Vísir - 10.06.1974, Side 10
10
Vlsir. Mánudagur 10. júni 1974
Vísir. Mánudagur 10. júni 1974
11
lur Símonarson
1. deild
Staðan i 1. deild eftir leikina um
helgina:
Akurcyri—Vikingur 0:2
Akranes—Keflavlk 3:1
Frain—IBV 1:1
Akranes 4 3 1 0 9:2 7
Vikingur 4 2 11 6:4 5
Kll 3 2 0 1 3:2 4
Keflavik 4 2 0 2 6:5 4
ÍBV 4 1 2 1 4:4 4
Valur 3 0 2 1 2:3 2
Fram 4 1 2 2 5:7 2
Akureyri 4 1 0 3 1:9 2
Markhæstu menn:
Matthias Hallgrimsson, Akran. 4
Kári Kaaber, Viking 3
Steinar Jóhannsson, Keflavik 3
Rúnar Gislason, Fram 2
Teitur Þórðarson, Akranes 2
Jón Gunnlaugsson, Akranes 2
Næstu leikir i 1. deild: i kvöld,
mánudaginn 10. júni leika á Laugar-
dalsvellinum KIl—Valur kl. 20,00.
Fimmtudaginn 13. júní kl. 20,00 leika
á i.augardalsvellinum Fram—Akra-
2. deild
Staðan i2. deild eftir leikina um
helgina:
Armann—FH 0:3
Rreiðablik—isafjörður 9:0
Völsungur—Selfoss 3:0
Breiðablik
FII
Völsungur
Selfoss
Þróttur
Haukar
ísafjöröur
Ármann
Markhæstu menn:
Ólafur Danivalsson, Flf 5
Guðmundur Þórðarson, Breiðab. 5
Sumarliði Guðbjartsson, Self. 4
llermann Jónasson, Völsungi 3
Guðjón Sveinsson, Ilaukum 3
Leifur Iielgason, FIl 3
Næstu leikir i 2. deild verða: i kvöld,
mánudag, leika í Hafnarfirði kl. 20,00.
FH—Haukar.
A morgun, þriðjudag, leika á Ar-
mannsvelli kl. 20,00. Armann—Þrótt-
ur. A fimmtudaginn kl. 20,00 leika I
Kópavogi Breiðablik—Haukar og á
föstudaginn leika á Selfossi kl. 20,00
Selfoss—FH.
3. deild
Crslit i Austfjarðariðli i 3. deildar-
keppninni i knattspyrnu um helgina
urðu þessi:
Sindri—Leiknir 1:2
Einherjar—Huginn 3:1
Höttur—Austri 0:2
Þróttur—Valur (Frestaö)
i kvöld verða tveir leikir I 3. deild i
Reykjavik. Fylkir og ÍR leika á Ar-
bæjarvelli, og á Háskólavellinum leika
Leiknir og Grindavik. Báðir leikirnir
hefjast kl. átta.
Enn hreint
mark Zoff!
ítalia — eitt sigurstranglegasta.
landið i heimsmeistarakeppninni i
knattspyrnu — lék sinn siðasta æfinga-
leik fyrir HM á laugardag. italir léku
þá viö Austurrikismenn I Vinarborg og
varð jafntefli án þess mark væri skor-
að. Enn heldur þvi Zoff marki sinu
hreinu hjá ítaliu —og er nú að nálgast
15 landsleiki i röð án þess að fá á sig
mark. Yfir fimmtiu þúsund áhorfend-
ur sáu leikinn og tókst austurriska lið-
inu að stöðva allar sóknartilraunir
itala — og yfirtók svo spilið langtim-
um saman. Hins vegar tókst Austur-
ríkismönnum ekki að skora hjá hinni
frábæru vörn og stórkostlcga mark-
verði itala. Leikurinn var allfjörugur,
en greinilegt, að itiilsku leikinennirnir
tóku enga áhættu svona rétt fyrir IIM.
Fyrsti leikur liðsins þar verður gegn
Haiti á laugardag I Munchen.
Arni Stefánsson, markvörður Fram, handsamar knöttinn, áöur en Haraldur „gullskalli” Júliusson nær til hans.
Ljósmynd Bjarnleifur.
Tœkifœri í tugatali,
en aðeins tvö nýttust
— Fram og Vestmannaeyjar gerðu jafntefli á Laugardalsvelli 1-1
„Þvi er ekki að neita
að ég er óhress yfir
byrjuninni hjá okkur.
Þetta er gott lið, en það
er eins og hlutirnir vilji
ekki rúlla rétt fyrir
okkur þessa dagana, og
við náum i mesta lagi
jafntefli i leikjunum. En
þetta hlýtur að fara að
smella i liðinn”.
