Tíminn - 30.01.1966, Síða 5
SUNNUDAGUR 30. janúar 1966
TfMIWN___________________________5
Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Aug-
lýsingastj.: Steingrímur Gíslason. Ritstj.skrifstofur i Eddu-
húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur, Bankastræti 7. Af-
greiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523. Aðrar skrifstofur,
sími 18300. Áskriftargjald kr. 95.00 á mán. ínnanlands — í
lausasölu kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f.
«
Afstaða Framsóknar-
flokksins í alúmínmálinu
Þar sem stjóraarblöðin halda því sífellt fram að Fram-
sóknarflokkrinn hafi tekið afstöðu tii alúmínsamning-
anna að óathuguðu máli og áður en samningsatriði lágu
svo vel fyrir að málið yrði metið er rétt að taka það
fram enn einu sinni að þetta eru staðlausir stafir.
Skömmu fyrir jólin flutti ríkistjórnin skýrslu um málið
á þingi svo sem kunnugt er, og sagði þar, að búið væri
að ganga frá öllum aðalatriðum málsins í samningum
við svissneska alúmínhringinn. Lægi það mál allt ljóst
fyrir til ákvörðunar og ríkisstjórnin ákveðin í að semja.
Var þá komið í ljós, að engum þeim skilyrðum, sem
Framsóknarflokkurinn hafði sett á flokksþingum og mið-
stjórnarfundum og áður birt, var fullnægt og lá því ijóst
fyrir, að flokkurinn gæti ekki fylgt málinu, og því var
skylda hans að lýsa þegar yfir andstöðu sinni, svo að
enginn vafi léki á um hana, eftir að málavextir samn-
inganna voru kunnir. Um þetta sagði Eysteinn Jónsson,
formaður Framsóknarflokssins, meðal annars svo í ára-
mótagrein sinni hér í blaðinu:
„Kom þessi ákvörðun Framsóknarmanna í beinu fram-
haldi af ályktun miðstjórnar flokksins í fyrra, því að
þau skilyrði, sem sett voru fyrir því, að Framsóknarflokk-
urinn gæti fylgt málinu, voru ekki uppfyllt. Hefur komið
betur og betur í ljós, að í stórum dráttum hafði málið
verið fest í farvegi strax í fyrrahaust áður en það var
sýnt alþingismönnum, og fékkst ekki úr honum þokað.
Erfitt er að skilja, hvers vegna stjórnarflokkarnir
sækja þetta alúmínmál með þvílíku ofurkappi svo sem
ástatt er í landinu, og liggur ekki í augum uppi, hver
ástæðan er, en sest þó, ef nánar er skoðað.
Vegna raforkumálanna þarf ekki á þessu "5 halda því
að Búrfellsvirkjun er mjög hagkvæm o» vel viðráðanleg
án alúmínvers, og raunar vandrfo. hvernig þau við-
skipti reynast, svo að ekki sé meira sagt, að gera nú
samning um fast raforkuverð til 25 ára frá orkuveri,
sem á að vera fullbúið eftir sjö ár”.
íslenzkur vetur á enn sín grimmdartök. Þessa dagana
geisar stórhríð yfir landið með stormi, frosti og fann-
komu. Vegir teppast í einni svipan símalínur rofna og
samgöngutækni manna lýtur um stund í lægra haldi fyr-
ir náttúruhamförum norðurhjarans íslenzka veðráttan
er mislynd og misær Sumum árum er svo veðursköp-
uði, en snjór í fjallabrúnum í hverium sumarmánuði
uði en snjór í fjallaskörðum í hverjum sumarmánuði.
önnur ár eru sumur biíð og varla hæpt að segia. að vetur
komi. Og hamskinti vetrarins úr hiífj:; í qfríðu eru oft
svo snögg, að varla trúa því aðrir fslendingar.
