Tíminn - 08.02.1966, Blaðsíða 1
Myncfin sýnir söngvara og hljómsveit á æfingu i Háskólabíói
Þau flytja
þá níundu
GÞE-Reykjavík, mánudag.
Á sinfóníutónleikum næst-
komandi fimmtudagskvöld verð
ur 9. sinfónía Beethovens
frumflUtt hér á landi. Stjórn-
andi er dr. Róbert Abraham
Ottoson, en flytjendur auk Sin
fóm'uhljómsveitarinnar eru ein
söngvararnir Svala Nielsen, frú
Sigurveig Hjaltested, Sigurður
Björnsson, Guðmundur Jóns-
(Tímamynd G. E.)
son og Söngsveitin Fílharmon-
ía. Tónleikarnir verða endur-
teknir næstkomandi iaugardag
kl. 3, en uppselt er þfegar á
báða tónleikana.
Það er íslenzkum tónlistar-
unnendum mikið gleðiefni, að
nú skuli vera ráðizt í þetta
stórvirki. Hefur verið vandað
til þess eftir föngum, æfingar
Framhald á bls 15
KROFUM VR UM ALMENNA
LAUNAHÆKKUN HAFNAÐ
EJ-Reykjavík, mánudag.
Samningaviðræður hafa stað-
ið milli Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur og atvinnurekanda
á annan mánuð, en hafa ekki bor-
ið árangur. Á föstudaginn slitn-
aði upp úr viðræðunum, þar sem
atvinnurekendur höfnuðu alger-
lega kröfu verzlunarmanna um
kauphækkun, — að því er Guð-
munður H. Garðarsson, formað-
ur VR, tjáði blaðinu í dag. Sagði
hann, að félagsfundur yrði hald-
inn á fimmtudag eða mánudag,
og þar mundi stjórn félagsins og
trúnaðarmannaráð fara fram á
verkfallsheimild sér til lianda.
Guðmundur sagði, að VR hefði
sent kröfur sínar til atvinnu-
rekenda fyrir mánaðamótin nóv-
ember — desember, en samn-
ingar runnu fyrst út um áramót-
in. Gætu atvinnurekendur því
ekki kvartað yfir því, að hafa ekki
haft nægan tíma til stefnu.
Ýmis minni háttar atriði voru
sett f undimefnd, sem starfaði
mestan hluta janúar, en ' um al-
mennu kaupgjaldsatriðin náð-
ist ekkert samkomulag, og slitn
aði upp úr samningaviðræðunum
á föstudaginn, þegar endanlega
var ljóst, að atvinnurekendur
vildu ekki veita verzlunar-
mönnum almenna launahækkun.
Guðmundur sagði, að stjórnar-
fundur hefði verið haldinn í VR
í dag, og að boðað yrði til félags
fundur á fimmtudag eða mánu-
dag, eftir því, hvorn daginn fé-
lagið gæti fengið húsnæðið. — Þá
mun rætt um, hvaða ráðstafanir
við getum gert svo að kröfur
okkar séu virtar, sagði Guð-
mundur. — Þar verður lögð fram
Framhald á bls. 15.
Sovézkir vísindamenn segja:
YFIRBORD TUNGLSINS
GOTT TIL LENDINGAR
NTB-Moskvu, mánudag.
Yfirborð tunglsins er mjög
gott til lendingar. Engin hætta
er á, að geimfarið sökkvi niður
í þykkt ryklag, eins og sumir
vísindamenn hafa fullyrt. Mikið
er um flöt, slétt svæði, að minnsta
kosti á botni hins svokallaða
„Stormahafs", að því er sovézki
stjörnufræðingurinn, prófess
or Boris Vorontsov- Veljaminov
sagði í sovézka sjónvarpinu í dag,
er hann útskýrði myndaseríu af
tunglinu, sem byggt er upp af
myndum frá tunglflauginni „Luna
■9“.
Hann sagði, að rannsókn mynd
anna myndi veita vísindamönnum
tækifæri til þess að finna mjög
nákvæmlega út, hvernig yfirborð
tungslins væri. Nú þegar væri
ljóst, að botninn á „Stormahafi“
er ekki þakinn basalti, eins og
áður var talið, og eins og myndir
m.a. frá bandarískum gerfihnött
um gáfu tilefni til að ætla.
Myndaserían var send til Jarð-
ar á laugardagskvöldið. Myndin
sýnir, að Luna-9 lenti á tiltölulega
sléttu svæði nálægt miðbaug aust-
urhluta Stormahafsins.
Sjóndeildarhringur var um 1500
metra frá myndavélinni, og næst
myndavélinni er hægt að greina
hluti, sem einungis eru tveir milli
metrar að stærð. Myndirnar eru
teknar á ýmsum tímum sólar-
hringsins, og sést sólin á mis-
munandi stöðum á himninum, en
það er talið mjög mikilvægt í sam
bandi við athugun á því svæði,
sem myndirnar sýna.
