Vísir - 27.09.1971, Blaðsíða 2

Vísir - 27.09.1971, Blaðsíða 2
PLA YBOY vex eg vex Hugh M. Hefner, Playboy-kóngur, stígur út úr einkaþotu sinni. — hefur útgáfu / Allt frá því bandaríska mánaðarritið „Playboy“ hóf sína sigurgöngu um hinn vestræna heim, árið 1950, hafa reikningslistar menn setið við og reynt að gera sér í hugarlund, hverjar tekjur Playboy- kóngsins, Hugh M. Hefn- ers myndu vera — eink- um eftir að Playboy varð, að stórveldi, með margs konar hótelum og klúbb- um kringum sig. Svariö við þessari áleitnu spum ingu kom I síðustu viku, þegar „Playboy Enterprises, Inc.“ bjó sig undir að bjóða hluti til sölu í fyrirtækinu. Playboy setlar sér að selja 1.159,562 hluti, og þar af em 300.000 hluti.r beint frá Hefner sjálfum. Eftir sem áður ætlar hann sér að halda eftir 6.700,00 hlutum, eða 71,9% af heildinni. Það sem eftir er, 11% eða þar um, tryggir svo Hefner 800.000 dollara á ári til viöbótar ansi ríf- Evrópu næsta ár legum iaunum sem hann hefur fyrir þ. e. 303.924 dollurum. Sem stjómarformaður, ritstjóri og út- gefandi fær hann til viðbótar 372.924 dollara. Playboy, þ. e. tímaritiö, er sá partur af 'allri staifsemi Hefners, sem langmestum gróða skilar, og fer því fjarri að aðrar deildir fyr- irtækisins skili öðum eins hagn- aði — hótelreksturinn hefur ekki gengiö sérlega vei, sýndi s. 1. ár tap upp á 1.700.000 dollara. í síðasta mánuði byrjaði Play- boy Enterprises að reka hljóm- skífuútgáfu og upptökustúdíó og einnig hefur Hefner áform uppi um kvikmyndaframleiðslu. í fyrra greiddi hann leikstjóranum Rom- an Polanski þrjár milljónir doll- ara til að gera kvikmynd eftir Shakespeare-leikritinu Machbeth og svipast nú um eftir fleiri kvik- myndaáformum að leggja pen- inga í. Næsta ár ætlar Playboy sér að hefja alþjóðlega útgáfu þess merka tímarits, sem ber nafn fyr- irtækisins og verður blaðið þá gefiö út f Þýzkalandi, Fakklandi og Italíu auk Bandaríkjanna. Til aðstoðar við það réð Hefner tll sín blaðamann af vikuritinu Time, Michaei nokkum Demarest. Verður þá um mikinn banda- rískan innflutning að ræða í Evr- ópu, því allt starfslið þessara blaða verður bandarískt eða að langmestu leyti, og einnig verða þær nöktu fegurðardísir, sem gera blaðið að því uppáhaldi karl- manna, sem þaö er, flestar banda- rískar, þótt Hefner hafi lofað les- endum sínum þvf að Htast einnig um á evrópskum markaði eftir hæfileikaríkum stúlkum til að mynda. !•••■•••••••••••••••■••••••••••••••••••••••••••<•••••••••••••••■••••••••« IÐNSKOLINN I REYKJAVÍK Nemendum, sem stunda eiga nám í 3. bekk á yfirstandandi skólaári (annarri námsönn), en hafa ekki lokið námi í einstökum náms- greinum 2. bekkjar með fullnægjandi árangri, gefst kostur á að sækja námskeið í reikningi, efnafræði, dönsku og-ensku, ef næg þátttaka fæst. — Innritun fer fram í skrifstofu skólans 29. sept. til 1. okt. á skrifstofutíma. Námskeiðsgjöld verða kr. 600,— fyrir hverja grein. — Námskeiðin munu hefjast 4. okt. og próf standa 25.—27. sama mánaðar. Nemendur, sem þurfa að endurtaka próf í öðrum námsgreinum 2. bekkjar skulu koma til prófs sömu daga og láta innrita sig í þau dagana 18.—22. október. Skólastjóri ípo S m u r b ra u ðstof a n M -....... BJORIMIIMN Njálsgata 49 Sími 15105 MGMéghvili ' fc, SJfi með gleraugum frá SrljfiBF Austurstræti 20. Slmi 14566. HEILAÞYOTTUR Rússar hrifnir af Elling- ton Ellington, jasskóngur stormar nú um Sovétríkin með hljómsveit sína og ef marka á fregnir af för hans, þá er það mikil frægðar- för og rússneskir karlar og kon- ur, hníga stundum út af I jass- sveiflu, einkum þegar Ellington leikur á amerískunni „I love You Madly". Rússarnir voru sagðir ofsahrifn ir af gömlum og góðum amerísk- um lummum svo sem „Take The A Tráin“, „Satin Doll“, „Perdi- do“ og „I Can’t Get Started With You“ — og Dukinn sjálfur sagði „Þetta eru þeir hrifningargjörn- ustu áheyrendur sem ég hef npkkru sinnj leikið fyrir". Dótturdóttir Stalíns Hvem skyldi hafa grunað það fyrir svona’ 20 árum, að dóttir Stalíns og dótturdóttir hans, væru daglega blaðamatur í bandarfsk- um blöðum, og dóttir hans meira að segja gift bandarískum manni og búsett vestra? Svetlana Alliuyeva Stalín heit- ir ekki lengur Stalín heldur Pet- ers og þessi 45 ára kona eignaðist fyrir fjórum mánuðum dóttur sem Olga heitir. Faðir hennar er William Wesley Peters, 59 ára gamall maður og arkitekt aö mennt. Fréttist af fólki.... Eigi alls fyrir löngu voru hjón in á myndinni þessari mjög svo umtöluð í .blöðum — aðeins hef ur hljóðnað um þau síðan, enda hafa þau lifað kyrrlátu fjölskyldu lífj undanfarið. Hann er Serge Gainsbourg. 43 ára maður, sem vann sér þaö til frægðar að semja „texta“ cða hljóð fyrir hljómskífuna „Je t‘aime“ — en hljóð þessi voru stunur og hvæs frá pari að iðka ástarleik. Hún er svo Jane Birk- in sú kona í Frakklandi sem hvað frægust hefur orðið fyrir ófeimni við að sýna kropp sinn. Hún er 24 ára, og dóttir þeirra, sem þau hafa þama á möH sln í poka er Charlotte-Lucy og ekki nerrja þriggja vikna að aldri.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.