Vísir


Vísir - 17.08.1972, Qupperneq 8

Vísir - 17.08.1972, Qupperneq 8
Visir Fimintudagur 17. ágúst 1972 Visir F'immtudagur 17. ágúst 1972 Marliu I’ctcirs hcfur skoraft iill ntörk Tottcnham i lcikjunum tveimur i I. deild. Hér fagnar hann (til vinslri) fyrsta marki sinu á þcssu leiktimabili, sem hann skoraði eftir aðeins sem minútur gegn ('oventry. Marlin Chivers cr til hægri. Stjörnulið Man. Utd. veldur höfuðverk! Þá er tveimur umferöum lokiö i 1. deildinni ensku og linur aðeins farnar að skýrast og þaö, sem hefur komið hvaö mest á óvart er, aö hvorugt Manchester liðið hefur hlotið stig. I siðustu viku vannst getraunapotturinn á ellefu réttum og var þaö vel af sér vikið. Fyrir það fengust rúmlega hundrað þúsund krónur. Og þá er komið að öðrum getraunaseðlinum og þar sem nú er hægt að styðjast við tölur úrslit tveggja l'yrstu umferðanna — er hann mun viðráðanlegri en sá fyrsti. Við skulum aðeins lita á leikina á seðlinum og fyrir framan þá er getraunaspá blaðsins. 1 Arsenal-Stoke City 1 Coventry-Southampton 2 C.Falace-Liverpool 1 Derby-Chelsea X Everton-Manch.Utd. X Ipswich-Birmingham 1 Leeds-W.B.A. 1 Manch.City-Norwich 1 Sheff.Utd.-Newcastle X West Ham-Leicester 2 Wolves-Tottenham 1 Hull-Nottm.Forest Arsenal, Liverpool og Totten- ham hala sigrað i báðum leikjum sinum og a'ttu að hafa mikla "■ i ■ - ................................................ Þarna hafði sá bláklæddi betur I viðureign tveggja skozkra landsliðs- manna. Charlie Cooke sendir knöttinn i netið fyrir Cheisea si. laugar- dag, þegar Chelsea sigraði Leeds 4-0. Þetta var annað mark leiksins og það var Billy Bremner, sem varð aðeins of seinn. möguleika að bæta við 3ja sigrinum á laugardag. Að visu er rétt að minnast þess, að Stoke sigraði Arsenal i London á siðasta leiktimabili, en eftir stórsigur Arsenal nú i vikunni á heimavelli gegn Wolves er óliklegt, að Stoke hljóti stig þar. Liverpool vann C.Palace i London og virðist mjög sterkt lið nú — hefur ekki fengið á sig mark. Sigrar Tottenham hafa ekki verið eins sannfærandi, en þó góðir og Tottenham hefur oftast gengið vel i Wolverhampton. An stiga eru Manchester-liðin og Coventry, en við reiknum með þvi að þau hljóti sin fyrstu stig á laugardaginn — Manch.City og Coventry ættu að ná að sigra, en kannski vafasamt að setja jáfn- tefli á Manch. Utd. gegn Everton i Liverpool. Everton sigraði á siðasta leiktimabili 1-0 einmitt, þegar United gekk hvað bezt, en hins vegar hafa þessi lið oft gert jafntefli sin á milli. Og þó lið Manch.Utd. valdi mönnum höfuð- verki um þessar mundir höfum við enn trú á þvi mikla „stjörnu- liði " — ef það fer i gang er úti- sigur alltaf fyrir hendi. Einn erfiðasti leikurinn á seðlinum er milli meistara Derby County og Chelsea. Derby-liðið er ekki virkilega komið I gang eins og tvö jafntefli sýna — reyndar þó bæði á útivöllum — en þetta veröur fyrsti leikur liðsins á heimavelli sem enskur meistari og áreiðanlegt, að leikmenn vilja láta aðdáendur sina sjá hvers vegna liðið varð meistari. Það ætti