Vísir - 23.02.1974, Blaðsíða 20

Vísir - 23.02.1974, Blaðsíða 20
Byssumaðurínn ígeðrannsókn Maöurinn, scm ógnaði konu og dóttur hennar með byssu að- faranótt fimmtudagsins, var úr- skurðaður í 60 daga gæzlu- varðhald og geðrannsókn. Maðurinn bjó á Eyrarbakka, og það var þar sem hann stal byss- unni, áður en hann kom i heimsókn til konunnar. Fyrir ut- an byssuna hafði hann með sér eina flösku af léttu vini og drakk það, en áhrifin af þvi eru ekki tal- in hafa haft afgerandi áhrif á hegðun mannsins. —óH Húsavík: Jóhann Kr. Verkfallsverðir V.R. sinna hér skyldustörfum viö verzlunina Kjöt og fisk viö Baldursgötu I gærdag (Ljósmynd Visis BG) „Skráður eigandi í fundargerð" — Og þess vegna hélt eigandi Karnabœjar að starfsmaðurinn gœti afgreitt — tilraunir til verkfallsbrota tíðar Jónsson í 1. sœti hjó D-listanum Sjálfstæðismenn á Iiúsavik hafa ákveðið framboðslistann við bæjarstjórnarkosningarnar. Jó- hann Kr. Jónsson framkvæmda- stjóri verður nú i 1. sæti i stað Jóns Ármanns Árnasonar húsasmiðs, sem nú verður I stað- inn i 2. sæti. Við siöustu bæjarstjórnar- kosningar hlutu „Sameinaöir kjósendur” 286 atkvæði og 3 kjörna, Framsókn 230 atkvæði og 2kjörna, Alþýöuflokkurinn 177 at- kvæöi og 2 kjörna, Sjálf- stæöisflokkurinn 144 atkvæöi og 1 kjörinn og „Öháðir kjósendur” 125 atkvæöi og 1 kjörinn. Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft tiltölulega minna fylgi á Húsavík en i nokkrum öðrum bæ. Nú vonast sjálfstæöismenn eftir aukiíingu og hefur félagsmönnum i félagi þeirra fjölgaö mjög á kjörtimabilinu, eru nú engu færri en allt atkvæðafylgi þeirra var siöast, að sögn fréttaritara Visis. Listi sjálfstæöismanna litur þannig út: 1. Jóhann Kr. Jónsson fram- kvæmdastjóri. 2. Jón Ármann Árnason húsasmiður, 3. Ingvar Þórarinsson bóksali, 4. Hörður Þórhallsson stýrimaður, 5. Haraldur Jóhannesson mjólkur- fræðingur, 6, Katrin Eymunds- dóttir húsmóöir, 7. Guðmundur A. Hólmgeirsson sjómaöur, 8. Haukur Akason tæknifræðingur, 9. Reynir Jónasson kaupmaöur, 10. Dóróthea Guðlaugsdóttir hús- móðirj 11. Siguröur Rögnvaldsson vélstjóri, 12. Þórhallur Aðal- steinsson vélstjóri, 13. Brynjar Halldórsson sjómaður, 14. Þröstur Brynjólfsson lög- regluþjónn, 15. Björn Sigurðsson bilstjóri, 16, Arni Gunnar Sigur- jónsson trésmiður, 17. Garðar Þórðarson bilstjóri, 18. Karl Páls- son útgerðarmaður. Prófkjör var ekki viðhaft. HH Verkfallsverðir V.R. höfðu i nógu að snúast I gærdag. Þeir ráku verzlunarstjóra Karnabæjar ásamt afgreiðsiu- stúlku út I kuldann og lokuðu búð- inni.þareð téður verzlunarstjóri, Sævar Baidursson, hafði ekki leyfi til að afgreiða I búðinni, né heidur stúlkan. „Eigandi Karnabæjar bar þvi við að i fundargerð hefði Sævar verið skráður eigandi,” sagði Elis Adolphsson verkfalls- vörður,” en það dugir nú skammt. Maöurinn var nefnilega ekki þinglýstur eigandi að búð- inni.” Sviptingar urðu við verzlunina Kjöt og fisk i gærkvöldi, en þar var eigandinn við afgreiðslu ásamt sex manneskjum öðrum, að þvi er verkfallsverðir tjáðu VIsi. „Hann hélt að hann gæti látið fullorðinn son sinn afgreiða hjá sér, vegna þess að sá væri erfingi að búðinni,” sagði Elis Adolphs- son,” en þaö er vitanlega firra”. Fjöldi manns var inni I Kjöt og fiski, þegar Vlsismenn bar þar að, og höfðu verkfallsverðir lokað búðinni, hleyptju engum inn. Nokkrir viðskiptavinir Einars i Kjöt og fiski söfnuðust saman framan við verzlunina og hófu orðaskak við verkfallsverði. Þeir stóðu þó fastir við sina ætl- un og hleyptu engum inn i búðina. Loks kom Einar kaupmaöur út, sættist við verkfallsverðina og lokaði búð sinni. Kærur um verkfallsbrot bárust viða að I gærdag, en stundum reyndist um vitleysu að ræða, t.d. I Vogaveri. Þangað þustu verk- fallsverðir, en I ljós kom, að þar var ekki verið að fremja verk- fallsbrot. — GG EMBÆTTISMENNIRNIR KOMUST ÚR LANDI ÞRÁTT FYRIR HARÐA VERKFALLSVÖRZLU — „Stungu af## með norskri herflugvél Verkfallsvörðum úr Verzlunarmannafélagi Suður- nesja og V.R. tókst að hindra