Tíminn - 08.03.1966, Síða 16

Tíminn - 08.03.1966, Síða 16
55. tW. — Þriðjudagur 8. marz 1966 — 50. árg NIÐURGREIÐSL- URNAR MINNKA AK—Reykjavík, mánudag. Rákisstjómin hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um 25 aura verðbót á línu- og handfærafiski á þessu ári, og að leggja 50 millj. kr. til framleiðniaukningar frysti húsa. f atihugasemdum við frum- varpið segir ríkisstjórnin, að „greiðslur þær, sem gert sé ráð ftrir í frumvarpinu muni baka rikissjóði útgjöld, að upphæð um 80 milíj. kr., sem ekki sé gert ráð fyrir í f járlögum . . . Hér sé um verulegt fjárhagslegt vandamál að ræða. Ríkisstjómin telji ekki rétt að hækka skaitita í því skyni Aðalfundur Neyt- endasamtakanna Aðalfundur Neytendasamtakanna verður haldinn miðvikudaginn 9. marz í Lindarbæ og hefst kl. 20.30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfund arstörf, lagabreytingar og önnur mál. Félagar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn. Sýna skal fé- lagsskírteini við innganginn. að standa straum af þessum greiðslum, og ekki telji hún held ur rétt að draga úr verklegum framkvæmdum þeirra vegna. Er því fyrirhugað að lækka niður- greiðslur á vöruverði.“ Þær niðurgreiðslur, liklega á fisld og smjörlíki, sem hér er rætt um að fella niður munu nema um 4 vísitölustigum. Vöruskortur gerir nú vurt við sig í uppsveitum NorBuriunds GÞE—Reykjavík, mánudag. Ástandið er heldur að batna nyrðra, hvað færð snertir, þótt það sé övergi nærri gott og sums staðar afleitt. Víða í uppsveitum 'er skortur á ýmsum nauðsynjum .d. olíu farinn að gera töluvert vart við sig, en mestallar samgöngur á landi fara enn fram á dráttar- Frumsóknurvistin Framsóknarvist Framsókn- arfélaganna í Reykjavík verð ur spiluð í Súlnasal Hótel Sögu fimmtudaginn 10. marz n.k. Þetta er fjórða kvöldið í fimm kvölda keppninni, sem nú stendur yfir, en að henni lok- inni verða veitt glæsileg heild arverðlaun. Auk þess eru veitt verðlaun eftir hvert kvöld. Kristján Beneditotsson, borg arfulltrúi, flytur ávarp kvölds- ins. Stefán Jónsson, söngkenn- ari, stjórnar almennum söng, og hljómsveit Ragnars Bjarna sonar leikur fyrir dansi til klukkan eitt eftir miðnætti. Stjómandi vistarinnar er Mark ús Stefánsson. Aðgöngumiðapantanir eru á skrifstofu Framsóknarflokks- Framhald á 14. síðu. vélum og ýtum og vitanlega er takmarkað, hvað hægt er að flytja með þeim fararkosti. Það vill svo vel til, að bændur norðan Iands eru flestir vel heyjaðir, því að víðas* hvar er gjörsamlega hag laust og allt té á gjöf. í síðustu viku geisuðu stórhríð- ar víða fyrir norðan, einkum í Þingeyjarsýslum og einnig notok 'uð í Eyjafjarðarsýslu. Fyrir helgi j ina var þar hins vegar frpstlaust | og snjói hafði sigið, svo að snjö I bílar og stórir trukkar voru farn i ir að brjótast um svæði, sem áð- i ur voru þeim algerlega ófær. Um! helgina kyngdi hins vegar niður snjó, og aftur er orðið þungfært fyrir stóra bíla a ýmsum vegum, Vatnið orðið nóg KT—Reykjavík, mánudag. Vatnsleysi það, sem herjað hef ur á bændur á Suðurlandsundir lendi að undanförnu, er nú í rén um og víðast hvar úr sögunni. Er Tíminn hafði samband við notokra fréttaritara sína í dag, kom það í ljós, að ástandið er að verða eðlilegt aftur. Rigningar þær, sem komið