Vísir - 10.06.1974, Side 12
„Parið" fró
rannsóknar-
lögrcglunni
sigraði!
Þeir Ragnar Vignir og
Aðalstcinn Guðlaugsson
sigruðu I Slazenger golf-
kcppninni hjá GR, sem fram
fór um síðustu helgi.
Var þaö opin keppni og var
ieikinn skozkur fjórleikur —
tveir og tveir saman og slógu
þeir annað hvert högg til
skiptis.
Þeir Ragnar og Aöal-
steinn, sem báðir eru starfs-
menn Rannsóknarlögregl-
unnar, höfðu aö sögn
annarra keppenda „rann-
sakað völlinn gaumgæfi-
lega” fyrir keppnina og fóru
þvi með sigur af hóimi.
Þeir léku 36 holur á 146
höggum nettó, eða höggi bet-
ur cn næsta „par”, sem voru
meistaraflokksmennirnir
Ómar Kristjánsson og Óskar
Sæmundsson. t þriðja sæti
kom svo ólafur Agúst Þor-
steinsson og Guðjón Einars-
son á 150 höggum.
Allir fengu þessir menn
mjög vönduð og glæsiieg
verölaun frá Slazengerum-
boðinu hér á landi. Voru t.d.
fyrstu verðlaunin tvær golf-
kerrur, og önnur verðiaunin
golfkyifur.... að sjálfsögðu
allt frá Slazenger. -klp-
Hlaupaskór, lang-
stökksskór, þri-
stökksskór, kúlu-
varpsskór, kringlu-
kastsskór, hástökks-
skór.
Verð frá kr. 1940 -
5500.
PUMA —
ÆFINGAGALLAR
Verð frá kr. 3000 -
5400
Póstsendum.
Sportvöruverzlun
Ingólfs (jQkarssonar
Klappanlig 44 — Slml 11783 — Ríykjavft
Bjarni Stefánsson KR kemur fyrstur I mark I 200 metra hlaupinu á E.Ó.P. mótinu á föstudagskvöldiö. Vilmundur Vilhjálmsson, lengst til
hægri, nær öðru sætinu rétt á undan hinum efnilega spretthlaupara Sigurði Sigurðssyni, Armanni, sem þarna setti nýtt og glæsilegt sveinamet.
Ljósmynd Bjarnleifur.
Allir skoruðu nemo mark-
vörðurinn og bakverðirnir!
— er Breiðablik sigraði ísafjörð í 2. deild 9:0
Þaö var heldur betur
stuö á Breiðabliksmönnum
í leiknum við Isfirðinga í
Kópavogi á laugardaginn.
Þeir léku Vestfirðingana
svo grátt, að jafnvel hörð-
ustu stuðningsmenn
Breiðabliks voru farnir að
halda með þeim í lokin og
er þá mikið að ske í Kópa-
vogi.
Það var ekki útlit fyrir að neitt
sérstakt ætti eftir að koma fyrir i
leiknum, þegar nokkuð var liðið á
hann. Menn bjuggust við þessu
venjulega 2. deildarþófi — litið af
mörkum en mikið af spörkum.
Kópavogsbúarnir skoruðu þó
tvö mörk I fyrri hálfleik. En ekki
var fjarri lagi að ísfirðingar
hefðu einnig átt skilið að hafa
skorað mörk — a.m.k. eitt, eftir
fast og mikið skot sem small i
stöngina og langt út á völl.
En i siðari hálfleik fóru hlutirn-
ir að gerast. Hvað eftir annað
brunuðu Kópavogsbúarnir upp og
sendu knöttinn i netið hjá Is-
firðingunum. Áður en leiknum
var lokiö höfðu þeir skorað 7
mörk og með mörkunum 2 I fyrri
hálfleik höfðu þeir skorað i allt 9
mörk gegn engu.
