Tíminn - 08.03.1966, Side 7

Tíminn - 08.03.1966, Side 7
ÞRIÐJUÐAGUK. 8 marz 1966. 7 TÍMINN Akvæöin um aðild ríkisins aö haf nargeröum m jög úrelt Sfö þingmenn Framsóknarflokksins bera fram frumvarp um aukinn stuðning og ýmis nýmæli. Frumvarp Framsóknarmann- anna sjö, Gísla Guðmundssonar, Jóns Skaftasonar, Halldórs E. Sigurðssonar, Sigurvins Einars- sonar, Halldórs Ásgrímssonar, Bjöms Pálssonar og Ágústs Þor valdssonar um ríkisframlag til hafnargerða og lendingarbóta, var til fyrstu umræðu í neðri deild í gær, og hafði Gísli Guð- mundsson framsögu. Erumvarpið gerir, eins og áður hefur verið skýrt frá, ráð fyrir, að hafnar- og lendingarbóta- stöðvum verði skipt í þrjá flokka A, B, og C eftir fjárhagsaðstöðu til þess að koma upp undirstöðu- mannvirkjum, og ríkisframlag við það miðað, 50% af kostnaði A-hafn 60% af B-höfnum og 70% af C-höfn um. Einnig skal ríkissjóði heimilt að ábyrgjast lán til greiðslu hluta af byggingarkostnaði. Gísli Guðmundsson sagði, að frumvarpið hefði nýmæli að flytja, bæði um flokkun hafn- anna, hækkun ríkisframlagsins og aðstoð við hafnargerðir sam- kvæmt tveggja ára áætlun. Gisli minnti á aðstöðu þjóðar innar á eylandi, sem hlyti að gera hana að siglingaþjóð, og ætla mætti, að hún yrði það í vaxandi mæli. Hin tiltölulega mikla utan ríkisverzlun styddi einnig þá þró- un. Sjósókn á auðug fiskimið við strendur landsins yrði ávallt mjög mikil, ef við bærum giftu til að vernda fiskistofnana. Nútíma sigl- inga- og fiskveiðiþjóð þyrfti góð- ar hafnir og hér á landi yrðu þær að vera af mönnum gerðar. Þar þyrfti afgreiðslubryggjur, hafn- arbakka, bátakvíar og önnur mannvirki. Hafnargerðir væru eins nauðsynlegar og vegalagn- ing og rafvæðing. Góðar hafnir hefðu ekki aðeins haglega þýðingil, heldur ykju mjög ör- yggi fyrir skip og menn. Gísli rakti síðan nokkuð fyrstu tilraunir til hafnargerða og lend- ingarbóta hér á landi. Fyrst hefðu einstaklingar og fyrirtæki verið að verki, en hafnargerðir bæjar- og sveitarfélaga væru verk síðari tima. Margir þeirra, sem nú væru miðaldra, væru aldir upp við notk un uppskipunarbáta en bygging Reykjavíkurhafnar á árunum 1914 -17 markaði þáttaskil í þess- um málum, og fyrir rúmlega 50 árum hefði Alþingi ákveðið að láta hefja undirbúning almennra hafnargerða hér á landi, og gert um það merka ályktun á öðru ári fyrri heimsstyrjaldarinnar. Unnu erlendir og innlendir verk- fræðingar síðan að því næstu ár að gera áætlanir um hafnargerðir og upp úr 1918 má telja, að hafn arframkvæmdir á vegum ríkisins hefjist hér á landi. Var lengi fram an af unnið að þessu eftir lögum, sem Alþingi setti um hverja höfn eða lendingarbót, er ríkið styrkti, og þá ákveðið í hvert sinn, hvort ríkið legði fram þriðjung, helm ing eða tvo fimmtu kostnaðar. Ár ið ’46 voru í gildi 24 slik hafnar- lög, sagði Gísli, og önnur 24 um lendingarbætur, en það ár voru sett ný og almenn hafnargerðar lög og öll hin eldri lög felld inn í þau. Síðan hefur þessum lögum verið breytt nokkrum sinnum og bætt við nýjum stöðum. í lögum þessum, eins og þau eru nú, eru taldir 35 hafnarstaðir og 78 lend- Gísli Guðmundsson ingarbótastaðir. Vmsir þessara staða hafa þó lítið eða ekkert rík- isfé fengið og framkvæmdir þar varla fyrirhugaðar fyrst um sinn, en talið er, að á 60-70. hafnarstöð um sé að jafnaði eitthvað unnið a.m.k. öðru hverju, og þessa staði kvaðst Gísli fyrst og frern^t hafa í huga, þegar hann ræddi um þessi mál. i Samkvæmt gildandi lögum legg' ur ríkissjóður fram 40% af kostn aði við hafnargerðir og 50% af kostnaði við lendingarbætur, en auk þess er heimild til ríkis- ábyrgðar fyrir lánum allt að því sem á vantar og hefur sú heimild mikið verið notuð. Þótt mikið hefði verið unnið að hafnarbótum hér á landi, á liðn um árum, væri þó meira ógert, og og margt hefði orðið dýrara en þurfti, ef fjárráð hefðu verið meiri og tækni betri og leiðbein- andi hendur nær, en raun hefur oft á orðið. Mikill hluti hafnár gerðanna hefði verið unninn fyrir lánsfé, sem sveitarstjórnir hefðu dregið saman með ærnu erfiði, en ríkið oft og einatt ekki staðið í skilum með heitin framlög nema að nokkru leyti á réttum tíma. Það hefði og komið í ljós, að tekjur hafnanna í smíðum eru yf- irleitt fjarri því að standa undir 60% af