Þetta sagði eini tslendingurinn,
sem þjálfar 1. deildarlið hér á
landi I sumar, Jóhannes Atlason
þjálfari Fram, eftir leikinn milli
Fram og Vestmannaeyja á
Laugardalsvellinum i gær.
Það er ekki að undra þótt
Jóhannes sé óhress. Fram, með
allar sinar „stjörnur” hefur að-
eins hlotiö 2 stig i fyrstu 4 leikjun-
um og er á botninum i deildinni
ásamt Akureyringum.
Leikiirinn i gær var sann-
• •
kallaður leikur hinna glötuðu
tækifæra. Bæði liðin áttu aragrúa
af marktækifærum, en aðeins
tvlvegis var knettinum komið i
netið. Framarar voru fyrri til, en
Eyjaskeggjar jöfnuðu i siðari
hálfleik.
Fyrri hálfleikurinn var
hressilegur og bæði liðin sýndu
skemmtilegan leikkafla, auk þess
sem áhorfendur skemmtu sér vel
við ýmis brosleg atvik á vellinum.
Góð tækifæri sköpuðust við
bæði mörkin en það var ekki fyrr
en um 30 min. voru liðnar af
leiknum að fyrsta markið kom.
Guðgeir Leifsson lék eins og oft
I þessum leik á Einar Friðþjófs-
son og sendi fastan bolta fyrir
markið. Þar kom Asgeir Eliasson
á fullri ferö og skallaði fyrir fætur
Rúnars Gislasonar, sem var fyrir
innan markteig, og hann átti
auövelt með að senda knöttinn i
netið.
Vestmannaeyingar höfðu allt
að vinna er þeir hófu siðari hálf-
leikinn — og það var mikill kraft-
ur i þeim. Strax á 1. min. átti örn
Óskarsson skot af góðu færi, sem
fór tveim tommum of langt til
vinstri, og þar með fram hjá
markinu.
Það var svo á 25. min. hálf-
leiksins að jöfnunarmarkið kom.
örn Óskarsson gaf fyrir markið
og hafði Arni Stefánsson mark-
vöröurFram hendur á boltanum.
En hann var háll og hann missti
hann frá sér til Sveins Sveinsson-
ar, sem kom inn á i siðari hálfleik
fyrir Tómas Pálsson, og hann
sendi knöttinn auðveldlega yfir
Arna, þar sem hann lá I valnum.
Þetta mark má skrifa á
reikning Árna. 1 þessu tilfelli átti
hann að slá boltann, en ekki að
gera tilraun til að gripa hann.
En Arni borgaði fyrir brotið
með glæsilegri markvörzlu siðar i
leiknum... og það ekki einu. sinni
heldur oft.
Leikur liðanna i siðari hálfleik
var ósköp leiðinlegur. Allt spil
var þröngt og mikið sparkað mót-
herja á milli. Við það fækkaði
marktækifærunum að mun, en þó
gafst eitt og eitt við bæði mörkin
STJORNURNAR FLESTAR FJAR-
VERANDI Á E.Ó.P. MÓTINU
Enginn sérstakur árang-
ur náðistá E.ó.P. mótinu í
frjálsum íþróttum á
Laugardalsvellinum á
föstudagskvöldið. Flest
okkar bezta frjálsíþrótta-
fólk er erlendis þessa dag-
ana, annaðhvort við æfing-
ar eða nám, aðrir létu ekki
sjá sig.þótt við þeim hefði
verið búizt.
Erlendur Valdimarsson mætti
t.d. ekki i kringlukastkeppnina,
og olli það vonbrigðum, þvi vitað
er að hann er i góðri æfingu um
þessar mundir, og aðstaðan á
Laugardalsvellinum ekki til að
fárast útaf.
200 metra hlaup karla var
skemmtilegasta grein kvöldsins.
Bjarni Stefánsson fékk sinadrátt
er hann var að koma úr beygj-
unni, en gafst ekki upp og kom
fyrstur i mark á 22,0 sek. Annar
varð Vilmundur Vilhjálmsson KR
á 22,5 og þriðji hinn bráðefnilegi
spretthlaupari úr Armanni,
Sigurður Sigurðsson, sem hljóp á
22,7 sek., sem er nýtt sveinamet,
og það af glæsilegri gerðinni.
Gamla metið átti Vilmundur
Vilhjálmsson og var það 23,3 sek.
Stefán Hallgrimsson KR virðist
vera i góðri æfingu. Hann setti
persónulegt met i 110 metra
grindahlaupi, hljóp á 15,2 sek,..
og sigraði... sömuleiðis sigraði
hann i langstökki, stökk 6,83
metra, i sjöttu og siðustu tilraun.
