Vísir - 17.08.1972, Page 4

Vísir - 17.08.1972, Page 4
4 Vísir Kimmtudagur 17. ágúst 1972 „Ef eiginkona mín vill vinna úti, þó mó hún það" Mao Tse-tung stórkostlegur maður, segir Karl Gústaf Svíaprins ,,Ég set ekki nokkur skil á milli þeirrar konu sem ég mun koma til meö aö giftast, og annarrar konu. Ef konu mína langar til þess að vinna úti, held ég aö það sé rétt að hún geri svo. Hún má gjarna vera einkaritari, og hversvegna ekki skrif- stofustjóri. Hún verðurað velja atvinnu sína sjálf, en helzt í samráði við mig. Staða sú sem kona min mun velja, verður jú .meira gagnrýnd, og meira í sviðsljósinu, en aðrar stöður og atvinnu- greinar. En ég vil hafa konu mína hjá mér við hverja máltíð." Svo segir Karl Gústaf Svia- prins i viðtali við jafnaldra sinn, blaðamanninn og 1 j ós- myndarann, Clas Göran Carls- son, sem hefur verið með hon- um nú um nokkurn tima, bæði i vinnu og i fritima. Fyrir nokkru siðan birtist hér i blaðinu viðtal við Karl Gústaf, en þetta viðtal, sem við birtum nú úrdrátt úr hér á Nú-siðunni, er sagt eitt það opinskáasta sem tekið hefur verið við hann. Við- tal það sem birtist hér áður, tók norskur blaðamaður, Einar Lynge. „Margir vilja halda þvi fram að konan sé farin að fara of mikið út i atvinnulifið”, heldur Karl Gústaf áfram. „Það held ég að sé ekki rétt. Ef hún á annað borð vill vera úti i at- vinnulifinu, þá má hún það. Það á ekki að þvinga konuna. Þetta gildir bæði fyrir drottningu og hvaða konu sem er.” „Ef barn bætist nú i hópinn er ég á þeirri skoðun, að annað- hvort foreldrið eigi að vera heima. f minni stöðu verður það sennilega heppilegra að konan verði hjá barninu. En enn einu sinni: Ef konan min vill vinna úti, þá gerir hún það, en ef við eignumst barn, verður hún að vera hjá þvi.” Þegar blaðamaðurinn spurði Karl Gústaf að þvi, hvort ein- hverjar sérstakar reglur giltu um það hvaða konu hann kæmi til með að giftast, svaraði hann: „Ekki til i þvi. Ég get gifzt hverri sem mig langar til, án nokkurs tillits til þjóðfélags- legrar stöðu hennar. En til- vonandi drottningu i Sviþjóð er kannski heppilegra að hafa alizt upp á svipaðan hátt, i svipuðu umhverfi og ég.” Hvað segir Karl Gústaf um það neikvæða, sem skrifað er um hann i blöðum? „Maður venst þvi. En i fyrsta skipti sem ég las gagnrýni um sjálfan mig, varð mér mjög illa við. Ég segi kannski ekki að ég hafi alveg brotnað niður, en ég minnist þess að ég var hræddur við að fara út daginn eftir. Nú er ég vaxinn upp úr þessu, og ég get nú tekið allri gagnrýni. Maður verður að taka henni.” Velur hann sér einhverja sér- staka vini? „Nei, raunverulega ekki: Ég verð vinur hvers sem helzt. Þeir sem koma fram við mig sem vinir minir, verða vinir minir.” Hvaða manneskja hefur haft mest áhrif á hann? „Mao Tse-tung. Ótrúlegur maður. Hugsið ykkur þegar hann og allir aðstoðarmenn hans, gengu um dag og nótt i Kina og börðust fyrir þvi að ná fram málefni sinu. Þar fyrir utan skrifar hann skemmti- lega.” Hvað hefur verið honum erfiðast um ævina? „Að finna sjálfan mig. Það hefur mér ekki tekizt, fyrr en nú á seinustu árum.” —Hvers óskar hann sér helzt? „Meira frjálsræðis, og frjáls- ara lifs. Að sjá mig um, skoða nýja staði, og kanna staði sem kannski hafa ekki enn verið kannaðir.” „Hassmúlið hin bezta auglýsing" - segir bítillinn Poul McCartney Umsjón: Edda Andrésdóftir Paul og Linda McCartney yfirgefa iögreglustöðina i Gautaborg. Þetta sagði bitillinn fyrrverandi, Paul McCartney, eftir aö honum hafði verið sleppt af lögreglustöðinni i Gautaborg en hann var eins og kunnugt er akærour lyrir hasssmygl, og sat i yfirheyrslum i marga tima. Lögreglan hafði þegar fengiö nasaþefinn um hassið sem talið var að hann hefði i fórum sinum, en ákveðið var að beðið skyldi með handtöku þar til hljómleikum Wings og McCartenys lyki i Gautaborg. Hljómsveitarmeðlimirnir neituðu þegar ákærunni, en Paul sjálfur þóttist mjög undrandi. Um 20 manns sem voru i fylgd með Paul og hljómsveit hans voru færðir til yfirheyrslu einnig. Hass fannst i strætis- vagninum og i klæðaskápnum haföi veriö falið hass. Eftir margra tima yfirheyrslur játaði Paul loks að hafa haft meðferðis hass. Hann viðurkenndi að hafa smyglað þvi inn i Sviþjóð og ráðlagði konu sinni og með- limum Wings að gera slikt hið sama. Lög- reglan hafði þegar góðar sannanir, þvi við komu félaganna til Sviþjóðar fann einn af tollþjónunum 200 grömm af hassi i fórum trommuleikarans, Seiville. Hassið var geymt i kassa undan segulbandsspólu. „Hvorki ég né Linda fáum séð hvað er að þessu, eða hvað fólk sér merkilegt við þetta. Við reykjum hass upp á hvern einasta dag”, sagði Paul eftir að honum hafði verið sleppt lausum. Þau voru látin borga 9000 krónur sænskar, eða 153.000 krónur islenzkar. Siðan fengu þau að fara aftur á hótel sitt. Bamlaus hjón heilbrigðari og hamingjusamari? Barnlaus hjón og þeir sem eiga uppkomin börn, sem farin eru að heiman, eru hamingjusamari og heilbrigðari en þeir foreldrar sem eru að ala upp börn, segir i skýrslu sem félagsfræðingur i Kaliforniu, Mrs. Karen S. Renne hefur gert, eftir að hafa rannsak- að þetta. „Barnlaus hjón eru i langflest- um tilfellum hamingjusamari og heilbrigðari bæði andlega og lik- amlega”, segir Karen. Rann- sóknirnar segir hún hafa sýnt, að sú ábyrgð að ala upp börn sé völd að stressi og oft hálfgeröu rifrildi milli hjóna. 1 rannsókninni voru 2.480 hjón beðin að segja frá þvi hvort þau væru hamingjusöm i hjóna- bandinu eða ekki. 61 prósent af þeim áttu börn, 14 prósent voru barnlaus og 25 prósent áttu upp- komin börn, sem farin voru að heiman. Aðeins þriðjungur af þeim sem eiga börn og eru að ala þau upp sögðust vera hamingju- samlega gift, en aftur á móti helmingur þeirra barnlausu og þeirra sem eiga uppkomin börn sögðu hjónaband sitt mjög hamingjusamt. Aldur skipti ekki neinu máli.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.