Tíminn - 28.05.1966, Blaðsíða 3

Tíminn - 28.05.1966, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 28. maí 1966 f TÍMINN _____________________ ■■MHiiinnnBHBMMnMnMnHBflBnMní I INPÆIU STRIDI Tíminn brá sér nýlega á æfingu í Þjóðleikhúsinu, þar sem verið er að búa leikritið Ó, þetta er indælt stríð, til sýningar. Óefað munu vera deildar mein- ingar um, hversu indælt stríðið 1914—18 var, en séð í ljósi þeirrar sérstæðu söguskoðunar, sem um það bil er að sjá dagsins ljós í Þjóðleikhúsinu, þá er enginn vafi á því, að margt skoplegt og sumt indælt hefur hent á þeim árum. Auðvitað er þarna um einbert háð að ræða, sprottið upp í Bretlandi, þar sem stríð hefur lengst af verið hetjubarátta og vígvalladauði hetjudauði. Það kemur því kannski úr hörðustu átt, þegar svona grín berst út um heims- byggðina frá gamla heims veldinu. Annars kemur manni í hug, að mikið eigi sú þjóð gott, sem geti narrast á fínlegan hátt að hálfheil- ögum hlutum. Ýmsir hafa orðið til að skilgreina stríð, og margt, sem kem- ur fram í þessu leikriti, kemur engum á óvart. Samt var sá munur á stríð inu 1914^Í8, og heims- styrjöldinni síðari, að fyrra stríðið var hvergi nærri algjört 1 þeim mæli, að um útrýmingarstríð væri að ræða. Miðað við síðari heimsstyrjöldina var stríðið 1914-18 bókstaf lega rómantískt stríð. Þetta kemur m. a. fram í öllu gríninu í leikritinu, sem er þó nokkuð grátt á köflum. Myndirnar hér á síðunni voru teknar meðan stóð á æfingu á leikritinu. Þær segja sína sögu að nokkru leyti, en um svona verk gildir það, að ekk; verður sagt frá því, né verður það sýnt í myndum. Fólk verð ur að fara og sjá það. (Tímamynd B. B.) Palmer leikstjóri og þýSandl I heimsókn ivX-tf&Wííi ................. *■ ■ ■ ■ ■" j? \ i „Kvíddu ekki neinu þína byrði ber/ með bros á vör" Lanrezac og sir John iFrench krossast og kyssast. liilii. V • nvj ■ Gamla Þýzkaland með bakið beint.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.