Þá sigraði hann i kringlukasti en
þar nægði honum 39,49 metra
kast i fjarveru Erlendar.
Elias Sveinsson, ÍR, kastabi
spjótinu 61 metra slétta, sem telja
má góðan árangur hér hjá okkur.
i stangarstökki sigraði Karl
West, stökk 4,10 metra og bætti
þar með sitt persónulega met all-
verulega. Hann sigraði einnig I
hástökki — stökk 1,90 m.
800 og 3000 metra hlaupin voru
heldur slök. Robert MacKee, FH,
sigraði i 800 á 2:06,7 og Sigurður
P. félagi hans úr FH sigraði i 3000
metra hlaupi á 9:41,0 min.
Ingunn Einarsdóttir sigraði i
100 m hlaupi kvenna, á 12,5 sek og
Óskar Hlynsson, Ármanni, i 100
og 600 metra hlaupi pilta. Hann
hljóp 100 metrana á 13,7 sek.*sá
sem var næstur honum var á 14,5
sek. og 600 metrana á 1:44,0 en
annar maður var á 1:47,7.
Þarna er á ferðinni mikill
hlaupagikkur, sem á einhvern
tima eftir að vera góður,enhann
er aðeins 12 ára gamall. ,,
— klp —
Meistarar IBK yflr-
spilaðir á Skipaskaga!
— Akurnesingar sigruðu með 3-1 og hafa nú tveggja stiga forustu í
I. deildinni að loknum fjórum leikjum, en KR gœti dregið á þá í kvöld
en þau urðu aldrei annað en
tækifærin ein.
Liðin voru mjög áþekk, og jafn-
tefiið þvi sanngjöfn úrslit. Varnir
beggja voru góðar og mark-
verðirnir einnig. Ólafur Sigur-
vinsson varbeztur Eyjamanna og
byggði vel upp, en framlinu-
mennirnir unnu illa úr efninu.
Þar var örn Óskarsson einna
friskastur, og harðfylgi hans
aðdáunarvert — þótt kappið sé
stundum heldur of mikið. Sveinn
Sveinsson komst einnig vel frá
sinum hálfleik.
Hjá Fram var Marteinn
Geirsson fastur fyrir að vanda, og
Jón Pétursson gaf sitt ekki eftir
frekar en fyrri daginn. Þá áttu
bakverðirnir Ómar og Agúst
þokkalegan leik.
Óli ólsen dæmdi leikinn, og var
hann heldur spar á flautuna og
lét leikmenn komast upp með
óþarfa fautaskap. -klp-
Akurnesingar tóku for-
ustu í 1. deildarkeppninni í
knattspyrnu á laugardag-
inn með því að sigra sjálfa
islandsmeistarana frá
Keflavík með þrem mörk-
um gegn einu á Skipa-
skaga.
Þeir gerðu hreinlega útaf við þá
i siðari hálfleik leiksins og skor-
uðu þá tvö gullfalleg mörk, en
áttu auk þess tækifæri á að skora
enn fleiri.
1 fyrri hálfleik voru Keflviking-
ar betri aðilinn á vellinum —
a.m.k. lengst af — og áttu mörg
góð upphlaup og auk þess mörg
góð tækifæri til að skora.
Strax á fyrstu minútum leiksins
fengu þeir hornspyrnu, sem Ólaf-
ur Júliusson tók. Spyrnti hann
snúningsbolta fyrir markið og var
boltinn á leiðinni inn i markið,
þegar Benedikt Valtýsson, sem
stóð langt fyrir innan linu, náði að
reka kollinn i hann og koma hon-
um út aftur.
A 20. min leiksins kom fyrsta
mark leiksins.
Keflvikingar höfðu þá sótt fast
og kom boltinn fyrir markið, þar
sem Davíð markvörður ætlaði að
góma hann, en tókst ekki betur til
en svo, aö hann sló hann út til
Gisla Torfasonar, sem þegar
skallaði hann til baka inn i mark-
iö.
Eftir þetta mark kom mikil
„panik” yfir vörn Skagamanna,
og lagði hún hvert færið á fætur
öðru upp fyrir íslandsmeistar-
ana, en þeim tókst ekki aö nýta
þáu mörgu og góðu boð.
Þegar leið á leikinn, fóru
Skagamenn að jafna sig, og hófu
að sækja fast að marki Keflvik-
inga. Það bar árangur þegar 4
min. voru eftir af hálfleiknum, er
þeir Matthias Hallgrimsson og
Teitur Þóröarson brunuðu upp
meö boltann á milli sin.