að nægja gegn Chelsea, þrátt fyrir stórsigur London-liðsins gegn Leeds sl. laugardag. Annar þungur leikur er i Ipswich, þar sem Birmingham kemur i heim- sókn. Hið ágæta lið frá annarri ' stærstu borg Englands var jafn- teflismeistari siðasta keppnis- timabils og einhvern veginn .finnst mér þessi Ieikur mjög jafnteflislegur. Leeds náði sér vel á strik i Sheffield i vikunni og ætti að vinna WBA heima, en erfiður er leikur Sheff.Utd. og Newcastle. Þar ætti þó heimavöllurinn að ráða úrslitum. Sama ætti að ske aðeins austar i Y.orkshire, þar sem fallliðið frá i vor, Notting- ham Forest, leikur gegn „tigris- dýrum" Hullborgar. Einhver ró hvilir hins vegar yfir tiunda leiknum á seðlinum, West Ham- Leicester, og spáin er jafntefli þar. — hsim. Umsjón Hallur Símonarson Verður aftur gullstraumur til U.S.A.? sSSSSBI aHi ■ JæO&'" ''S'" ' ; a-. '■ * ' i fyrsta skipti síðan 1956, þegar ástralska sundfólkið lagði undir sig sundlaug Olympiuleikanna, er reiknað með, að yfirburðum Bandarikjanna sé nú veru- lega ógnað. Það er varla hægt að benda á sundgrein þar sem bandariska sund- fólkið er öruggt um gull- verðlaun á ieikunum í Munchen — þrátt fyrir Mark Spitz og að bandarísku stúlkurnar eru sigurstrang- legastar í þremur greinum af fjórum í bak- og flug- sundi og virðist ósigrandi í boðsundunum. Þó kæmi engum á óvart, að gull- straumurinn verði aftur til Banda- rikjanna. Á leiknum i Mexikó unnu bandarisku strákarnir 11 gullverð- laun af 15 mögulegum, átta silfur- verðlaun og átta bronzverðlaun — eða 26 verðlaun af 39. Nú eru veikir punktar i bandariska liðinu — þó, stúlkurnar virðist sterkar eru þær óreyndará alþjóðlegum vettvangi. A leikunum i Mexíkó unnu þær 11 gullverðlaun, sjö silfur- og átta bronzverðlaun eða 26 verðlaun eins og strákarnir. Enn nú á Ástralia Shane Gould — hina 15 ára stúlku sem syndir niu milur daglega og sú æfing hefur gert hana að heimsmethafa á einu ári i öllum skriðsundunum frá 100 m. upp i 1500 metra. Þrátt fyrir óvissuna , sem rikir i sambandi við sundkeppni Milnchen-leikana ættu bandarisku sundmennirnir að sigra i helming greinanna, jafnvel fleirum. Eins og áður verða Ástraliumenn helztu keppinautar þeirra — en' engin þjóð nema Austur-Þýzkaland getur státað af „súperstjörnum” eins og Mark Spitz og Gary Hall. Roland Matthes er langbezti baksund- maður heims. Mark Spitz, sem er 22já ára, heimsmethafi i fjórum sundum, er ekki nýliði á Olympiuleikum. 1968 var hann kallaður „undrasund- maðurinn”, sem gæti unnið sex gullverðlaun. Hann vann aðeins til tveggja i boðsundum, og hlaut silfur- og bronzverðlaun, I dag er hann reynslunni rikari og talinn mesti sundmaður heims. Hann fær tækifærið i MQnchen — hann gæti hlotið sjö gullpeninga. Hall, félagi Spitz i háskólanum i Indiana, á heimsmetið i 400 m. fjór- sundi og ásamt Svianum Gunnari Larsson i 200 m. fjórsundi. Þessir tveir sundmenn gætu gefið Banda- rikjunum yfirburði i sundkeppninni — en gullpeningar eru ekki unnir á pappirnum. Hinn skeggjaði Spitz og ljóshærði Hall verða að