Vísir - 21.01.1975, Qupperneq 4
4
Visir. Þriöjudagur 21. janúar 1975.
Ceir R. Andersen: ^|||r $f reymO
í opinbera öryggið
Sjálfstæöur hugsunarháttur
og siöferöisstyrkur, aö ckki sé
talaö um heilbrigöa sjálfs-
bjargarviöleitni, er augljóslega
á hrööu undanhaldi i þessu
þjóöfélagi, og viröast fáir und-
anskildir. Einstaklingar, stjórn
endur fyrirtækja, félagshópar
og launþegasamtök hafa sam-
einazt á þessu undanhaldi, og
telja, aö eina öryggiö, sem vert
sé aö sækjast eftir sé hiö opin-
bera öryggi”, þ.e. aö komast á
framfæri hins opinbera, aö
mestu eöa öllu leyti.
Dæmi eru jafnvel um, að
menn hafa lagt niður arðbæran
og áhugaverðan atvinnurekst-
ur, til þess að komast i starf á
vegum hins opinbera, og um
aðra, sem hafa hreinlega lagt
aröbær fyrirtæki upp i hendurn-
ar á rikinu, með þvi tilskildu, að
þeir fengju að sitja i stjórn
fyrirtækisins ákveðinn tima,
eða ævilangt. Hafa þessir menn
hrósað happi yfir þvi aö þurfa
ekki, á eigin ábyrgð að „standa
i” rekstri, eins og þeir orða það,
en telja sig hafa himin höndum
tekið með þvi að komast á
framfæri hins opinbera.
Anægjan yfir þvi að vera
kominn til hins opinbera, og
losna við eigin ábyrgð, kemur
þó ekki i veg fyrir, að þeir sam-
einist öðrum i kröfugerðum sin-
um á hendur rikinu um launa-
hækkanir.
Tilætlunarsemi
— Ragmennska.
Tilætlunarsemi sú, sem nú er
oröin landlæg, varðandi kröfur
til hins opinbera, birtast ekki
einasta i formi kröfugerða um
launahækkanir, styrki og lán,
heldur, og ekki siður er hún
fólgin I aðgerðum einstakra fé-
lagshópa og ráðamanna þeirra,
sem þykjast komnir I þá aðstöðu
að vera einráðir um ákvarðana-
töku, eða einstakra ráðamanna
innan rikisbáknsins, sem telja
sig sjálfráða um aðgerðir, og
viröa að vettugi viðtekna hefö,
eöa snúa við hugtakinu um regl-
ur og undantekningar, þegar
þeim þykir henta.
Dæmigerð eru mótmæli
Félags Isl. bifreiðaeigenda til
stjórnvalda við hverja
benzinhækkun, sem gerö er oft á
ári. Ekki er vitað til þess, að i
mótmælunum felist neitt annað
en það, að óska eftir „opinberri
greinargerð” um málið, og þar
með búið, málið þar með
afgreitt.
Hvers vegna er aldrei skorað
á bifreiðaeigendur sjálfa að
mótmæla benzinhækkunum
með þvi að draga úr kaupum á
þvi, jafnvel með skyndiákvörð-
unum um samdrátt i notkun i
2—3 daga, eða vikusparnað.
Þetta myndi verða miklum mun
áhrifarikara, og færa benzin-
eyöslu niður, og verð sömuleið-
is, þegar til lengdar lætur,
þannig, að meira aðhald yrði
með næstu beiðni um hækkanir,
og til stóraukins sparnaðar fyrir
bifreiðaeigendur og þjóðarbúið i
heild, vegna minni gjaldeyris-
eyðslu hins opinbera.
Hverjum dettur i hug að rikið
hafi frumkvæði um lækkun
verðs, sem það sjálft er nýbúið
að heimila, — verður ekki
frumkvæðið að koma frá fólkiiíu
sjálfu, hinum almenna neyt-
anda, til þess að hið opinbera
taki mótmælin alvarlega og nýti
siöferðisstyrk fólksins i bar-
áttunni gegn verðhækkunum?
Forstöðumenn Rikisútvarps-
ins hafa nýlega boðað, að hækka
þurfi afnotagjöld útvarps um
50%, að öðrum kosti verði að
skera niður dagskrártimann.
Hvað er sjálfsagðara en skera
núverandi útsendingartima nið-
ur, ef endar nást ekki saman:
Hvaöa tilgangi þjónar útvarps-
dagskrá milli kl. 10—12 f.h. og
milli kl. 2—6 siðdegis? Senni-
lega myndu flestir landsmenn
telja slika ráðstöfun sjálfsagð-
ari af hendi forráðamanna út-
varpsins, heldur en gera kröfu
um aukin afnotagjöld eða styrk-
veitingu til rekstursins. En hér
kemur tilætlunarsemin glögg-
lega fram, með þvi að setja
fremur kröfuna um hækkun af-
notagjalda fram, heldur en hug-
mynd um samdrátt i útgjöldum
stofnunarinnar.