Nú, þegar norðanstórhríð geisar na íaman. beinist
hugurinn að því, hvort hafís mum • að landi. f fyrra
fengum við heim sanninn um hað að hann ratar enn
hina gömlu leið sína inn í íslenzka firði. oe við vitum,
að hann er ekki langt undan á þessum borra. þó að sigl-
ing hans hafi sem betur fer ekki enn sézt fyrir lands-
steinum.
fslenzk stórhríð
IJAMES RESTON:
Bandaríkjastjórn þarf að hug-
leiða betur viðhorfin í Asíu
Engin ástæða til að rasa um ráð fram í Víetnam
Dean Rusk, utanríkisráðherra Bandaríkjanna þarí' að hugsa vel
ráð sitt, því að næsta skref Bandaríkjanna í málum Ahetnam og
Asíu í heild munu skipta miklnm sköpum.
Hugsanagangur Asíubúa
kemur fram á mjög mismun-
andi og margvíslegan hált og
er ávallt jafn mikið undrunar
efni fyrir þá, sem starfa að
því hér í Washington að móta
stefnu okkar Bandarikja
manna.
Viet Cong virðist ekki skelf-
ast yfirburði okkar í vopna
búnaði eða lofthernaði. Skæru
liðar halda ótrauðir áfram bar
áttu sinni, hvað sem á gengur.
Þorpsbúum í SuðurVietnam
virðist sárna miklu meira,
þegar dánir menn verða fyrir
sprengjuvarpi en lifandi fólk.
Harðyðgi og grimmd Vietnama
gagnvart herteknum löndum
sínum má heita ofvaxin skiln
ingi okkar vestrænna manna.
Fáar vikur líða svo núorðið,
að ekki gerist ný og furðuieg
dæmi til sönnunar þessum und
arlega hugsanagangi. Ekki er
Ilangt um liðið síðan, að komm
únistar í Indonesíu fóru i fjöl
mennar skrúðgöngur til þess
að lýsa andúð sinni á Banda
ríkjamönnum. Og svo var að
sjá, sem þetta væri gert með
vitund og samþykki Súkarnos
for^eta og ríkisstjórnar hans,
svo og Indonesísku þjóðarinn
ar. Svo gerðist það, að fimm
háttsettir herforingjar Indon
esa voru myrtir á hryllilegan
hátt og þá var gerð hin grimmi
legasta gagnárás á kommún
ista. )
Síðan þetta gerðist hafa
hundrað þúsund manns verið
•'•knir af lífi í Indonesíu. Þeir
hafa ekki fallið í orrustum eða
orðið fyrir sprcngjuvarpi, held
ur verið uppi og myrtir.
Sukarno játar meira að segja
sjálfur, að um 87 þúsundir
manna hafi horfið í þessum
villimannlegu morðárásum, en
leyniþjónusta okkar Banda
ríkjamanna telur mannfallið
nema fast að 130 þúsundum
manna.
Opinberum embættismönn-
um hér i Washington hefur
reynzt nægilega erfitt að skilja
hugsanagang Evrópum. undan-
gengin 30 ár Allt öðru máli
gegnir þó um Asíubúa og þeir
reynast miklum mun torskild
ari. Norður-Vietnamar bregð-
ast ekki við friðarsókn okkar
á þann hátt, sem við héldum
að þeir kynnu að gera. Suður
Vietnamar hafa verib mjög
hljóðlátir og fáorðir um friðar
sóknina. Ekki stafar þetta þó
af því, að þjir hafi —ir* henni
svo samþ; heldur hinu, að
þeir þekkja landa sín? og áttu
aldrei von á, að friðarsóknin
bæri skjótlega jákvæðan árang
ur.
Framv.'da mála í Asíu hef
ur stöðugt komið stjórnmála
mönnum okkar meira og meira
á óvart s’ðan að heimsstyrjöld
inni lauk Þeim skjátlaðist í
útreikningum sínum á aflei.
ingum loftárásannr í Norður
Vietnam og gerðu ráð í -
allt öðrum áhrifum af eflingu
bandarískra hersins í Vietnam
en raun varð á, þegar til kast
anna kom Þeim hafði skjátl
azt f spám sínum um gena’
og nytsemi hverrar Saigon
stjórnarinnar af annarri og
gerðu alrangar ályktanir um
væntanleg áhrif af sigursæili
baráttu okkar meðan á stað
vindunum stóð. En þrátt fyrir
öll þessi mistök stjórnmála
mannanna eru þeir enn jafn
óhagganlegir og kreddufastir
og áður í afstöðu sinni gagn
vart Kína.