taka á öllu sinu i hvert skipti sem þeir stinga sér i sundlaugina. I 100. m. skriðsundi setti Spitz heimsmet á bandariska úrtökumótinu, synti á 51,47 sek„ og félagar hans i keppn- inni, Jerry Heidenreich og Fred Tyler, eru með betri tima en aðrir sundmenn 52.40 og 52.42 sek. t 200 m. skriðsundi er Spitz bandariska karlaliðsins, sigraði þá "* '4, •« í'* . ' V&í • * ■ \ » --i " ■ ■ ’ . -'V.. ■ Mark Spitz á ferðinni — myndin var tekin, þegar hann setti nýtt heimsmet í 200 m flugsundi 2. ágúst, synti -á ,2:03.89 min. i Chicago. , Y’ irnmxSwmams á 4:01120 min. og Genter varð annar á 4:02.30 min. Þar mun og Vestur- Þjóðverjinn Fassnacht berjast um gullið. t 1500 m. skriðsundinu mun Mike Burton, elzti maður bandariska liðsins,25 ára, verja gullverðlaun sin frá Mexikó, en það verður erfitt: gegn Demont, sem nýlega bætti heimsmetið á vegalengdinni um fjórar sekúndur og Cooper, sem synti á 15:57.7 min. á ástralska meistaramótinu — fimmti bezti heimstiminn. Burtonáiár 16:00.31. min. t baksundunum virðist Roland beztur og heimsmet hans þar er 1:53.5 min„ en þeir Steve Genter, 21 árs, og Tyler sem er 19 ára, verða erfiðir keppinautar fyrir hann —■ og Ástraliumaðurinn Wenden. t 400 m. skriðsundinu er hinn 17 ára Brad Cooper frá Ástraliu frá- bær . Heimsmet hans 4:01.7 min. var bætt af Kurt Krumpfogz i riðla- keppni úrtökumótsins i USA i 4:00.11 min„ en Kurt tókst ekki að endurtaka þann árangur i úrslitum og komst ekki á Olympiuliðið. Demont, 16 ára yngsti maður Matthes ósigrandi — hann á - . : ‘ '•; . Tvö stærstu tromp Astralíu Michael Wenden og Shane Gould á æfingu i sundlauginni i MUnchen. tveimur sekúndu betri tima en næsti maður i 100 m. baksundinu, 56.3 sek„ og sama sagan er i 200 m. Þar hefur Matthes synt á 2:02.8 min. Ivey, sá næstbezti, er tveimur sek. lakari. Tim McKee, einnig USA, er með 2:06.76 min. og þriðji maður USA i sundinu Stamm með 2:07.45 min. Keppnin i bringusundinu virðist mjög opin. Walter Kusch, Vestur- Þýzkalandi, er talinn mjög sigur- stranglegur og timi hans 1:05.9 min. er aðeins sekúndubroti lakari, en heimsmetið og sá bezti i heimi i ár. Nobutaka Taguchi frá Japan hefur synt á 1:06.0 min. og sovézki heimsmethafinn Nikolai Pankin á 1:06.1 min. t 200 m. bringusundi eiga Bandarikjamenn þrjá beztu heimstimana, Henchen setti heimsmet 2:22.8 min i riðlakeppni úrtökumótsins, en Brian Job fyrrum heimsmethafi, tvitugur sigraði i úrslitum á 2:23.27 min. Rick Colella, en systir hans keppir i 200 m. flugsundi i Miinchen komst i leikana með 2:24.17 min. i úrslita-^ sundinu og þriðja sæti Þjóð verjinn verður þeim þó erfiður keppinautur og nýlega synti Kusch á 2:24.5 min. i sundlauginni i Miinchen. Ef bandariskur sund- maður vinnur 200 m bringusundið er það i fyrsta skipti siðan 1960. t flugsundinu eiga Bandarikin Mark Spitz og hann bætir heimsmet i næstum hvert sinn sem hann sting- ur sér til sunds i keppni — nær tima i 100 metrum, sem flestir eiga erfitt með að ná i skriðsundi. En landar_ hans Dave Edgar og Heidenreich eru einnig mjög góðir — þó aðal- keppinautur hans verði sennilega Roland Matthes.