Tíminn - 28.05.1966, Page 7

Tíminn - 28.05.1966, Page 7
IAOGARDAGTJR 28. maí 1966 ar aö byggja svo aö ekki veitir stf. — Já, það er nauðsynlegt að leggja að sér, ef maður ætlar að byggja yfir sig, næturvarzl- an er ágætt aukastarf, rólegt og þægilegt. Ég er á vakt tvær helgar í mánuði og svo leysi ég næturvörðinn af í frium og þegar hann er veikur. — Er ekki dálítið einmana- legt að hírast þarna um helg- ar, þegar ungt fólk er yfirleitt að skemmta sér? — Ekki finn ég mikið fyrir því. Ég á frí tvær helgar í mánuði og get þá skemmt mér, ef mig langar til, en ég er ekki mikið gefinn fyrir það Haraldur Haraldsson sem stendur, maður er heldur ekki að vinna svona mikið til að eyða peningunum í skemmt- anir. — Hvað er það, sem aðal- lega þartf að gæta þarna vestur frá? — í»að er bæði bíóið og svo útibú Landsbankans. Það er nú reyndar ekki fyrir amatöra, að gera innbrot þar, því að allt fémætt er geymt í rammbyggð- um peningaskáp. Það vildi þó koma fyrir, áður en byrjað var að hafa næturvörzlu þama að fólk brytist inn. en ég held að það hafi ekki haft neitt upp úr krafsinu, og eftir að ég byrj aði hefur slíkt aldrei. komið fyrir. — Er nokkuð fémætt í bió- inu? — Nei, nei, þar er ekkert geymt nema sælgæti, en næt- urvörðurinn þaitf að hafa um- stjón með því að allir bíógest- ir hafi horfið á brott út hús- inu, og eins að gæta þess, að hvergi leynist eldur, en fóik fer oft gáleysislega með eld. Ég þarf að sópa andyrið fyrst á vaktinni, og hef svo frjabar hendur það sem eftir er nætur. Þá gríp ég venjulega í bók, legg kapal eða finn mér eitt- hvað annað til dundurs. Um helgar verð ég oft áhorfandi að ýmsu skemmtilegu, þ.e.a.s , þeg- ar fólkið kemur út af Sögu. Það hefur í frammi gífurleg háreisti, hróp og köll, og tekur ekkert tillit til þess að petta er hótel og gestirnir þurfa svefnfrið. — Reynir þetta fólk aldrei að koma í heimsókn til þin? — Nei, það hefur ekki kom- ið fyrir ennþá, en það er aldr- ei að vita upp á hverju folk tekur, þegar það hefur drukk- ið of mikið. Ég hef verið biess- unarlega laus við alla áreitni fram til þessa, nema einu smm, þegar piltungur nokkur reyndi að stela bílnum mínum, sem ^t.óð þarna fyirir utan. Mér þótti nú hálf lítilíjörlegt af honum að vera að þessu rétt fyrir framan nefnið á mér, kall aði til hans og þá tók kapp- inn á rás eins fljótt og fætur toguðu. Annars hefur lítið frá- sagnarvert komið fyrir í starf- iniu. — Og þú kannt sem sagt ágætlega við þig? — Já, alveg tvímælalaust, og þetta er fremur vel borgarð. Það hafa allir not fyrir auka- tekjur, ég tala nú ekki um, ef fólk er að byggja og ætl- ar sér að eignast eitthvað. Það er líka skemmtilegast að hafa dálítið fyrir hlutunum, ég held að hamingjan sé fólgin í vinnu, en sé hvorki föl eða til láns. Hef hleypt inn tveim- ur konum, sem flúið höfðu heimili sín. — Hvaða foosti hefur nætur- varðarstarfið umfram önnur störf spyr ég Pétur Bjömsson, sem gegnt hefur næturvarðarstöðu á City Hó tel um 7 ára skeið. Hann bros ir lítið eitt, ef til vill vegna fávizkunnar í mér, en svarið vefst dálítið