Vísir


Vísir - 13.06.1975, Qupperneq 1

Vísir - 13.06.1975, Qupperneq 1
VISIR 65. árg. —Föstudagur 13. júni 1975—131. tbl. Ánœgjulegar móttökur — sagði konungur, sem lýkur heimsókn til íslands í dag — baksíða Verkafólk tekið tali fyrir félagsfund í morgun: FLESTIR ÓÁNÆGÐIR — en búast samt við að samþykkja samningana „Það eru allir jafnnær þrátt fyrir þetta smáræði, sem um hefur verið samið. Ég samþykki ekki þessa samninga. En ég geri ekki ráð fyrir að greiða heldur atkvæði gegn þeim. Þetta verður samþykkt. Það er neyðarbrauð, en það hefur enginn efni á þvi að fara i verkfall,” sagðióskar Gunnlaugs- son, starfsmaður hjá Eimskip, þegar blm. Vísis tók hann tali i Austurbæjarbiói skömmu áður en félagsfundur Dagsbrúnar hófst þar klukkan tiu i morgun. Óskar gat ekki duliö óánægju sina meö þessa samninga. Þaö gátu þeir ekki heldur, Vilhjálmur Guöbjörnsson og Hafsteinn Ar- sælsson. Þeir eru báöir vörubilstjórar og vinna hjá Aöal- braut. Þeir sögöu: „Þetta er i rauninni ekkert annaö en samningar um þaö, sem viö áttum aö fá 1. júni. Fyrir okkur sem vorum búnir aö fá lág- launabæturnar þýöa þessir samningar 21 krónu hækkun á timann. Þaö er ákaflega litilfjör- leg kauphækkun eftir allt sem á undan er gengið.” Þeir félagarnir sögöust ekki búast við ööru en aö þessir samningar yröu viöast samþykktir. „Þaö er aumt til þess aö vita,” sögöu þeir, „en staöreyndin er bara þvi miður sú, aö þaö hefur enginn efni á aö fara i verkfall.” Fulloröinn verkamaöur,sem þarna stóð nærri, vék sér'nú aö blaöamanninum og lýsti skoðun sinni: „Þaö fæst ekkert meö svona mjálmi viö samninga- boröiö. Það eina, sem atvinnu- rekendi-r viröast skilja eru verk- föll. Þaö veröur aö sýna þeim hörku.” Þegar fundur Dagsbrúnar hófst klukkan tiu var nær orðinn hús- fyllir. Fundur hjá Iöju hófst i Alþýðuhússkjallaranum klukkan hálfellefu. Þar var allt orðið fullt út úr dyrum strax upp úr tiu. Þar var sama hljóöiö i mönnum og I Austurbæjarbiói. Allir þeir, sem blm. Visis haföi tal af lýstu óánægju sinni meö þessa samninga — en geröu samt ráö fyrir að þeir yrðu samþykktir til aö komast hjá enn meiri skakka- föllum, sem hljótast mundi af vinnutapi. Konur fjölmenntu á fundinn og ein þeirra komst svo aö oröi i viötali við Visi: „Ég hafði gert mér vonir um allt að þvi helmingi hærri kauphækkun en samningarnir bjóða upp á. Þetta er mjög óveruleg hækkun. Satt aö segja hélt ég, að verkalýðsforystan mundi ekki þora aö samþykkja svona rýrar kjarabætur eftir að hafa fundiö óánægjuna, sem bráðabirgðasamkomulagið haföi i för með sér.” -ÞJM. Hafsteinn Ársælsson. — Ljósm.: B.j. Bj. Vilhjálmur Guöbjörnsson. „Laun min hækka um 21 krónu á timann.” Loksins, loksins... Snemma I morgun var loks hægt aö setjast niöur til aö undirrita samningana. Hér er þaö Björn Jónsson, forseti ASl, sem setur nafn sitt á samkomulagiö. Sáttasemjararnir Guöluugur Þor- valdsson og Torfi Hjartarson horfa á meö sýnilegri veiþóknun. (Ljósmynd Visis BG> íslenzku piltunum Hvað þýða samningarnir í raun? Hvað þýða samningarnir í raun? Fyrir þá, sem minnst fá, þýðir þetta 5.300 króna hækkun frá samnings- degi. En fyrir þá sem fá mest út úr samningunum þýða þeir 10.200 króna hækkun. Við þetta bætast svo í báðum tilvikum kr. 2.200 1. október. MINNST 5.300,- MEST 10.200 KR. Eru það láglaunabæturnar, sem gera þann mismun svo stóran, sem að ofan greinir, en samningarnir fela það i sér, að launajöfnunarbætur, kr. 3.500, sem voru greiddar óskertar á allt aö 50 þúsund króna mánaðarlaun i október sl„ skulu frá deginum i dag greiðast óskertar á laun allt að 60 þúsund krónum. Þeir, sem ekki fengu 4.900 króna hækkun með bráða- birgðarsamkomulaginu, sem gert var fyrir rúmum tveim mánuðum, skulu njóta þeirra óskertra frá deginum i dag, en þessar 4.900 krónur voru greidd- ar á laun lægri en 69 þúsund krónur. — ÞJM sleppt úr haldi í Marokkó, — sekt lœkkuð — baksíða óskar Gunnlaugsson: „Allir jafnnær þrátt fyrir þetta.” Steinn á stœrð við handbolta gegnum 2 bílrúður - bls. 4 Þau fljúga heim með konung í dag spjallað við óhöfnina á þotu konungs — bls. 4

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.