tvo opinbera starfsmcnn i að komast úr landi með Loftleiða- vél, sem hér millilenti í gær- morgun á leið frá Amcriku til Luxcmburg. „Við höfum staðið vörð við þær Loftleiðavélar, sem lent hafa á Keflavikurflugvelli, og i þessu tilviki vorum við fimm við hvorn landgang”, útskýrði Gunnar Árnason verkfalls- vörður þar syðra i viðtali við Visi i gærkveldi. „Þeir komu þarna tveir að vélinni i morgun, Kristján Pétursson deildarstj. i tollgæzl- unni á Keflavikurflugvelli og Valtýr Sigurðsson fulltrúi bæjarfógetans i Keflavik”, sagði Gunnar frá. „Þegar þeir gerðu sig liklega til að stiga orðalaust um borð i vélina á meðan hún tók eldsneyti, stöðvuðum við þá og kröfðumst skýringa á ferðum þeirra. Kristján kvaðst þá vera i oþin- berum erindum, en þeim erindum yrði lokið á tveim dögum. Þar sem hvorugur þeirra, ' Kristján eða Valtýr, gátu sýnt skilriki, sem sönnuðu áætlanir þeirra, var þeim snúið frá vélinni, og við yfirgáfum ekki landgangana, fyrr en vélin lagði af stað á ný”. Og Gunnar heldur áfram frá- sögn sinni: „Kristján, sem að visu var ekki að störfum þarna að þessu sinni, vísaði okkur út af transit-svæðinu, sem við féllumst á. Enda var verkefni okkar lokið þarna að sinni. En skömmu eftir að við höfðum yfirgefið völlinn, gengu þeir Kristján og Valtýr upp i norska herflugvél, sem var að fara til Noregs, og með henni fóru þeir af landi brott. Þetta er nokkuð, sem við héldum, að ætti ekki að vera hægt”, sagði Gunnar að lokum. „Auk þess vitum við, að erindi Kristjáns til Kaupmannahafnar átti ekki að taka nema tvo daga. Síðan mundu þeir Valtýr halda til Austurrikis i skemmti- ferð..En við litum á þetta sem mjög gróft verkfallsbrot!! —ÞJM Laugardagur 23. febrúar 1974. Týndu bréfin innihéldu stórar summur — mólið sent saksóknara Rannsókn i ábyrgðarbréfa- hvarfinu, sem varð á bréfapóst- stofunni I Reykjavik i fyrra, er nú loks lokið. Skýrsla um málið fór rétt fyrir seinustu helgi til saksóknara, sem ákveður hvað gert skuli. Eins og kunnugt er, voru tveir menn handteknir, grunaöir um þátttöku i bréfahvarfinu. Þeir játuðu aldrei að hafa átt þar hlut að máli. Að sögn Njarðar Snæhólm hjá rannsóknarlögreglunni eru það mjög mörg ábyrgðarbréf, sem kvartað er undan að hefðu ekki komið til skila. Það voru fyrst og fremst bréf til útlanda, sem ekki komu fram. 1 mörgum tilfellum er um mikl- ar fjárhæðir að ræða, sem talið er að hafi horfið. — óH Bretinn að veiðum nœr landi en okkar menn — mistökum við gerð sjókorts kennt um Bretar hafa nú rétt til togveiða i hólfi fyrir Norðurlandi upp að gömlu 12 milna mörk- unum. íslendingar hafa hins vegar, samkvæmt lög- um, ekki rétt til að veiða svo nærri landi. Sjómenn fyrir norðan eru að vonum reiðir vegna þessa ástands, sem varað hefur siðan samningurinn við Breta tók gildi. Jón Arnalds, ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðuneytisins, tjáði Visi, að þessi mismunun stafaði af mistökum við gerð korts hjá Sjómælingum Islands. „Það er áhugi fyrir þvi að lag- færa þessi mistök, og það verður lagt fram frumvarp á þingi eftir helgina með það fyrir augum”, sagði Jón Arnalds. Ef það frumvarp nær fram að ganga, sem hlýtur að vera, þá fá islenzku togveiðibátarnir að stunda veiðar upp að gömlu tólf mllna mörkunum eins og Bret- ar. Jón Arnalds sagði, að hjá Sjó- mælingum hefði verið teiknað kort og miðað við grunnlinu- punkta gömlu 12 milna land- helginnar. Nú þegar 50 milurnar eru komnar til, fækkaði þessum grunnlinupunktum um þrjá, og við það færðist lina, sem botn- vörpulögin frá 1972 voru miðuð við, utar. „Þeir áttuðu sig ekki á þess- ari breytingu hjá Sjómæling- um”, sagði Jón Arnalds, „en þetta verður lagfært”. Norðlenzkum sjómönnum fannst að þessi ákvæði kæmu undarlega út, og þvi kvörtuðu þeir við Landhelgisgæzluna og ráðuneyti — og nú kemur laga- frumvarp á þingi til að laga þessa handvömm, þvi ekki verða Bretar reknir út fyrir is- lenzku fiskimennina I bráð. —GG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.