Tíminn - 22.05.1966, Blaðsíða 3
SUNTVCÐAGUR 22. maí 1966
_ TÍMINN
í SPEGLITÍMANS
Sænsk-ameríska leikkonan
Ann Margaret á
vonandi meira en 6 milljónir
króna í bankabókinni sinni,
því þá upphæð verður hún
nefnilega að borga til þess að
losna við að leika hlut-
verk, sem hún óskar ekki eftir
að leika. Það getur nefnilega
eyðilagt starf mitt, segir hún.
Kvikmynd sú, sem þetta hlut
verk er í heitir Wildcat og er
þannig að Ann Margret vill
alls ekki leika í henni. Hún
treysti algjörlega á umboðs
mann sinn og kynnti sér ekki
sjálf hlutverkin í kvikmyndun-
um.
— Nú trúi ég ekki á nokkra
manneskju í Hollyvood fram-
ar, segir Ann Margaret.
Eins og sagt hefur verið frá
hér á síðunni, var leikkonan
Hedy Lamarr tekin höndum og
ákærð fyrir að hafa stolið vör
um í verzlun i Los Angeles.
Hinn 22. apríl síðastliðinn var
hún sýknuð af þeirri ákæru O'g
nú hefur hún stefnt forsvars-
mönnum verzlunarinnar og
fer fram á 5 milljón dollara
skaðabætur fyrir það að hafa
verið tekin föst og ákærð. Þeg
ar hún var tekin föst var hún
með vörur í tösku sinni fyrir
samtals 86 dollara, en sakir
fullyrðinga verjanda hennar
um það, að hún hafi gert þetta
sökum þess, hve hún var utan
við sig af fjármálaáhyggjum
og öðrum sorgum var hún sýkn
uð.
Ensk kona að nafni Dorothy
Kendall, sem hefur borið út
póst í Southwell í Englandi í
meira en 20 ár, var nýlega
heiðruð í enska hundablaðinu
Dog World. Ástæðan til þess
var sú, að í þessi tuttugu ár,
sem Dorothy Kendall hefur bor
ið út póst hefur enginn hund-
ur í-pósthverfinu bitið hana.
Hins vegar biðu hundarnir á-
kafir eftir komu hennar, þvi
að hún hafði alltaf með sér
vænan bita í poka handa þeim.
Dagblaðið Daily Mirror hef-
ur nú -tekið upp nýjan þátt í
blaði sínu og þykir sá þáttur
vera heldur grátt gaman. Blað
ið hefur nefnilega tekið upp á
því að birta minningargreinar
um fólk, sem enn er í fullu
fjöri, og hófst hann á grein um
Philip prins, hertoga af Edin
borg, eiginmann Elísabetar
Englandsdrottningar. í grein-
tnni segir meðal annars:
Lát hans hefur orsakað mik
inn harm í brjósti þjóðarinnar
hann var útlendingur, en hann
hafði laðað okkur að sér eins
og Maurice Chevalier eða Marx
bræður og átti stóran hlut í
hjörtum okkar.
Að vera eiginmaður Eng-
landsdrottningar á seinni hluta
20. aldar hefði ekki verið auð
velt, ef hann hefði kunnað sig.
En það væri rangt að segja,
að „starf“ hans hafi ekki ver-
ig árangursríkt. Það var ekki
verið að horfa í það að greiða
honum 40.000 pund á ári.
*
Astor fjölskyldan í Bretlandi
kveður nú fyrir fullt og allt
höll sina Cliveden v. ána Tham
es. Höll þessi hefur nú árum
saman verið nokkurs konar s»m
komustaður frægra manna. Það
var í Cleveden höllinni sem
„Cliveden-klíkan'* safnaðist
saman á stríðsárunum til þess
að lýsa andúð sinni á Hitler
og það var við sundlaug Astor
lávarðs, sem John Profumo
hitti Christine Keeler í fyrsta
sinn. Höllin hefur ekki verið
í eigu Astor-ættarinnar síðan
1942, en þá gaf hún ríkinu höll
ina til þess að losna við erfða-
skatt. Síðan þá hefur Astor-
fjölskyldan einungis búið þar
sem leigjendur.
¥
Skjaldbakan Tuimalila, sem
þýðir kóngurinn í Malila er
nú nýdauð 192 ára að aldri.
James Cook landkönnuðurinn
brezki gaf kónginum af Tonga
þessa skjaldböku að gjöf árið
1777 og síðan hefur hún hald-
ið til í þessari paradís Kyrra-
hafsins. íbúar Tonga sýndu
Tuimalila mikla virðingu og
litu á hana sem höfðingja.
Þessi lögulega stúlka er ung
frú Ástralía 1965. Sem verð
laun fyrir að bera sigur úr být
um í fegurðarsamkeppni í
Ástralíu fékk hún
ferð umhverfis hnöttinn. Hún
hafði auðvitað smádvöl í París
og er þessi mynd tekin, þegar
hún fór í heimsókn í sauðfjár-
ræktarbú rétt utan við París
og.er hún með eitt lambið í
fanginu.
★
Fyrir skömmu komu samtím-
is út tölur um bifreiðastuldi
í París og London. Sýna tölur
þessar að árið 1964 hafi verið
stolið 5390 bifreiðum í Lon-
don en 1965 hafi verið stolið
7284 bifreiðum. Hins vegar
verður bifreiðaþjófum betur
ágengt í Parísarborg því árið
1965 var stolið 19.208 bifreið-
um eða um það bil fimm sinn-
um fleiri en í London, ef
íbúatalan er tekin með í reikn
inginn. Parisarbúum til afsök-
anar er þó hægt að segja það,
að 16.711 bifreiðum var skilað
aftur til réttra eigenda.
Þær virðast hafa eitthvað
mikið að tala um þessar tvær
og það er ekkert mjög ólík-
legt því að þær eru nýbúnar
að leika saman í kvikmynd, eru
báðar á kvikmyndahátíðinni í
Söngkonan Maria Callas hef tekin í París, en þar býr hún
ur lítið verið í fréttunum und
anfarið. Þó er hún alltaf á ferð
og flugi um heiminn og hér
birtist mynd af henni, sem var
um þessar mundir. Myndin var
tekin á Orly flugvellinum í Par
ís og er söngkonan að leggja
upp til Genfar.
Cannes og eru þar þær kon- Chaplin og Sophia Loren og
ur sem mest er rætt og ritað þær virðast njóta líðandi ktund-
um. Þetta eru þær Geraldine ar.