Vísir - 17.08.1972, Side 7

Vísir - 17.08.1972, Side 7
7 Visir Fimmtudagur 17. ágúst 1972 ■■■■■■■■■^■■■■■■■■■i^^^^^Hi IINJIM SIÐA im Urnsjón: Edda Andrésdóttir Peysusettin eru farin að sjást aftur. Þetta er i ljósum lit, og til skrauts er látlaus hálsfesti. Pliserað ljósblátt pils. Bonny og Clidg tizkan aftur? Grá dragt úr flannelefni. Alpa- húfa notuð við úr svipuðum lit, og stór rauölituö sólgleraugu. Og hér kemur slæöan aftur. Ekki eru þær þó hafðar einlitar, heidur með skrautiegu munstri, helzt hinu svokailaða franska munstri. Sýnishorn hausttízku Karlmenn stuttklipptir og með brillantln í hóri Það er óneitanlega farið að verða hálf haustlegt hér í Reykja- vikog nágrenni. Rigning hefur dunið á okkur nú um nokkurn tima» og sólin sem hefur nú ósköp sjaldan látið sjá sig í sumar, er enn í felum. En ekki er enn komið haust, og það er vonandi að það láti ekki sjá sig fyrr en einhvern tima i septembermánuði. Að minnsta kosti búumst við ekkert við þvi fyrr. En þeir hugsa fljótt fyrir haustinu, tizkuteiknarar og tizkukonungar i útlandinu. Það er nokkur timi liðinn frá þvi að þeir komu með fatnað sinn á markaðinn, þann er til- heyrir aðeins haustinu, og engri árstið annarri. En sjálf- sagt láta allir það sem vind um eyru þjóta, þó þeir segi að þessi klæðnaður verði aðeins i haust, en svo komi eitthvað annað með vetrinum. Þeir eru eflaust fáir sem klæða sig alveg eftir kolli þessara ágætu manna. Enda væri það kostnaðarsamt fram úr hófi. En þó að þessir tizkumenn komi fram með nýjar og nýjar hugmyndir varðandi tizkuna og klæðnaðinn hverju sinni, mynda margar stúlkur i Paris sér sjálfar hugmyndir um það hvernig þær klæða sig. Þær búa til sina eigin tizku, og margar skemmtilegar myndir hafa birzt af þeim á götum, i skemmtilegum og sérkenni- legum búningi. Þetta á sér reyndar ekki aðeins stað i þeirri borg, Paris heldur annars staðar, og einnig hérna uppi á Islandi. Flauelsbuxur og peysur er þó alltaf vinsælastur klæðn- aðurinn hjá meirihluta stúlkn- anna i Reykjavik, og sömu- leiðis piltunum. Enda er þaö óneitanlega frjálslegasti og heppilegasti klæðnaðurinn. En þó að við viljum reyna að skapa okkar eigin tizku, erum við alltaf meira og minna háð duttlungum konunganna. 1 Innsiðunni i dag birtum við nokkur sýnishorn hausttizk- unnar, og það kemur i ljós að mikið af þessum klæðnaði hefur verið áður rikjandi sem tizkuklæðnaður, og ekki fyrir ýkja löngu. Það má til dæmis nefna peysusettin. Stutterma peysa og siðerma, hneppt peysa utan yfir. Þessi klæðnaður virðist eftir öllu að dæma að vera að koma aftur, og á einni mynd- inni sjáum við stúlku iklædda peysusetti, i pliseruðu pilsi og meðeinfalda hálsfesti. Þannig klæddar stúlkur mátti lita i Reykjavik fyrir nokkru. Ekki virðist Bonny og Clide tizkan alveg dottin upp fyrir, ef marka má myndina af stúlkunni með sólgleraugun og alpahúfuna. Og slæður um höfuðið sem margir hverjir fussuðu við, og gátu ekki hugsað sér að nota, eru nú að koma aftur. Og i Paris þrammar kvenfólkið um göt- urnar með slæðuna rigbundna undir hökunni. Föt sem bera mjög sterkan svip af kinverskum búningum skipa einnig nokkuð háan sess i haust tizkunni. Það eru þá yfirleitt siðir kjólar, mjög lát- lausir i sniði, en oft úr skræpóttu efni. Skórnir sem látnir eru fylgja með, eru frumlegir og skemmtilegir. Klæðnaður, sem stjörnur eins og Marlene Dietrich, Greta Garbo, Marlyn Monroe og Ginger Rogers, báru i gömlu kvikmyndunum sinum, eru að koma aftur. Skór með mjög háum hælum, hattar, langar hálsfestar, glingur á höndum og eyrnalokkar, allt saman á þetta við haustið. Og þaö eru ekki aðeins kvenmennirnir sem skulu lita út eins og þessar gömlu stjörnur, heldur einnig karl- mennirnir. Axlapúðar eru i jakkafötunum, kraginn er hafður stór, og buxurnar eru viðar. Hárið er mjög stutt- klippt Jjvi er skipt i hliðinni og helzt sett i það brillantin, svo það gljái. Skemmtileg og skrautleg tizka, en hvort hún nær svo fram að ganga, er ekki enn vitað. -EA Þessi klæönaður ber svip af hinum kinverska. Kjólarnir eru i skræpóttum litum. Græni liturinn skipar háan sess í þessum klæönaði, og sérkennilegir skór fylgja með. Gömlu stjörnurnar aftur. Skrautlegur þlæðnaður, og allir karlmenn með stuttklippt hár, skipt i hliðinni og meö brilljantin.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.