Tíminn - 30.01.1966, Side 1

Tíminn - 30.01.1966, Side 1
I Auglýsing ■ rtmanum kemur daglega ryrir augu 80—100 þúsund lesenda. -....... Myndin hér að ofan er af nýbyggingunni að Lágmúla 9, þar sem gaflinn i háhýsinu hrundi niSur á þak lægri byggingarinnar og áfram niður á götuna og lokaði henni. — (Tímamynd-GE). OFSAVEDUR GEISAR f OLLUM LANDSHLUTU KT-Reykjavik, laugardag. í morgun var stormur um allt landið og snjókoma alls staðar nema e.t.v. á Suður- landi, en þar var víðast svo mikill skafrenningur, að vart sá út úr augum. Vegna óveð- ursins hafa ýmsar truflanir orðið, símasamband rofnað, áætlunarferðir farið úr skorð um og geysilegar skemmdir orðið á verðmætum. Ófært er nú að heita má um allt landið. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerð ríkisins, -ná segja, að ófært sé um allt land. Á Aust- fjörðum, Norðurlandi, og á Vest- fjörðum eru allir vegir lokaðir. en á stöku stað hægt að hreyfa sig innan sveita. Ekki mun með öllu ófært á Suðurlandi, þar sem Þrengslavegur hafði t'-ii lokazt um hádegi og gátu mjólkurflutn- ingar því faric fram til Reykja- víkur. Einnig mun vera hægt að komast frá Reykjavík upp í Borg- arfjörð og suður til Keflavíkur. Veðurstofan gaf þær upplýs- ingar í dag, að í gær, föstudag, hafi NA áttin, sem verið hefur ríkjandi í vikunni farið að vaxa og með kvöldinu hafi víða verið kominn stormur á Vestur- og Norðurlandi. Þá hafi verið snjó- koma á norðanverðu landinu, en á suðurströndinni hafi verið þurrt að kalla. í nótt hafi NA áttina hert enn og í morgun kl. 8 hafi verið stormur um allt land og snjókoma alls staðar, iiema e.t.v. í nærsveitum Reykiavíkur og fyrir austan fjall, en þar hai'i víðast hvar verið skafrenningu-, svo ekki sá úr augum. Hitirm á SA-verðu landinu hafi verið um frostmark, en lækkað til norð- verið —10 stig á Vestfjörðuni. Norðan hörkustórhríð nefur verið ttm allt_ Norðurland i nótt og morgun. Á Húsavík var tæp- lega fært á milli húsa um hádeg isbilið, að sögn fréttaritara og Framhald á bls. 15. Húsþök f júka og veggir hrynja__________________ GÞE—Reykjavík, laugardag. Hin nýja bygging fyrirtækisins Bræðurnir Ormsson varð fyrir skemmdum í fárvirðrinu í dag.Fyrir tækið var flutt í hluta byggingar innar, en hinn hlutinn var aðeins fokheldur og hefur vinna staðið þar yfir að undanförnu. Heill veggur af þeim hluta hússins, sem ófullgerður var, hrundi gersam- lega, og annar var og fyrir mikl um skemmdum. Eltki var vitað fyllilega um tjónið, þegar blaðið fór í prentun, en áætlað er, að það hafi numið hundruðum þús unda króna. Fleiri mannvirki urðu fyrir tjóni, af völdum fárvirðisins. Af húsi Heildverzlunarinnar Heklu að Laugavegi 172 fauk þakið i heilu lagi, hafnaði það úti í porti bak við húsið, og voru þar fyrir margir nýir bílar, sem 'afalaust hafa orð ið fyrir miklum skemmdum af þessum sökum. Lögreglan hafði svo mikið að gera að hún gat ómögulega annað eftirspurn. Sí- fellt var verið að hringja og til- kynna tjón á mönnum og mann- virkjum, þakplötur fuku af hús um víðsvegar um bæinn, m.a. af Landssmiðjuhúsinu, Hafnarhvoli, og nýja húsi Verzlunarsambands- ins, voru vinnuflokkar að störfum Framhald á bls. 14. Grófu þýfí / fáan umfír Ölfusárbrú DÓMUR FALLINN í KEFLAVÍKURMÁLINU: Jósafat fékk 2 ár EJ-Reykjavík, laugardag. f dag kvað Ólafur Þorláksson, dómari, upp dóm í máli ákæru valdsins gegn Jósafat Arngríms- syni, Þórði Einari Halldórssyni, Ey þór Þórðarsyni, Aka Guðna Granz og Albert Karli Sanders, eða Keflavíkurmáíinu svonefnda. Nið urstaða dómsins var á þá teið að því er ákærðan Jósafat varðar að kröfur ákæruvaldsins vegna föls unarhrota hans voru að veruieg ustu leyti teknar til greina Þá voru kröfur ákæruvaldsins um fjórsvikaþátt ákærðs lósafats og teknar til greina, en þó miðað við lægri upphæð eða um 2.5 milljón króna. Hlaut Jósafat þyngstan dóm þeirra fimmmenninganna, eða tveggja ára fangelsi. Þáttur Þórðar Einars hlaut þá niðurstöðu, að hann r talinn hafa aðstoðað við að halda á- vinningi af fjársvikabroti ákærðs Jósafats og jafnframt haft huga að hann var þá opinber starfrmað ur. Ákærður Eyþór var talinn hafa gerzt sekur um hlutdeild í fölsun arbrotum Jósafats í 6 liðum. Á- kærðir Áki Guðni og Jbert Karl voru fundnir sekir um að hafa stuðlað að því að viðhalda ávinn ingi ákærðs Jósafats af fjársviks broti hans. Dómsorðið er svohljóðandi: þdðáo „Ákærður, Jósafat Amgrímsson, sæti fangelsi í 2 ár. Gæzluvarð haldsvist hans frá 31. janúar 1964 til 14. marz saona ár komi með fullri dagatölu refsingu hans til frádráttar. Ákærður, Þórður Einar HalH "'” son sæti fangelsi í 8 mán /"> Gæzluvarðhaldsvist hans frá 27. febrúar 1964 til 7. marz sama ár Framhald á bls. 15. HZ—Reykjavík, föstudag. Snemma í morgun var lögregl unni á Selfossi tilkvnnt um inn brot og stuld í bílaverkstæði, sem Akur hf. rekur á Selfossi. Hafði verið stolið nokkur hundruð krón um, talsverðu magni af viðgerðar verkfærum, einu útvarpi og auk þess unnið spjöll á bíl, nýjum Taunus 12 M. Kistulokið hafði ver ið sprengt upp með haka sem á verkstæðinu var. Fljótlega féll grunur á pilta, sem 'kvissaðist um að hefðu verið á ferðinni á Volkswagen úr Reykja vík. Þeir voru lagðir af stað til Reykjavíkur en lögreglumenn af Selfossi eltu þá og einnig var lög reglunni í Reykjavík gert viðvart og handtók hún þá við Geitháls. Þrír piltar, voru fluttir til yfir heyrslu og játuðu þeir að hafa stol ið fyrrnefndum hlutum. Þeir viður kenndu að hafa grafið verkfærin í fönn undir Ölfusárbrú, þeir hefðu ekki þorað að fara með þau til Reykjavíkur. Piltar þessir, sem eru um tví- tugt, höfðu ætlað sér að halda austur í Rangárvallasýslu en sök um illrar færðar komust þeir ekki austur úr þorpinu og heldur ekki suður þegar þeir ætluðu að snúa við. Einhvern hroll hefur sett að þeim á verkstæðinu, því að þeir fóru i Tryggvaskála með hið stolna fé og fengu næturgistingu. Snemma í morgun, líklega á sjö unda tímanum héldu þeir til Reykjavíkur. Þeir höfðu orðið sér úti um keðjur og fóru svo í sporin eftir fyrstu bílana sem fóru til Reykjavíkur. Volkswagen-bíllinn, sem piltarn ir þrír voru á, er frá bílaleigu í Reykjavík. Við yfirheyrzlu í dag kom í ljós að piltarnir búa allir í Reykjavik en einn þeirra er ætt aður úr Rangárvallasýslu. Þeir sögðust bara hafa ætlað sér að gista í verkstæðisbyggingunni en

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.