Það voru allir leikmenn Breiða-
bliks sem skoruðu i þessum leik
nema markvörðurinn og bak-
verðirnir. Hinrik Þórhallsson var
markahæstur með 2 mörk. Hinir
skoruðu allir 1 mark hver og
voru það þessir: Guðmundur
Þórðarson, Magnús Steinþórsson,
Einar Þórhallsson, Gunnar
Þórarinsson, Gisli Sigurðsson,
Ólafur Friðriksson og Hörður
Harðarson. , ,
—klp—
Lítill strákur úr Kópa-
vogi dró að sér athygli
— á afmœlissundmótinu í Laugardalslauginni
Fimmtán ára strákur úr
Kópavogi/ Steingrimur
Davíðsson, vakti mikla at-
hygli á afmælissundmóti
KR og Ármanns i Laugar-
dalslauginni á föstudags-
kvöld — hálfpartinn stal
senunni frá sænska sund-
fólkinu, sem keppti á
mótinu. Það var í 200
metra bringusundi og
Steingrímur synti þar á
2:44.5 min., sem er mjög
góður tími hjá svo ungum
dreng. Það er vel innan við
lágmarksaf rekið, sem
krafizt er fyrir þátttöku á
Norðurlandamóti
unglinga, sem haldið
verður í Karlsstad i
Svíþjóð 5.-7. júlí. Lág-
markið er 2:47.0 mín.
Þessi timi Steingrims er
svipaður og Elias Guðmundsson
náði á siðasta Noröurlandamóti
unglinga, en hann náði þar þriðja
sæti — og kunnáttumenn eru á
þvi, að Steingrimur geti bætt
árangur sinn enn mjög næstu
vikurnar. Þetta er bezti timi hans
i 50 metra laug — en i 25 metra
laug I vetur synti hann 200 m
bringusundið á 2:40.2 min. — eða
svipuðum tima og kappinn kunni,
Sigurður Jónsson Þingeyingur
náði bezt — en Sigurður var sem
kunnugt er Norðurlandameistari
á þessari vegalengd.
Tveir aðrir ungir strákar vöktu
lika athygli á mótinu. Daði
Kristjánsson úr Kópavogi, sem er
fimmtán ára, bætti sig vel i 400 m
skriðsundi — synti á 4:46.0 min.
og ætti að geta náð lágmarkinu á
unglingamótiö, sem er 4:45.0 min.
Á þessari vegalengd bætti Ar-
menningurinn Brynjólfur Björns-
son, sem er fjórtán ára, sveina-
met Daöa — synti á 4:47.1 min.
Hann á þvl heldur ekki langt i lág-
markið' á vegalengdinni.
Mesta athygli sænska sund-
fólksins vakti hinn fjölhæfi sund-
maður Risto Kaipainen, sem tók
næstum þátt i hverri keppnis-
grein. Hann náði ágætum tima i
lOOmetra flugsundi 1:01.8 min. og
var þá nýbúinn aö synda 400
metra skriðsund á 4:27.0 min. Þá
náði sænska stúlkan Diana Ohls-
son ágætum tima i 100 metra
skriðsundi — synti á 1:01.9 min.
og er það sennilega bezti timi,
sem kona hefur náð á þessari
vegalengd i Laugardalslaúginni.
Árangur okkar bezta sundfólks
var heldur rýr á mótinu. Þeir
Sigurður Ólafsson, Ægi, og Guð-
mundur Ólafsson, Hafnarfirði,
voru nýkomnir frá Sviþjóð og
virkuöu heldur þungir á mótinu,
Sigurður synti 100 metra skrið-
sund á 59.2 sek. og var þvi tals-
vert frá sinu bezta.
NAUTASKROKKAR
Kr. kg Innifalið i verði:
370 - Útbeining. Merking.
Pökkun. Kæling.
KJÖTMIDSTÖÐIN
Lakjarvtri, Laugalak 2, aimi 35020
PASSAfViTNDIR
'iáUóúnm éo Ö min-t
■c ökcoskúiteini ~ na/'rbsÁ&MeinL
— sfeóúoskJ/iéainL o./i.
MAK)RVi:R/1,1 NI\
22718 LAUCAVEGI