Vísir - 08.04.1975, Blaðsíða 3
Visir. Þriðjudagur 8. apríl 1975.
3
lögreglumenn ÆTLUÐU Á SJÓ, -
XíL LENTU í FANGELSI
Það voru þrir ungir
og árvökulir iögreglu-
menn, sem sviptu tvo
bilþjófa þeirri „sælu”
að leggja upp i Grinda-
víkurakstur á stolnum
Volkswagenbil aðfara-
nótt sunnudagsins. Um
kvöldið komu lögreglu-
mennirnir að veitinga-
sölunni við Umferðar-
miðstöðina. Eitthvað
sáu þeir ankannalegt
við fólksbilinn og gáfu
þeir sig á tal við öku-
mann.
Ekki hafði sá ökuskirteini
meðferöis, eins og ökumönnum
ber skylda til, hafði gleymt því I
jakka sinum heima, sagði hann.
Var ökumaður næst spurður
hvort billinn væri bilaleigubill.
Kvaö hann það rétt til getið. Var
hann þá beöinn að framvisa
samningi, sem slikri leigu fylgir
jafnan. Ekki gat ökumaðurinn
sýnt neitt slikt.
Fannst lögreglunni framferði
ökumanns og skýringar allar
fremur furðulegar og var nú
ákveðið að halda til lögreglu-
stöðvarinnar i miöborginni, þar
sem lögreglumennirnir hafa
bækistöð. Þar kom strax i ljós
að bilnum hafði verið stolið frá
húsi einu i Stórholti, aðeins 15
minútum áður. Játuðu bilþjóf-
arnir þegar á sig sök, og var
ökumaðurinn fluttur i blóö-
prufu.
Annar bilþjófanna hafði á sér
hegningarvottorð sitt, sem var
reyndar ekki upp á það allra
bezta. Hafði hann farið einkar
fagmannlega að þvi að finna
réttu þræöina til að tengja
saman og ræsa bilinn, en það er
á færi þeirra einna, sem taka
ófrjálsri hendi annarra manna
ökutæki, eöa þá viðgeröar-
manna.
Höfðu þjófarnir ætlaö aö kom-
ast á sem ódýrastan og fljótleg-
astan hátt suður I Grindavik,
þar sem þeir voru I skipsrúmi.
Þeirra för endaði að sjálfsögðu i
fangaklefa, og um morguninn
fékk rannsóknarlögreglan leyst
sakamál I hendurnar frá götu-
lögreglunni.
Ekki var öll nótt úti hjá lög-
reglumönnunum þremur. Þeir
náðu i 5 menn þá um nóttina,
sem allir voru grunaðir um
ölvun viö akstur. Einn þeirra
missir ökuskirteinið ævilangt,
komi i ljós að hann hafi fariö
yfir mörkin.
—JBP—
Samið um þotuflug fyrir 1200 manns:
30 MILLJÓNIR KRÓNA
KOSTAR VESTURFÖRIN
Þjóöræknisfélögin á Akureyri og
i Reykjavik hafa undirritað 30
milljón króna samning við flug-
félagið um flutninginn á farþeg-
unum, sem halda vestur til að
halda upp á 100 ára afmæli land-
náms Islendinga vestra. Hátiðin
fer fram i Gimli 2.-4. ágúst.
„Við erum ekkert smeykir um
aðmenngangiúrskaftinu”, sagði
séra Ólafur Skúlason, annar aðal-
fararstjóri hópsins ásamt Gisla
Guðmundssyni. „Staðreyndin er
sú, að það biöa tveir eftir hverju
einu plássi sem kann aö losna”.
meðan á hátiðinni stendur muni
um 30 þúsund bilar koma til
Gimli, og hátiðagestir muni
skipta tugum þúsunda.
Islenzku gestirnir fá inni á
einkaheimilum, sumarhúsum og
hótelum i Manitoba.
—JBP—
Það var öllu meira fyrirtæki
fyrir fyrstu islenzku landnemana
að flytja búferlum frá Fróni til
Vesturheims en ferðalag 1200 is-
lendinga verður i sumar, er þeir
heimsækja islandsbyggðir I
Vesturheimi. Þá kostaði slik ferð
margra vikna barning i hauga-
brimi, i sumar verður þaö örfárra
tima þotuflug með þotum Air Vik-
ing.
$ KAUPFÉLAGIÐ
Auglýsingadeildin
Mikill undirbúningur hefur far- Samningar um flutning 1200 farþega tii Kanada og heim aftur undir-
ið fram vegna heimsóknar Is- ritaðir. Guðni Þórðarson, forstjóri Air Viking, séra Bragi Friðriksson,
lendinganna, bæði vestan hafs og forseti Þjóðræknisfélagsins, séra ólafur Skúlason, gjaldkeri félagsins,
hér á landi. Er gert ráð fyrir að og Gunnar Þorvaldsson, sölustjóri flugfélagsins.
Pappírinn
hœkkar
Áskriftarverð dag-
blaðanna hækkar frá
og með april i kr. 700
á mánuði, en lausa-
söluverðið hækkar i
kr. 40. Hækkun þessi
er eingöngu vegna
undanfarandi hækk-
unar á pappir.
EINAR
( KREML
Einar Agústsson, utanrikis-
ráðherra, er nú staddur i opin-
berri hcimsókn I Sovétrikjun-
um, svo sein kunnugt er. Meö-
fylgjandi mynd er af Einari I
Kreml ásamt konu sinni, Þór-
unni Sigurðardóttur, og hinum
nýskipaða ambassador Sovét-
ríkjanna á tslandi, Georgij
Farafonov.
SENCOR
SENCOR Model
S-1030
Sambyggt útvarp &
8 rúsa stereo segulband
FMbylgja, miðbylgja, langbylgja
2x5 wött — 12 volt
Mjög nœmt ó erlendar stöðvar
Tíðnisvið 50-8000HZ.Stœrð 50x178x158 mm
Festingar undir og í mœlaborð. 1 órs óbyrgð.
Verð kr. 33.535,00. Viðgerðir & varahlutir.
Póstsendum
HUMillBR
\j Sími (96)23626 Glerárgötu 32 Akureyri