Tíminn - 10.05.1966, Page 1

Tíminn - 10.05.1966, Page 1
104. tbl. — Þriðjudagur 10. maí 1966 — 50. árg. Hamrafell á heimleið Eins og fram hefir komið í fréttum að undanförnu blandaðist fanmur í olíuflutningaskipinu „INGA“, sem kom með benzín og gasolíu frá Rússlandi. Tjónið mua vera milli 2 og 3 milljónir króna. EMd er hætta á að til olíusfcorts koimi af þessum sökum. Benzín og gasolía er væntanlegt fljótlega með öðrum skipum. „HamrafeH’1 kemur með fullfermi af gasolíu þann 12. maí frá Rúmeníu. Eigendum skipsins tókst að ná samningi við rúmensk stjórnarvöld um flutning þessa farms og þar af leiðandi kemur það til íslands að þessu sinni. i í Bands- prófinu Skrifleg próf í landsprófi á þessu vori hófust í qær með því að nemendur spreyttu sig á að ieysa verk efni úr leslnni islenzku. Nú munu um 850 ungllngar um land allt þreyta landspróf, en I fyrra voru þeir 825. Í Reykjavík einnl taka 300 unglingar, eða þar um bil prófið, og myndin hér með var tektn í Hagaskólanum i gærmorgun. f dag skrifa landsprófsnemendur íslenzka ritgerð, en öllum prófunum -'erður lokið 27 mal n. k. (Tímamynd GE) SOmillj. kr. irerð- Þarna átti að úthluta lóðum í janúar. Ekkl er búið að úthluta enn, enda sést á þessari mynd úr Fossvogsdalnum, að litið miðar undirbúnings- vlnnunni. • (Tímamynd GE) Þetta eru efndirnar í léðamálum borgarinnar TK—Reykjavík, mánudag. >að er ekki ofsögum sagt af lóðaliungrinu í Reykjavfk. Á þriðja þúsund umsóknir bárust um lóðijéfer í Fossvoginum og Breið- holti, sem eiga að verða ti| úthlut unar næst, hvenær sem það verð ur. Samkvæmt ítrekuðum loforð- um átti að úthluta þessum lóðum í janúar s.l., en nú hefur verið á- kveðið að fresta úthlutuninni fram yfir kosningar. Borgarstjórnar- meirihlutanum finnst þægilegra að geta gefið öllum þeim, sem um hafa sótt, góðar vonir um úthlut- uu, því að ljóst er, að aðeins hluti þeirra, sem hafa sótt, verður svo heppinn að fá úthlutað lóð, og þeim finnst skemmtilegra að svíkja hina eftir kosningar. Út af fyrir sig sakar ekki mikið, þótt út hlutunin sjálf dragist eitthvað eins og allt er nú í pottinn búið, því að undirbúningsvinna við bygg ingarsvæðin hefur verið látin sitja á hakanum og er rétt að hefj ast 'fyrst núna, — og Ijóst er nú að þær lóðir, sein úthlutað verður á þessu ári, verða varla byggingar hæfar fyrr en á næsta ári. Það hefur verið byggt alltof lít- ið í Reykjavik á undanförnum ár- um. Hjálpast þar að dýrtíðin og hinn illræmdi lóðaskortur \ borg- inni. Fjöldi fólks hefur neyðzt til að flytja úr borginni vegna þess að það hefur ekki fengið byggmga- lóðir og eru byggðirnar í Garða- hreppi, Seltjarnarnesi og Kópa- vogi gleggstur vottur um það. Lóðahungur er nú líklega meira í Reykjavík en nokkru sinni fyrr, þrátt fyrir flotta húsbyggjenda úr borginni. Skv: áætlunum borgar- hagfræðings frá 1962 þarf að byggja um 700 íbúðir í Reykjavík árlega. Þeirri tölu hefur hvergi nærri verið náð á undanförnum árum, og auðvitað bætist van- ræksla hvers árs yfir á þau næstu, svo að þörfin fer stórvaxandi með hverju ári, og vanrækslusyndirnar hlaðast upp. Árið 1962 var lokið við bygg- ingu 598 íbúða í Reykjavík, árið 1963 urðu þær 665, 1964 576 og 1965 624. Ljóst er, að lokið verð- ur við enn færri íbúðir á þessu ári en undanfarin ár vegna þess að aðeins var úthlutað lóðum und ir um 400 íbúðir í fyrra. Það var að sjálfsögðu óþarfi að taka það fram, að meirihlutinn hefur haft það klassjska mottó fyr ir skrumi bláu bókarinnar í hverj um borgarstjórnarkosningum að séð verði svo um, að jafnan séu fyrir hendi nægjanlegar bygginga- lóðir. Það mun efalaust ekki Framhald a 14 siðu bréfalán EJ—Reykjavík, mánudag. 6. maí voru staðfest lög, sem heimiluðu ríkisstjórninni að taka innlent lán allt að 100 milljónum króna. Fjármálaráðherra hefur ákveðið að nota þessa heimild með útgáfu verðbréfaláns að fjár hæð 50 millj. kr. Verða skulda- bréf lánsins í formi spariskírteina með sama sniði og spariskírteini ríkissjóðs, sem gefin voru út á árunum 1964 og 1965. Sala skír teinanna hefst miðvikudaginn 11. maí, og verða þau fáanleg hjá bönkum, bankaútibúum, spari- sjóðum og nokkrum verðbréfasöl um í Reykjavík. Skilmálar hinna nýju skírteina, sem eru alveg þeir sömu og spari skírteinana,, sem gefin voru út á s. 1. ári, eru í aðalatriðum þess ir: 1) Verðtrygging: Þegar sfcirtein in eru innleyst endurgreiðist höfuð stóll þeirra og vextir með fullri vísitöluuppbót, sem miðast við hækkun byggingarvísitölu frá út gáfudegi til innlausnargjalddaga. Þetta gefur skírteinunum sama öryggi gegn hugsanlegum verð- hækkunum og um fasteign væri að ræða. 2) Skírteini eru innleysanleg eftir þrjú ár. Hvenær sem er eftir þrjú ár, getur eigandi skírteinanna fengið þau innleyst með áföllnini vöxtum og verðuppbót. Það spari fé, sem í dkírteinin er lagt, verð því aðeins bundið til skamms tíma, ef eigandinn skyldi þurfa á því að halda. Auk þess er hægt að skipta stærri bréfastærðunum í minni bréf við Seðlabanfcann. Getur það Framhald á 2. síðu. ----------------------------1 i Gerizt iskrifendur aö Tímanum. Hringrö í sima 12323. AUglýsing 1 Tímanum kemur daglega fyrir augu 80-^100 þúsund lesenda

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.