Vísir - 06.04.1972, Blaðsíða 16
Drengurinn
látinn
UtH drengurinn, sem fannst á
botni Sundlaugar Vesturbæjar
fyrir páska, lézt á Borgar-
spítalanum i fyrrakvöld. Hann
komst aldrei til meövitundar, en
hann hafði legið á gjörgæzlu-
deildinni i rúma viku þegar hann
lézt. Ilann hét Kristinn Jón
Bennysson og var 9 ára. -VJ-
Barn fyrir bíl
Þriggja ára drengur varð fyrir
bil á Háaleitisbraut við Suðurver
siðdegis i gær.
Drengurinn mun hafa hlaupið
út á götuna i veg fyrir bilinn, og
náöi bilstjórinn ekki að stanza i
tæka tið. Drengurinn kastaðist i
götuna og brotnaði á vinstra fæti.
—GG
Kvenmannsleysi
hindrar þátttöku
íslendingar liafa afþakkað boð
um þátttöku I landskeppni í skák
vegna „kvenmannsleysis".
I.andskeppni (> landa átti að
fara fram i Þýzkalandi og var is-
lendinguni boöiö að senda sveit,
en á einu borðanna skyldi vera
kona. Þvi átti nú i fyrsta sinn að
fara fram islandsmót kvenna I
skák, en engin kona kom til lciks,
þegar til átti að taka. Kéll sú
keppni niöur og með því þátt-
takan i landskcppninni. -HII.
„Mega meiða
sig mín vegna"
— segir einneigandinn
Nú er næstum lokiö við að rifa
niöur Særúnu, skipsflakið, sem
sjö ára drengur slasaði sig i fyrir
skömmu. Sömuleiðis hafa
eigendur annarra skipsflaka inni
. ið Vatnagarða byrgt flökin,
pannig, að engin bætta á að vera
lengur á þvl, að þau valdi slysum.
Skipsflökin átti raunar að vera
búið að rifa eða fjarlægja fyrir
siðustu mánaðamót. En eigendur
þeirra bera ýmsu við, er þeir eru
spurðir hversvegna svo hefur
ekki verið gert.
BLIÐFARI er i eigu stálverk-
smiðjunnar Sindra. Liggur skips-
flakið fyrir neðan brotajárns-
geymslur verksmiðjunnar, en þar
veröur hann rifinn i brotajárn I
vor. Bliðfari hefur engum slysum
valdið til þessa, enda i augsýn
starfsmanna Sindra, sem stugga
frá börnunum sem i flakið leita.
LEO er i eigu Björgunar hf. og
á það fyrir sér að verða jafnvel
geröur upp að nýju. 1 honum er —
að sögn Björgunar-manna —
prýðisgóð sanddæla, sem gerði
það gott á meðan Leó var upp á
sitt bezta, og gæti vel komið að
góöum notum enn um sinn verði
Leo gerður upp að nýju.
A meðan örlög Leós eru ekki
ráðin fær hann að dúsa inni við
Vatnagarða. Eigendur hans hafa
margoft byrgt flakið, en börn
og/eöa fullorðnir hafa jafnharðan
brotið allt upp aftur. Nú hafa
verið soðnir hlerar yfir öl! lestar-
op.
ÍSLENDINGUR er i eigu
Baldurs Guðmundssonar, en
hann á einnig Laxfoss, sem liggur
fyrir utan Vatnagarða. Baldur
hefur byrgt Islending, en ekki
kveðst hann sjá ástæðu til að
byrgja Laxfoss. „I hann komast
engir nema á bátum eöa flekum.
Það eru þá einhverjir
spjátrungar að sperra sig og þeir
mega þá meiða sig min vegna,”
sagði Baldur i viðtali við Visi i
morgun.
Aðspurður, hvort skipsflökin
væru ekki á förum, svaraðí hann:
„Það verður nú ekki gert með þvi
einu að smella fingri. Það tók til
að mynda hafnaryfirvöld nokkrar
ur að hreyfa Laxfoss úr stað á
inum tima”. -ÞJM '
NÝBAKAÐUR MIIIINN
FÓR BEINT A SJÓINN
Kokkur á Gullborginni í Eyjum fékk DAS-húsið í gœr
Jú, það er víst betra að
halda miðanum til haga.
Þessi blaösnepill er vist
orðinn þriggja milljóna
króna virði a.m.k., sagði
kokkurinn á Gullborginni
hans Binna i Gröf, Bald-
vin Nielsen, við umboðs-
mann DAS i Vestmanna-
eyjum i gærkvöldi. —
Hann var þá nýbakaður
milljóner á íslenzka vísu,
þegar DAS-húsið að
Reynilundi 4 i Garða-
hreppi kom á miðann
hans númer 16112.