fyrir honum. Kannski er ekki til neitt ákveð ið svar við henni. Vitaskuld hefur næturvarðarstartfið kosti, og galla eins og önnur störf, en er ekki við allra hæfi. En Pétur kiann greinilega vel við sig í starfinu, enda mun hann elztur hótelvarða í bænum, bæði að aldri og starfsaldri. — Þetta er fjölbreytt starf og skemmtilegt, maður kynn- ist mörgu skemmtilegu fólki, og næturvinnan gerir það að verkum, að ég hef frjálsar hendur á daginn, þegar allir aðrir eru að vinna. Þegar ég hef fengið mér blund að loknu starfi, tek ég gjarnan í bílinn minn og ek eitthvað út úr bæn um. Maður er alltatf að upp- götva nýja og nýja fegurð í ná grenni Reykjavíkur. Það er samt nokkrum vandkvæðum bundið að snúa sólarhringnum svona við, svefninn vill oft verða útundan einkum á sumrin, þegar sólin skín og mann langar út í náttúruna. Annars þaxf ég ekki svo ýkja mikinn svefn. — Er næturvarðarstarfið ekki rólegt? — Ekki get ég nú sagt það. Þetta er mjög ábyrgðarmikið TÍMJNN lega ábyrgð á hóteBnu % hluta sólarhrings. Verkefnin eru l£ka næg, það er varla hægt að festa sig við að lesa bók smástund, því að alltaf er eitthvað, sem kallar að. City Hótel hefur þá sérstöðu, að þar er hægt að fá hressingu á nætumar, sé þess óskað. Þetta er mjög vel þeg ið af leigjendunum, og það er í mínum verkahring að atf greiða þessar næturpantanir. í svona starfi getur alltaf ertt- hvað komið fyrir. Gestur getur til að mynda farið fram á eitt hvað, sem hótelið leyfir ekki, og þá varð ég að taka í taum ana. Einnig verðum við fyrir talsvferðir ásókn af reykvísk- um næturhröfnum, sem þykj- ast vera utanbæjarmenn og vilja fá leigt Ef mér þykir fólkið eitthvað grunsamlegt legg ég fyrir það sakleysisleg ar og kænlegar spurningar, þar til hulunni er svipt af. Maður verður talsverður mannþekkj ari í svona starfi. — Er innanbæjarfólki al- gerlega bannað að fá inni? — Já, þannig er það yfir leitt á öllum hótelum, og frá þeirri reglu má ekki gera frá vik. Reyndar hef ég nú gert það tvisvar, en það var undir þannig kringumstæðum, að ég gat ekki sagt nei. Það var um að ræða konur, sem flúð höfðu heimilin og voru mjög miður sín. Annars er þetta algerlega bannað. — Vill það ef til vill koma fyrir, að fólk laumist út með pjönkur sínar um miðja nótt til að komast hjá því að borga. — Nei, það hefur aldrei komið fyrir hjá mér, enda eru viðskiptavinir okkar flestir af betra taginu, jafnt íslendingar sem útlendingar, og mikið er um fólk, sem leigir hjá okkur alltaf, þegar það kemur í bæ- inn og er orðið að nokkurs konar föstum viðskiptavinum. Útlendingastraumurinn er sí fellt að aukast, og ég hef kom izt í kynni við marga skemmti lega ferðamenn. En ég er far inn að reka mig á það, að við starfsfólkið á hótelunum, er- um alls ekki nægilega mennt- uð til að taka á móti útlend ingum I stórum stíl. Okkur brestur málakunnáttu og kunnum ekki nægilega mikið í umgengnisvenjum. Þetta þyrfti að breytast, ef vel ætti að vera, en með óbreyttum launakjörum, er eflaust erfitt að fá menntað fólk til að vinna starf. bví að maður ber eigin að hótelstörfum. I