Vísir - 21.12.1974, Blaðsíða 1
vism
64. árg. — Laugardagur 21. desember 1974. — 259. tbl.
Utandyra og
bjargaðist úr
snjóflóðinu
— baksíða
Hœttu við
að senda
hjólpargögnin
— baksíða
Sjónarvottur:
Þetta var
eins og
stormsveipur
— baksíða
SNJOFLOÐIN A NESKAUPSTAÐ:
ASTANDIÐ KL. EITT I NOTT:
NIU MANNS LÁTNIR, -
FJÖGURRA [R SAKNAÐ
Niu iik höfðu fundizt f
snjóflóðinu á Neskaup-
stað, þegar Visir fór i
prentun i nótt. | Þrir
höfðu fundizt lifs og
voru komnir á sjúkra-
hús, en fjögurra var
ennþá saknað.
Af þeim, sem fórust fundust
tveir i síldarbræðslunni, einn I
bíl, sem barst í sjóinn, og tveir i
frystihúsi, sem sópaðist fram að
sjó og liggur mölbrotið I
fjörunni.
Fjögurra var enn saknað. Þar
af var einn að vinna við jarðýtu,
sem stóð hjá bflaverkstæði, sem
varð fyrir snjóskriðunni, einn
var i bflnum, sem sópaðist 60
metra fram I sjó, einn var i
sildarbræðslunni og einn I fisk-
vinnslustöðinni.
Það var rétt fyrir klukkan tvö
i gær, að snjóflóð skall á
húsunum innarlega i kaup-
staðnum. Flóðið náði frá húsinu
Bjargi, sem stendur uppi af
mjölgeymslunni, en hún er i
framhaldi af sfldarverksmiðj-
unni, og austur að nýju fiskmót-
tökunni. öll mannvirki, sem
stóöu ofan við bræðsluna,
sópuðust fram á hana, þar með
taldir þrir tómir lýsisgeymar.
Svartoliugeymir með 8-900
tonnum af svartoliu fluttist
einnig fram, og lak olian úr
honum i sjóinn.
Annað snjóflóð
i kjölfarið
Um tuttugu minútum siðar
skall annað snjóflóð á byggðinni
nokkru austar. Lenti það meðal
annars á verkstæði Bifreiða-
þjónustunnar, Steypustöð Gylfa
Gunnarssonar og ibúðarhúsinu,
sem fyrr er frá sagt, svo og
bflnum, sem i vor tveir menn.
A milli flóðanna eru tvö
ibúöarhús, sem sluppu, svo og
fjárhús.
Samanlagt var svæði beggja
snjóskriðanna frá Bjargi að
svokölluðu Shellporti, á að gizka
6-800 metra breitt.
Það var lán i óláni, að engin
vinna var i fiskvinnslu-
stöðvunum önnur en vélaeftirlit,
þegar óhappið dundi yfir, þar
sem lokið var á fimmtudag að
vinna að þeim fiski, sem fyrir
lá. Hefði full vinna verið þar,
hefðu tugir manna lent i flóðinu.
Allir verkfærir
menn til hjálpar
Almannavernd Neskaup-
staöar kom saman þegar
FÓRU TIL HJÁLPAR OG SLUPPU UNDAN SNJÓFLÓÐINU
Menn, sem voru við vinnu á
verkstæði Bifreiöaþjónustunnar
á Neskaupstað, urðu þess varir,
er fyrra flóðið rann. Þeir flýttu
sér af stað til þess að hjálpa, en
einn þeirra sneri við til að koma
i gang jarðýtu, er stóð við verk-
stæðið. Hans var enn saknað,
siðast er til fréttist, en hinir
sluppu, þegar siðara flóðið rann
og tók verkstæðið með sér.
Einn maður var að vinna á
efri hæð fiskvinnslustöðvar-
innar, en er skriöan féll yfir, fór
efri hæðin gersamlega af.
Maðurinn sópaðist undan
flóðinu og slapp við meiri háttar
áföll.
Fleiri munu einnig hafa
sloppið naumlega undan
þessum hamförum.
—SH
Hásiö sem merkt er meft ðrinni hsgra megin á myndlnni er Bjarg, sem markar vestari mörk fyrra snjófióftsins. Flóftift náði að hrifa
meðsér geymana þrjá, sem sjást fremst hægra megin á myndinni, og má af þvi marka breidd þess. Siftara flóöið sem rann nær en
myndin sýnir, gekk um 60 metra I sjó fram, en hið fyrra mun Iengra að sögn sjónarvotta. — Ljósm. Mats Vibe-Lund.
kunnugt varð um slysið, og
skipulagði björgunarstarfið.
Allir verkfærir menn söfnuðust
saman til hjálpar og hófu þegar
leit að hinum týndu. Ekki var
strax ljóst, hve margir hefðu
lent i flóðinu, þvi að fleiri höfðu
verið á ferli á þessu svæði en
voru þar að vinnu eða á heim-
ilum.
Þegar Visir hafði samband
við Neskaupstað siðast I nótt,
voru allir verkfærir menn við
leitarstarfið, sem ekki voru
orðnir úrvinda af þreytu. Von
var á 50-60 manna liði frá Eski-
firði til að leysa þá af, og öðru
eins liði frá Reyðarfirði til að
leysa Eskfirðingana af með
morgninum.
Almannavarnaráð fékk i gær
afnot af írafossi, skipi
Eimskipafélagsins, sem hélt til
Reyðarfjarðar að sækja vinnu-
vélar, ljósavélar og mannhjálp.
Meðal annars voru
snjóruðningstæki send ofan af
Egilsstöðum til Reyðarfjarðar I
veg fyrir Irafoss. Þá hélt Selfoss
einnig frá Akureyri til Neskáup-
staðar með ljósavélar. Flóðið
sleit einnig rafmagnslinur og er
mikill hluti Neskaupstaðar raf-
magnslaus. Selfoss á einnig að
taka fiskinn úr frystihúsinu, þar
sem vélar þess eyðilögðust, og
fara með hann i geymslu annars
staðar.
Flutt úr húsum
við efstu göturnar
Þá var fólk flutt i gærkvöldi úr
öllum húsum við efstu götu
bæjarins. Var þetta varúðar-
ráðstöfun, ef til frekari flóða
kæmi.
Almannavarnir gerðu i gær
ráðstafanir til þess að flugvél
flygi austur með hjálparbúnað.
Meðal annars var talin þörf á
gasgrimum, vegna þess að leki
hafði komið aö ammoniaks-
geymum i frystihúsinu. Guöjón
Petersen hjá Almannavörnum
sagði Visi I nótt, að sú hætta
væri ekki lengur fyrir hendi, þar
sem ammoniakið heföi rokið og
væri ekki lengur hættulegt. Hætt
var við að senda vélina af ótta
viö, að þrýstingur frá henni
kæmi nýjum skriðum af stað.
—SH