-Bezti timi Spitz er 54.56 sek„ en Roland á 56.3 sek. og keppnismaður er hann i fremstu röð. Real Madrid ó Laugardalsvelli Þá er þaö orðið staðreynd. Frægasta knattspy rnu lið heims, Real Madrid, leikur hér á Laugarda Isvellínum 27. september við Keflvikinga i Evrópubikarkeppni meistara- liða. iBK hefur fengið leyfi hjá Iþróttabandalagi Reykjavíkur til að nota Laugardalsvöllinn 27. september og fáum við því tækifæri til að sjá einhverja fremstu knattspyrnumenn heims í leik þar. Leikurinn hefst kl. 17.30. Fyrri leikur liðanna i keppninni verður i Madrid 13. september og efna Keflvikingar til hópferðar á leikinn. Farið verður 10. september beint til Malaga, þar sem dvalið verður á Costa del Sol til 21. september, en sérstök hópferð verður til Madrid leikdaginn fyrir þátttakendur hópferðarinnar. Það er ferðaskrifstofan Útsýn, sem hefur skipulagt förina, og geta þeir, sem hafa hug á að vera með, snúið sér til hennar eða Hafsteins Guðmunds- sonar, formanns tBK. Dómari i leiknum i Madrid verður frá Portúgal og linuvörður einnig, en hér heima verða trar við dómgæzluna. Þá hefur verið ákveðið, að leikur Vestmannaeyinga i UEFA-bikar- keppni E vrópusambandsins við norska liðið Viking frá Stafangri verði hér á Laugardalsvellinum 24. septem- ber — en eins og Keflvikingar munu Vestmannaeyingar leika fyrri leikinn úti. Hann verður 13. september i Staf- angri. t Evrópubikarkeppni bikarhafa leik- ur Vikingur gegn pólska liðinu Legia — og eiga Vikingar fyrri leikinn hér heima eða 13. september. Fimm sinnum yfir sautján metrana Þristökkvarinn kunni frá Sovétrikj- unum, Victor Sanejev, náði frábærum árangri i keppni i Mlinchen, þegar hann stökk fimm sinnum yfir 17 metra á æfingamóti þar — lengst 17.25 metra. Sanejev, sem varð olympiumeistari í þristökki i Mexikó 1968, hefur aldrei verið betri en einmitt nú og er talið nær útilokað, að einhverjum takist að sigra hann i MUnchen eftir tvær vikur. Bandariski kúluvarparinn Wood náði á sama æfingamóti mjög góðum árangri — varpaði lengst 21.16 metra. Hins vegar telja flestir sérfræðingar, að tandi hans Feuerback sigri i kúlu- varpi i Múnchen. Þá bárust þær fréttir i gær frá Helsinki, að finnski spjótkastarinn Siitonen, sem er 23ja ára, hefði kastað spjóti 88.58 metra á móti þar. Það er annar bezti árangur i heimi i ár — að eins Lusis, Sovétrikjunum, er betri með nýja heimsmetið sitt. Finnar hafa nú ákveðið, að nýi stór- hlauparinn þeirra, Lasse Viren, keppi bæði i 5000 og 10000 m hlaupum á Olympiuleikunum, og er talið að hann hafi mikla sigurmöguleika á báðum vegalengdum. Finnska metið, sem hann setti nýlega i 5000 m. 13:18.0 min. er þriðji bezti timi, sem náðst hefur á vegalengdinni frá upphafi. Heimsmet Clarke er betra og svo timi Bretans Bedford frá i sumar 13:17.2 min. t 10000 m. á Viren einnig þriðja bezta heimstimann frá upphafi 27:54.2 min. — einnig náð fyrr á þessu ári. Evrópu- meistarinn, finnski, Juha Vaatainen, sem varð