J9 BRÉF TIL BLAÐSINS Eru það aðeins þeir, sem ekki vilja kirkjur, sem biðja um sjúkrahús? Prestur einn, sem flutti út- varpsguðisþjónustu nú fyrir noidcru ræddi í prédikun sinni meðal ann ans um heilsufar þjóðarinnar, lengri meðalaldur o. s. frv. Kvað hann suma vilja byggja sjúkra- hús í kirfcna sitað, og þótt hann teldi iæknis- og hjúkrunarstörfin hin göfugustu og vegsamaði þau á allan hátt, þá komst hann svo að orði, ef ég man rétt, — að það lægi við, að sér fyndist óhugnan- legt, ef þjóðin yrði svo veikluð, að hún þyrfti á öllum þeim sjúkra húsum að halda, sem þeir bæðu um, sem efcki vilj.a kirkjur. — Eftir orðanna hljóðan verður ekki annað séð, en að þeir, sem mestan og beztan áhuga hafa á sjúkrahússbyggingum, séu mót fallnir kirkjubyggingum. Ber ef til vill að slkilja þetta svo, að sjúkrahús og kirkjur séu andstæð ur, og að þeir einir, sem efcfci vilja kirkjur biðji um sjúfcrahús — og að þeir, sem biðja um kirkjur vilji ekki sjúkrahús? f ræðu sinni ræddi prestur einn ig um það, að öll þörfnuðumst við trúar, og sízt Skal það ve- fengt hér. Nú hef ég fyrir mitt leyti ekk ert á móti kiifcjubyggingum, svo ótrúlegt sem það er, af því að ég hefi verulegan áhuga á fram gangi sjúkrahússmálanna. En eftir að hafa hlýtt á þessa ræðu prests ins, þá verður mér á að spyrja: Er trúin fyrst ög fremst og ein- vörðungu sótt í kirkjurnar nú á dögum — og ef sú trú, sem þang að er sótt, glæðir efcki verulega áhuga manna á líknarmálum, þar á meðal nauðsynlegum sjúkra- hússbyggingum, (því að engan veit ég hafa beðið um sjúkrahús umfram þarfir, hvort sem hann er með eða móti kirkjubygging- um), er það þá kristin trú, sem þar á í hlut? Gekk efcki sjálfur Kristur um og læknaði sjúka, jafnframt því sem hann kenndi og sagði dæmi- sögur, þar á meðal söguna um Misfcunnsama Samverjann? Sjálf- ur lagði presturinn út af einni „lækningu" Krists í fyrrnefndri ræðu. Ekki minnist ég þess, að Kristur hafi beitt sér fyrir bygg- ingu samfcunduhúsa né boðið sín- um lærisveinum, að þeir skyldu íburðarmiklar kirfcjur reisa, hvar í hans kenning skyldi boðuð af sérlærðum prestum. Hins vegar lagði Kristur áherzlu á að lækna, líkna og hugga, hvar sem þess gerðist þörf og sagði: „Það, sem þér gjörið einum af mínum minnstu bræðrum, það gjörið þið mér.“ f prédifcun sinni ræddi prestur um nauðsyn þess að vinna að bættum hollustuháttum og auk- inni heilsuvernd. Um það geta áreiðanlega allir verið honum satn mála. En meðan hvorki lækn.ir né prestar kunna svo góð sfcil á heilsuvernd og hollustuháttum, að komið verði í veg fyrir sjúk- dóma — að ekki sé talað um slys og afleiðingar þeirra, * þá vil ég ítrefca það, að óg þekki engan, sem hefur beðið um sjúfcra hús umfram núverandi þarfir — þvert á móti er tilfinnanlegur skortur sjúfcrarúma, bæði fyrir þá, sem þarfnast skurðaðgerða, lyf læknismeðferðar, taugasjúklinga og öryrfcja, svo að nofckuð sé nefnt. Það liggur því við, að manni finnist orð prestsins í ræðunni, ef marka má, minna ögn á afstöðu prestsins og Levftans, sem gengu framhjá særða mann- inum í sögunni