Hann tók þessu ósköp rólega
og sagði litið, sagði Asta ólafs-
dóttir, sem ásamt eiginmanni
sinum Eyjólfi Pálssyni, skóla-
stjóra i Eyjum, umboðsmanni
DAS, tilkynnti Baldvini um hans
lukkunar velstand. Þegar við
fréttum að Baldvin hefði hreppt
húsið um kvöldmatarleytið i
gærkvöldi var verið að landa úr
bátnum. Það tók okkur nokkurn
tima að finna hann og við þurft-
um ekki aldejlis að gefa honum
neitt róandi, sagöi Asta. — Auð-
vitað komu fréttirnar svolitið
flatt upp á hann, en höfíu þó
ekki þó ekki meiri áhrif á hann
en svo að hann hélt i róöur með
bátnum kl. 11. i gærkvöldi eins
og til hafði staðið.
Baldvin er einhleypur, 36 ára,
fæddur Reykvikingur, en hefur
dvalið undanfarin 6-8 ár i Eyj-
um og hefur siðustu £r»róið á
hinu fræga aflaskipi hans Binna
i Gröf. Að þvi er Asta sagði var
ekki á Baldvini að heyra, að
þessi happadráttur mundi mikið
breyta framtiðaráformunum.
Allir þeir, sem eiga miða hjá
DAS og hafa kannski látiö sig
dreyma um húsið að Reynilundi
geta nú látið sig dreyma um
næsta DAS-húsið að Vogalandi
11 i Reykjavik. Þaö verður
dregið út i lok næsta happa-
drættisárs, sem hefst núna.
-VJ
Er Sugar Ray fyr-
irmynd Fischers?
Hleypur hann aftur út undan sér?
Iieimspressan fjallar utn
„kúnstir” Bobby Fischers, og
komast menn helzt að þeirri
niðurstööu, að hann hafi tekiö
sér hnefaleikakappann Sugar
Ray Robinson að fyrirmynd I
þeim.
Sugar Ray var á sinum tima
heimsmeistari og löngum
ósigrandi. En hann átti það
gjarnan til að hafa i hótunum
um að mæta ekki til leiks, þótt
búið væri að ganga frá öllum
samningum. Sugar Ray mót-
mælti fyrirkomulagi á greiðsl-
um fyrir keppni, en hann kom
þó jafnan til keppninnar, þegar
til átti að táka.
Það hefur lengi verið vitað, að
Bobby Fischer hugsar sér skák-
ina i flestu likasta „boxi”. A
þeim forsendum byggir hann
kröfur og „drauma” sina um
auölegð.
Vissulega hefur þróunin veriö
Fischer i hag i þessum efnum.
Nú veröa greidd margfalt hærri
verðlaun en nokkru sinni fyrr.
Fischer hefur lýst þvi yfir, aö
hann vilji taka áskorunum fljót-
lega eftir að hann yrði heims-
meistari og þá aö sjálfsögöu i
hagnaöarskyni.SHkterþó ekki i
samræmi viö þær reglur sem
hafa tiðkazt i skákinni.
Fréttaskýrendur túlka kröfur
Fischers um meiri greiðslur
eitthvað á þessa leiö. Þótt
tslendingar túlki yfirlýsingu
bandariska skáksambandsins i
fyrrakvöld á þann veg, að
kröfurnarséu úr sögunni, ganga
þeir ekki aö þvi gruflandi, að
Fischer getur enn hlaupið út
undan sér, áöur en lýkur. Samn-
ingar höfðu verið löglega undir-
ritaðir i Amsterdam. Samt gat
Fischer mótmælt þeim og gert
kröfur. Yfirlýsingin frá i fyrra-
dag er á þá leið, aö við samn-
ingana i Amsterdam verði
staðiö. En engum kæmi á óvart,
þótt Bobby Fischer tæki sig
aftur til og léti i sér heyra. Það
væri ekki meira upphlaup en
hansfyrra. -HH
Eðlisfrœði
úti í sólinni
„Þú verður alveg ágætis
verkfræðingur! ”
Setningar sem þessi glumdu
við á tjarnarbakkanum i gær-
dag, en þar var saman kominn
heill bekkur nemenda úr
Menntaskólanum við Tjörnina i
eölisfræöitima.
Já, þau voru i eölisfræðitlma,
og æföu mælingar og fleira þvi-
umlikt upp á kraft, og sá litli
sem viö sjáum á myndinni
mændi stórum augum á þessar
græjur.
Sólin og góða veörið hafa ef-
laust átt sinn þátt i þvi að draga
nemendurna út, enda engin
furða. >
Það er ekki svo gott að þurfa
að sitja yfir skólabókum
lokaöur inni i kennslustofu
meðan sólin skin glattúti fyrir.-
EA