera útrætt. Meðan svona er í pottinn búiö veröur þetta alltaf vandamál. Að sjálfsögöu mun ég sjálfur beygja mig undir á- kvörðun meirihlutans, en engu aö síöur er ég þeirrar skoðunar, að hundavinir hafi unnið stór- sigur, þar sem lögreglan neitar aö framfylgja þessu banni. Ég spurði fulitrúa lögreglu- stjóra, hvort lögreglan mundi taka til viö að útrýma hundum í Reykjavík, þann 1. sept., að frestinum útrunnum. Hann sagði að lögreglan mundi fara rólega' f sakirnar, og ekki verða aðrir hundar teknir en þeir, sem kvartað hefur verið yfir, og þá mun lögreglan reyna að kynna sér réttmæti kvartan- anna, svo að hundaeigendur þurfa ekki að óttast, að hundar þeirra verði teknir, hvar sem til þeirra næst.“ „Telur þú að hundavinir hafi kynnt sitt mál á óheiðariegan hátt?“ „Ég vil taka það skýrt fram, að ég hef á engan hátt staðið í samvinnu við Hundavinafélagið. Það hefur ekki haft samband við mig, og ég ekki við það. Mín afstaða í borgarstjöm var ein- göngu byggð á mínu persónulega maju og reynslú''.' '1 Hvað hefur þú um núverandi ' ásíánd að rsegja?" . • ,. „Mér finnst núverandi ástand ákaflega ómannúðiegt. Það er ómannúðlegt að dýrin skuli fá að vera svona með hálfgerðu leyfi borgarráðs. Þetta skapar hunda- vinum ótta og gerir dýrin að föngum innanhúss. Fóik þorir ekki að íara með þau út úr húsi af ótta við lögreglu, og dýrin eru jafnvel út.ilokuö frá dýra- læknum af sömu ástæðu“. „Þú sagðir, að afstaöa þín til hundahalds væri byggð á per- sónuiegri reynslu." „Já, hún er byggð á eigin reynslu. Ég hef átt hunda bæði hér og erlendis. og reynsla mín er sú, að ég hlýt að vera hlynnt ur bví.-að hundahald sé ]eyft.“ „Og að lokum?“ „Að lokum langar mig áð taka fram að gefnu tilefni, að fyrir hundavini er engin ástæða til aö ætla, að þeir sem eru á móti hundahaldi séu vont fólk. Því fer fjarri. Þótt til dæmis aðrir fulitrúar í borgarstjórn hafi lagzt á móti hundahaldi sannar það ekkj annað en að þeir halda á málum, hver eftir sinni sann- færingu“. — ÞB Þessi mynd af Albert Guðmyndssyni og hundinum hans blrt- ist í danska blaðinu BT. vísír m- — Eruð þér samþykkur eða andvígur hunda- banninu? Jósep Sigurðsson, sendibflstjóri: — Hundabanninu er ég sam- þvkkur. Hundar finnast mér nefnilega elcki eiga rétt á sér í þéttbýlinu. fS 'f i'.ém- j ... imm Öm ísleifsson, gagnfræðaskóla- nemi: — Ég er á móti hundum og þar af leiðandi fylgjandi hundabanninu. Margrét Guðmundsdóttir, hús- móðir: — Ég hef ekkert á móti hundum í sjálfu sér. Mér finnast þeir bara ekki eiga við í Reykja vík, allra hluta vegna. Þeir eiga t.d alls ekki heima f sambýlis húsum. Öðru máli skiptir um hunda í eigu fólks 1 einbýlishús um. •MK. Rannveig Stefánsdóttir, gagn- fræöaskólanfemi. — Ég er tví- mælalaust andvíg hundabann- inu. Sjáif átti ég einu sinni hund. Ég missti hann fyrir bíl. Hrúfn Magnússon, kennari. — Ætli ég sé nú ekki frekar á móti hundahaldi í Reykjavík. — Hundar eiga jú fyrst og fremst heima í sveitum landsins.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.