hafa undanfarna daga, hafa gert það að verkum, að flestir, ef ekki all- ir á áðumefndu svæði, hafa nú nóg vatn. svo sem veginum milli Dalvíkur og Akureyrar, en hann var nokk urn veginn fær fyrir helgi, eftir að hafa verið lokaður talsvert lengi. Viða á Norðurlandi hafa dráttarvélar venð aðalsamgöngu tækin 'um alilanga hríð, og það er eklki laust við, að bændum finn ist þessar samgöngur dýrar, en ekkert þýðir um það að fást. í Skagafjarðarsýslu hefur víða verið fært stórum bílum að und anförriu, einkum framan til í hér aðinu, en hins vegar hefur verið afar snjóþungt í Óslandshlíð, Fljót Framhald á 14. síðu. LANDSVERKFALL VERZLMANNA Á MÁNUDAGINN? EJ—Reykjavík, mánudag. Flésx félög verzlunarmanna um land allt hafa boðað verkfall frá og með 14. marz, að því er Sverr ir Hermannsson tjáði blaðinu í dag. Mun landsvcrkfall því hefj ast þann dag, ef ekki hefur sam izt fyrir þann tíma. Sáttafundur var í kvöld í kjara deilu verzlunarmanna. Hófst hann kl. 20.30, og var ólokið, þegar blaðið fór í prentun. AKRANES Framsóknarfélag Akraness heldur fund í Framsókn arhúsinu Akra- nesi miðvikudag inn 9. marz kl. 8,30 siðdegis. Steingrímur Her mannsson verk- ________________ fræðingur ræðir um nýjar atvinnugreinar. Allt stuðningsfólk Framsóknarflokksins er velkomið meðan húsrúm leyfir. KAUP- MENN Á VERÐINUM Um hálf-fimm leytið á laugardaginn var verzlunin Ömólfur á Njálsgötu 86 enn opin, þegar ljósmynd- ari Tímans GE ók þar fram hja. Það vakti athygli hans að inni í verzluninni voru auk kaupmannanna tveir lögregluþjónar, en fyrir framan dyrnar stóð hópur manna, er varnaði kaupend um inngöngu. í ljós kom, að þetta var verkfallsnefnd kaupmanna, er hindraði al menningi í verzlunarerind um inngöngu. Lögregln- þjónarnir voru reiðubúnir að stöðva hvera þann, er inn kynni að laumast — og varpa honum út aftur. Virðist sem lögregluþjón ar séu hættir að setja inn- sigli á dyrnar í Örnólfi, þar sem það er brotið jafnharð an. RÚSSAR KAUPA YFIR 10 ÞÚSUND T0NN AF FISKI Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna ag Sjávarafurðadeild SÍS undirrit uðu í Reykjavik 5. marz s.l. samn- ing við sovézku verzlunarstofnun- ina „Prodintorg" um sölu á 8000 tonnum af frystum fiskflökum og 2200 tonnum af heilfrystum smáfiski. Samningaviðræður höfðu staðið yfir milli aðila frá því í nóvember s.l. Um nokkra verðhæktoun var að ræða frá fyrri samningi Framangreindar sölur ná til hluta af því magni, sem gert er ráð fyrir, að unnt 'sé að selja til Sovétríkjanna sa.nkvæmt gildandi verzlunarsamningi, og er fyrirhug að, að samningaviðræður um sölu á viðbótarmagni af ofangreindum afurðum svo og heilfrystri síld hefjist í júlí n.k. islendingar léku tvo landsleiki í handknattleik gegn heimsmeisturunum frá Rúmeníu um helgina. Báðir leikirnir fóru fram í íþróttahöllinni í Laugardal og unnu Rúmenar fyrri leikinn 23:17, en síðari leikinn með aðeins eins marks mun, 16:15. — Myndin hér að ofan er frá fyrri leiknum og sést Stefán Jónsson í færi á línu. Lengst til vinstri klemma Rúmenar Gunnlaug Hjálmarsson á mllli sín, en hans var gætt allan tímann. Hörður Kristinsson til hægri fyigist með. — Sjá frásögn um leikina á íþróttasiðu, bls. 13.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.