Dean Rusk utanríkisráð
herra vlifar sí og æ á æuai
mótinu með árásarstefnu na?
ista í Evrópu og áleitni Kín
verja í Asíu. Hann fer ekki
í neinar grafgötur með afstöðu
sína: Kína er hinn raunveru
legi óvinur. Kínverja verður
að stöðva nú þegar í fyrstu
lotu þeirra áleitnu útþenslu
herferðar, alveg á sama hár.t
og þurft hefði að stöðva na?
ista á árunum milli 1930 og
1940 og Sovétrikin voru stöðv
uð í Grikklandi, Tyrklandi,
Persíu og Berlín á árunum
eftir styrjöldina.
Vera má, að Rusk hafi rétt
fyrir sér, en hann kann einnig
að hafa á röngu að standa.
Thant framkvæmdarstjóri Sam
einuðu þjóðanna er Burma
maður og er sennilega allt
eins fróður um Asíu og Asíu
menn og Johnson forseti. í
augum Thants er Kína í dag
enginn eflings skelmir, held
ur taugaveiklaður vesalingur.
Sato forsætisráðherra Japana
heldur að Kínverjar hafi
þyngstar áhyggjur út af iram
leiðslue.fiðleikum ’-.eima fyrir
og telur leiðtoga þeirra not
færa sér stríðið sem innrásar
ógnun til þess að knýja fátæk
an almugann il að leggjr harð
ar að sér og auka afköst sín.
Þegar búið er im sinn að
koma fram við einhverja þjóð
eins og hún sé samsafn af
hraka skógarmanna np ann
arra sökudólga. sagði fram
xvæmdarstjóri Sameinuðu
þjóðannr og átti þá >ið Kín
verja. ,, hlýtur hún að oregf
ast við með sérstökum hætti . .
Þegar málin eru komin á þetta
viðkvæma stis lætur þjóðin
'‘'inöum inc ákveðnar i'
finningar, grípur til vissra,
harkalegra viðbragða, sýnir
vissan stríðleika og jafnvel
hroka á stundum . . .“
Þær tvær skoðanir á R.a
verjum, sem hér hefur verið
lýst, þurfa ekki endilega að
stangast á. Sé það rétt, að
þjóð geti orðið taugaveikluð
eins og einstaklingur, eins og
Thant lætur sér um munn fara.
getur hún auðvitað einnig orö
ið öðrum hættuleg, eins og
Dean Rusk utanríkisráðherra
gerir ráð fyrir. Hér er þóri
meiri hógværra hugleiðinga
um Kína, ef forðast á meiri
aflsbeitingu á grundvelli fleiri
rangra ályktana.
Hvort sem kommúnistar
þurfa á auknum fresti að haida
eða ekki til þess að hugsa sig
betur um gang stríðsins en
orðið er og afla birgða iil
reksturs þess, leikur nitt ekki
á tveim tungum, að ríkisstjórn
Johnsons forseta paifnast
sannarlega aukins umhugsunar
tíma. Hún er hvergi nærri á
eitt sátt um, hvernig framhald
inu beri að haga. Hún nefur
ekki fundið viðundandi íausn
á birgðavandanum í Vietnam
og er ekki enn komin að nið
urstöðu um. hve víðtæk og
stórvægileg hin kínverska ógn
sé, né heldur hvaða þjóðir ætli
að leggja lið til tálmunar Kín
verjum, ef þeir sleppa fram af
sér beizlinu og láta til skarar
skríða.
En hví skyldi þá liggja þessi
ósköp á?
Engin hætta er á, að banda
ríski herinn bíði alvarlegan
ósigur. Við höfum tullt og stöð
ugt yfirlit um aðdrætti óvin
:ina og fáum því fyrirfram
vitneskju um allan meiri hátt
ar liðssamdrátt. Ástand mála
er ekki þann veg /arið að
nokkur hlutur annai en þá
vaninn geti knúið okkur til
athafna áður en við erum bún
ir að gefa okkur góðan tíma
til að hugsa ráð okkar.
( Þýtt úr New York Times).
------ ------------------ ■
I