Nú hafa afnotagjöld pósts og
sima verið hækkuð, og hér getur
almenningur litlum' vörnum
viðkomið, nema hreinlega segja
upp afnotum af simtækjum sin-
um.
Fyrrum var það venja, að
ýmsir starfsmenn á framfæri
hins opinbera fengju léð simtól
endurgjaldslaust. Hvað skyldi
það hafa kostað i töpuðum tekj-
um að halda þvi tilætlunarsama
kerfi i horfinu, — eða er angi af
þessu kerfi e.t.v. enn við lýöi?
Viða má skera niður útgjöld
hins opinbera, og er það skylda
forsvarsmanna hinna ýmsu
stofnana rikisins og borgar-
innar að koma fram með hug-
myndir að auknum sparnaði.
Það er ráðamanna þjóðfélags-
ins aö gefa almenningi fordæmi
um sparnað með þvi að standa á
móti kröfum um launa- og verð-
hækkanir.
Sá sparnaður og sá lifs-
„standard”, sem hér mun þurfa
að taka upp er ekki meiri en svo
eða lægri en sá, sem velflestar
vesturlandaþjóðir hafa búið við,
og hafa þær þjóðir þó verið táld
ar til þeirra. sem bezt eru settar
varðandi afkomu og lifsgæði öll.
Það form þjóðarbúskapar, sem
við tslendingar höfum búið viö
er langt umfram það er annars
staðar hefur þekkzt, bæði hvað
varðar almenna eyðslu, en ekki
siður umframeyðslu.
Enn rúllar kerfið, en sýnir þó
augljós merki hrörnunar. Ekki
fer hjá þvi, að þegar ráðgerð er
lækkun á rikisútgjöldum á árinu
1975 i hlutfalli við þjóðarfram-
leiðslu frá þvi sem var á sl. ári,
þurfi aðhaldssemi hins opinbera
jafnt og hins almenna borgara
að koma til i meiri mæli en áður
hefur þekkzt hérlendis um
áratuga skeið.
Tilætlunarsemi við hið opin-
bera hlýtur að verða að mæta
með öörum hætti en stanzlaus-
um eftirgjöfum og hreinni
ragmennsku þeirra, er kosnir
eru til þess að halda um
stjórnartaumana, ef hið suður-
ameriska ástand I þjóðarbúskap
á Islandi á ekki að halda áfram
að gerjast.
Vanþóknun sinni á þessu
ástandi lýsir almenningur bezt
með þvi að hafna forystu sjálf-
byrgingslegra verkalýðsfor-
kólfa, en taka upp baráttu fyrir
auknum sparnaði og niður-
skuröi útgjalda, hver fyrir sig,
eða með samtökum um skyndi-
ráðstafanir I þessum efnum,
sem myndi verða forleikur
samspils almenning og rikis-
valds gegn aðsteðjandi vá.
£p/UnttEbR í morgun útlöndí morgun
Hartfíng hœttur viðrœðum
Poul Hartling for-
sætisráðherra Dana
hefur gefizt upp i bili við
að fá aðra flokka til
samstarfs við frjáls-
lynda i minnihluta
stjórn hans. Hefur
Hartling átt viðræður
við fulltrúa hinna
flokkanna frá þvi urslit
kosninganna 9. janúar
lágu fyrir.
Siöustu tilraunir til að fá sósial
demókrata Anker Jörgensens til
samstarfs — en þeir eru stærsti
flokkurinn á þingi — fóru út um
þúfur vegna ágreinings um,
hvernig standa skuli að þvi að
leysa efnahagsvanda þjóðar-
innar.
Er Hartling óhagganlegur i
þeim ásetningi sinum að ætla að
draga úr útgjöldum þess opin-
bera, frysta laun i heilt ár og setja
á verðstöðvun.
Þjóðþingið kemur nú saman á
fimmtudag að loknu hléi.
Anker Jörgensen heldur þvi enn
fram, eins og hann gerði strax
eftir kosningarnar, að Hartling
eigi að segja af sér og fela eigi
öðrum að reyna stjórnarmyndun.
Hefur hann ekki viljað fallast á
tillögur Hartlings i efnahags-
málunum og segist sjálfur munu
koma með nýjar tillögur.
Sigtúni fimmtudaginn 23. jan. kl. 8.30
Spilaðar verða 25 umferðir
VINNINGAR M.A: Missið ekki af
3 utanlandsferðir einstœðu bingói
Auk þess 22 aðrir
. stórkostlegir vinningar Kynnir Jón Asgeirssi
Hver aðgöngumiði gildir sem Happdrœttismiði
Aðgangseyrir kr. 200