byggingakostnaði, sem ríkið greiðir ekki, og langt er síðan greiðslur og vextir af lán- um hafnanna tóku að falla á ríkis- sjóð að meira eða minna leyti. Gísli sagði, að á árinu 1958 hefði alþingismönnum og fyrir svarsmönnum hafna verið orðið ljóst, að lögin frá 1946 voru að verða úrelt og nauðsynlegt að rík ið bæri meiri hluta bygging arkostnaðar. Höfðu þá einnig ver- ið sett sérstök lög um landshafn ir, sem gerðar eru að öllu leyti á ríkiskostnað. Alþingi álykt- aði þá að fela ríkisstjórninni að endurskoða lagaákvæði um skipt ingu hafnargerðarkostnaðar milli ríkis og sveitarfélaga, og ennfremur að láta gera 10 ára áætlun um nauðsynlegustu hafn- arframkvæmdir á landinu, og var atvinnutækjanefnd falið að vinna þetta verk í samráði við vita- málastjóra. Skilyrði til starfsins voru erfið, en tilraun var þó gerð og mun hún hafa komið að ein- hverju gagni. Nefndin sagði í skýrslu sinni, að áætlunin væri aðeins tilraun til þess að gera grein fyrir verkefnum kom andi ára. Jafnframt gerði nefndin ýtarlega athugun á gildandi hafnargerðarákvæðum og af- henti samgöngumálaráðuneyt- inu frumvarp til laga ásamt grein argerð haustið 1961. En frum- varp þetta hefur aldrei verið lagt fram eða birt. Þótt Alþingi teldi það nauðsynlegt fyrir átta árum að breyta lögum þessum, þá hefur sú nauðsyii ekki rekið fastar á eftir þeim en þetta. Við, sem stöndum að frumvarpi j því, sem nú er lagt fram, teljum I að málið þoli alls ekki lengri bið, j sagði Gísli. Á undanförnum ár- í um höfum við flutt tillögur um hækkun ríkisframlaga til hafnar gerða, en þær hafa ekki borið I árangur. Við viljum því gera eina tilraun enn og berum því fram nýjar tillögur með nokkuð öðru sniði en áður, Jafnframt leggjum við til, að Alþingi taki upp ný vinnubrögð í áætlunargerð og geri ráð fyrir staðgreiðslu á ríkisframlagi og tryggð verði á skömmum tíma greiðsla ógreiddra framlaga. Síðan gerði Gísli grein fyrir þeim breytingum, sem frumvarp ið felur í sér, flokkaskiptingunni og hækkandi ríkisframlögum en lækkandi ábyrgðarheimildum í samræmi við það. Hann gerði og grein fyrir nýmælum um tveggja ára áætlanir og öflun fram- kvæmdafjár í samræmi við hana, svo og því, að lögfest verði, að ríkið greiði framlag sitt að fullu ár hvert og bundinn endir á það ástand, að hafnarsjóðir eigi fram- kvæmdafé inni hjá ríkinu árum saman. Gísli minnti að lokum á það, að íslendingar ættu nú rúm lega 900 vélknúin þilskip, en auk þess rúmlega 1300 opna vélbáta. Ekkert lát mætti verða á hafnar gerðum víðs vegar um land, og byggðin væri víða undlr því kom- in. Þjóðfélaginu í heild bæri að tryggja þá þróun, sem hér þyrfti að eiga sér stað. Gísíi sagði, að flutningsmönnum hefði ekki þótt rétt að svo stöddu að leggja til, að allar hafnir yrðu landshafnir, en það mál þyrfti meiri athugunar við. Ekki vildi hann heldur full- yrða, að þetta frumvarp næði alveg þeim tilgangi, sem hafður væri í huga, en það ætti að ná langt til réttrar áttar. Frumvarpinu var síðan vísað til nefndar og annarrar umræðu. EYJAFLUG með HELGAFELLI NJÓTia ÞÉR ÚTSÝNIS, FLJÓTRA OG ÁNÆGJULEGRA FLUGFERÐA. AFGREIÐSLURNAR OPNAR ALLA DAGA. SÍMAR: ____ VESTMANNAEYJUM 1202 REYKJAVÍKURFLUGVELLI 22120 SPESIALFABRIKK I NORGE for puffed Hvete — Ris — Havre og Kvikk-Ris (hurtigkokende ris) söker forbinnelse med agent- firma som er godt innarbeídet hos Kolonialgross- ister. BRÖDRENE AARESTAD, Stavanger, Norge. NY VERZLUN Eitthvað fyrir alla í undirfatnaði. Einnig smávörur. snyrtivörur og fleira. Gjörið svo vel að líta inn. Verzlunin SILA Bændahöllinni, sími 1 59 85. KONI STILLANLEGU HÖGGDEYFARNIR Ábvrgð 30.00». km akstur eða * ár — IC ára reynsla á islenzkum wegum sannar gæðin. ERu I REYNDINNI ÓDÝR- USTU HÖGGDEYFARNIR SMYRILL Laugav )70 <ími 1-22-60. LOGTAKSURSKURÐUR Samkvæmt krötu bæjargjaidkerans í Hafnarfirði fyrir hönd bæiarsjóðs Hafnarfjarðar úrskurðast hér með lögtök fyrir gjaldföllnum en ógreiddum fyrirframgreiðslum upp í útsvör ársins 1966 og fasteignagjalda sama árs. Fer lögtak fram á áb>Tgð oæjarsióðs en á kostnað gjaldenda að liðnum 8 dögum frá birtingu úr- skurðar þessa, ef ekki verða gerð skil fyrir þann tíma. HafnarfirSi 5. marz 1966, Bæjarfógetinn 5 Hafnarfirði,

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.