Vísir


Vísir - 27.12.1971, Qupperneq 16

Vísir - 27.12.1971, Qupperneq 16
) isir Ólafsfír fengu héraðslækni í jólagjöf „Þetta var svo sannar- lega bezta jblagjöfin sem við gátum fengið hér“, sagði Ólafsfirðingur einn í samtali við Vísi í morgun. Þessi kær- komna jólagjöf barst Ól- afsfirðingum á Þorláks- messu í mynd Ólafs Ól- afssonar yfirlæknis Hjartaverndar og mun hann sinna læknisstörf um á staðnum eitthvað fram í janúar. Lækninum var vel fagnað og höfðu Ólafsfirðingar komið upp jólatré í læknisbústaðnum fyrir komu hans og ennfremur munu þeir hafa flutt þangað jólamat. Sjálfur vildi Ólafur lítið ræða viö blaöamann Vísis og taldi þaö ekkj vera fréttaefni þótt iæknir gegndi störfum þarna um skamman tíma. Eidra fóikj á Ólafsfirði féll læknisieysið sérstaklega illa og haföi sumt af þvT farið til Ak- ureyrar og ætlað að dvelja þar hjá ættingjum yfir hátíðarnar, en sneri heim eftir að fréttist af komu læknisins. . En Óiafsfirðingar hafa einn- ig verið prestslausir að undan- förnu. Dalvíkurklerkur ætlaði að messa í Ólafsfjarðarkirkju í gær en Múlavegur var þá orð- inn ófær svo hann komst ekki. Heimamenn slógu þá upp balli um kvöldið og var þar fjöl- menni. En á aðfangadagskvöld önnuðust þeir sjálfir helgistund \ kirkjunni. — SG Þannig sér EFTA Lúðvík! Svona er Lúövfk í auigu!m EFTA- manna. Teilknadnn Jean Leffel I Genf heifur ekki 'þurft langa athug- un tiil að teiknia þessa mynd af Lúðvfk Jóseffssyni, sem áreiðanleiga gefur ekki eftíir myndum íslenzkra teiknara. Myndin birtist í nýút- komnu hefti tímaritsins, sem EFTA gefur út, og hún er þar efst á blaði, þar sem eru myndir af öilhim 10 ,,toppunum“, sem sátu ráðherra- fund EFTA-landanna í nóvember. — HH ÞRJÁ TÍMA TiL — þegar bylurinn skall á SV-land á a&fangadag „Þeir voru tvo og brjá tíma til 'reflavíkur, áætlunarbílamir á aö- "'sngadag. lokaðist þarna í brekk- "nni ofan við Hafnarfjörð um 'íma — og þeir lentu I erfiðleikum á Hellisheiðinni þegar þessi gusa ’;om — svo lagaðist þetta nú iótt“, sagði Kristjón Kristjónsson, "■'rstjóri Umferé'"-miðstöðvarinnar, er Vísir forvitnaðist um ferðir út um land fyrir og um hátíðamar. „Þetta voru verstir erfiðleikarnir á aðíangadag sérstaklega á Snæ- fellsnesi. Mýrum og um Borgar- "'orð Þar lögðust ferðir niður einn dag eða svo — þetta veður stóð i raunar ekki nema hálfan dag, þá rigndi aðeins, en nóg til að binda snjóinn, bannig að hann fauk ekki. Norðurleiðin verður farin á morg un, og ætij beir moki þá ekki fyrir norðan. Norðurleiðin er rudd á þriðjudögum og föstudögum, og þær ferðir halda sér alveg. FVrir jól in voru svo famar nokkrar auka ferðir þannig að það lítur vel út með betta til áramóta". Kristjón sagðj að ófært hefði verið austur fyrir fjall og um Suð urland á aðfangadag, „en þetta var strax fært þegar rigndi og iþeir fóru að ryðja“. —GG Friðsæl jól um land allt: Lögreglan sá um að flytja hjúkr- unarkonurnar Um land allt áttu landsmenn friðsæla og náðuga daga yfír jðl in og hjá þeim, er standa þurftu vörð við löggæzlu og slökkvl- störf. leið hátíðin hjá viðburða lítil. Slökkviliðið í Reykjavík var kvatt út aðeins einu sinni vegna elds á jóladagskvöld, en önnur verkefni báru ekki að. Hjá lögreglumönnum Jiðu vaktimar viðburöasnauðar og tfðindalausar. Á siálfan ióladag þurfti lögreglan í Reykjavík ekki öðrum verkefnum að sinna en annast flutninga á hjúkrunar fólki frá heimilum þess til vinnu á sjúkrahúsunum. Strætisvagnar hófu ekki ferðir fyrr en eftir há degi og fáir leigubílar voru í akstri svo að hjúkrunarkonur stóðu uppi veglausar. Voru bílar Jögreglunnar við þessa iðju lengi morgurts og gátu lögregluþjónar þennan dag ómögulega merkt neinn skort á hjúkrunarkonum. Lögreglan kom færandi hendi Fyrír jólin efndi lögreglan og Umferðarnefnd Rey kjavíkur til getraunar um umferðarmál fyrir skólabörn. Getraunaseðlum var dreift síðasta kennsludag fyrir jól til um 12 þús. barna. Frestur til að skila getraunaseðlum var til kl. 22 á Þorláks messu og var þátttaka meiri en nokkru sinni áður og bárust 4800 getraunaseðlar. — Vinningar voru 2 reiðhjól og 150 bækur. — Skólastjóramir Guð mundur Magnússon og Ingi Kristinsson drógu út vinninga ásamt Sigurjóni Sigurðssyni Iögreglu stjóra. — Á aðfangadag jóla óku einkennisklædd ir lögreglúmenn vinningunum út til barnanna og var það eitt af ánægjulegustu vigfangsefnum lög reglunnar um hátíðina. — Reiðhjólin hlutu Val gerður Pálsdóttir, Hraunbæ 82, 10 ára, og Borgar Jónsteinsson, Rauðalæk 57, 11 ára. UNGA FÓLKIÐ MISSTI ALLT SITT í BRUNA • Eldur kom upp í íbúðarhúsinu að Ránargötu 31 á jóladags- kvöld, þar sem Oddur Björnsson, leikritaskáld, býr ásamt fjölskyldu sinni. Þegar eidurinn kom upp var eng- inn heima í húsinu, en kona í næsta húsi vairð eldsins vör, og gerði slökkviliöi viðvart. Var talsverður eldur laus í tveim herbergjum í risi hússins, þegar silökkviliðið bar að. Eftir einnar og hálfrar kilukku- stundar slökkvistarf tókst aö ráöa niðurlögum eldsins, en þá höfðu talsverðar sikemmdir orðið á her- bergjunum. Hins vegar tóket að verja báðar neðri hæðir hússrn fyrir skemmdum, I risherbergjum voru vistarverur unglinga úr heirn- ili Odds Björnssonar, sem býr á efri hæð hússinis. Um upptök eldsiins er ekki vitað með vissu, en grunur lék á þvf að kviknað heifði í út frá kerta Ijósi. — G1

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.