Vísir - 21.02.1975, Qupperneq 1
VÍSIR
65. árg. Föstudagur 21. febrúar 1975 — 44. tbl.
„Keppi aldrei
fyrirSKÍ"
framar
segir einn bexti
skíðamaðurinn okkar
ÍÞRÓTTIR í OPNU
Fá þeir loks
Vanadísina á
Selfoss?
— bls. 3
•
Nám að
lokinni
vinnu?
— bls. 3
•
Mannabœtur, og
hunda:
20 ÞÚSUND
FYRIR
HUNDINN —
5 ÞÚS. FYRIR
LÖGREGLU-
ÞJÓNINN
— baksíða
•
Seljum
Hollendingum
nautakjötið
okkar á
68,78 krónur
— baksíða
Lítið liggur eftir þing Norðurlandaráðs
„Yeldi ráðherra heftir
athafnafrelsi ráðsins"
— segir forseti þess, Ragnhildur Helgadóttir
,,Ráðherrarnir eru of
valdamiklir í Norður-
landaráði, og þeir hefta at-
hafnafrelsi ráðsins," sagði
Ragnhildur Helgadóttir,
forseti ráðsins, í gær að
loknu þingi Norðurlanda-
ráðs.
Ragnhildur sagði, að
þingmenn ættu örðugt upp-
dráttar vegna ofurvalds
ráðherra og embættis-
manna.
Þingmenn ættu að knýja fram
meira þingræði og auka völd sin.
Sex daga þingi ráðsins lauk i
gær. Það skilur ekki mikiö eftir
sig. Engin ákvörðun var tekin um
tvö aðalmálin, stofnun fjár-
festingarbanka Norðurlanda og
hvernig norsk olia og ónytjuð
vatnsorka á Islandi eiga að koma
Norðurlöndum til góða i orku-
kreppunni.
Ráðið samþykkti, að menn-
ingarsjóður Norðurlanda skuli
einnig styrkja iþróttafélög.
Samvinna i sjónvarpsmálum
skuli aukin, og islenzka sjónvarp-
ið fái greiðari aðgang að þáttum
frá öðrum Norðurlöndum.
—HH
Tveir heimsfrœgir í innkaupaferð í gœr -baksíða
Lagarfossvirkjun í
gang eftir helgi?
íshaft í
aðrennslis-
skurði
tefur
„Við erum að berjast við is-
haft i aðrennslisskurðinum að
Lagarfossvirkjun,” sagði Kári
Einarsson, verkfræðingur hjá
Rafmagnsveitum rikisins i
gær. „Við höfum ekki getað
haft rennsli I honum i vetur
vegna vinnu i stöövarhúsinu,
og i hann hefur safnazt is og
snjór, sem okkur gengur ekki
vel að ná úr.
Við erum þó vongóöir um,
að þetta sé að hafast, og þá
ætti ekkert að vera til fyrir-
stöð.u með, að hægt verði að
hleypa orku frá virkjuninni
inn á kerfiö strax eftir helgina.
Að vfsu er eftir dálitið af
prófunum vegna þess, aö við
höfum ekki haft nóg rennsii að
vélunum, en það sem komið
er, lofar góðu.” —SH
„Fœreyingar eins og
maðkar í smáfiskinum"
segir Auðunn Auðunsson skipstjóri
„Færeyingar eru
eins og maðkar i smá-
fiskinum. Af íslands
hálfu er ekkert eftirlit
með, hve stóran fisk
þeir veiða, en ekki
þýddi fyrir okkur að
koma með þannig smá-
fisk til lands,” sagði
Auðunn Auðunsson
skipstjóri á
Framnesinu í viðtali
við blaðið.
Auðunn kvaðst vilja, að þetta
kæmi fram vegna samninga við
Færeyinga, sem nú standa.
,,,Þeir hafa stóraukið saltfisk-
sóknina eftir útfærsluna,” sagði
hann. „Þeir hafa meðal annars
bætt við skipi, sem kom i gagnið
eftir útfærsluna i 50 milur.
Skipin geta veitt 750 tonn. Þau
eru allt upp i þrjá mánuði I
veiðiferð, mun lengur en verk-
smiðjuskipin. Mér finnst þetta
ósmekklegt af Færeyingum,
þótt þeir séu alls góðs mak-
legir.”
„Þeir hafa haft yfirburði yfir
okkur i ýmissi nýjustu
veiðitækni.” ttví
„Uppsagnir hljóta að
verða síðasta úrrœðið"
— segir starfsmannastjóri Rafveitunnar
„Starfsfólkinu hér hjá Raf-
magnsveitu Reykjavikur finnst
of snemmt að óttast uppsagnir.
Enn er haldið i vonina um það,
aö borginni takist að leysa fjár-
hagserfiðleika Rafmagnsveit-
unnar. Uppsagnir starfsfólks og
iniðurskurður framkvæmda
hlýtur að vera síðasta úrræðið,
sem gripið yrði til,” sagði Jón
Björn Helgason, starfsmanna-
stjóri, I viðtali við VIsi i morgun.
Eins og fram kom i frétt i Visi
i gær, hefur siversnandi fjár-
hagsafkoma Rafmagnsveitunn-
ar verið til umræðu á fundum
borgarráðs. Hefur þar m.a. ver-
ið rætt um að rikið endurgreiddi
borginni af áður innheimtum
gjöldum og felldi niður gjöld til
að létta undir með borginni.
Haföi Albert Guðmundsson
orð á þvi á siöasta fundi borgar-
ráðs, að hann óttaðist samdrátt
i mikilvægum framkvæmdum
Rafmagnsveitunnar og uppsögn
starfsfólks, ef ekki yrði úr bætt.
Nú munu vera starfandi hjá
Rafmagnsveitunni 265 manns.
Samkvæmt útreikningum þyrfti
að segja upp 48 manns ef engin
lausn fæst á fjárhagsvandanum.
„Enn er ekkert farið að ræða
um það, hverjir það væru, sem
þyrftu að fara,” sagöi starfs-
mannastjórinn. Hann kvað það
þó augljóst, að ef ekki fengist fé
til framkvæmda þyrfti Raf-
magnsveitan ekki á eins mörg-
um að halda.
Vegna fyrirsagnar á frétt i
blaðinu i gær er rétt að undir-
strika, að borgin litur ekki svo
á, að hún sé að biðja rikið að
„hlaupa undir bagga” heldur að
rikið leggi ekki óréttmætar
byrðar á borgina.
—ÞJM