Vísir - 10.06.1974, Blaðsíða 3
Vlsir. Mánudagur 10. júnl 1974
3
„Líklega hœfileikamesta
popphljómsveit veraldar"
— segir hið virto tónlistarblað
„Cosh Bex" um Procul
Harum, sem koma hingað í dag
„Sannleikurinn er sá, að
Procul Harum er llklega hæf-
asta popp-hijómsveit veraldar i
dag.” Þannig kemst hljóm-
plötugagnrýnandi að orði I nýj-
asta tölublaða bandariska tón-
listarblaðsins „Cash Box”, en
það blað nýtur mestrar virðing-
ar þeirra blaða, sem fjalla um
dægurtónlist. Eru það jafnan
vinsældalistar þess blaðs, sem
birtir eru I evrópskum blöðum,
þegar gera skal grein fyrir
toppnum i Ameriku.
Það er ekki amalegt fyrir is-
lenzka popp-unnendur að fá
slika snillinga hingað til lands á
meðan þeir eru svona hátt
skrifaðir erlendis. Procul
Harum hafa annars átt tryggan
áðdáendahóp á íslandi frá þvi
þeir sendu frá sér á plötum lögin
„A Whiter Shade Of Pale” og
„Hamburg”, sem sátu hér á
vinsældalistum útvarpsins i
nokkra mánuði. Sami söngvari
er ennþá með hljómsveitinni,
Gary Brooker, sem hefur veriö
aðalsprauta Procul Harum frá
upphafi.
„Músíklega séð er Procul
Harum athyglisverðasta hljóm-
sveitin, sem hingað hefur komið
til þessa,” sagði popparinn Jó-
hann G. Jóhannsson, er Visir
leitaði umsagnarhans um þessa
brezku hljómsveit.
Og Magnús Sigmundsson
(Magnús og Jóhann) var sömu-
leiðis tilbúinn til að lýsa áliti
sinu á hljómsveitinni: „Ég dáð-
ist mjög að Procul Harum, þeg-
ar þeir komu með „Hamburg”
og „Shade Of Pale”, en ég var
að hlusta á nýjustu plötuna
þeirra fyrir nokkrum dögum og
komst þá að 'raun um, að
hljómsveitin er orðin margfalt
betri. Procul Harum spila nú
allt frá poppi til háþróaðrar tón-
listar á klassiska sviðinu. Þetta
er hljómsveit, sem mig langar
meira til að sjá á sviði en t.d.
Slade,” sagði Jóhann.
Og Ámundi Amundason, sem
flytur hljómsveitina til landsins,
segir: „Procul Harum eru það
bezta, sem hægt var að fá hing-
að. Ég lagði allan minn metnað i
að fá virkilega góða og virta
hljómsveit hingað. Ef Procul
Harum gera það ekki gott — ef
fólk vill ekki hlusta á það bezta,
sem til er i Bretlandi i dag — þá
geri ég ekki meira af þessu
tagi.”
Procul Harum koma til lands-
ins i dag ásamt tólf manna að-
stoðarsveit, en fyrstu hljóm-
leikar þeirra verða i Háskóla-
biói annað kvöld.
— ÞJM.
USTAVíRK, SEM GENGIÐ ER I GEGNUM
— Áhorfendur eru
hluti af þessu
nýstórlega verki
Listaverkið, sem sýnt er i dag
og næstu viku i Asmundarsal, er
allnýstárlegt. Nýstárlegt að þvi
leyti, að áhorfendurnir ganga i
gegnum það og eru sjálfir hluti
verksins.
Þetta er samverk fimm
nemenda úr Myndlista- og
handiðaskólanum, byggt úr tré-
uppistöðum. Aföst er svo stál-
grind með hænsnaneti, sem að
lokum er þakið gifsmottum.
Verkið er svo innréttað i viðeig-
andi dúr með ljósmyndum,
skuggamyndum, málverkum,
aðskotahlutum og tónlist.
Þau nefna verkið sitt
„Firring”. Nafnið á að höföa til
mannsins, sem fjarlægist upp-
runa sinn.
Verkið tilheyrir svonefndri
umhverfislist, sem er lltt þekkt
hér á landi, og með þvi vilja
fimmmenningarnir sýna
„firringuna” i mannfélaginu.
— JB.
Ásatrúarfélagið varar við því,
að „manndróp" verði lögleidd
— „mótmœltum fóstureyðingum óður en biskup og
flestir aðrir fóru af stað með mótmœli sín," segja Ásatrúarmenn
Fleiri
ferðast
ó far-
fuglavísu
„Það er greinilega að aukast,
að fóik leiti sér ódýrrar gistingar
erlendis,” sögðu farfuglarnir hjá
farfugladeildinni i Reykjavik, er
við töluðum við þá i gær.
„Alla vega er meira um það nú,
að fólk gangi i hin alþjóðlegu far-
fuglasamtök og öðlist þannig rétt
til ódýrrar gistingar viða um
heim. Þetta er aðallega ungt fólk,
en einnig er allnokkuð um fólk
upp i 40 ára, og jafnvel gerast
heilu fjölskyldurnar félagar.