beinlinis þjóðhetja i Finn- landi i fyrrasumar, þegar hann sigraði bæði i 5000 og 10000 m. i EM I Helsinki, mun einnig keppa á báðum vegalengdunum, þó hann hafi átt við meiðsli að striða i sumar. Enn sigrar Tottenham! Tottenham skauzt upp að lilið Arsenal og Liver- pool i 1. deildinni ensku i gærkvöldi með fjögur stig eftir tvær umferðir, þegar liðið sigraði WBA i West Bromwich með 1- 0. Það var Martin Peters, enski landsliðs- maðurinn kunni, sem skoraði sigurmark Tottenham i gærkvöldi og hefur hann skorað öll mörk liðsins i keppninni hingað til eða þr jú og þó misnotaði hann vita- spyrnu i leiknum gegn Coventry á laugardag. Tveir leikir aðrir voru háðir i 1. deild i gærkvöldi og kom þar mjög á óvart, að Manch. City tapaði á heimavelli fyrir Ever- ton. Eitt mark var skorað i leiknum og skoraði Conolly það fyrir Liverpool-liðið. Þessi Conolly var keyptur frá skozka liðinu St. Johnstone i vor fyrir 70 þúsund sterlingspund og þetta er fyrsta markið, sem hann skorar fyrir Everton. Þá gerðu Leicester og Chelsea jafntefli 1-1. t 2. deild var einn leikur. Sheff. Wed, sigraði Swindon í Sheffield 2-1. Fjölmargir leikir vour háðir i deildabikarnum enska og þar vann Aston Villa stórsigur gegn nýja deildaliðinu, Hereford United eða 4-0. Helztu úrslit urðu þessi. Bolton-Oldham 3-0 Brentford-Cambridge 1-0 Brighton-Exter 2-1 Cardiff-Bristol Rov. 2-2 Gillingham-Colchester 1-0 Hartlepool-Doncaster 1-0 Mansfield-Lincoln 3-1 Notts County-York 3-1 Orient-Watford 2-2 Reading-Fulham 1-1 Southend-Aldershot 2-1 Torquay-Portsmouth 1-2 Tranmere-Port Vale 0-1 Workington-Preston 1-0 Wrexham-Crewe 4-0 Þá var heil umferð háð i skozka deildabikarnum. úrslit urðu meðal annars þau, aö Aberdeen sigraði Hibernian 4-0, Celtic uáði aðeins jafntefli á heimavelli gegn East Fife 1-1, en St. Mirren tapaði illa á Love Street, heimavelli sinum, fyrir Glasgow Rangers 0- 4. Þá tapaði Kilmarnock einnig á heimavelli fyrir Dundee Utd. 2-3, og Patrick og Morton gerðu jafn- tefli án þess mark væri skorað — einnig Hearts og Airdrie. Selfoss sigraði Einn lcikur var liáður i 2. deild i gærkvöldi. Þá iéku Armann og Sdfoss á Melavclli og urðu úrslit þau, að Seifoss sigraði með tveimur mörkum gegn engu. Leik Fylkis og Njarðvikur, sem vera átti i gærkvöldi á Háskólavelli, var frestað þar til i kvöld. KR varð meistari KR varð islandsmeistari i sundknattleik eftir aukaleik við Armann 4. ágúst. KK sigraði þá með 5-4 — cn leik liðanna i mótinu lauk með jafntcfli 2-2. Ilins vcgar vann KR þá Ægi með 5-4, og Armann vann Ægi einnig tneð sömu stigatöiu. A myndinni hér að neðan eru hinir nýju íslandsmeistarar KR. Frcmri röð frá vinstri. Erlingur Þ. Jóhannsson, Sigmar Björnsson, Sigþór Magnússon, fyrirliðij Benedikt R. Jóhannsson og Kinar Þorbcrgsson. Aftari riið. Guðmundur E. Páisson, Logi Jónsson, Hafþór B. Guðmundsson, Valdimar , Valdimarsson, ólafur Þ. Gunnlaugsson og Þórður i Ingason. Þjálfari liðsins er 1 Iiörður Iiárðdal, og tók hann myndina.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.