um Samverjann miskunnsama. Sumir segja, að kirkjiu*nar okk ar standi hálftómar, flesta venju- lega helgidaga. Ekki skal ég dæma um það, en hitt veit ég, að sjúkrahúsin standa ekki hálf- tóm — þau eru yfirfull og víða mörg hundruð manns á biðlista. Og margir okfcar eldri lækna hafa lagt á sig næstum ofurmannlegt erfiði, oft við meira og minna ófullnægjandi aðstæður til að hjálpa þeim sjúku. Er þeirra starf minni guðsþjónusta en starf presrtsins í kirkjunni? Sem betur fer hygg ég, að af- staða presta almennt til sjúkrahús mála sé mjög jáfcvæð, og ber sérstafclega að þakka biskupi þá skilningsríkiu og þörfu ráðstöfun að vígja sérstakan prest erlendis, sem hefur það að aðalstarfi að greiða götu sjúklinga, sem þang að leita, og aðstoða þá á allan hátt. Veit sá einn, sem reynt hef- ur, hversu ómetanlegt er að eiga þann afbragðsmann í þeirri stöðu .Slíbt starf er sannarlega kristindómur og prédikun í \erki. Ég minnist þess, að eitt sinn kom ung, eiskuleg kona inn á stofuna til okkar á Landspítalan um f fylgd með lærðri hjúkrunar konu. Þessi unga kona var að læra að gefa sprautur, því að þau hjónin voru að leggja af stað sem kristniboðar til Afrífcu inn an skamms. Og þau kynntu sér víst allt það varðandi hjúlkrun og slysahjálp, sem þau framast gátu. Enda munu trúboðar yfirleitt vera að meira eða minna leyti Jæfcnar, kennarar og hjúkrunarkonur, sem reisa bœði sjúkrahús og sfcóla meðal hinna innbornu ___ auk fcirkna. Þess vegna langar mig að lokum til að benda fyrrnefndum presti á orð Albérts Schweitzer, mannvinarins og trúboðans al- kunna: „Ég vildi verða læfcnir til þess að geta starfað án þess að prédifca nokfcuð. Árurn saman hafði ég ausið úr orðabelg rnín- um. Ég hafði með gleði innt af höndum köllun guðfræðifcennar- ans. En ég gat ekki hugsað mér hið nýja starf sam prédiJcun um trú fcærleifcans, heldur sem beina framkvæmd hennar." Ég bið nú umræddan prest að íhuga þessi orð og það með, hvort honum finnst fyrrgreind prédifc- un hans í anda þeirra. Mér er sagt, að prestur þessi sé val- menni og drengur hinn bezti f hvívetna. Þess vegna væati ég þess, að hann lrynni sér núverandi ástand sjúkra og örkumla dá- lítið betur en hann virðist hafa giert miðað við umimœli hans í ræðunni, sem ótvfrætt gefa í skyn, að beðið hafi verið um | sjúkrahús umfram þarfir og það geri þeir, sem efcfci vilja kirkjur. Slífct er mikill missfcilningur, og því verður mér á að spyrja: Eru kirkjuræður sem þessi sá kær- Ieiksboðskapur, sem staðfestir kristna trú í verki? ___________Útvarpshlustandl. Fermingar Fermingarbörn í Setbergskirkju Grundarfirði, hvitasunnudag 29. maí. Drengir: Arni Halldórsson. Hrannarstíg 4 Bergur Sigurvinsson, Nesvegi 7. Hermann Breiðfjörð Jóhannesson, Grundargötu 19. Páll Guðfinnur Guðmundsson, Grundargötu 18. Pálmar Einarsson, Grundarg. 15 Þráinn Nóason, Vindási, Eyrarsv. Alda Sæunn Björnsd. Grundarg, 9 Agústa Hinriksd., Borgarbr. 6. Ásta Jerimíasd., Grundarg. 44. Elínbjörg Kristjánsd., Grundarg. 28. Pramhalrt = -iis [5

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.