Vísir - 02.12.1971, Side 13

Vísir - 02.12.1971, Side 13
13 msb Tií. rrmmtuaagur z. aesemoer rm. s •f 'W Ætli það verði fleiri, sem grfpa upp símtólið til að hringja í ættingja úti á Iandi eftir klukkan tíu í kvöld? Þá gildir helmingsafsláttur en auðvitað kostar símtalið sitt eftir sem áður. Stúlk an á myndinni er hins vegar að taia f einn þeirra rúmlega tíu þúsund síma, sem hægt er að afgreiða á einni línu með þessu tæki sem er notað í þeim tilgangi og Itallað er fjölsími. NÚERHÆGTAÐ HRINGJA ÚT Á LAND FYRIR HÁLFT GJALD í — en sveitabæirn/r eru / flestum tilfellum undanskildir og hluti Austfjarða "IVu er hæ®t að hringja út á land og utan af landi til Reykjavíkur fyrir hálft gjald, ef það er gert á vissum tímum. Helmingsafslátturinn gildir frá því klukkan tiu á kvöldi til kl. sjö að morgni virka' daga qg frá kil. .15 á laugardögum til klukkan 7 á mánudagsmorgnum. Gildir þetta um allar sjálfvirku símstöðvarnar, þegar hringt er beint á staðinn, en ekki þegar símtal er pantaö í gegnum 02. Jjorvarður Jónsson verkfræð- ingur hjá símanum sagði okkur, að það hetföi verið rætt um að taka upp þetta helmings gjald í mörg ár en svipað af- sláttakerfj gilti á Norðurlöndum og; í Ameríku og þar kallast þessi símtöl nætursímtöl. Það hefði ekki þótt heppilegt að taka þetta fyrirkomulag upp hér fyrr en sjálfvirka símkerfið væri að mestu komið á. „Við erum komnir á lokastig- ;• ið með að koma sjálfvirka kerf- inu á um allt landið“, segir Þor- varður. Nú eru Egilsstaðir ög Hornafjörður komin inn í kerfið, og f desember kemst Neskaup- staður inn í það Austfirðirnir eru síðasta svæðið í okkar á- fanga, og hinar stöðvamar þar koma naestu 2—3 árin.“ — Hvers vegna er afsilátturinn gefinn? „Við væntum þess að þetta stuðli að betri nýtingu og með þessu munu prívatnotendur nota þennan tíma, sem þeir fá sím- tölin á lægra gjaldi. Við það verður meiri dreifing á kerfinu og minna álag, en nú fer saman prívatsamtöl, atvinnu- og verzl- unarsamtöil á vissum tímum, sem hefur stundum komið fram í því að númerið hetfur virzt vera á ta'li þó það sé það ekki“. — Verða ekki einhver svæði út undan, þegar um afsláttinn er að ræða t.d. afskekktustu sveita bæir? „Sveitabæimir koma ekki inn f þetta. Þeir eru ennþá tengdir handvirkt við sjáltfvirku sím- stöðvarnar. Þaö er mjög dýrt að tengja sveitabæina við sjálf- virku stöðvamar, þeir eru svo dreifðir, en þó hefur verið farið út í það með þá, sem eru nálægt sjálfvirku stöðvunum. Reynt er að leysa það mál með strengja- lögn. Einnig hafa sumar st.öðvar orðið út undan af öðmm orsök- um, t.d. Búðardalur og Þing- eyri, en þar hefur það tafið fyr ir að erfiðlega gekk að fá byggð símstöðvarhús. En reikna má með því, að þessar stöðvar komi báðar á næsta ári“. Þá segir Þorvarður að stöðin, sem verður tekin í notkun á Neskaupstað sé 55. sjálfvirka stöðin utan Reykjavíkur og sú 59. fyrir attt landið, en í Reykja vfk eru 4 stöðvar. Hann segir frá væntanl. símstöð 5 Breiðholti, sem á að þjóna þvf hverfi, en mikið kapp sé lagt á að flýta þvi verki. Þess má því vænta að greiðist fyrir símnotendum, sérstaklega þeim, sem skortir síma, þegar sú stöð er komin upp. — Hvemig er með jólasamtöl in til útlanda, fæst ekki afslátt- ur á þeim? „Nei, þau eru ekki sjálfvirk og em samkvæmt samningum við erlendar símstjómir. Fólk hef ur verið beðið um að panta þessi símtöl fyrirfram vegna álags á línunum, en þama er ‘handvirk afgreiðsla og geta stúlkumar rað að inn á linumar eftir þvf sem pantanir berast". — SB Bókasafn Seltjarnarness Mýrarhúsaskóla. Safnið er opið á mánudögum kl. 16—19 og 20—21, miðvikudögum kl. 16—19, föstudög- um kl. 16—19 og 20—21. — Sími 17585. BJÖRIMÍftllM Njálsgata 49 Sími 15105 HÚSBYGGIENDUR Á einum og sama stað fáið þér flestar vörur til hvppinpar' vftar. BRIUII1 LEITIÐ VERÐTILBOÐA pnnnnnT ^'TðnvÉrk^kr' svnincnuéiRR f ALHLIÐA BYGGINGAMÓNUSTA Sportval Hlemmtotgi SÉRHÆFNI TRYGGIR norðurveri YÐUR v/Laugaveg & Nðatún .... Pósthólf 5266 VANDAÐAR VÖRUR Símar: 25945 & 25930

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.