Sovézki prófessorinn V. Ivan-
sjenko skrifar í Izvestiju í dag,
að rétt fyrir ofan tunglið hafi
sjálfvirka stöðin losnað frá hemla
eldflaugunum. Sérstök tæki drógu
úr áhrifum sjálfrar lendingarinn-
innar. Auk þess var stöðin búin
sérstökum tækjum. sem áttu að
koma í veg fyrir, að hún færi
á hliðina, ef hún lenti í brekku.
í greininni ihinnir Ivansjenko
10 LÆKNAR HAFA SAGT UPP:
Læknanefndin á
enn iangt í land
FB-Reykjavík, mánudag.
Á Þorláksmessu skipaði ráð-
herra nefnd til þess að rann-
saka skipun og fyrirkomulag
læknaþjónustunnar á Ríkisspít
ulunum eins og fyrr hefur ver-
ið sagt frá, en tildrög þessarar
nefndarskipunar voru þau, að
fjölmargir Iæknar á Landsspít
alanum, Fæðingardeildinni,
Kleppi og á Rannsóknarstf' r
Háskólans höfðu sagt upp störf
um sínum, þar sem þeir voru
óánægðir með starfsaðstöðu og
launakjör. Nefndin hefur nú
haldið fjölmarga fundi, en sam
kvæmt upplýsingum Guðjóns
Hansen tryggingafræðings hjá
Tryggingastofnun ríkisins,
sem er formaður nefndarinnar,
kemur hún ekki til með að
ljúka störfum áður en fyrstu
uppsagnirnar ganga í gildi.
Nú munu um 10 Iæknar hafa
sagt upp.
Við snerum okkur i dag til
Guðjóns Hansen og spurðum
hann um störf nefndarinnar,
og sagði hann meðal annars,
að hann vildi taka það fram,
að það sem komið hefði fram
í blöðum, um að ætlað hefði
verið, að nefndin lyki störfum
áður en fyrstu læknarnir hætta
Framhaio a ols 15
á, að Sergej Korolev, sem andað-
ist nýlega, hafi verið aðalmaður-
inn á bak við kerfi það, sem kom
fyrsta geimfarinu til tunglsins.
Það hefur vakið nokkra athygli,
hversu skamma stund Sovét
menn hafa látið Lunu-9 senda
myndir til jarðar, og í dag stað-
festu sovézkir vísindamenn, að
sögn brezka útvarpsins, að raf-
sellur tunglfarsins væru svo til
útnotaðar. Rússar hafa látið í
ljósi nokkra reiði yfir því, að
brezkir visindamenn tóku líka á
móti myndum frá Lunu-9 og birtu
þær án þess að hafa samráð við
sovézka vísindamenn.
Talið er sennilegt, að banda-
rískir vísindamenn hafi gert til-
raun til þess að taka á móti mynd
Fíamhald á bls. 15.
VERÐAIBUAR
JARÐAR 7000
MILLJÚNIR
ÁRIÐ 2000?
NTB-Washington, mánudag.
fbúar lieimsins voru 3308
milljónir talsins um mitt ár
1965, og ef mannfjölgunin
heldur áfram með sama hraða,
munu 7000 milljónir manna
vera á jörðinni um næstu alda-
mót, að því er segir í tilkynn-
ingu óháðrar bandarískrar
rannsóknarstofnunar, sem sér-
hæfir sig í mannfjölgunarmál-
um.
Stofnunin fullyrðir, á grund-
velli upplýsinga, sem m.a. Sam
einuðu þjóðirnar hafa safnað
saman, að mannfjölgunin sé
hröðust i Mið- og Suður- Amer
íku, en næst kemur Afríka og
Asía.
í skýrslu stofnunarinnar seg-
ir, að 7/8 hlutar mannfjölg-
unarinnar næstu 35 árin muni
eiga sér stað' í þróunarlöndum
Asfu, Afríku og Suður-Amer-
íku. Ekkert þróunarlandanna
hefur enn getað dregið veru-
lega úr mannfjölguninni.
Samkvæmt skýrslu stofnun-
arinnar, fæddust 125 milljónir
barna í fyrra, og á sama tíma
létust 60 milljónir manna. Það
þýðir tvær fæðingar fyrir hvert
dauðsfall. Á eftirstríðsárunum
hefur dauðsföllum farið hlut-
fallslega mjög fækkandi. Sam
einuðu þjóðirnar telja, að fyr-
ir síðari heimsstyrjöldina hafi
verið 26 dauðsföll á hverja þús
und íbúa í heiminum, árið
1955 var talan 19 pr. þúsund
og nú er talan orðin 16 pr.
þúsund.