Or þröngri stöðu sendi Matthias
boltann i netið fyrir aftan Þor-
stein Ólafsson, markvörð ÍBK,
sem kominn var út úr markinu tií
að taka fyrirgjöfina frá Matthiasi
— en hún kom aldrei.
Strax i siðari hálfleik tóku
Skagamenn að herja á markið hjá
Keflvikingum fyrir alvöru — enda
léku þeir þá undan hagstæðum
vindi.
Teitur átti þrumuskot i þverslá
af stuttu færi, og siðar I leiknum
komsthann i enn betra færi, en þá
skaut hann yfir fyrir innan mark-
teig...óskiljanlegt hvernig hann
fór að þvi???
A 15. min. kom loks mark hjá
Skagamönnum. Þeir fengu auka-
spyrnu, sem spyrnt var fyrir
markið. Þorsteinn hljóp út og
stökk upp til áð taka boltann, en
var ekki nógu fljótur né stór til að
komast yfir „risann” Jón Gunn-
laugsson, sem skallaði yfir hann
og I netið.
Skömmu siðar var Jón aftur á
ferðinni með skallann. Teitur
skallaði þá fram til hans við
markið og Jón kastaði sér fram
og sendi boltann framhjá nokkr-
um varnarmönnum ÍBK og alla
leið inn i mark...3:l.
Akurnesingar áttu fjöldann all-
an af tækifærum til að bæta við
mörkum eftir þetta, en tókst það
ekki. Keflvíkingar áttu einnig
Matthias Hallgrimsson skoraöi
jöfnunarmark Skagamanna og er
nú markhæstur i 1. deildinni.
nokkur, en þau voru mun færri og
ekki eins hættuleg.
Skagamenn voru betri aðilinn i
þessum leik, með þá Jón Gunn-
laugsson og Jón Alfreðsson sem
beztu menn. Teitur var friskastur
þeirra framlinumanna og skapaði
mikla hættu með hraða sinum og
krafti. Þá átti Eyleifur góöan
leik, en hann fékk „gula spjaldið”
hjá dómaranum fyrir að slá Grét-
ar Magnússon niður i bræði...og
var það vel sloppið hjá honum.
Guðna- og Einars-lausir eru
Keflvikingarnir langt frá þvi að
vera sannfærandi. Missir þeirra
er mikill fyrir liðið, þvi við það
verður að draga miðjumennina
Grétar og Gisla Torfason aftur i
vörnina, og nægilega sterkir
menn eru ekki til til að taka við
af þeim.
Gisli var áberandi beztur Kefl-
vikinganna i leiknum. Þeir
Astráður og Grétar komu einnig
vel frá honum, en framlinan og
miðjumennirnir voru slakir. Sér-
staklega þó ólafur Júliusson, sem
var eitthvað mikiö miður sin i
þessum leik, en hann átti að visu
við erfiðan mann að etja, sem var
„jarðýtan” Benedikt Valtýsson,
er ekkert gaf eftir frekar en fyrri
daginn.
Dómari leiksins var Hinrik
Lárusson og var hann oft heldur
ragur að dæma á augljós brot,
aðallega þá á brot Akurnesinga.
—klp—
Ármenningar fundu ekkí
mðrkín ó ÁrmannsvelGnum!
Ekki fór það svo að Armenning-
ar færu með sigur af hólmi i sin-
um fyrsta heimaleik I 2. deild á
Ármannsvellinum. Þeir réðust
heldur ekki á garðinn, þar sem
hann er lægstur, þvi FH varö fyr-
ir valinu sem mótherji.
Armenningar fundu aldrei réttu
leiðina inn i markiö á vellinum
sinum, en FH-ingar voru öllu
fundvisari. Þeir skoruðu eitt
mark I fyrri hálfleik og tvö i þeim
siðari. ólafur Danivalsson gerði
tvö af þessum mörkum og Logi
Ólafsson eitt.
Leikurinn var skemmtilegur og
i honum brá oft fyrir þokkaleg-
ustu knattspyrnu, sem ekki gaf
eftir sumu af þvi sem 1. deildar-
liðin eru að bjóða upp á.
Marktækifærin voru mörg, en
það voru aðeins gestirnir, sem
kunnu að nota þau á réttan hátt.
Armenningarnir voru ánægöir
með útkomuna á leiknum — burt-
séð frá tapinu — og hugguðu sig
við gamla máltækið....„Fall er
fararheill”. —klp—
Jón Pétursson Fram rétt staðsettur I einni af mörgum sóknum Vestmannaeyinga I leiknum á sunnu-
daginn og tekst að spyrna knettinum frá markinu á síöustu stundu.