Félagar hafa rétt á ódýrri gist-
ingu á farfuglaheimilum viða um
heim, borga 2-300 krónur fyrir
nóttina og dveljast i glaðværum
og skemmtilegum hóp.
Aðsóknin að farfuglaheimilinu
hér i Reykjavik hefur verið
óvenjumikil I vor, og nú er nær
fullskipað i þau 50 rúm, sem við
höfum. Það er hópur sænskra
skólakrakka, sem tekur upp mest
plássið i augnablikinu, en annars
ber mest á Bandarikjamönnum,
Norðmönnum, Kanadamönnum
og Svisslendingum og svo Þjóð-
verjum og Englendingum, þegar
liða tekur á vorið. Stundum fáum
við lika Japani og jafnvel Ind-
verja. Oftast eru þetta stúdentar
á ferðalagi, en nokkrir koma lika
i atvinnuleit.”
—JB—
DÝR
HÚSGÖGN,
EN í
SER-
FLOKKI
„Nú er meiningin að byrja að
framleiða húsgögn til útflutnings
af fullum krafti. Að vlsu hefur
litillega verið flutt út af húsgögn-
um, en þvi hefur ekki verið fylgt
nægilega vel eftir.”.
Þetta sagði Hilmar Sigurðsson,
framkvæmdastjóri hins nýstofn-
aða fyrirtækis, Útflutningssam-
taka húsgagnaframleiðenda, sem
að standa 13 framleiðendur.
1 tilefni af þessu mun koma
hingað á næstunni Finni, sem er
framkvæmdastjóri svipaðra
samtaka. Er hann jafnframt
sölustjóri hjá Asko, sem er
stærsti húsgagnaframleiðandi á
Norðurlöndum.
„Það kom fljótlega I ljós, að þar
sem við þurfum að flytja inn allt
hráefni og við það bætast há
vinnulaun og hár flutnings-
kostnaður, hlyti varan að verða
dýr. Við verðum því að selja dýra
vöru. Vegna þessa verður að
leggja sérstaka áherzlu á hönnun
húsgagnanna til þess að þau kom-
ist alveg i sérflokk aí gerð og
gæðum. Við fengum þvi i lið með
okkur 5 húsgagnaarkitekta, sem
munu starfa saman i hóp og i ná-
inni samvinnu viö framleiðend-
ur”.
Hilmar sagði okkur, að undir-
búning stofnunar fyrirtækisins
heföi annast Útflutningsmiðstöð
iðnaðarins i samvinnu við Iðn-
þróunarsjóð og þá, sem eitthvað
hefðu fengizt við útflutning.
1 stjórn eru Hjalti Geir
Kristjánsson, frá Kristjáni Sig-
geirssyni, formaður, Ásgeir Guð-
mundsson, frá A. Guðmyndssyni,
varaformaður, og Helgi Halldórs-
son frá Stáliðjunni, ritari.
—EVI—
„Stjórnmálaflokkur sá, sem
nefndur er Lýðræðisflokkurinn i
Reykjavik, er Asatrúarfélaginu
algerlega óviðkomandi, svo og
allir aðrir starfandi stjórnmála-
flokkar á landi hér. Sjálft tekur
félagið ekki afstöðu til stjórn-
málaflokka,” segir I samþykkt
frá nýafstöðnum aðalfundi Asa-
trúarfélagsins, en hann var hald-
inn að Draghálsi i Svinadal.
Félagið lætur hins vegar ýmis
önnur mál sig nokkru skipta, eins
og fram kemur i samþykkt aðal-
fundarins. Mörgum bregður i
brún, þegar Ásatrúarfélagar
vara við þvi, „að lögleidd séu að
nýju manndráp á íslandi undir
nafninu fóstureyðingar”, eins og
segir orðrétt i samþykkt félags-
ins. Menn hafa jú viljað kenna
fylgjendur Ásatrúar við mann-
fórnir — þó að þeir vilji sjálfir
halda þvi fram, að slikt sé til-
hæfulaust.
„Við erum aðeins að itreka
fyrri mótmæli okkar varðandi
fóstureyðingarlöggjöfina,” sagði
Þorsteinn Guðjónsson, einn Asa-
trúarmanna, i viðtali við Visi.
„Það var á aðalfundi okkar i árs-
byrjun 1973, sem goði okkar mælti
á móti fóstureyðingum. Var það
áður en biskup og fleiri aðilar
fóru af stað með sin mótmæli.”
Á aðalfundi Asatrúarfélagsins
nú á dögunum var samþykkt að
vara við hættunni af notkun eitur-
lyfja. „Mælir fundurinn með
ströngum refsingum við þá, sem
slikum efnum dreifa. Einkum
þegar það á sér stað meðal æsku-
lýös,” segir Þorsteinn. „Hvetur
félagið til almennrar árverkni
gagnvart þeim, sem slika iðju
stunda.”
„Þá vilja Asatrúarmenn loks
beina þvi til landsmanna, að þeir
taki þátt i þjóðhátið til minningar
ellefu hundruð ára byggðar i
landinu og minnist þá hinna fornu
guða og vætta, sem tryggt hafa
þjóðinni búsetu i landinu um ell-
efu alda skeið.”
—ÞJM