Gðmlu kmdsliðs-
mennirnir skora
fyrir Húsvíkinga
Völsungarnir hala inn
stigin jafnt og þétt á
heimavelli sínum á Húsa-
vík i 2. deildarkeppninni í
knattspyrnu. Á laugardag-
inn fengu þeir Selfyssinga
i heimsókn og sendu þá
heim aftur með þrjú mörk
í mínus.
Fyrri hálfleikur var jafn, en þá
tókst hvorugu liðinu að skora
mark. I siðari hálfleik fóru
Völsungarnir i gang og tóku nær
öll völd á vellinum og skoruðu
þrjú mörk.
Fyrsta markið var skorað úr
vitaspyrnu. Þar var tannlæknir-
inn á staðnum, Magnús T. Torfa-
son fyrrum landsliösmaður og
leikmaður með Keflavik.að verki
með föstu og öruggu skoti aö
vanda.
Annað markið skoraði Július
Bessason og það þriðja geröi
Hreinn Elliðason, fyrrum lands-
liðsmaður og leikmaður með
Fram og Akranes.
Völsungarnir voru vel að þess-
um sigri komnir. Léku vel i siðari
hálfleik og voru ákveðnir upp við
markið. Verður fróðlegt aö fylgj-
ast með viðureign þeirra við
„stóru iiðin” Breiðablik, FH og
Þrótt, á Húsavik i sumar. Þau
verða ekki auðtekin stigin þeirra
þar.
Selfyssingarnir eru mun betri i
ár en i fyrra, og þeir eiga eftir að
ná sér i mörg stig til viðbótar.
Þegar hafa þeir hlotið jafn mörg
stig og i öllu mótinu i fyrra, og
samt er það rétt að byrja.
Þórir Jónsson — segist ekki ætla að
leika meira meö Val I sumar.
Vandrœði
í búðum
Valsmanna?
#/Þér er óhætt aö hafa það
eftir mér/ að ég er hættur að
æfa og leika með Val i sumar.
Hvað ég geri svo er enn ekki
afráðið".
...Ástæðan?....Það er per-
sónulegt/ en þú getur sagt að
ég hafi verið búinn að fá nóg".
Þessi snaggaralegu svör við
spurningunni — Hvaö er aö gerast hjá
ykkur i Val? — fengum við hjá Þóri
Jónssyni, sem undanfarin ár hefur
verið einn af beztu leikmönnum 1.
deildarliðs Vals i knattspyrnu, en hef-
ur nú ásamt öörum leikmönnum, farið
i „óbeint verkfall” og hvorki mætt á
æfingar né leiki.
Hinir tveir eru Ingi Björn Albertsson
og Þór Hreiöarsson, sem gekk yfir til
Valsmanna úr Breiöablik s.l. haust.
Milli þessara þriggja og hins rúss-
neska þjálfara Vals, hefur andað köldu
undanfarnar vikur, en upp úr sauð, er
hann setti þá út úr liöinu i leiknum
gegn Fram i siöustu viku.
Þeir Ingi Björn og Þór hafa baðir
komiðá eina æfingu eftir það, en Þórir
hefur ekki látið sjá sig, og ætlar sér
ekki að mæta á næstunni.
Valur á að leika viö KR i 1. deildinni
i kvöld á Laugardalsvellinum. Þetta er
mikilvægur leikur fyrir bæði liðin —
sérstaklega þó Val, þar sem liðiö hefur
enn ekki náð að sigra i einum einasta
leik i deildinni.
Fróðlegt verður að vita hvort þeir
Ingi Björn og Þór Hreiðarsson fá að
vera með i þessum leik. Ef ekki, má
búast við að tilennmeiri tiðinda kunni
að draga á Hliðarenda á næstunni —
sérstaklega ef erkióvinurinn úr
vesturbænum fer með annað eða bæði
stigin með sér vestur fyrir læk!
---klp —
Þriðji sigur
Ástralíu
HM-lið Astraliu I knattspyrnunni
viröist alls ekki eins slakt og flestir
vilja álita. A laugardaginn lék það siö-
asta æfingaleik sinn I Sviss — mætti þá
Neuchatel og sigraöi ineð 1-0. Þaö var
þriðji sigurleikur ástralska liðsins i
Sviss. Aöur hafði það sigrað St. Gall og
Young Boys fyrr i vikunni. t siöasta
leiknum virkuöu leikmenn Astraliu
sterkir og fljótir og hefðu eflaust getað
skorað fleiri mörk. Richards skoraði
eina mark leiksins.